Morgunblaðið - 12.09.1985, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 12.09.1985, Blaðsíða 3
MORGUNBLADIÐ, FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1985 3 Bygging íbúða fyrir aldraða og verkamannabústaða á ísafirði: Eiríkur og Einar Valur sf. fengu verkið þó tilboð þeirra væru hærri en lægstu boð Urgur í verktökum vegna þessa máls og fleiri útboöa á ísafirði í sumar FYRIR nokkru voru opnuð tilboð í hyggingu 42 íbúða fyrir aldraða, sem Byggingarsamvinnufélagið Hlíf á ísafirði hyggst reisa þar í bæ. Stjórn félagsins ákvað að taka til- boði frá Eiríki og Einari Val sf. á ísafirði, sem hljóðaði upp á kr. 36.922.000. Lægsta tilboðið var hins vegar frá Jóni Friðgeiri Einarssyni í Bolungarvík og var það tæplega l'/i milljón lægra. Þetta útboð og fleiri sem farið hafa fram á ísafirði í sumar hafa valdið mikilli óánægju meðal byggingaverktaka þar um slóðir. „Ég hef engar skýringar fengið á því hvers vegna mínu tilboði var ekki tekið,“ sagði Jón Frið- geir Einarsson. „Ég fékk skeyti fyrir nokkrum dögum þar sem mér var tjáð að ákveðið hafi verið að taka tilboði frá Eiríki og Ein- ari Val sf., en engar skýringar fylgdu. Ég hitti síðan formann bygginganefndarinnar, Snorra Hermannsson, á förnum vegi og spurði hann um þetta, en hann varðist allra skýringa. Tilboðin höfðu öll verið birt hér í blöðum og ég held að fólk hafi almennt reiknað með að ég fengi þetta, því mitt tilboð var langlægst. Það er því hart bæði fyrir mig og það fólk sem á að borga þessar íbúðir að fá engar skýringar á þessu. Ég hef vissulega mínar hug- myndir um hvernig á þessu stendur en ég vil ekki láta hafa neitt eftir mér um þær að svo stöddu", sagði Jón Friðgeir að lokum. Snorri Hermannsson varðist allra frétta er blaðamaður spurði hann um þessi mál, en Halldór Guðmundsson framkvæmdastjóri Hlífar hafði þetta að segja: „Það er rétt við ákváðum að taka til- boði Éiríks og Éinars Vals þó það væri 1,3 milljónum hærra. Það er reyndar ekki nema 3‘/t% umfram tilboð Jóns Friðgeirs. Við höfum fulla heimild til að taka hvaða tilboði sem er og við höfum okkar ástæður fyrir þessu, en ég vil ekki ræða þær við fjölmiðla fyrr en ég hef gert viðkomandi aðilum grein fyrir þeim. Það verður gert nú næstu daga.“ Hafði það áhrif að Eiríkur og Éinar Valur eru heimamenn en Jón Friðgeir ekki? „Það hafði vissulega áhrif, en það réði ekki úrslitum," sagði Halldór Guðmundsson að lokum. Blaðamaður ræddi einnig við byggingameistarana Guðmund Þórðarson og Halldór Antonsson á ísafirði. Hjá þeim kom fram mikil óánægja með hvernig staðið var að þessu máli og einnig tveimur öðrum útboðum sem fram fóru á ísafirði í sumar. Annars vegar er þar um að ræða útboð á byggingu verka- mannabústaða, sem fram fór í vor. Þar var Guðmundur Þórð- arson með lægsta boð en tilboði frá Eiriki og Éinari Val, sem var lítið eitt hærra, var tekið eftir að þeir höfðu gert frávikstilboð, sem gerði þeirra tilboð hagstæðara að mati bæjarstjórnar. Að sögn Guðmundar var honum og öðrum tilboðsgjöfum ekki gefinn kostur á að gera slík frávikstilboð. I hinu tilfellinu var um að ræða útboð á byggingu stjórnsýsluhúss á ísafirði. Að sögn Halldórs Ant- onssonar var hann þar með næst- lægsta tilboð en tekið var tilboði frá byggingafyrirtækinu lsverki sem var lægst. Að sögn Halldórs fékk ísverk síðar að hækka tilboð sitt eftir að samningar voru gerð- ir. Kvaðst hann hafa óskað skýr- inga á þessu, en engar fengið. Jón Axel Steindórsson, bæjar- bókari á ísafirði, sagði um útboð- ið á verkamannabústöðunum að þar hefðu Éiríkur og Einar Valur notfært sér rétt, sem þeir hefðu samkvæmt íslenskum staðli um útboð, til að gera frávikstilboð sem hefði valdið því að tilboð þeirra hafi verið metið hagstæð- ast. Aðrir hefðu ekki notfært sér þennan rétt og ekki væri heimilt að nota þannig tilboð frá einum aðila eftirá sem viðmiðun í samn- ingum við aðra bjóðendur. Hjá Guðmundi Þórðarsyni og Halldóri Antonssyni kom fram að byggingameistarar á tsafirði og í nágrenni væru mjög óánægðir með hvernig staðið hefði verið að þessum útboðum og sæju þeir ekki tilgang í þvi að vera að bjóða í verk þar sem engin trygging væri fyrir að þau fengjust þó lægst væri boðið. „Þetta er sið- Ieysi,“ sagði Guðmundur Þórðar- son. Othar Örn Petersen, fram- kvæmdastjóri Verktakasam- bands íslands, sagði að það væri meginregla að þegar um opin út- boð væri að ræða ættu allir að sitja við sama borð og ef ekki væri tekið lægsta tilboði þá yrðu að vera á því fullnægjandi skýr- ingar eins og til dæmis að við- komandi bjóðandi væri ekki hæf- ur. t tilfelli Jóns Friðgeirs hefðu engar skýringar komið fram. „Ég hef nú skrifað og beðið um skýr- ingar. Fyrr en á það reynir hvort þær fást vil ég ekki tjá mig frekar um þetta mál,“ sagði Othar Örn að lokum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.