Morgunblaðið - 13.08.1985, Blaðsíða 20
MORGUNfeLAÐtÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 1985
20
Bestu kaupin eru hjá okkur!
Hjá okkur fáiö þiö original pústkerfi í allar geröir
MAZDA bíla. Viö veitum 20% afslátt ef keypt eru heil
kerfi meö festingum. Kaupiö eingöngu
EKTA MAZDA pústkerfi
eins og framleiöandinn mœlir meö
— þau passa í bílinn.
Eyðing skjala og
lœtara frá EBA
Allur
mega fljóta með
með pappirs
tullkomið öryggi.
- klemmur og hefti
GÆTIÐ
ORYGGIS MEÐ
iKIARAN [njÁKVÆIVINI
ARMÚLA22, SlMI 83022,106 REVKJA^
BÍLABORG HF
Smiðshöfða 23. S. 81265
Sigurvegarar í tölti. Frí vinstri: Ármann á Þresti, Ragnar Ingólfsson á Jörva,
Jóhann Magnússon á Stormi, Ingimar Ingimarsson á Dropa og Þorsteinn H.
Stefánsson á Stjarna.
Dalvík:
Sveit Léttis sigraði
í bikarmóti norð-
lenzkra hestamanna
Dalvík, 31. júlí.
MIKIL gróska er nú í hestaíþróttum
á Dalvík og í Svarfaðardal. Hesta-
eign hefur aukist mjög síðustu ár og
félagsstarfsemi hestamanna eflst.
Hestamannafélagið Hringur hefur
komið upp góðum skeiðvelli á Flötu-
tungu í Svarfaðardal en þar er mjög
góð aðstaða til slíkra mannvirkja.
Helgina 20.—21. júlí var haldið bik-
armót Norðurlands í hestaíþróttum
á skeiðvelli Hrings og sá félagið um
mótið.
Á þessu bikarmóti norðlenskra
íþróttadeilda hestamanna var
keppt eftir nýjum reglum sem fé-
lagar i Hring hafa sjálfir samið.
Nýjungin er í því fólgin að hver
íþróttadeild sendir keppnissveit
og sú deild sem fær flest saman-
lögð stig vinnur keppnina og verð-
ur bikarmeistari. Eins og kunnugt
er hafa hestaíþróttir byggst á ein-
staklingskeppni en þetta nýja
form var nú reynt í fyrsta skipti
hér á landi, en eftir sem áður
keppast menn við að vinna hverja
grein fyrir sig svo kostum gamla
kerfisins er á þann hátt við haldið.
Það voru Þingeyingar, Akureyr-
ingar, Skagfirðingar og Húnvetn-
ingar auk heimamanna sem voru
mættir með keppnissveitir að
Flötutungu þessa helgi og skráðir
keppendur voru um 70. Mótið
Sigurvegarar í fimmgangi. Frá vinstri: Magnús Lárusson á Jarpi, Stefán
Friðgeirsson á Stefni, Ingimar Ingimarsson á Maríu, Ingólfur Sigþórsson á
Skjanna og Jón Matthíasson á Sunnu.
Saudi-Arabfa:
150 þúsund íranskir pfla-
grímar fá að fara til Mekka
Kijadh, Sudi-Armbim, 9. ápurt. AP.
franar hafa jafnað ágreining sinn við
Saudi-Araba um það, hversu mörg-
um írönskum pflagrímum verður
leyft að koma til Mekka, að því er
sendiherra írans í Saudi-Arabíu
sagði í dag, miðvikudag.
Sendiherrann, Mohamed Tar-
emi, sagði í viðtali við dagblaðið
Al-Sharq Al-Awsat, að hann hefði
hitt Fahd, konung Saudi-Arabíu,
að máli fyrr í vikunni og þar hefði
hann fengið að vita, að alls 150
þúsund íranskir pílagrímar fengju
heimild til að fara til hinnar heil-
ögu borgar að þessu sinni.
Frá því að Ruhollah Khomeini
komst til valda í íran, hafa yfir-
völd í Saudi-Arabíu kvartað yfir
pólitískum áróðri iranskra píla-
gríma, en u.þ.b. tvær milljónir
pílagríma frá yfir 60 löndum koma
til Mekka ár hvert.
Það kom ekki fram í viðtali Tar-
emis við fyrrnefnt blað, hvort ein-
hver skilyrði af hálfu Saudi-Araba
fylgdu þessu samkomulagi.