Morgunblaðið - 14.06.1985, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 14.06.1985, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 1985 21 Þakkað fyrir veturinn — eftirÖnnu Snorradóttur Á sínum tíma sögðum við: „Gleðilegt sumar og þökk fyrir veturinn." Það er vel meðan þessi fallegi siður helst. En einhvern veginn finnst mér, að það sé komið úr tísku að þakka. Hví skyldi mað- ur líka vera að þakka? Er þetta ekki allt sjálfsagt: Líf, fæða, ást- vinir, heilsa, starf, skemmtun og andleg næring? Ekki er því fljót- svarað, en sennilega er enginn með bréf uppá öll þessi gæði, sem nefnd voru. Er ekki orðið frekar fátítt að menn þakki fyrir mat- inn? Er ekki algengara að heyra eða lesa um aðfinnslur fremur en þakklæti? Samt er hver dagur svo stórkostleg gjöf, að við ættum sennilega að beygja höfuð okkar og þakka hvern morgun og hvert kvöld. Núna þessa síðustu maídaga hefi ég verið að velta þvi fyrir mér, hve margt það er sem mig langar að þakka að loknum vetri. Og auk þess, sem hver og einn á í eigin brjósti, rennir hugurinn sér á flugi yfir alla þá miklu fjöl- breytni, sem borgin hefir boðið uppá í vetur á sviði lista. Fjöldi stórgóðra tónleika af margvíslegri gerð, óperusýningar, listasýningar fjölmargar og áhugaverðar og síð- ast en ekki síst leiksýningar. { raun hefir listalífið verið svo mik- ið og fjölskrúðugt að oft hefir rek- ’85 nefndin: Hátíðafundur 70 ÁR VERÐA liðin frá því íslenskar konur öðluðust kostningarétt og kjörgengi 19. júní. Af þessu tilefni efnir ’85 nefndin, samstarfsnefnd um lok kvennaáratugar SÞ, til hátíð- arfundar á Þingvöllum á afmælis- daginn. Fundurinn verður í Bolabás og hefst kl. 20.00. Þar mun koma fram í fyrsta sinn Lúðrasveit kvenna, sem skipuð er konum úr Lúðrasveit verkalýðsins og Svan- inum. Kristín Ástgeirsdóttir sagnfræðingur flytur erindi um 70 ára afmæli kosningaréttar kvenna. María Pétursdóttir, full- trúi ’85 nefndarinnar, og Elín Bruusgaard, rithöfundur frá Nor- egi, flytja ávörp og konur úr ist hvert á annars horn fyrir þá, sem vilja njóta sem flests og því stundum erfitt að komast yfir, þótt vilji og löngun væru á sínum stað. Þessar listgreinar, sem hér eru nefndar, eru allar meiðir af sama tré, listsköpun heitir það víst og breiðir lim sitt víða okkur til andlegrar sálubótar. Orðsins list lesum við á bókum, og það er gleðiefni, hve ljóðið stendur sig vel á myndbandaöld. Bókasöfn um land allt stuðla að jöfnuði þegn- anna til þess að njóta góðra bóka. Tónlistina má hljóðrita og víða eru til hljómflutningstæki. Hrós á Ríkisútvarpið skilið fyrir að út- varpa tónleikum sinfóníuhljóm- sveitarinnar okkar sama kvöld og þeir fara fram, þótt ekki sé nema hálf dagskrá. Eg þekki konu úti á landi, sem fer í sparikjólinn sinn þessi kvöld, sest í góðan stól, lokar augum og lætur sig dreyma, að hún sé stödd í hljómleikasal þar sem atburðurinn er að gerast. Aö kyssa kærustuna í síma Einhvern tíma heyrði ég haft eftir einhverjum gárunga, þegar rætt var um kvikmyndir og leik- hús, að það væri eins og að kyssa kærustuna sína í síma að sjá leik í kvikmynd samanborið við að vera í leikhúsi á leiksýningu. Hvað sem þessu líður er víst óhætt að stað- hæfa, að hver einasta leiksýning á sviði er einstök og verður aldrei endurtekin á nákvæmlega sama hátt. Kannski er það þetta, sem og fjársöfnun Kvenfélagi Lágafellssóknar sýna þjóðbúninga frá 19. öld. Að lokum verður almennur söngur. Á blaðamannafundi sl. þriðju- dag, þar sem þessi fundur var kynntur, kom einnig fram að ’85 nefndin gengst um þessar mundir fyrir fjársöfnun, sem er liður í al- þjóðlegri áætlun um að nýta myndbandatækni til að koma fræðsluefni til ólæsra kvenna í þróunarlöndunum. Stefnt er að því að safna alls kr. 250.000, en þegar hafa safnast nær 100.000 krónur. Merki til ágóða fyrir söfn- un þessa verða seld á fundinum á Þingvöllum og víðar, en einnig má koma framlögum á gíróreikning nr. 003538 í útibúi Samvinnubank- ans við Suðurlandsbraut. „Agnes barn guðs“: Guðrún Gísla- dóttir sem nunnan „í raun hefur listalífið verið svo mikið og fjöl- skrúðugt að oft hefir rekist hvert á annars horn fyrir þá, sem vilja njóta sem flests og því stundum erfitt að kom- ast yfir, þótt vilji og löngun væru á sínum stað.“ gerir leikhúsið svo heillandi — það er list andartaksins, list augnabliksins. Þótt leiksýning gangi 50 sinnum eða jafn vel 100 sinnum er hún aldrei nákvæmlega eins og þetta stafar að sjálfsögðu af því, að það eru lifandi mann- eskjur sem fara með texta, hreyfa sig, tjá sig og flytja boðskap eða skemmtan eða hvað annað í hvert sinn. Þetta gildir að vísu einnig um tónlistina og einu gegnir, hve oft við heyrum fiðlukonsert Beet- hovens eða píanókonserta Mozarts — tónlistin er aldrei nákvæmlega eins, hvorki þegar bornir eru sam- an flytjendur eða sami listamaður á í hlut. En þá er hægt að hljóð- rita, þegar best tekst til og gefa okkur kost á að heyra aftur og aftur. Raunar telja sumir tónlist- arunnendur hljóðritanir oft á tið- um svolítið gabb, þar sé hægt „ð endurtaka, lagfæra og klipp-. sam- an nær endalaust, og þeir sem svo hugsa vilja helst aðeins hljóð- ritanir, sem gerðar. eru á tónleik- um — þær einar séu ósviknar, segja þeir. Leikhúsin og sjónvarpið Ef borin er saman aðstaða tón- listarinnar og orðsins listar ann- ars vegar og leiklistarinnar hins vegar, á leiklistin óneitanlega svolítið í vök að verjast. Við verð- um að fara í leikhúsið en getum ekki fengið það til okkar. Eða er það ekki? Raunar má spyrja margs þegar hér er komið sögu, því að nútímatæknin, og þar á ég að sjálfsögðu við sjónvarpstækn- ina, gerir okkur kleift að fá leik- húsið inn í stofu til okkar. Og þeg- ar hugsað er til þeirra mörgu, sem ekki komast í leikhús, vaknar sú spurning m.a. hvers vegna í ósköp- unum ekki er meiri og nánari samvinna milli sjónvarpsins og leikhúsanna. Og hér er ekki aðeins átt við leikhús höfuðborgarinnar, heldur leikhús út um allt land. Undirrituð minnist með gleði frábærra leiksýninga á Akureyri í fyrravetur og nú er sagan um Edith Piaf með Eddu Þórarins- dóttur í fullum gangi þar og þykir hafa tekist afburðavel. Þótt undirrituð sæi ekki nándar nærri allar leiksýningar vetrarins, því miður, voru þær samt nokkrar og sú, sem stendur upp úr í minn- ingunni er sýning LR á „Agnes barn guðs“ þar sem þrjár leikkon- ur skiluðu erfiðum hlutverkum með miklum sóma en það voru þær Sigríður Hagalín, Guðrún Ásmundsdóttir og síðast en ekki síst hin unga leikkona Guðrún Gísladóttir. Þessar leikkonur skildu eftir mynd, sem ljómar á. Leikhúsmaður sagði mér þau tíð- indi, að þessi sýning hefði staðið sjónvarpinu til boða en það ekki séð sér fært að þiggja. Þetta vekur nokkra furðu, því að hér var á ferð framúrskarandi sýning en jafn- framt mannfá. Sjónvarpstæknin getur varðveitt sviðsmyndir og leik okkar bestu leikara, en aldrei veit neinn, hvenær of seint er að taka til hendi. Nú er Guðrún Gísladóttir farin út í hinn stóra heim á stefnumót við frægan kvikmyndaleikstjóra. Við eigum marga afbragðs leikara, sem yljað hafa okkur um hjartarætur ára- tugum saman en gerist nú roskið fólk og fer að heltast úr lestinni hvað úr hverju. Að fara yfir lækinn að sækja vatn Önnur sýning hjá LR kemur í hugann, þegar rætt er um sam- starf sjónvarps og leikhúss, en það er „Rommý“ þar sem Sigríður Hagalín og Gísli Halldórsson fóru á kostum. Það sem vekur furðu er, að þetta sama leikrit var sýnt í sjónvarpinu, og það var sýning af leiksviði, en sú sýning var ekki úr Iðnó, heldur New York, ef ég man rétt. Er þetta nú ekki eitthvað í ætt við það, að fara yfir lækinn til að sækja vatn? Eða er þetta sömu ættar og sú staðreynd, að íslenskir framleiðendur iðnvara ýmiss kon- ar nota erlend nöfn til þess að var- an seljist betur? Skyldum við ekki vilja gefa tölu- vert mikið fyrir að eiga á filmu okkar bestu leiksýningar með listafólki á borð við Lárus Páls- son, Brynjólf Jóhannesson, Harald Björnsson, Öldu Möller, Soffíu Guðlaugsdóttur, Arndísi Björns- dóttur, Indriða Waage, Gest Pálsson, Gunnþóru og Friðfinn og öll hin, sem horfnir eru? Ansi er ég hrædd um, að þetta þætti á okkar tímum hinn mesti fjársjóð- ur og um leið lifandi leiklistarsaga fyrir alla, sem vilja skilja sam- hengið og þróunina. Að bjóða þjóðinni í leikhús Enginn nema sjónvarpið getur boðið allri þjóðinni í leikhús. Þótt nauðsynlegt sé að kynnast leik- mennt annara þjóða er engu síður mikilvægt að þekkja og vita, hvað er að gerast í okkar eigin leikhús- um. Þótt hér hafi aðeins verið drepið á tvær leiksýningar, er það í raun réttri nokkur tilviljun, því að eflaust má nefna fjölda sýn- inga, sem hægt hefði verið að taka til flutnings fyrir alþjóð, og sýna þá að sjálfsögðu á leikhústíma, en á það atriði verður aldrei of oft minnst. Hin sögulega hlið málsins er einnig mikilvæg, og sú mikla gróska í leikhúslífi okkar einmitt nú og sú listsköpun sem fer fram í leikhúsinu er sannarlega þess virði að varðveittar séu einhverjar sýnilegar heimildir þar um. Sjón- varpsboð í leikhús er stuðningur við þessa listgrein en ekki sam- keppni, eins og ætla mætti í fljótu bragði og það er stuðningur sem ber að veita þessari listgrein and- artaksins eða augnabliksins og öllu því ágæta fólki sem vinnur í leikhúsunum okkar. Höíundur er húsmóðir í Keykjarík. KÁPUSALAN Ný Gazella BORGARTÚNI 22 SÍMI 23509 Næg bílastæði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.