Morgunblaðið - 12.09.1985, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 12.09.1985, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1985 17 Réttur dagsins Margrét Þorvaldsdóttir Það gildir sama um peninga og áburðinn, þeir koma að litlu gagni nema þeim sé dreift. Speki frá 16. öld — Francis Bacon Við dreifum peningunum á undir- stöðuatvinnuvegi landsmanna eins og Ld. með næsta rétti, en það er Fiskur í brauðhjúpi Fyrir 5—6 Brauðdeig; 1W bolli hveiti * 'k bolli smjörlíki mjúkt lk bikar sýrður rjómi salt egg 1. Brauðdeigið er útbúið fyrst. Hveiti, smjörlíki, sýrðum rjóma og salti er blandað vel saman og hnoðað létt og verður úr því mjúkt deig. 2. Vefjið það síðan með smjör- pappír og látið standa í kæli i 1—2 klukkustundir eða lengur. 800 gr ýsu- og þorskflök 'k sítróna, safinn (‘/4 tsk. tarragon, ‘/4 tsk. basil) salt 1 bolli rifinn ostur (26%) 1. Fiskflökin eru roðflett og skorin í stykki. Sítrónusafinn er settur yfir fiskinn og örlítið salt og er hann látinn standa um stund. 2. Brauðdeigið er siðan flatt út í lítið eitt ílanga köku. Þar sem hentugast er að baka það í eldföstu móti, er best að smyrja mótið og láta útflatt deigið að hluta í mótið (u.þ.b.%) 3. Fiskstykkjunum er síðan rað- að á deigið í mótinu og er osturinn settur á milli stykkjanna. Þeir sem vilja bragðmikinn fisk strái fyrst yfir hann tarragoni og basil. 4. Því næst er brauðdeigið (V4) lagt yfir fiskinn og brauðhjúpur- inn lokaður alveg (límdur aftur) með eggjahvítunni. Eggjarauðan er hrærð með örlitlu vatni og herini síðan smurt yfir deigið. Stingið út með hnífsoddi eða gaffli til að hleypa út gufu við bakstur. 5. Bakið síðan i meðalheitum ofni (180-200) í 20 mín. Berið fiskréttinn fram í mótinu og skreytið síðan með niðursneidd- um agúrkum. Hann bragðast best með mayonessósu og kartöflusal- ati. Sjávarréttasósa: % bolli mayones lk bolli sýrður rjómi M bolli tómatsósa (ketchup) 'k sítróna safinn 1 matsk. piparrót (horseradish) Öllu er blandað saman. Ef ekki er piparrót þá bætið við tómatsósu. Kartöflusalat: 500 gr kartöflur 2 matsk. matarolia 1 matsk. cider-edik 1 matsk. rifinn laukur V* bolli mayones 1. Kartöflurnar eru soðnar, af- hýddar og skornar í teninga. 2. Blandað er saman mataroliu og ediki og það síðan blandað varlega kartöflunum. Laukurinn er settur með og siðast mayones- inn. Það tekur u.þ.b. 1 klukkustund að útbúa þennan málsverð, hann er tímans virði. Einhver sagði: „Ja, hugsa sér hvað margt er hægt að útbúa úr ýsu!“ Spurði einhver um kaloriur? Menn lifa nú aðeins einu sinni! Verð á hráefni: Ýsuflök Kr. 115,00 Sýrður rjómi Kr. 43,00 Egg Kr. 10,00 Sítróna Kr. 11,00 Mayones Kr. 35,00 Kartöflur Kr. 24,00 Kr. 238,00 VÐ FLYIJUM A MORGUN! Frá Frakkastíg 13 að Krókhálsi 4 (2. hæð), Reykjavík. Ath! Nýtt og breytt símanúmer 7/^ SMA- LÖND fHOOA. (o x FESTI Heildverslun U / ZiÁtt (3 linur) i 110 Reykjavík STÓRKAUPSKASSI .ð 2 69ó kr- eða Sparto i ° Innihald: Almennt verð 5 kg. Nauta-grillsteik 280 kr. = 1.400 kr. 7 kg. Nautahakk 428 - = 2.996 - 5 kg. Kjúklingar 298 - = 1.490 - 5 kg. Lamba súpukjöt 183 - = 915 - 2,5 kg. Lambalæri sneitt 350 - = 875 - 3 kg. Bacon búðingur 260 - = 780 - 27,5 kg 8.456 kr. Okkar verð 5.760 kr. Sparnaður 2.696 kr. Kiötmiðstöðin V Ltugalak 2, t. 686511 Kostakaup Hatnarfiröi «. 53100 ■ +0. j B

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.