Morgunblaðið - 19.06.1985, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLADIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNl 1985
36. alþjóðaflugsýningin í París:
Bjartsýni ríkir
í flugheiminum
— vöxtur á öllum sviðum flugsins
Flug
Gunnar Þorsteinsson
Tvímælalaust má segja að hlut-
ur Sovétmanna á Parísarflugsýn-
ingunni hafi verið einna mest
áberandi. Þeir mættu með nokkr-
ar flugvélar, þ.á m. stærstu þyrlu
heims og risaflutningaþotuna AN
124 (sjá aðra grein hér á opnunni).
Af öðrum athyglisverðum flugvél-
um, sem aldrei höfðu verið sýndar
áður á almennum flugsýningum,
má nefna ísraelsku smáþotuna
Astra, ítalsk/brasilísku orustu-
þotuna AMX, brasilísku skrúfu-
þotuna Embrarer Brasilia og síð-
ast en ekki síst ATR 42 skrúfuþot-
una sem talin hefur verið koma til
greina sem arftaki gamla, góða og
trausta Fokkersins í innanlands-
flugi Flugleiða. Einnig var fjöld-
inn allur af nýlegum smáflugvél-
um.
Gestgjafarnir, Frakkar, hafa
löngum verið stoltir af flugvéla-
framleiðslu sinni. Núna sýndu
samtök franska flugiðnaðarins
stórmerkilegan grip meðal ann-
arra. Það var Mirage 2000 N
orustuþota gerð úr gleri, í fullri
stærð, og gat fólk séð hvernig hinn
margbreytilegi tækni- og stjórn-
búnaður virkaði. Það var stórk-
ostlegt og ógleymanlegt.
Nú bendir allt til þess að flugið
muni vaxa jafnt og þétt fram að
aldamótum. Frjáls flugmálastefna
vestur í Bandaríkjunum hefur
kallað á fleiri flugvélar auk þess
sem flest flugfélög munu þurfa að
endurnýja flugflota sinn og kaupa
nýjar vélar í stað eldri og óhag-
kvæmari.
Pólitísk spenna og árekstrar í
ýmsum heimshlutum, að ekki sé
talað um stirð samskipti risaveld-
anna, hefur ýtt undir sölu alls
konar vígvéla, sérstaklega orustu-
þotna og flugskeyta. Þá hefur
könnun himingeimsins, bæði í
hernaðarlegum og friðsamlegum
tilgangi, orðið til þess að stórauka
verkefni gervihnattaframleiðenda
og fyrirtækja í hátækniiðnaði.
Gífurlega öflug öryggisgæsla
var á Parisarsýningunni og hefur
hún aldrei verið jafn öflug. T.d.
þurftu sýningargestir að fara í
gegnum sprengjuleitartæki og
mun slíkt vera'einsdæmi á vöru-
sýningum. Þarna voru nefnilega
samankomnir allir helstu vopna-
framleiðendur heims og þess
vegna óttuðust Frakkar að hryðju-
verkasamtök myndu láta til skar-
ar skríða og fylgja eftir hryðju-
verkaöldu sem þau hafa staðið
fyrir víðsvegar í Evrópu undan-
farna mánuði. Sumir höfðu á orði
að öryggisverðirnir væru svo
margir að þeir myndu aðeins hitta
hvern annan ef eitthvað brigði út
af.
Samtals tóku 33 þjóðir þátt í
sýningunni og voru sýnendurnir
yfir eitt þúsund. Fyrir mörgum
mánuðum var biðlisti eftir sýn-
ingarplássi og á allra síðustu
stundu urðu hinir heppnu að fylla
skarð þeirra fáu sem forfölluðust.
Rúmlega 200 flugvélar voru til
sýnis. Flestar höfðu áður sést á
flugsýningum svo sovésku flugvél-
arnar vöktu einna mesta athygli
og umræður. Stærsta flugvél sýn-
ingarinnar var AN 124 flutninga-
þotan sem Sovétmenn segja að sé
stærsta flugvél heims. Banda-
ríkjamenn hröktu þá fullyrðingu
auðveldlega m.a. með að leggja
fram nýjar tölur um afkastagetu
Lockheed Galaxy C 5A. Hreyflar
AN 124 eru almennt álitnir eftir-
mynd Rolls Royce RB 211 gám-
hreyflanna sem knýja flestar
Boeing 747 breiðþotur og ýmsar
aðrar stórar farþegaþotur. Alla
vega gafst vesturlandabúum
þarna kjörið tækifæri til að skoða
nýjustu tækni Sovétmanna í flug-
vélasmíði.
Síminnkandi en mun afkasta-
meiri örtölvur hafa opnað ótak-
markaða möguleika í fluginu.
Ekki aðeins í sambandi við sjálfa
flugvélasmíðina heldur einnig í
sambandi við stjórn og rekstur
vélanna þannig að líkja má við
byltingu. Rafeindastjórnkerfi (fly
by wire), sjálfvirkur lendingar-
búnaður, og stýrispinninn, sem
sumir flugvélaframleiðendur ætla
að nota í stað hins hefðbundna
hálfstýris eru allt dæmi um
hvernig háþróuð tækni mun gjör-
breyta stjórnklefum flugvéla
framtíðarinnar.
Sá mikli fjöldi mæla og takka
sem við þekkjum í algengustu far-
þegaflugvélum nútímans er óðum
að hverfa og í staðinn að koma
tiltölulega einfaldir og auðlæsi-
legir tölvuskermar. Þá eru sam-
Merki flugsýningarinnar í París.
Margir sem lifa og
hrærast í flugheiminum
hittust í París á dögun-
um. Jafnt stærstu sem
smæstu flugvélafram-
leiðendur og allir þar á
milli. Dagana 31. maí til
10. júní sl. var haldin
þar í borg 36. alþjóða
flug- og geimvísindasýn-
ingin. Stærsta sýning í
heimi. Blm. Morgun-
blaðsins sótti sýninguna
og hér á þessari opnu og
á næstunni munu les-
endur geta fræðst um
það helsta sem fyrir
augu bar.
trefjaefni, ýmsar málmblöndur og
jafnvel plast sífellt að ryðja sér
meira til rúms í flugvélasmíði.
Þessi efni eru mun léttari en þau
sem hingað til hafa verið notuð
þannig að flugvélarnar koma til
Morgunblaðiö/Gunnar Þorsteinsson
Lockheed-flugvélaverksmidjurnar
hafa smíðað þessa ratsjárflugvél.
Hún er þróuð upp úr P3 Orion-
kafbátaleitarflugvélunum, en slík-
ar vélar hafa um alllangt skeið ver-
ið notaðar af varnarliðinu á Kefla-
víkurflugvelli.
með að verða léttari og þar af leið-
andi sparneytnari og hagkvæmari.
Á hernaðarsviðinu mun tækni
dagsins í dag endast langt fram
yfir aldamót og hafa Bandaríkja-
menn fundið upp á mörgum nýj-
ungum við smíði nýjustu orustu-
og sprengjuvéla sinna. Á meðan
hafa stærstu Evrópuþjóðirnar
deilt um smíði nýrrar orustuþotu,
svokallaðrar Evrópu-orustuþotu
(EFA), sem ætlunin er að verði
útbúin nýjum og einföldum
hreyfli. Ef af verður mun EFA
orustuþotan leysa af hólmi gamla
jálka eins og Jaguar, Phantom og
Starfighter. Búist er við að innan
skamms taki varnarmálaráðherr-
ar viðkomandi landa lokaákvörð-
un um hvort löndin muni standa
sameiginlega að smíðinni.
Af framansögðu má lesa að
flugvélaframleiðendur eru bjart-
sýnir og horfa glaðir fram á við.
Það er spáð jöfnum en hægum
vexti á öllum sviðum flugsins allt
fram yfir aldamótin. Á það jafnt
við borgaralegt og hernaðarlegt
flug en mestur vöxturinn verður í
geimfluginu. Ef með er talinn
kostnaður við gerð flugvalla,
flugvallarmannvirkja, flugvéla-
verksmiðja og við þróun og rann-
sóknir er áætlað að þjóðir heims
muni eyða ríflega 2,4 miljörðum
dollara á umræddu tímabili.
Á sl. ári varð loksins hagnaður
af rekstri flugfélaga heims eftir
sex ára samfellt tap. Á árinu 1985
er spáð 1,5 miljarða dollara hagn-
aði af rekstri flugfélaganna. Al-
þjóðasamtök flugfélaga, IATA,
spá að á næstu 10 árum muni að-
ildarfélögin fjárfesta fyrir milli
150—200 milljarða dollara í nýj-
um flugvélum, þ.e. til að endur-
nýja úreltar vélar og til að geta
mætt áætlaðri farþegaaukningu.
Stærstu flugvélaframleiðendur
heims, Boeing, Douglas og Airbus
hafa ekki í áraraðir spáð eins vel
um flugvélasölu og farþegaaukn-
ingu. Airbus framleiðendurnir spá
að núverandi flugfloti verði orðinn
tvöfalt stærri árið 2004 og að far-
þegafjöldinn tvöfaldist frá því
sem nú er. Með öðrum orðum spáir
Airbus því að 9.100 farþega-
flugvélar seljist á næstu 20 árum
fyrir andvirði 470 milljarða doll-
ara á verðlagi ársins 1984. Boeing
spáir helmingi styttra fram í tím-
ann, eða til næstu 10 ára. Spá
þeirra gerir ráð fyrir að 4005
flugvélar seljist fyrir andvirði 160
milljarða dollara. Það er vissulega
nokkur munur á spám þessara
tveggja fyrirtækja en þær gefa
engu að síður til kynna að gífur-
legur fjörkippur muni hlaupa í
flugvélasölu og flugstarfsemi.
Spár eru jú alltaf bara spár. Á
Parísarsýningunni mátti auð-
veldlega skynja bjartsýnina sem
ríkti, enda flugiðnaðurinn að rísa
upp úr öldudal með nýja og bylt-
ingarkennda tækni i handraðan-
um.
Geimtæknin þróast hratL Evrópuþjóðir, með Frakka í fararbroddi, hyggjast
veita Bandaríkjamönnum harfta samkeppni í framtíftinni, m.a með því að
smíða litla geimferju. Á myndinni sést líkan af geimferjunni í sýningarbás
franska fyrirtækisins Aerospatiale sem stendur einna fremst á þessu sviði í
Evrópu.
Flugvélahreyfill framtíðarinnar er kynlegur. í Bandaríkjunum hafa staðið
yfir umfangsmiklar tilraunir með smfði hreyfla í ætt við þann á myndinni.
Þær hafa lofað góðu og þegar á næsta ári verftur ein gerðin prófuð á Boeing
727-farþegaþotu. Almennt er reiknað með að svona hreyflar verði á nýjum
gerðum farþegavéla upp úr árinu 1985.