Morgunblaðið - 13.11.1985, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR13. NÓVEMBER1985
9
—Hikers—
NÝ SENDING
Þessir vinsælu dönsku lakkskór aftur fáanlegir.
Verö aöeins kr. 1.495 og 1.795.
KUt4
LAUGAVE
LAUGAVEGI 40
SÍMI16468
HÖFÐABAKKA9
SÍMI 685411
Virðing Aiþingis
Alþingi sætir oft óréttmætri gagnrýni,
fyrst og fremst vegna ókunnugleika gagn-
rýnenda. Stöku sinnum hittir gagnrýnin
hinsvegar í mark. Og Alþingi er engan-
vegin hafiö yfir gagnrýni, þó aö þaö sé einn
af hornsteinum fullveldis þjóöarinnar.
Staksteinar staldra í dag viö fjölmiöla-
fréttir gærdagsins af vinnubrögöum
þingsinsífyrradag.
Ný þingskapar-
lög
Alþingi samþykkti ný
þingskapalög I fyrra sem
komu til framkvæmda nú
f haust Þau fólu í sér
gagngerar breytingar og
algjör nýmæli, sem stóöu
til skipulegri og markviss-
ari vinnubragóa. Forseti
sameinaös þings sagði við
þinglausnir síðastliðið vor:
„Hér veröur ríkisstjóm,
hver sem hún er, einnig að
koma til. Það er höfuðatriði
að stjórnarfrumvörp dreif-
ist sem jafnast á þingtím-
ann. Það getur ekki gengið
að þingis sé verkefnalítið
lengi fram eftir þingtíman-
um en stjórnarfrumvörp
hlaðist upp f lok þingsins."
Vantar mál í
efri deild
Ef ríkisstjórn kemur vel
búin til þings á hún að geta
dreift málum á þingtíma
og þingdeildir, þann veg,
að starfskraftar og starfs-
tími nýtist sem bezt Þrátt
fyrir ný þingsköp og þrátt
fyrir brýningu þingforseta
við þinglausnir síðastliðið
vor hafa vinnubrögð á Al-
þingi, það sem af er hausti,
lítt verið til fyrirmyndar.
Efri deild hefur ekki
verið ofhlaðin störfum. Þar
hefur nánast verið mála-
þurrð. Fundir stuttir og
jafnvei fallið niður. í fyrra-
dag vóru þrjú mál á dag-
skrá þingdeildarinnar. Þau
vóra öll tekin út af dagskrá
í upphafi fundar. Eitt málið
var ekki tímabært Tvö
skorti framsögu. Önnur
þingdeildarmál vóru ekki
tiltæk.
Uppákomur sem þessi
segja að vísu ekki allan
sannleikann um störf
þingsins. Langt því frá. En
þær segja þó að landsfeður,
ekki sizt ríkisstjóm og
stjórnarflokkar, þurfa að
taka sjálfum sér tak. Ein-
hveraveginn búast menn
ekki við stórræðum frá
stjórnarandstöðu. En þeir
gera þá kröfu til þeirra sem
fara með stjórnarábyrgð að
„virðingar þingsins sé
gætt“.
Vantar menn í
neðrí deild
Þegar rúmur klukkutími
var að baki af fundartíma
neðri deildar í fyrradag
kvaddi Guðrún Agnars-
dóttir, Kvennalista, sér
hljóðs um þingsköp. Hún
vakti athygli þingdeildar
forseta á því að aðeins fjórir
þingdeildarmenn væru í
þingsal (af fjörutíu). Spurði
hún þingdeildarforseta
þeirrar spurningar, efnis-
lega eftir haft, hvern veg
stæði á því að svo fáir
þingmenn mættu á þeim
vinnustað sem þeir berðust
þó svo hart fyrir að komast
á. Þingdeildarforseti kvað
sjö þingmenn hafa fjarvist-
arleyfi, meðal annars vegna
funda á vegum Norðu--
landaráðs — utan land-
steina. Önnur skýring væri
sér ekki tiltæk.
Þegar hringt var til at-
kvæða mættu tuttugu og
fimm þingmenn þar af tveir
ráöherrar. Fimmtán neðri-
deildarmenn virtust fjar-
verandi, þar af sjö með
fjarvistarleyfi. Áhugi þing-
deildarmanna, sem f þing-
húsi vóru, á framsögu þing-
mála, nægði þó ekki til
viðveru þeirra í þingsal
nema takmarkað, enda
flest málin endurflutt
(gamlir kunningjar).
Á sama tíma var tómur
salur í efri deild, enda fundi
slitið þar strax eftir setn-
ingu sem fyrr segir.
Hornsteinn
lýðræðis og
þingræðis
Þjóðkjörið þing, Alþingi,
er hornsteinn lýðræðis og
þingræðis í landinu. Nú eru
liðin 1.055 ár frá stofnun
Alþingis að Þingvöllum.
Þing það, sem nú starfar
er 108. löggjafarþing þjóð-
arinnar, frá því þessi aldna
stofnun var endurreist
Mestu máli skiptir þó að
Alþingi er fulltrúaþing
fólksins í landinu, sem fer
með löggjafarvald, stefnu-
mörkun og ákvarðanir í
flestu því er varðar heill og
hamingju þjóðarinnar.
Það er því mjög miður
ef Alþingi setur niður í
hugum þjóðarinnar, sem
kýs það. Eðlilegt er að gera
þá kröfu til skoðanamynd-
andi aðila, eins og til dæmis
fjölmióla, að „virðingar
þingsins" sé gætL En fjöl-
miðlar verða að sinna
fréttaskyldu sinni. Og sann-
leikur er sagna beztur.
Þessi krafa hbtur þó
fremur að beinast að þing-
mönnum sjálfum. Þeir eru
sú mynd sem birtist í fjöl-
miðlaspeglinum út í þjóð-
félagið.
Híðast en ekki sízt snýr
krafan um „viröingu þings-
ins“ að þjóðinni sjálfri
þegar hún velur frambjóð-
endur í prófkjörum og þing-
menn í kosningum. Það fær
hver þjóð það þing sem hún
á skilið var eitt sinn sagL
Sú staðhæfing er ekki út í
hött.
TJöfóar til
11 fólks í öllum
starfsgreinum!
Hjartans þakkir til ykkar allra er glöddu mig
á 95 ára afmælinu 27. október sl. með kær-
kominni nærveru, skeytum, símtölum og
öðrum hlýhug. Ég bið að blessun Guðs breiði
yfir ykkur öll.
Rebekka Þiðríksdóttir.
Innilegar þakkir til vandamanna og vina
fyrir hlýjar kveðjur og góðar gjafir á 90 ára
afmæli mínu 9. nóvember.
Guð blessi ykkur öll.
Theódóra Hallgrímsdóttir
frá Hvammi, Vatnsdal.
Kjósum Katrínu---konu í 2. sæti
Kosningaskrifstofan í Nýja bíó-húsinu
Lækjargötu 2 (3. hæð) er opin kl. 4—10
virka daga og kl. 2—10 um helgar.
Símar: 621808 og 11933.
Haföu samband
Stuðningsmenn Katrínar Fjeldsted
itrínu ---- konu ■ 2. sæti