Morgunblaðið - 19.06.1985, Blaðsíða 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ1985
ffclk f
fréttum k. Á.
Arabískur
geimprins
Þegar múslímar eru á ferða-
lagi þurfa þeir aðeins að biðja
þrisvar á dag í stað fimm sinnum
eins og ritað stendur í Kóraninum.
En um þessar mundir veitist
það arabíska prinsinum Sultan
ibn Salman ibn Abdul Aziz al
Saud erfitt að snúa sér í átt til
Mekka á bænastundunum hvað þá
að láta höfuð nema við jörð. Hann
er nefnilega um borð í geimferj-
unni Discovery á hringferð hennar
umhverfis jörðu. Prinsinn er 28
ára gamall og mun aðstoða við að
koma á braut arabíska fjarskipta-
hnettinum Arabsat 1B, sem er
sameign 22 arabaþjóða.
Fleiri verkefni bíða prinsins á
ferð hans um geiminn og mun
hann aðstoða við læknisfræðilegar
tilraunir. Meðal annars verður
rannsökuð ein af furðulegum
aukaverkunum geimferða. Hún er
einmitt sú að líkamshæð eykst um
allt að fimm sentimetra meðan á
ferðinni stendur en þegar snúið er
til jarðar ná geimfararnir aftur
eðlilegri hæð.
Hinn konunglegi
geimfari viö æfingar
í þyngdarleysi
BRODDI BRODDASON
SUMARÞULUR HJÁ ÚTVARPINU:
„Mér gengur
illa að læra á
íækniundrin“
Flest fyrirtæki í landinu ráða
til sín aukafólk á sumrin til
að leysa af þá sem eru orðnir lang-
eygir eftir sumarleyfi. Oftast fer
lítið fyrir sumarfólkinu en í einu
tilfelli tekur öll þjóðin eftir því
þegar nýtt fólk kemur til starfa.
Hér er um að ræða útvarpsþulina,
sem flestir heyra í meira eða
minna, allan daginn.
Broddi Broddason er ein af nýju
röddunum í hljóðvarpinu, en á
vetrum kennir hann í Menntaskól-
anurn í Reykjavík. „Það var í fyrra
eða árið þar áður, sem mér datt í
hug að þularstarf gæti hentað vel
verkefnasnauðum kennara að
sumarlagi. Ég hringdi í starfs-
mannastjóra RÚV og sagði henni
hug minn. Síðastliðið haust
hringdi hún í mig og ég sat í þul-
arstólnum í eina viku. Mér líkaði
svo vel að ég er kominn aftur og
verð hér fram á haust.
Líklega verð ég aðallega með
morgunútvarpið og í vor sat ég
heila viku með Jóni Múla og lærði
tæknina við að vera góður þulur.
Það er að ýmsu að hyggja og
býsna ólíkt starf að vera þulur
fyrir hádegi eða síðdegis.
Þótt ég sitji á rassinum í upp-
tökuherberginu alla vaktina mína,
getur oft verið ansi strembið að
vera þulur. Þetta er mjög bindandi
og ég er sífellt gónandi á klukk-
una. Maður þarf alltaf að vera
viðbúinn að grípa inn í, milli
dagskrárliða ef þeir eru rangt
tímasettir eða annað í þeim dúr og
ef svo er Þá hef ég til reiðu plötu-
stafla með „léttu lögunum", sem
dyggir hlustendur kannast án efa
við. Harmonikkulögin eru alls ráð-
andi en þess á milli læði ég að
norrænum djassi, sem sagt lög í
hefðbundnum stíl morgunútvarps-
ins. Þegar hlé milli dagskrárliða
dragast von úr viti, verður maður
helst að hafa þegar nælt sér í
nokkra lagstúfa og hafa smáglóru
um þá og flytjendurna. Mitt tón-
listarvit er í algjöru lágmarki en
starfsmenn tónlistardeildarinnar
HJALP,
ég meiddi mig!
Margir hafa eflaust heyrt minnst á
slysaæfingar sem oft hafa verið
haldnar víða um land. í hverri einustu æf-
ingu tekur þátt fjöldi fólks sem ekki fellur
undir það virðulega heiti „björgunarmað-
ur“, en er þó ekki síður mikilvægt. Hér er
átt við þá sem leika hina slösuðu og ekki er
hlutur þeirra minni en hinna. Líklega yrði
lítið úr æfingunum ef ekki fyndust neinir
til að hlúa að.
Fyrir skömmu var haldið kennaranám-
skeið í skyndihjálp og aukinni hjálp.
Þátttakendur voru tólf en leiðbeinendur
þrír. Á þessu námskeiði voru m.a. æfð
fyrstu viðbrögð þegar komið er á slysstað
og að sjálfsögðu urðu nokkrir þátttakend-
anna að vera hinir slösuðu.
Á eftirfarandi myndum sést hvernig
fullhraustum karlmönnum var breytt í
stórslasað fólk. Við breytingarnar voru
notuð ekki ómerkari efni en leikskólaleir,
vaselín, gervibrot erlendis frá og þekjulit-
ir, svo eitthvað sé nefnt. En þótt efnin
komi úr ýmsum áttum, þjóna þau þeim
tilgangi sem þeim er ætlað, einmitt þeim
að ef fólk kann að bregðast við plastsárum,
getur sú kunnátta bjargað mannslífum,
seinna meir.
Þriðja stigs bruni á hægri hendi er búinn til með ögn af leir, vaselíni, svörtum og rauðum
þekjulit ásamt festi.
Nefbrotið Ifkist helst blómi í túni, en er búið til úr leir og þekjulitum.
Handleggsbrot verður til með klessu af leikskólaleir og kindabeini.
Ljésmyndir/Bjarni