Morgunblaðið - 13.08.1985, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.08.1985, Blaðsíða 4
4 MÖRGtJNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚ8T1985 Salan á hlutabréfum ríkisins í Flugleiöum: Tekst ekki að gera lítið úr sölunni — segir fjármálaráðherra, Albert Guðmundsson „ÞAÐ ER verid að reyna að gera lítið úr sölunni, en það tekst ekki. Þegar bréfin voru boðin út á sínum tíma barst tilboð frí starfsmanna- félagi Flugleiða um að kaupa þau í nafnverði, eða á 7 milljónir, á óverðtryggðum skuldabréfum til ALBERT (íuðmundsson fjármála- ráðherra vísaði í samtali við Morg- unblaðið í gaer alfarið á bug gagn- rýni um að útboðstilhögun hans á hlutabréfum ríkisins í Flugleiðum hafi ekki verið sanngjörn. Varð- andi það atriöi, að upplýsingar um tilboð Birkis Baldvinssonar flug- vélasala í Lúxemborg hafi „lekið út“ og gefið stjórn Flugleiða taeki- færi til að miða tilboð sitt við það, sagði fjármálaráðherra: „Hvorki fjármálaráðuneytið né Fjárfest- ingarfélagið létu fara frá sér upp- lýsingar um innihald tilboðs Birk- is, svo þær hljóta þá að hafa komið annars staðar frá.“ Tilboðið var kynnt á ríkis- stjórnarfundi í síðustu viku, svo sú spurning vaknar hvort upp- lýsingarnar séu þaðan komnar: „Ég hef ekki ástæðu til að ætla að upplýsingar um tilboðið hafi tíu ára. Nú hafa bréfin verið seld á 66 milljónir með fullri banka- tryggingu til átta ára. Menn þurfa ekki annað en bera þessa sölu saman við sölu á öðrum ríkiseign- um, til dæmis Siglósfld og hluta- bréfum Iðnaðarbankans, til að sjá lekið út af ríkisstjómarfundi, en vitanlega get ég ekki ábyrgst það,“ sagði Steingrímur Her- mannsson, forsætisráðherra. Þorsteinn Guðnason hjá Fjár- festingarfélaginu sagði að það væri ekkert athugavert við það form sem haft væri á sölunni þar eð söluverðið hafði fyrirfram verið auglýst. „En ef verð er ekki skilgreint, heldur óskað eftir til- boðum, þá væri eðlilegt, og kannski nauðsynlegt, að ákveða tilboðsfrest og opna síðan öll bréfin á sama tíma,“ sagði Þorsteinn. Albert Guðmundsson sagðist ekki myndu breyta sölufyrir- komulagi sínu hvað varðar sölu á bréfum ríkisins i Eimskip og Rafha en engin tilboð hafa enn borist í þau bréf, þótt töluvert hafi verið spurst fyrir um hluta- bréf Eimskipafélagsins. að hér hefur hagsmuna ríkisins verið vel gætt,“ sagði Albert Guð- mundsson fjármálaráðherra, en Steingrímur Hermannsson forsæt- isráðherra sagði í viðtali um helg- ina að hann teldi að það mætti gagnrýna það að bréfin væru seld óverðtryggð og vaxtalaus. I samtali við Morgunblaðið í gær sagði Steingrímur, að hann teldi sig ekki vera í aðstöðu til að gagnrýna söluna, því fjármála- ráðherra hafði fulla heimild til að selja og kaupverðið væri a.m.k. ekki lægra en lægsta mat Fjárfestingarfélagsins, sem er fjórfalt nafnverð. „Það var samþykkt á ríkis- stjórnarfundi fyrir hálfu öðru ári að gefa fjármálaráðherra heimiid til að selja bréfin, og þá var reyndar verið að tala um nafnverð, en söluverðið er auð- vitað töluvert umfram það,“ sagði Steingrímur. Steingrímur sagðist vera sæmilega ánægður með söluna, hann hefði sjálfur kosið að starfsmenn fyrirtækisins eign- uðust bréfin og sú yrði líklega raunin. „Hins vegar hefði ég alveg eins kosið að ríkið ætti þessi bréf áfram. Ég stóð fyrir því í tíð minni sem samgönguráðherra að kaupa þessi bréf, og þótt það hafi út af fyrir sig aldrei verið hugsað sem annað en björgunar- aðgerð, þá held ég að það sé eðli- legt að ríkið eigi fulltrúa í stjórninni. Hér eru miklir hags- munir í húfi, því félagið hefur nánast einokun á flugi til lands- ins og frá,“ sagði Steingrímur. Hvorki ráðuneytið né Fjárfestingarfélagið gáfu upplýsingar um tilboðið, — segir fjármálaráðherra Á von á því að starfsmenn kaupi bréf — segir Helgi Thorvaldsson, formaður starfsmannafélags Flugleiða „ÉG ER hæstánægður og eftir því sem ég hef hlerað eru menn yfir- leitt jákvæðir og ég á von á því að starfsmenn komi til með að kaupa þessi 10%, sem í boði eru,“ sagði Helgi Thorvaldsson, formaður starfsmannafélags Flugleiða, STAFF, um þá niðurstöðu að stjórn Flugleiða skuli hafa keypt hlutabréf ríkisins í félaginu og hyggist bjóða starfsmönnum og hluthöfum þau til kaups. Helgi sagði að ekki lægi Ijóst fyrir á hvaða kjörum starfsmenn fengju bréfin, en hann ætti von á því að það yrði með góðum láns- kjörum. Helgi var spurður hvers vegna Starfsmannafélagiö legði slíka áherslu á að starfsmenn eignuðust hlutabréf í fyrirtæk- inu: „Félagið er nú einu sinni lifi- brauð starfsmanna þess og með því að eignast hlut í því vilja menn styðja það og styrkja í verki og stuðla að því að gott andrúmsloft skapist, sem er nauðsynlegt í þessu félagi sem öðrum," sagði Helgi. Morgunblaöið/Þorkell Þorvaldur Garðar Kristjánsson forseti Sameinaðs Alþingis afhendir Sigurði Bjarnasyni sendiherra heiðursmerki Lctterstedtska félagsins. Sigurður Bjarnason sendiherra heiðraður SIGURÐI Bjarnasyni sendiherra var í gær afhent heiðursmerki Letter- stedtska félagsins við athöfn í Alþingishúsinu. Það var Þorvaldur Garðar Kristjánsson forseti Sameinaðs Alþingis sem afhenti honum heiðursmerkið að viðstöddum Gustaf Petrén yfirdómara frá Stokkhólmi, sem er formaður yfirstjórnar Letterstedtska félagsins, stjórnar íslandsdeildar félagsins. í frétt frá íslandsdeild Lett- erstedtska félagsins segir að fé- lagið, sem starfar að samvinnu Norðurlandaþjóða á menningar- sviði, hafi árið 1980 stofnað sér- stakt heiðursmerki, tengt nafni Jacobs Letterstedts. Er það veitt mönnum, sem lagt hafa fram veigamikinn skerf til norrænnar samvinnu. f maí sl. sæmdi yfir- stjórn félagsins í Stokkhólmi Sig- urð Bjarnason sendiherrra þessu rrænum sendiherrum hér á landi auk heiðursmerki fyrir þátttöku hans í norrænu samstarfi, m.a. vegna starfa hans að stofnun Norður- landaráðs og mótunar á starfsemi þess fyrstu starfsár þess. Þetta er í fimmta skipti sem heiðursmerkið er veitt, en áður hafa Franz Wendt, Danmörku, Karl August Fagerholm, Finnlandi, Helgi Seip, Noregi og Arne F. Anderson, Sví- þjóð, verið heiðraðir. Hundruð húsbyggj- enda fengið synjun á skattafrádrætti — segir Þorvaldur Mawby hjá Byggung „ÞAÐ eru ekki nokkrir tugir heldur hundruð húsbyggj- enda, sem skattstjórinn í Reykjavík hefur neitað um skattafrádrátt vegna vaxta- gjalda á undanfornum tveim- ur til þremur árum,“ sagði Þorvaldur Mawby fram- kvæmdastjóri Byggung en eins og fram kom í frétt Morgunblaðsins síöastliðinn sunnudag hefur ríkisskatta- nefnd hnekkt úrskurði skatt- stjóra um skattafrádrátt vegna vaxtagjalda af lánum sem Byggingarsamvinnufé- lag ungs fólks í Reykjavík tók fyrir hönd húsbyggjenda sinna. Jarðhitaverkefni í Kenya: Tryggði hugsanleg þróunaraðstoð Ný-Sjálendingum þeim verkefnið? — ýmislegt gerist í sambandi við útboð sem ekki kemur upp á yfirborðið segir framkvæmdastjóri Virkis hf. „ÝMISLEGT gerist í sambandi við útboð, sem ekki kemur alltaf upp á yfirborðið,** sagði Andrés Svanbjörnsson, framkvæmdastjóri verkfræðiþjónust- unnar Virkis hf., en fyrirtækið, ásamt Orkustofnun, var eitt af fimm fyrirtækj- um sem buðu í jarðhitaverkefni í Kenya fyrr á árinu. Fyrirtækið GENZL frá Nýja-Sjálandi fékk verkefnið. Við vitum um þá staðreynd að forsætisráðherra Nýja-Sjálands, David Lange, heimsótti Kenya ásamt forráðamönnum GENZL á réttu augnabliki og varð það til þess að viðkomandi ráðherra iðn- aðar- og orkumála í Kenya beitti sér meira en við höfðum búist við og hafði áhrif á valið. Ákvörðun var hugsanlega tekin í sambandi við fjárhagslega þróunaraðstoð af hálfu Ný-Sjálendinga í Kenya.“ Andrés sagðist hafa sent tilboðið inn í janúar og ákvörðunin var tek- in í byrjun maí. „Það er ekki hægt að tala um verðtilboð þegar ráð- gjafatilboð eru annars vegar. Það sem skiptir máli er mannskapurinn og hvernig standa á að verkinu ásamt ýmsum öðrum þáttum. Boð- ið er út í tveggja umslaga útboði. Verðtilboðið er í sérumslagi, sem er ekki opnað fyrr en búið er að taka afstöðu til tæknilega tilboðsins. Við vorum nokkuð vongóðir um að ná verkinu, enda höfðum viö lagt hart að okkur við að ná því, en við munum halda áfram að vinna fyrir Kenya Power Company, sem við höfum unnið fyrir sem ráðgjafar og hönnuðir í tiu undanfarin ár. Samningur okkar er ekki útrunn- inn en kemur reyndar til með að framlengjast. Byggð var 45 MW virkjun með 25 holum. öðru hverju eru boðin út hliðarverkefni, sem við höfum gert tilboð í oftar en einu sinni. Stundum erum við heppnir og stundum ekki. GENZL hefur unnið við jarðboranir nokkr- um sinnum fyrir Kenya Power Company, en við höfum hinsvegar verið í hönnun og ráðgjöf eingöngu. Þetta verkefni, sem við nú misstum af, felst í að hafa eftirlit með borun tólf hola í fyrstunni og sfðan átta á öðrum stað. Gert er ráð fyrir tveimur árum í verkið og hefðu 3—6 menn frá okkur alltaf þurft að vera á staðnum, en það verkefni, sem við höfum unnið við undanfar- in ár, höfum við getað unnið að mestu hérlendis, en þurft að fara út á u.þ.b. tveggja mánaða fresti,“ sagði Andrés. Að sögn Þorvaldar sendi Bygg- ung í september síðastliðnum skattstjóranum í Reykjavík bréf í sjö liðum þar sem fyrst og fremst var spurt um hvað væri frádrátt- arbært frá skatti og þá meðal ann- ars spurt um vaxtagreiðslur. í svari skattstjóra kom fram synjun við öllum fyrirspurnunum um skattafrádrátt og því var ákveðið að láta reyna á réttmæti synjun- arinnar vegna vaxtagjalda og úr- skurðurinn kærður til rikisskatta- nefndar. Rétt er að taka fram að þessi úrskurður nær til allra bygg- ingarsamvinnufélaga en ekki bara Byggung. Atvínnuástand betra í júlí en á sama tíma í fyrra júlí sl. voru atvinnuleysisdagar aft- ur á móti 13.500 og jafngildir það því að 620 manns hafi verið á at- vinnuleysisskrá eða sem svarar 0,5% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði í mánuðinum, sam- kvæmt spá Þjóðhagsstofnunar. I júní á þessu ári voru skráðir ATVINNUASTAND var mun betra f júlímánuði sl. en á sama tíma í fyrra. Skráðir atvinnuleysisdagar voru um 3.500 færri í ár. f frétt frá Vinnumálaskrifstofu félagsmálaráðuneytisins segir að i júlí í fyrra hafi skráðir atvinnu- leysisdagar verið tæplega 17.000. f __1___1 4 AAA nloinmiloom'n^n---

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.