Morgunblaðið - 12.09.1985, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 12.09.1985, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR12. SEPtEMBER 1985 ■ ■ 45 fyrir mann gert var hann reiðubú- inn. Við vorum nágrannar öll upp- vaxtarárin og Kiddi var vinur og leikbróðir okkar Helgu systur, enda aldursmunurinn lítill, aðeins þrír mánuðir. Það var oft glatt á hjalla heima á þessum árum. Við vorum mörg krakkarnir á þremur nágranna- bæjum og þar að auki voru oft krakkar í sveit á sumrin. Oft vor- um við í leikjum langt fram á kvöld á sumrin, oftast útilegu- mannaleik. En lífið var ekki tómir leikir. Það var líka tekið til hendinni og Kiddi var ekki stór þegar hann var farinn að fylgja pabba sínum við öll verk og vera stoð hans og stytta við búskapinn, ekki síst á vélunum við heyskapinn. Þeir voru mjög samrýndir feðgar og Kiddi var duglegur og áhugasamur við það sem hann var að gera. Þeir lögðu rauðmaganet á vorin feðgarnir og það var gaman að fara niður í Skipavík þegar þeir voru að koma að. Stundum tóku þeir okkur Helgu með þegar þeir vitjuðu um. í minningunni er allt- af sól í þessum sjóferðum, glitr- andi sjórinn, hrúgur af hrognkels- um í bátnum og Kiddi og ólafur íklæddir útprjónuðum lopapeys- um sem ólöf hafði prjónað. Öft fékk mamma sendan rauðmaga í soðið eftir vel heppnaða veiðiferð. Margar voru ferðirnar milli bæjanna, ýmist til að fá lánaðar bækur eða til að leika. Kiddi átti kassabíl sem var mikill kostagrip- ur með pedölum til að drífa hann áfram. Ég man að ég öfundaði Kidda talsvert af þessum grip. Á kassabílnum voru stundum teknar rosaspyrnur þegar eigandinn var á þeim buxunum. Tíminn leið og unglingsárin tóku við. Alltaf var Kiddi sami góði vinurinn. Á þessum árum var markmiðið að verða sextán ára til að komast inn á sveitaböllin. Þeg- ar því langþráða marki var náð fórum við ótal ferðir saman, Kiddi, Addi, Deiigsi, Helga og ég. Seinna skildu leiðir. Eg fór til Akureyrar í skóla. Kiddi var óráð- inn hvað hann vildi leggja fyrir sig og vann þann vetur. Ævinlega hittumst við þó á sumrin og í frí- Kiddi sé allur. Og það er erfitt að sætta sig við að hann fékk ekki að lifa lengur með konunni sinni og dætrum sínum sem nú eru fimm og tveggja ára. Hver er tilgangur þessa alls? Ég flyt aðstandendum Kidda einlæga samúð mína og fjölskyldu minnar. Kidda kveð ég með ein- lægu þakklæti fyrir allt og óska honum góðrar ferðar og heim- komu. „Því hvað er það að deyja annað en standa nakinn í blænum og hverfa inn í sólskinið? Og hvað er að hætta að draga andann annað en að fresla hann frá friðlausum oldum lífsins, svo að hann geti risið upp í mætti sínum og ófjötraður leitað á fund guðs síns?“ (Úr Spámanninum eftir Kahlil Gibran) Sigga ÚR BINDINGU 06 HÖMLUM 1FREISIÐ Á TINDINUM Eigirðu ríkisskuldabréf sem losna úr bindingu d nœstunni, getur þú haft samband við Rdðgjafann í Útvegsbankanum og beðið um að bankinn annist innlausn bréfanna og komi andvirðinu á Innlánsreikning með Ábót. Nú á nœstunni verða eftirtalin bréf laus: 10. september: 1977 - 2. flokkur 1978 - 2. flokkur 15. september: 1971 - 1. flokkur 1972 - 2. flokkur 1973 - 1. flokkur 1974 - 1. flokkur 1979 - 2. flokkur 1. október: 1982 - 2. flokkur um. Síðar fór Kiddi í Vélskólann og lauk þaðan prófi. Þá var hann líka búinn að kynnast konunni sinni, henni Gunnhildi. Þau bjuggu fyrstu árin í Reykjavík en fluttu síðan til Sauðárkróks þar sem Kiddi var vélstjóri á togurum Út- gerðarfélags Skagfirðinga fyrstu árin en siðan í vélsmiðju félagsins. Ég hitta Kidda alltof sjaldan síðustu árin, enda bjuggum við lengst af hvor á sínu landshorn- inu. Helst að við sæjumst þegar við vorum bæði í leyfi heima á Ánastöðum. Þar sá ég hann líka síðast síðastliðið sumar ásamt Gunnhildi og litlu dætrunum þeirra, Bergrúnu og Halldóru. Það var stuttur fundur því Kiddi var á kafi í vélaviðgerðum með pabba sínum. Skjótt skipast veður í lofti. Það er erfitt að sætta sig við það að Á VAXTATINDINN MEÐ OKKUR ÚTVEGSBANKINN RÁÐGJAFINN VÍSAR VEGINN

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.