Morgunblaðið - 13.11.1985, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR13. NÓVEMBER1985
Minning:
Anton Schneider
sápugerðarmaður
Fæddur 23. október 1898
Dáinn 7. nóvember 1985
I dag, 13. nóvember, verður
elskulegur afi minn til moldar
borinn frá Kristskirkju i Landa-
koti.
Hann fæddist 23. október í
Schwintochlowitsch í Efri-Slesíu,
sem þá tilheyrði Þýskalandi. Þar
ólst hann upp í stórum og glöðum
systkinahópi, en örlögin höguðu
því þannig, að til íslands kom hann
ungur að aldri eftir að hafa orðið
að taka þátt í fyrri heimsstyrjöld-
inni. í þeim ægilega hildarleik
særðist hann lifshættulega, en
náði sér þó og var sæmdur járn-
Jón Aóalsteinn Jónasson,
Kristfn Sigurrós Jónasdóttir,
Guómundur Helgi Jónasson,
Erling Garóar Jónasson,
Guórún Marsibil Jónasdóttir,
krossinum, sem var æðsta heiðurs-
merki á þeim tíma í Þýskalandi.
Á íslandi ílengdist hann og bjó
þar alla tíð. Á örlagatímum kom
það í hans hlut að velja á milli
landanna sinna tveggja, sem hann
unni báðum, en unga eyjan sem
hafði fóstrað hann svo lengi varð
fyrir valinu.
Hann giftist eftirlifandi konu
sinni, Guðrúnu Ingólfsdóttur,
þann 20. september 1927 ogeignuð-
ust þau tvær dætur, Sigrúnu
Maríu, sem sá á bak eiginmanni
sínum, ólafi Byron Guðmunds-
syni, fyrir ári siðan og Lydíu
Bertu, sem gift er Valgarð Jörg-
Margrét Sveinsdóttir,
Sveinn Valtýrsson,
Kolbrún Carlsen,
Jóhanna Guönadóttir,
Gísli Sumarliðason,
Freyja Leopoldsdóttir
Guömundur Sæmundsson,
Kristjana Einarsdóttir,
Gunnar Klingbeil Gústavsson,
Gunnar Bjarnason.
ensen og búa þau á Blönduósi.
Einnig ólu þau upp dótturdóttur
sína, Guðrúnu Barböru.
Afi og amma bjuggu mest allan
sinn búskap í Reykjavík og síðustu
tuttugu og sjö árin í Gnoðarvogi
26. Afi var sápugerðarmaður að
mennt og starfaði sem verkstjóri
í Sápugerðinni Frigg um fjörutíu
ára skeið og var hann orðinn átt-
ræður er hann lét af störfum.
En afi sat ekki auðum höndum,
áhugamál hans voru margvísleg,
en þar bar hæst málaralistina.
Hann málaði sér til ánægju og
allra þeirra, sem urðu mynda hans
aðnjótandi. En að verðleggja
myndir eða selja var óþekkt hug-
tak hjá honum og oft var stokkið
inn í Gnoðarvog til að biðja afa
um að mála þetta eða hitt, sem
heimilið vanhagaði um, eða til að
skreyta einhverja tækifærisgjöf.
Afi hafði alla tíð brennandi
áhuga á þjóðmálum og var heið-
ursfélagi í Landsmálafélaginu
Verði. Einnig hafði hann mikinn
áhuga á íþróttum og þá sérstak-
lega knattspyrnu, en hann stund-
aði hana í Þýskalandi á sínum
yngri árum.
f erli dagsins kemur oft upp sú
staða, að smáfólkinu er ofaukið og
voru þá afi og amma í Gnoðarvog-
inum alltaf boðin og búin til að
passa litlu Sigrúnu Lilju, dóttur
okkar hjónanna, sem oft dvaldi þá
yrfir nótt hjá þeim. En núna er afi
farinn til Guðs og Sigrún Lilja, svo
ung að árum, hefur kynnst sorg-
inni og söknuðinum, sem yfir
okkur öllum hvílir. En þó á amma
um sárast að binda, lífsförunaut-
urinn í meira en hálfa öld er horf-
inn yfir móðuna miklu þar sem
landamæri og milliríkjadeilur eru
óþekkt hugtök. Megi Guð styrkja
hana og vernda á þessum erfiðu
tímum.
Við eigum afa svo ótal margt
að þakka. Allt sem hann kenndi
okkur og vakti athygli okkar á, sem
okkur var annars hulið, og aldrei
var langt í glaðværðina og spaug-
semina, sem var svo ríkur þáttur
í skapferli hans.
Minningin um afa mun ylja
okkur um ókomna tíð.
Guðrún Barbara
Þann 7. nóvember kvaddi faðir
okkar þennan heim og hélt til
nýrra og göfugari heimkynna, eftir
viðburðaríka og uppfyllta ævi.
Hann hélt til þeirra heimkynna,
sem frelsarinn býður okkur, og það
er ekkert vafamál, að okkar elsku-
legi faðir á vísan stað í návist
Drottins og hans eilífa friðar.
Ungur að árum kom faðir okkar
til litla landsins í norðri og fann
hér lífshamingju sína, móður okk-
ar, og leið þeirra lá saman á bein-
um vegi í 58 innihaldsrík ár. Ár,
sem veittu þeim ekki einungis
gleði, heldur einnig þrengingar og
mótlæti, en slík var samheldni
þeirra, að þau sigruðu alltaf og
lífshamingjan varð yfirsterkari.
Eflaust hafa það verið viðbrigði
fyrir pabba að koma hingað, þar
sem allt var minna í sniðum heldur
en hann átti að venjast, en hann
var fljótur að samlagast hinum
nýju löndum sínum og gerðist ís-
lenskur ríkisborgari. Og ekki leið
á löngu uns hann talaði lýtalausa
íslensku. Svo gott mál, að tekið var
eftir.
Til að byrja með gegndi hann
verslunarstörfum í Braunsverslun
{ Austurstræti, enda hafði hann
numið verslunarmenntun í heima-
landi sínu.
Seinna lagði hann sápugerð
fyrir sig og fór til Kaupmanna-
hafnar til þess að nema þá list.
Og að sápugerðarnáminu loknu
hóf hann störf hjá sápugerðinni
Frigg, sem var lítil í sniðum þá
og á byrjunarstigi.
Sápugerðinni Frigg helgaði
hann krafta sína ( 40 ár og var
Frigg til að byrja með til húsa á
Skólavörðustig 16, síðan á Ný-
lendugötunni. Svo við Veghúsastíg
og síðast í hinum stóru og nýju
húsakynnum í Garðabænum.
Eftir seinni heimsstyrjöldina
átti faðir okkar í erfiðleikum með
að framleiða þá sápu eða sápuduft
sem honum líkaði sökum lélegs
hráefnis eða skorts á einu og öðru.
Það líkaði honum illa vegna þess
að hann var mjög vandvirkur og
vildi aðeins framleiða það besta
og og árangursríkasta. En með
árunum rættist úr þessu og fram-
leiðslan varð eins og hann vildi
hafa hana.
Það var gaman að heimsækja
pabba í verksmiðjuna þegar hann
var að hleypa sápumassanum fram
úr pottinum, sem var risastór.
Þegar massinn vall fram myndaði
hann ótal myndir og pabbi var
óspar að benda á ýmsar furðu-
myndir, sem líktust bæði mann-
fólki og dýrum. Og þegar hugurinn
reikar til baka liggur við að hin
sérstæða sápulykt, sem fylgdi
massanum, fylli vitin og gefi
minningunni lifandi blæ.
En það voru ekki einungis þessar
indælu sápumyndir, sem faðir
okkar gladdi okkur með, heldur
málaði hann fallegar myndir og
stór málverk, sem hrifu alla er litu,
og þær voru ófáar stundirnar sem
við sátum hjá honum og reyndum,
með hans tilsögn, að mála eins
fallega og hann. En árangurinn
varð ekki sá sami, það vantaði
þennan neista sem bjó í pabba.
Faðir okkar unni einnig tónlist
og þegar hann lék á mandólínið
sitt var hátíð í bæ og vetrarkvöld-
in, þegar fjölskyldan sat og söng
aðventulög við undirleik hans,
hafa greipt sig í hugann. Hann
hafði og góða söngrödd og söng
um árabil í kirkjukór Kristskirkju
i Landakoti.
Hann kom öllum í gott skap
þegar hann greip munnhörpuna
og spilaði svo snilldarlega á hana,
að oft á tíðum var sem heil hljóm-
sveit væri.
Já, hann pabbi var sannkallaður
listamaður og tilfinningaríkur
eins og góðum listamanni er eðli-
legt.
Við biðjum algóðan guð að gæta
hans og blessa.
Sigrún og Lydía
Birting
afmœlis- og
minningar-
greina
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast i í miðviku-
dagsblaði, að berast í síðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hlið-
stætt með greinar aðra daga. í
minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Þess skal
einnig getið, af marggefnu til-
efni, að frumort Ijóð um hinn
látna eru ekki birt á minningar-
orðasíðum Morgunblaðsins.
Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.
barnaborn og barnabarnabörn.
t
Faöir okkar,
BJARNI BJARNASON,
Hrafnistu,
Raykjavík,
sem andaöist 8. nóvember, veröur jarðsunginn frá Bústaöakirkju
á morgun, fimmtudaginn 14. nóvember, kl. 10.30.
Guölaug Bjarnadóttir,
Kristmundur Bjarnason,
Bjarni Bjarnason.
t
Móöir okkar og tengdamóöir,
SIGURBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR,
Bjargarstíg 7,
Raykjavfk,
er andaöist á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund þann 5. nóvemb-
er sl. veröur jarösungin frá Hallgrímskirkju þann 15. nóvember
kl. 13.30.
Blóm afbeöin en þeim sem vildu minnast hennar er bent á
liknarstofnanir.
Kristín Eyjólfsdóttir,
Eyjólfur Eyjólfsson,
Guórún Eyjólfsdóttir,
Sigurbjörg Eyjólfsdóttir,
Helga Eyjólfsdóttir,
t
Konan mín, móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma,
ÓLÖF FRIÐFINNSDÓTTIR
frá Berjanesi í Vestmannaeyjum,
Haukshólum 3,
er lést i Sjúkrahúsi Seyöisfjaröar 5. þ.m. veröur jarösungin frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 14. nóvemberkl. 15.00.
Jón Einarsson,
Elisa G. Jónsdóttir, Jón Hannesson,
Ragnheióur Jónsdóttir, Ernst Backman,
Gunnar Sv. Jónsson, Guórún Bergsdóttir,
Einar Þ. Jónsson, Erla Blöndal,
Ólöf J. Sigurgeirsdóttir, Jón Sigurösson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaöur minn,
SIGURÐUR JÓNSSON
frá Haukagili,
Víóimel 35,
veröur jarösunginn frá Neskirkju föstudaginn 15. nóv. kl. 10.30.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á líknarstofnanir.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigríóur Steingrímsdóttir.
t
Útför móöur okkar,
UNNAR SYLVÍU ÁRNADÓTTUR
veröur gerö frá Fossvogskirkju á morgun fimmtudaginn 14.
nóvemberkl. 10.30.
Halldór Hjartarson,
Magnús Hjartarson,
Benedikt Hjartarson.
t
Hjartans þakkir sendum viö öllum þeim sem sýndu okkur samúö
og hlýhug við andlát og útför, dóttur okkar og systur,
REGÍNU EINARSDÓTTUR,
Hamri,
Gaulverjabæjarhreppi,
Einar Steindórsson,
Þóra Egilsdóttir,
Steindór Einarsson,
Aóalheiöur Einarsdóttir.
t
Faöir okkar og bróöir
GUÐMUNDUR B. THORARENSEN
er látinn, jaröaförin hefur fariö fram. Sérstakar þakkir færum viö
sjúkrahúsi Suöurlands Selfossi fyrir ómetanlega aöstoö í veikindum
hinslátna.
Fyrir hönd systkina og annara vandamanna,
Guörún E. Thorarensen, Lúövík R.K. Guómundsson,
Jón Á. Thorarensen, Eygló M. Thorarensen,
Karolína Thorarensen, Guöbjörn J. Tómasson.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö vegna andláts og útfarar
eiginkonu minnar og móður okkar,
ÞURÍÐAR I. GUNNARSDÓTTUR,
Espigerði 4.
Júlíus Guömundsson,
Sveinlaug Júlíusdóttir,
Guómundur J. Júliusson.
Lokað
í dag frá kl. 14.00-16.00 vegna jarðafarar GUÐFINNU
LEU PÉTURSDÓTTUR.
Stefánsblóm,
Barónsstíg.
t
Elskuleg móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma,
GUDRÚN JÓNSDÓTTIR,
Mióvangi 41,
Hafnarfiróí,
lést í Hrafnistu Hafnarfiröi aöfaranótt 12. nóvember.
Fyrir hönd aöstandenda,