Morgunblaðið - 14.06.1985, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. JÚNf 1985
Hestamót á Gaddstaðaflöt við Hellu:
íslandsmótið og félags-
mót Geysis
ÞAÐ verdur mikið um að vera á
Gaddstaðaflötum, félagssvæói
Geysis, um helgina, en þar veróur
haldió íslandsmót í hestaíþróttum
auk þess sem Geysir veróur meó sitt
árlega félagsmót meó gæóinga-
keppni og kappreióum.
Islandsmótið hefst í dag föstu-
dag klukkan 10 með hlýðnikeppni
unglinga og fullorðinna. Eftir há-
degi byrjar forkeppni í fjórgangi
og fimmgangi. Á laugardag verður
keppt í tölti á sama tíma, á öðrum
um helgina
sýndir. Keppt í gæðingaskeiði og
úrslit í tölti. Síðast á dagskránni
eru svo úrslit kappreiða og á mót-
unum að verða lokið um klukkan
19 á sunnudag.
í samtali við Magnús Halldórs-
son á Brekkum, sem er mótstjóri
íslandsmótsins, kom fram að
þátttaka er góð og verða í keppn-
inni margir bestu gæðingar sunn-
an- og vestanlands. Alls eru kepp-
endur í fullorðinsflokki 53 og 25
unglingar. Sagðist Magnús eiga
Morgunblaftið/Valdimar
Unglingar h-.fa ávallt fjölmennt á íslandsmótin og svo veróur einnig nú.
Verður væntanlega einhver af þessum keppendum sem kepptu hjá Fák um
hvítasunnuna meðal keppenda.
velli verða gæðingar hjá Geysi
dæmdir. Eftir hádegi verða úrslit í
fjór- og fimmgangi. Um klukkan
sautján hefjast síðan undanrásir
kappreiða. Á sunnudag verður
keppt í hindrunarstökki og hóp-
reið Geysis verður klukkan 13 og
að henni lokinni verða gæðingar
von á skemmtilegri keppni og
minntist hann sérstaklega á
hindrunarstökkið sem verið hefur
hornreka allt frá upphafi ís-
landsmóta. Á laugardagskvöldið
verður haldinn dansleikur á veg-
um hestamannafélagsins Geysis í
Hvoli.
Morgunbladið/Júlíus
Hans Indrióason, forstöðumaóur söhi- og markaðsdeildar Flugleióa, Karl H.
Sandberg, yfirmaóur söludeildar SAS í Noregi, og Skarphéóinn Árnason,
forstjóri Flugleiða I Noregi.
Sölustjórar SAS í Noregi halda fund í Reykjavík:
Förum héðan með meiri
þekkingu á landi og þjóð
— segir Karl H. Sandberg, yfirmaður söludeildar SAS í Noregi
SÖLUSTJÓRAR SAS í Noregi héldu
sinn fyrsta fund utan Noregs hér á
landi fyrir stuttu. Markaðsmál SAS í
Noregi var aöalefni fundarins en
auk þess fór fram kynning á íslandi,
sem feröamannalandi.
„Fundinn sitja allir okkar bestu
sölumenn og héðan fara þeir með
þekkingu á iandi og þjóð, sem þeir
ekki höfðu fyrir. Með komu okkar
hingað hefur myndast jákvætt
samband milli SAS og Flugleiða,
sem mætti líkja við landvinninga
ef rétt er á málunum haldið,“
sagði Karl H. Sandberg, yfirmað-
ur söludeildar SAS í Noregi. „Ég
er ekki viss um að Norðurlandabú-
ar geri sér almennt grein fyrir
hvað samvinna landanna hefur
jákvæða þyðingu gagnvart öðrum
þjóðum. Við erum fámennar smá-
þjóðir í norðri og verðum að
standa og vinna saman."
Samvinna milli Flugleiða og
SAS hefur alla tíð verið mikil og
sem dæmi má nefna að fyrir
þremur árum hófst samvinna
milli félaganna um flug einu sinni
í viku frá Ósló, Kaupmannahöfn
og Stokkhólmi til Grænlands. Það
er eini samningur sinnar tegund-
ar, sem SAS hefur gert við erlent
flugfélag. Auk þess er samkomu-
lag milli flugfélaganna að fylla
upp sæti hvort hjá öðru á öllum
flugleiðum allan ársins hring.
I máli Karls H. Sandberg kom
fram að ferðamenn og ferða-
mannaiðnaðurinn væri af hinu
góða. Ferðalög leiddu til frekari
skilnings milli þjóða, sem aftur
drægi úr stríðsógnun í heiminum.
Með það í huga hefðu Norðmenn á
undanförnum árum lagt áherslu á
að kynna ferðamönnum þjóð og
þjóðsiði, því náttúrufegurð lands-
ins væri ekki endalaust hægt að
selja.