Morgunblaðið - 24.04.1985, Side 48

Morgunblaðið - 24.04.1985, Side 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 1985 Jóhann Már Manusson, aðstoðarforstjóri: Kröfur um orkuvinnslu- öryggið réttlætanlegar í ERINDI Jóhanns Más Maríussonar, adstoóarforstjóra Landsvirkjunar, á ársfundi Landsvirkjunar kom m.a. fram, að nú væri um ailverulega umfram- orku að ræða í raforkukerfi landsmanna. Skýringuna væri m.a. að finna í því hve stutt er síðan Hrauneyjafossvirkjun kom í gagnið án þess að nýr stórnot- andi kæmi samtímis og vegna þess að Landsvirkjun hefði lagt í orkuaukandi aðgerðir á Þjórsársvæðinu með Sultartangastíflu og Kvísiaveitu. Einnig hefði aflaukning komið til í Kröflu á sama tíma. Um þetta atriði segir Jóhann jr a$ Hrauneyjafossvirkjun var gangsett. Helstu ástæður fyrir því að í þessar framkvæmdir var ráðist voru eftirfarandi. Meginástæðan var að sjálfsögðu sú að reiknað var með orkuþörf sem gerði þessar framkvæmdir nauðsynlegar, en orkuspárnar hafa ekki gengið eftir eins og áður hefur verið rakið. f öðru lagi hafa ísamál við Búrfell lengi valdið Landsvirkjun áhyggj- um, þar sem möguleiki hefur verið fyrir hendi að ísruðningur gæti lokað fyrir vatnsrennsli til Búr- fellsvirkjunar með mjög alvarleg- um afleiðingum. Því var ráðist í Már m.a.: „Sú umframorkugeta sem nú er í kerfinu og rekja má til Hraun- eyjafossvirkjunar verður að telj- ast mjög eðlileg þar sem allir ættu að gera verið því sammála að sú virkjun var rétt tímasett þar sem hún kom í gagnið þegar orkuskort- ur var orðinn tilfinnanlegur. Nú eftir á séð má deila um það hvort réttmætt hafi verið að auka orkuframboðið með gerð Sultar- tangastíflu, Kvíslaveitu og borun- um og nýjum gufuveitum við Kröflu eins og gert hefur verið eft- gerð Sultartangastíflu en hún þjónaði þeim tvíþætta tilgangi að leysa ísavandamálin við Búrfell og auka orkugetu kerfisins í sam- ræmi við stórminnkaða vatnsþörf til ísskolunar að vetrarlagi. Þá má einnig minna á að ráðist var í gerð stíflunnar í beinu framhaldi af Hrauneyjarfossvirkjun sem m.a. hafði það í för með sér að vinna hélst stöðug á svæðinu og vélar sem notaðar voru við Hrauneyja- foss nýttust vel í verkinu. Var tal- ið að í þessu væri fólgin hag- kvæmni sem annars myndi ekki nást ef verkinu yrði seinkað. í þriðja lagi þótti rétt að dreifa framkvæmdum við Kvíslaveitu á allmörg ár til þess að gera þær framkvæmdir sem jafnastar frá ári til árs með tilheyrandi jafn- vægi i atvinnumálum og sparnaði vegna minnkaðra mannaflatoppa og samfelldrar vinnu." I framhaldi af þessu ræddi Jó- hannes Már um öryggiskröfur Landsvirkjunar og sagði m.a.: „Landsvirkjun stendtír ábyrg fyrir nær allri raforkuframleiðslu þjóð- arinnar sem er slík grundvallar- þjónusta að fyrirtækið verður að hafa vaðið vel fyrir neðan sig í öryggismálum, hvort heldur um er að ræða mannvirkjagerð í virkj- unum og orkuflutningi eða öryggi í vinnslu orkunnar úr vatnsaflinu. Landsvirkjun er ekki siður ljóst en öðrum að í þessu sem öðru verður að gæta hófs, en mat á því hvað langt megi ganga í öryggiskröfum verður þó seint einhlítt. Stjórn og starfsmenn Landsvirkjunar hafa metið það svo, að þær kröfur, sem nú eru gerðar hvað varðar orku- vinnsluöryggið, hafi verið réttlæt- anlegar þegar þær voru teknar upp og verður þeim ekki breytt þar til menn hafa sannfært sig um að aðrar kröfur séu skynsam- legri.“ Fyrirliggjandi í birgðastöð SKIRASIANGA JARN Flokkur (grade) A. DNV-skírteini. Sandblásið og grunnað Fjölbreytni í stærð og þykkt. Skipavinklar Skipaflatjárn SINDRA STALHF Borgartúni 31 sími 27222 Framkvæmda- og rannsóknaráætlun 1985: Upphafleg áætlun lækkuð vegna breyttra aðstæðna NÚGILDANDI framkvæmda- og rannsóknaáætlun Landsvirkjunar fyrir árið 1985 er að fjárhæð alls 954 milljónir króna, sem svarar til 1.118 milljóna króna á verðlagsforsendum frumvarps til lánsfjárlaga fyrir árið 1985. Þessar upplýsingar komu m.a. fram í skýrslu Halldórs Jónatanssonar forstjóra Landsvirkjunar á ársfundi fyrirtækisins. í skýrslunni kemur ennfremur fram, að upphagleg áætlun, sem var að fjárhæð 1.400 milljónir króna miðað við verðlagsforsend- ur haustið 1984, var lækkuð til bráðabirgða í desember um 200 milljónir króna og síðan um 246 milljónir króna til viðbótar í janú- ar sl. Var það gert m.a. með tilliti til fyrirsjáanlegrar lækkunar á orkuspá og óvissu um aukningu orkufreks iðnaðar á þessum ára- tug. Hin nýja áætlun felur það í sér að framkvæmdum þeim sem fyrir- hugaðar voru á þessu ári við fimmta áfanga Kvíslaveitu er frestað um óákveðinn tíma svo og framkvæmdum við stækkun Þór- isvatnsmiðlunar. Hins vegar var ákveðið að bíða með hugsanlega breytingu á tímasetningu Blöndu- virkjunar, þar til að vori, er nán- ari upplýsinga væri að vænta varðandi niðurstöður yfirstand- andi endurskoðunar á gildandi orkuspá svo og að því er snertir það endurmat, sem unnið er að á kröfum varðandi afhendingar- öryggi orku í kerfi Landsvirkjun- ar, auk þess sem horfur hefðu þá væntanlega skýrst hvað varðar möguleika á nýjum orkufrekum iðnaði í náinni framtíð. Hin nýja framkvæmda- og rannsóknaáætlun fyrir árið 1985 sundurliðast sem hér segir (VB = 206, $1 = kr. 38,41): Virkjana- Millj. Millj. framkvæmdir kr. kr. Blönduvirkjun 686,8 Kvíslaveita, 4. áfangi Sigöldu-, Hrauneyja- 176,7 og Sultartangalón 22,3 885,8 Framkvæmdir í rekstri 83^ Rannsóknir Virkjanuannaóknir 33,3 lláspennuiínur 7,3 Almcnnar rannsóknir 38,4 Vertir 70,0 149,0 1.118,0 siGUKMmirw MAZDA 626 er margfaldur verðlaunabíll og metsölubíll á Islandi sem annars staðar. Werð: 626 IX tlatchback 2.0L mA/ökvastýri. Kr. 462.017. Til öryrkja ca kr. 376.017. Áætlun þessi verður enn á ný tekin til endurskoðunar í vor, er afstaða verður tekin til þess hvort til greina komi vegna breyttra að- stæðna að fresta Blönduvirkjun um eitt ár eða jafnvel meir. Falli það saman að orkuspá hækki ekki frá því sem nú horfir og ekki verði fyrirsjáanlega um nýjan orkufrek- an iðnað að ræða fyrr en eftir 1989 er sjálfgefið að Blönduvirkjunar verður ekki þörf fyrr en í fyrsta lagi 1989, sem þýðir frestun henn- ar um eitt ár a.m.k. og þó nokkra lækkun á fjárþörf Landsvirkjunar vegna framkvæmda í ár. I því frumvarpi til lánsfjárlaga sem nú liggur fyrir Alþingi er gert ráð fyrir því að Landsvirkjun verði heimilt að taka erlend lán á árinu 1985 að fjárhæð allt að 1.118,0 milljónir króna í samræmi við framkvæmda- og rannsókna- áætlun Landsvirkjunar enda verði Blönduvirkjunar þörf þegar á ár- inu 1988 vegna aukins orkufreks iðnaðar, en að öðrum kosti tak- markist lántökuheimildin við 1.036,0 milljónir króna, þ.e. 82,0 milljónum króna lægri fjárhæð og þá á kostnað framkvæmda við Blönduvirkjun. BILABORG HF Srmðsfiötða 23 simi 812 99 Unhih í Kaupmannahöfn FÆST í BLAÐASÖLUNNI A JÁRNBRAUTAR- STÖÐINNI OG Á KASTRUP- FLUGVELLI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.