Morgunblaðið - 13.11.1985, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐ-VIKUDAGUR13. NÓVEMBER1985
Morgunblaöiö/Skapti Hallgrímsson
• Rafn Hjaltalín (til vinstri) tekur vid heiöursoröu íþróttasambands íslands úr hendi Sveins Björnsson-
ar, forseta ÍSÍ.
70 ÁRA afmælishátíö íþróttafé-
lagsins Þórs á Akureyri var hald-
in síöastliðið laugardagskvöld.
Fólagiö varð sjötugt 6. júní síö-
astliöinn og á árinu hefur þess-
ara tímamóta verió minnst á
margvíslegan hátt.
Ellert B. Schram, formaöur
Knattspyrnusambands íslands,
heiðraöi þrjá fyrrverandi fofmenn
Knattspyrnudeildar Þórs. Þór-
oddur Hjaltalín og Guömundur
Sigurbjörnsson fengu silfurmerki
KSÍ en Hallgrímur Skaptason var
sæmdur gullmerki sambandsins.
Forseti íþróttasambands ís-
lands, Sveinn Björnsson, heiðraöi
knattspyrnudómarann kunna
Rafn Hjaltalín - sæmdi hann heiö-
ursoröu fSÍ: æösta heiöursmerki
sem ÍSÍ veitir. Þá veitti Sveinn
Siguröi Oddssyni, formanni Þórs
1980 til 1985, gullmerki ÍSÍ.
Sveinn afhenti einnig Eiríki Sig-
urössyni, körfuknattleiksmanni,
silfurmerki Körfuknattleikssam-
bands íslands.
Hjónin Áslaug Einarsdóttir og
Haraldur Helgason, sem var for-
maöur Þórs um 20 ára skeiö, og
er heiöursformaöur félagsins,
færöu félaginu aö gjöf fallegan
bikar í tilefni afmælisins. Guö-
mundur Heiöreksson, formaöur
Knattspyrnufélags Akureyrar,
færöi Þór fundarhamar, forseti
ÍSÍ, Sveinn Björnsson, færöi fé-
laginu glervasa frá sambandinu,
íþróttaráö Akureyrar sendi Þór
skjöld í tilefni af afmælinu og
íþróttabandalag Akureyrar silfur-
disk. Einng bárust Þór peninga-
gjafir: Hreiöar Gíslason afhenti
Benedikt Guömundssyni, for-
manni félagsins, sjötíu þúsund
krónur frá „gömlum Þórsurum",
Freyr Ófeigsson, bæjarfulltrúi
færöi Þór sjötíu þúsund frá Akur-
eyrarbæ, Rósa Antonsdóttir, for-
maöur Kvennadeildar Þórs færöi
félaginu 20.000 krónur og blóm
og ótilgreind upphæö barst frá
Kaupfélagi Eyfiröinga. „Ég var
stoltur yfir því aö 1. deildarlið Þórs
i knattspyrnu bar merki okkar í
sumar - og ég vona aö KEA-fern-
ingurinn veröi á búningi ykkar
næsta sumar, þegar þiö veröiö
islandsmeistarar!" sagöi Valur
Arnþórsson, kaupfélagsstjóri,
meöal annars í ræöu sinni í hófinu
- og vakti þaö veröskuldaða at-
hygli Þórsara eins og búast mátti
viö...
í tilefni af afmælishátíöinni var
gefin út vegleg afmælisbók -
skráö af Gylfa Kristjánssyni,
blaöamanni. I henni er aö finna
margvíslegan fróöleik úr sögu fé-
lagsins, mikiö af upplýsingum,
viötölum og myndum.
Morgunblaöiö/Skapti Hallgrímsson
• Haraldur Helgason (til vinatri) hefur afhent Benedikt Guömunda-
syni, núverandi formanni Þörs, bikar frá sér og eiginkonu sinni,
Áslaugu Einarsdóttur.
• Sveinn Björnsson, forseti ÍSÍ, sæmir Eirík Sigurðsson, sem lengi
hefur staðið í eldlínunni fyrir Þór á körfuknattleikssviðinu, silfur-
merki Körfuknattleikssambandsins.
• Ellert B. Schram, formaöur KSÍ (til hægri) heiöraöi þessa þrjá fyrrum formenn knattspyrnudeiidar
Þórs. Frá vinstri: Þóroddur Hjaltalín (sem fékk silfurmerkió), Hallgrímur Skaptason (gullmerki) og
Guömundur Sigurbjörnsson (silfurmerki).
• Siguröur Oddsson fyrrum
formaöur Þórs, var sæmdur
gullmerki fþróttasambandsins.
• Aó neðan: Benedikt Guð-
mundsson, formaóur Þórs,
þakkar Rósu Antonsdóttur, for-
manni kvennadeildar, veittan
stuöning.
70 ára afmælishátíð
Þórs á Akureyri