Morgunblaðið - 14.06.1985, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. JtlNÍ 1986
Brúin i Sjóla er illa leikin. Allt brann sem brunnið gat í framhluta skipsins.
Morgunbladift/RAX
„Ég hélt að stórslys
hefði orðið þarna“
— sagði Gylfi Geirsson, sem sá félaga sína á Ægi
þeytast undan eldsúlu þegar sprenging varð í Sjóla
„ÉG VAR í brú Ægis og horfði niður
yfir dekk Sjóla. Mennirnir voru ný-
lega horfnir undir yfirbyggingu tog-
arans þegar öflug sprenging kvað
við. Eldsúla stóð aftur eftir dekkinu
og mennirnir þeyttust eftir dekkinu
undan eldsúlunni. Þetta var skelfi-
leg sjón og ég hélt að stórslys hefði
orðið þarna,“ sagði Gylfi Geirsson,
ioftskeytamaður á varðskipinu Ægi í
samtali við Morgunblaðið um borð í
varðskipinu í gær.
Fjórir varðskipsmenn voru á
dekki togarans Sjóla frá Hafnar-
firði þegar sprengingin kvað við.
Öfáum sekúndum áður höfðu tveir
varðskipsmenn verið í ganginum
þar sem eldsúlan braust út. Þeir
voru að undirbúa sig að fara niður
í skipið. Ljóst þykir, að engu hafi
mátt muna að stórslys yrði.
„Ég heyrði hvin, beygði mig
niður og fann hvernig mér hitnaði
á bakinu. Siðan tókst ég á loft og
þeyttist með eldsúlunni eftir
dekkinu. Eftir ósköpin greip ég
um höfuðið til að kanna hvort hár-
ið væri ennþá á sínum stað,“ sagði
Pétur Pétursson, skipverji á
varðskipinu Ægi, í samtali við
blaðamann. Enginn skipverja
brenndist, en hár þeirra og
augnbrúnir sviðnuðu. Með ólíkind-
um þykir hve vel þeir sluppu.
Þrýstingurinn frá sprengingunni
hefur forðað þeim frá að lenda i
sjálfri eldsúlunni.
Gerðist ótrúlega snöggt
„Þetta gerðist svo ótrúlega
snöggt — á sekúndubroti," sagði
félagi Péturs, Ævar Oddur
Ævarsson, sem stóð við hlið hans.
Karl Guðmundsson, stýrimaður,
var á leið fram eftir brúnni stjórn-
borðsmegin þegar sprengingin
kvað við. „Eldtunga gaus út um
lúgu stjórnborðsmegin, skammt
fyrir framan mig. Ég sá ekki eld-
súluna, en heyrði sprenginguna og
þegar ég leit aftur sá ég félaga
mína vera að rísa upp á dekkinu,"
sagði Karl.
„Athyglisvert er hvernig menn
brugðust við eftir að hafa sloppið
svo naumlega úr miklum lífs-
háska,“ sagði Gylfi Geirsson og
hélt áfram. „Menn settust á dekk-
ið og kveiktu sér í sígarettu í
miðju reykjarkófinu" „.... o g sum-
ir sögðu það hálf súrt, að fá aðeins
hálfa klippingu. Hár þeirra hefði
sviðnað aðeins öðrum megin,“
skaut Karl inní.
Skipverji meðvitundarlaus
með reykeitrun
Klukkan 11.37 á miðvikudag
sendi ísafjarðarradió út tilkynn-
ingu um að eldur væri laus í tog-
aranum Sjóla um fimm sjómílur
norð-vestur af Blakknesi yst í
Patreksfirði. Varðskipið Ægir
hélt þegar á vettvang, en ekki var
beðið um aðstoð heldur skip beðin
að fylgjast með. Rétt um klukkan
14 kom varðskip á staðinn.
Skömmu áður hafði strandferða-
skipið Esja komið á vettvang og
vélbáturinn Axel Eyjólfsson KE
70 kom að Sjóla laust fyrir klukk-
an eitt. Varðskipsmenn fóru þegar
um borð í Sjóla til slökkvistarfa
og skipverjar á Esjunni hífðu tæki
varðskipsmanna um borð í togar-
ann. Fjórir skipverjar Sjóla voru
um borð í Esjunni og sjö fóru um
borð í varðskip, en skipstjóri
ásamt vélstjórum börðust við eld-
inn við hlið varðskipsmanna.
„Þegar við komum á vettvang
hafði einn skipverja fengið reyk-
eitrun, var meðvitundarlaus, með
krampa og í lífshættu. Við gerðum
strax ráðstafanir til þess að fá
þyrlu frá Reykjavík og sigldum
áleiðis til Patreksfjarðar. Læknir
fór á hraðabáti til móts við okkur,
kom um borð og hlúði að mannin-
um á leiðinni til Patreksfjarðar.
Það stóð á endum að þyrlan lenti
þegar við lögðumst að bryggju og
var maðurinn fluttur suður, þá
kominn til meðvitundar,“ sagði
Friðgeir Olgeirsson, skipherra á
varðskipinu Ægi í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins um
borð í Ægi í gær.
„Við héldum síðan að brennandi
togaranum út af Blakknesi og
komum þangað klukkan 17.15.
Þegar við fórum frá Patreksfirði
var talið að tekist hefði að ná tök-
um á eldinum, en rétt um fimm-
leytið gaus eldurinn upp á nýjan
leik,“ sagði Friðgeir. Stöðugt var
unnið að slökkvistarfi, en
aðstæður voru erfiðar. Reykurinn
kæfandi, eiturgufur lagði frá
plasti og sprengingar kváðu við af
og tii. Taug var úr Esjunni í togar-
ann og reynt að halda skipinu
þannig að reykinn legði frá til að
auðvelda slökkvistarf. Ægir tók
togarann í tog um sjöleytið og
haldið áleiðis til Patreksfjarðar.
„Við reyndum að halda eldinum í
skefjum á leið í land. Sáum vart út
úr augum vegna reyks og áttum i
erfiðleikum með andardrátt,"
sagði Karl.
Um miðnætti kom Ægir með
Sjóla til Patreksfjarðar. Skömmu
síðar kvað eldsprengingin mikla
við svo lá við stórslysi. Menn börð-
ust við eldinn alla nóttina og það
var ekki fyrr en klukkan hálf átta
í gærmorgun — eftir tæplega átj-
án stunda baráttu, að loks tókst að
niðurlögum eldsins. Togarinn er
mjög illa farinn — allt brann sem
brunnið gat frá lest og framúr.
Ófögur sjón blasti við blaða-
mönnum Morgunblaðsins í gær.
Brú skipsins hafði lagst saman og
gjörónýt og mastur skipsins fallið
niður. Mannaíbúðir og neta-
geymslur gjörónýtar. Ekki var
nokkur leið að komast niður í vél-
arrúm. Tekist hafði að verja lestar
skipsins, þannig að eldurinn
komst ekki í fiskkassa þar niðri.
Menn unnu við að kanna skemmd-
ir og undirbjuggu að draga togar-
ann til Hafnarfjarðar.
HH.
Mynd/ Friígeir Olgeinwon
Varðskipsmenn vinna að slökkvistarfi um borð í Sjóla.
Framkvæmdastjóri Sjólastöðvarinnar:
Framhluti skips-
ins ein brunarúst
— Óvíst hvort tekur því að gera við skipið
„Það er Ijóst að tjónið nemur tugum milljóna króna enda brann allur framhluti
skipsins frá vélarúmi og upp úr,“ sagði Haraldur Jónsson, framkvæmdastjóri
Sjólastöðvarinnar hf. er hann var spurður um skemmdirnar á togaranum Sjóla
HF 18, er eldur kom upp um borð í skipinu laust fyrir hádegi á miðvikudaginn,
en skipið var þá um fimm sjómflur norðvestur af Blakknesi. Haraldur sagði að
tryggingamatsmenn befðu farið vestur á Patreksfjörð í gærmorgun en endan-
legar tölur um tjónið af völdum eldsins lægju ekki fyrir.
„Eldurinn kom upp í vélarrúm-
inu neðst í skipinu, síðan fór hann í
mannaíbúðir og svo i brúna og
þetta er allt ein brunarúst,“ sagði
Haraldur ennfremur. „Stálið í
framhluta skipsins hitnaði einnig
mikið og óvíst hversu miklar
skemmdirnar eru á stálinu sjálfu,
hvort það er nothæft áfram eða
ekki. Ekki er ólíklegt að vélin sé
ónýt. Ljóst er að skipið er mjög illa
farið," sagði Haraldur.
Aðspurður sagði Haraldur að
ekki væri ljóst hvað gert yrði við
skipið. Sagði hann að ekki væri enn
fullljóst hvort tæki því að gera við
togarann, en ljóst væri þó að við-
gerð á skipinu yrði ekki lokið fyrr
en á næsta ári, ef sá kostur verður
valinn. Haraldur sagði að trygg-
ingarmat skipsins væri nálægt 300
milljónum króna.
„Þetta er mikill skaði fyrir fyrir-
tækið, því að þarna missum við
fyrirvaralaust annað af þeim
tveimur skipum, sem hafa aflað
hráefnis fyrir fiskiðjuverið. Við
rnunum reyna að bjarga okkur með
því að fá hráefni annars staðar frá
tii þess að þurfa ekki að grípa til
uppsagna starfsfólks," sagði Har-
aldur.
Togarinn Sjóli er 386 tonn að
stærö eftir lengingu, sem nýverið
var gerð á skipinu, og var þetta
þriðji túr skipsins eftir breyting-
una. Skipið var smíðað í Noregi ár-
ið 1971 og keypti Sjólastöðin hann
þaðan árið 3981.