Morgunblaðið - 13.11.1985, Page 15
Fiskiþing 1985
MORGUNBLAÐID, MIDVIKUDAGUR13. NÓVEMBER1985
15
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Frá setningu Fiskiþings á mánudag. Fiskimálastjóri, Þorsteinn Gíslason, ávarpar fundarmenn.
Kvótakerfið festir var-
anlega í sessi lífs-
hættulega miðstýringu
- sagði Björgvin Jónsson, í framsöguræðu á Fiskiþingi
„ÉG játa, aí fullri hreinskilni, að ég er vægast sagt afskaplega tortrygginn
á kvótakerfið. Tortryggni mín byggist fyrst og fremst á því, að ég tel, að
með því sé verið að festa varanlega í sessi lífshættulega miðstýringu, sem
muni, þegar fram líða stundir, hneppa sjávarútveginn í skrifræðis- og mið-
stýringarfjötra, er nær ógerningur sé að komast úr,“ sagði Björgvin Jónsson,
útgerðarmaður, meðal annars í framsögu sinni um afkomumál sjávarútvegs-
ins á fiskiþingi.
Björgvin sagðist telja, að afla-
kvótakerfið nyti yfirgnæfandi
meirihlutafylgis, að minnsta kosti
fram á næsta ár. Allt of mikið af
dýrmætum tíma hefði farið í karp
um þetta mál og afkomumál grein-
arinnar meðal annars fallið í
skuggann vegna þessa. Hann teldi
því, að á þessu þingi ættu fulltrúar
að einbeita sér að afkomumálum
sjávarútvegsins og gera í alvöru
tilraun til að endurreisa reisn hans
og virðingu. Þjóðin yrði að skilja
á hverju hún lifði. Björgvin fjallaði
síðan um stöðu efnahagsmála í
landinu og stjórnun peningamála,
sem hann taldi í miklum ólestri.
Hann fjallaði síðan um afkomu í
einstökum greinum fiskvinnslunn-
ar:
„Saltfiskframleiðslan var rekin
með miklu tapi fram yfir mitt ár
og það svo miklu, þar sem hún var
erfiðust, eins og á Snæfellsnesi,
að þar eru horfur á að fyrirtæki
leggi upp laupana. Verð á saltfiski
hefir hækkað eftir því sem liðið
hefur á árið og nokkur ávinningur
orðið að SDR-tengingu samninga.
Hafa ber þó í huga, að samningar
við stærsta kaupandann, Portú-
gali, voru fastbundnir allt árið. Ég
tel þvi, að í heild verði saltfisk-
vinnslan á árinu rekin með nokkru
tapi.
Frystingin bjó við þolanlega
afkomu fyrstu mánuði ársins, en
síðan hefir sífellt stefnt í meiri og
meiri taprekstur. Á þróun verðlags
dollara þar drjúgan hlut að máli.
Það alvarlegasta í þessum efnum
er samt það, að vegna þessa tap-
reksturs, sýnist mér nú horfur á
því, að við séum að stefna í voða
öllu því markvissa starfi, sem búið
er að leggja í uppbyggingu sölu-
kerfa íslenzkra fyrirtækja í
Bandaríkjunum, bezta matvæla-
markaði heimsins. Það yrði ör-
lagaríkt fyrir þjóðina, ef vitlaus
peningapólitík eyðilegði þann
markað á fáum mánuðum.
Á þessu ári tókst að gera samn-
inga um sölu á 200.000 tunnum af
síld til Sovétríkjanna og 45.000
tunnum til Norðurlandanna. Þess-
ir samningar tókust fyrst og
fremst fyrir markvisst sölustarf
Síldarútvegsnefndar undir forystu
Gunnars Flóvenz. En bagalegt er,
að verð lækkaði um 13% í doll-
urum frá fyrra ári. Enn seljum við
þó sildina á verulega hærra verði
en keppinautar okkar. Mér er
persónulega kunnugt um, að
Gunnar Flóvenz var ákaflega ófús
að undirrita þessa samninga, nema
trygging væri fyrir því, að fé yrði
útvegað úr verðjöfnunarsjóði Afla-
tryggingasjóðs til að unnt yrði að
greiða sjómönnum og útvegsmönn-
um viðunandi verð fyrir síldina,
miðað við þá miklu verðlækkun,
sem varð á henni saltaðri. Þetta
tókst ekki. Við verðlagningu á síld
til söltunar á þessu hausti var
beitt aðferðum, sem óþekktar eru,
jafnvel á þessu undralandi. Höfuð-
röksemd oddamanns, sem verðinu
réð, var sú, að sjómenn og út-
gerðarmenn þyrftu einfaldlega á
hækkun á hráefnisverði að halda.
Nú vill svo til á þessu hausti,
að mestur hluti síldarinnar er
verkaður i landshluta, sem mér er
hlýtt til, og þar sem ég hafði
nokkur afskipti af pólitík sem
ungur maður. Á mínum æskuárum
þarna austur á landi hefði þessi
síldarsöltun verið talin mikil guðs-
gjöf, sem flutt hefði mikla fjár-
muni inn í landshlutann. I hita
leiksins skapaði þetta líka mikla
vinnu meðan saltað var. Þvi miður
sýnist mér nú, að þessi mikla síld-
arsöltun á Austfjörðum í haust
geti snúizt upp í efnahagslegan
harmleik, sem svipt gæti Aust-
firðinga tugum milljóna af allt of
litlu starfsfé, sem þar var fyrir.
Eitt af brýnustu verkefnum í sjáv-
arútvegi nú er að reyna með
stjórnvaldsaðgerðum að bæta að
hluta þau miklu mistök, sem þarna
voru gerð.
Ástandið á skreiðarmörkuðum
er óbreytt frá síðasta ári. Nær
ekkert hefir selzt af skreið á þessu
ári, en nokkuð mikið greiðzt af
útistandandi skuldum í Nígeríu.
Enn eru þó útistandandi í Nígeríu
yfir 6 milljónir dollara. Á síðustu
lánsfjárlögum var heimild fyrir
ríkisstjórnina til að ábyrgjast 250
milljónir króna af afurðalánum á
skreiðinni. Þessi heimild verður
notuð og átti í reynd að vera komin
í gagnið fyrir mörgum mánuðum.
Stjórnkerfi okkar er hins vegar
orðið svo flókið og miðstýringin
svo mikil, að mál þetta er búið að
flækjast milli skrifborða í kerfinu
mánuðum saman. Ég undirstrika
hins vegar, að þegar þetta sér
dagsins ljós, sem vonandi verður
á þessu ári, þá er hér aðeins um
lán að ræða. Ég undirstrika líka,
að stjórnvöld taka ennþá útflutn-
ingsgjöld af þeirri skreið, sem
selst, og taka auk þess fullan
gengishagnað af hverju kílói sem
selst. Nálgast þessi gjöld 20% af
skilaverði skreiðarinnar. Hygg ég,
að slíkt skilningsleysi stjórnvalda
á jafnmiklum vanda sé vandfund-
ið, þótt grannt væri leitað.
Við munum krefjast þess að fá
endurgreidda verðtryggða alla þá
aukapinkla, sem lagðir hafa verið
á skreiðina undanfarin mörg ár.
Við munum krefjast þess að fá 250
milljóna króna ríkislánið fært yfir
í verðjöfnunarsjóð skreiðar og að
svipuð upphæð til viðbótar verði
greidd úr verðjöfnunarsjóði til að
greiða veðlán af skreiðarbirgðum.
Inn í verðjöfnunarsjóðinn kæmu
siðan á móti allir þeir aukapinklar,
sem lagðir hafa verið á skreiðina
undangengin 10 til 12 ár.
Afskipti ríkisvaldsins af þessu
máli eru sorglega lítil. Ég fullyrði,
að ef ríkisstjórn íslands hefði eytt
þriðjungi þess tíma, sem hún hefur
eytt í Rainbow Warrior-málið, í
aðstoð við að selja skreiðina, þá
væri hún öll seld.“
Ekki möguleikar
til uppboðs á fiski
- við núverandi aðstæður, segir Kristján Ragnarsson
„ÉG tel, að við núverandi aðstæður
séu ekki möguleikar til uppboðs á
fiski. Menn verða að gera sér grein
fýrir því, ætli þeir sér að hafa upp-
boðsmarkað, eins og til dæmis er í
Bretlandi og Þýzkalandi, fer allur
fiskur á markað og er boðinn upp.
Útgerðarmenn, sem jafnframt verka
fisk, verða að láta þann fisk, sem
þeir afla, fara inn á markað. Hér eru
veiðar og vinnsla svo samtengd, að
ég á erfitt með sjá, að útvegsmenn,
sem verka afla af skipum sínum, séu
tilbúnir til að kaupa afla sinn á
uppboði aftur og sæta samkeppni við
aðra aðila um það,“ sagði Kristján
Ragnarsson, framkvæmdastjóri LÍÚ,
er hann var inntur álits á hug-
myndum um uppboðsmarkað á fiski
hér á landi.
„Þetta ætti þó ekki að útiloka
uppboðsmarkað, heldur er ég svo
hræddur um það, að svo víða á
landinu eru svo fáir aðilar, sem
gætu keppt um þennan afla.
Kannski aðeins einn fiskkaupandi
í stórri verstöð. Á þannig stað get
ég ekki áttað mig á því, hvernig
slík mál gætu leyst. Þó gæti svarið
við því verið í gegnum fjarskipti,
að menn yrðu að sæta sama verði
og annars staðar. Aðstæður geta
verið svo breytilegar frá einum
stað til annars. Á einum stað getur
hátt verð verið réttlætanlegt þann
tiltekna dag vegna lítils framboðs,
sem ekki á við á öðrum stað. Þess
vegna hefði ég viljað fara hægt í
sakirnar, reyna frjálsa verðmynd-
un, þar sem samkeppni á sér stað,
sjá hvað út úr því kemur. Næsta
mál í því efni gætu verið humar-
veiðarnar, sem ég tel upplagðan
grundvöll fyrir frjálsa verðmynd-
un, þar sem menn gætu farið til
Kristján Ragnarsson
margra kaupenda og útgerðin ekki
mjög háð vinnslunni. Við ættum
ekki að ætla okkur um of í þessu
í byrjun, þannig að þeim jákvæða
árangri, sem náðst gæti, yrði spillt.
Nú er það svo á þessum fisk-
mörkuðum, sem ég nefndi, að þar
er ákveðið lágmarksverð í gildi og
það er óheimilt að selja fisk undir
því verði. Ef hann ekki selst fyrir
það, er skylt að setja fiskinn í
mjölvinnslu. Að því leyti gæti
verið eitthvert lágmarksverð hér,
en að sjálfsögðu myndi þetta
minnka umfang verðákvarðana og
hafa verðmyndandi áhrif á íslandi.
Aukið frelsi og breytingar og að
reyna að þreifa sig áfram hvað
þetta varðar, tel ég vera jákvætt
og er á engan hátt bundinn af
því, að það, sem við erum að gera
í dag, sé það eina rétta,“ sagði
Kristján Ragnarsson.
Veiðigjaldakerfi
það, sem koma skal
- sagði Bjarni Bragi Jónsson, aðstoðarbanka-
stjóri Seðlabankans, við
„HELZT virðist þá mega gera sér
vonir um, að rétturinn til leyfasölu
reynist lykillinn að framtíðarþróun
yfir til veiðigjaldakerfis, sem hlýtur
að vera það, sem koma skal,“ sagði
Bjarni Bragi Jónsson, aðstoðar-
bankastjóri Seðlabankans, meðal
annars í erindi um gengisskráningu
og verðmyndunarkerfi sjávarútvegs-
ins, sem hann flutti á Fiskiþingi.
Þetta kom fram í þeim hluta
ræðu Bjarna Braga, sem fjallaði
um veiðistjórnun, en þar sagði
hann eftirfarandi: „Meðan við
höfðum ekki full ráð yfir fiski-
stofnum landgrunnsins var í reynd
ekki kostur neinna skynsamlegra
stjórntækja á þessum vettvangi.
Mikilli útgerð varð því að halda
uppi með misjöfnum árangri sem
eins konar herkostnaði til að halda
hlut okkar gagnvart öðrum þjóð-
um, enda þótt þannig væri nærri
fiskistofnunum höggvið. Frá því
að við náðum þessum yfirráðum,
hafa verið gerðar tilraunir með
beina magnstjórnun sóknar eða
afla, öðru nafni haftastjórn. Frá
hagrænu sjónarmiði er hvers kon-
ar stjórn af því tagi langtum lakari
en beiting frjálslegra fjárhags-
legra stjórntækja eins og veiði-
gjalda. En af öllum slíkum,- sem
til greina koma, hefur núverandi
kvótakerfi ótvíræða yfirburði til
skynsamlegrar hagnýtingar, án
þess að nokkuð sé dregið úr hinum
miklu mats- og álitamálum þess.
Mér virðast flokkadrættir í þessu
efni markast af æði gegnsæjum
setningu Fiskiþings
Bjarni Bragi Jónsson
eiginhagsmunaviðhorfum. Sökn-
uður manna yfir, að kerfið veiti
ekki svigrúm fyrir kapp án forsjár,
á sér ekki hagræna réttlætingu.
Megingalli kerfisins felst þó I því,
að með því er sett upp lénskerfi
veiðiréttar, svo að samkeppni fær
ekki notið sín og grisjun úreltra
og óhæfra flotaeininga er tafin.
Gallar þessir munu koma berlega
í ljós með vaxandi aldri flotans.
Helzt virðist þá mega gera sér
vonir um, að rétturinn til leyfasölu
reynist lykillinn að framtíðar-
þróun yfir til veiðigjaldakerfis,
sem hlýtur að vera það, sem koma
skal.“