Morgunblaðið - 13.11.1985, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR13. NÓVEMBER1985
Fiskiþing 1985
Kæða Halldórs Ásgrímssonar á Fiskiþingi:
Núverandi veiðistjórnun hefur aukið
tekjur sjávarútvegs um hundruð milljóna
HALLDÓR Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra, sagði við setningu Fiskiþings,
að verulegur árangur hefði náðst meö núverandi stjórnun Bskveiða. Sagði
hann sparnað vegna hennar nema um 400 milljónum króna fyrir botnfisk-
veiðiflotann í heild, aukin sókn í rækjuveiðar fæli í sér 700 til 800 milljóna
króna aukningu á útflutningsverðmæti sjávarafurða og aukin gæði þorska-
flans færðu útveginum nálægt 200 milljónir króna á ári miðað við núgildandi
verðlag.
Hér fara á eftir kaflar úr ræöu Halldórs:
„Við verðum að líta hlutlaust á
þann árangur, sem náðst hefur
með núverandi fiskveiðistefnu. í
því sambandi þarf einkum að
spyrja þriggja spurninga: Hefur
fiskveiðistefnan orðið til þess, að
aflinn er sóttur með minni til-
kostnaði? Hefur hún orðið til þess
að afli hafi komið á land, sem
annars hefði ekki veiðzt? Hefur
fiskveiðistefnan orðið til að auka
verðmæti aflans?
Því miður liggja ekki enn fyrir
reikningar fyrir útgerðina í heild
á árunum 1984 og 1985, en í áætl-
unum Þjóðhagsstofnunar er reikn-
að með, að í kjölfar nýju fiskveiði-
stjórnunarinnar hafi fylgt 9 til
10% sparnaður í sóknartengdum
útgerðarkostnaði. Fyrir botnfisk-
flotann í heild er hér um nálægt
400 milljónir króna á ári að ræða
miðað við núgildandi verðlag. Á
sama hátt má telja víst, að kvóta-
kerfi á loðnu- og síldveiðum hafi
gert þær veiðar hagkvæmari en
fyrr.
Með tilkomu kvótakerfisns á
botnfiskveiðum 1984 var hvatt til
sóknar í vannýtta fiskistofna.
Rækjuveiðar á djúpmiðum 1984 og
1985 eru glöggt dæmi um þetta en
engar hömlur voru lagðar á þær
veiðar og sókn í þær skerti ekki
aflamark í botnfiskveiðum. Árið
1984 jókst rækjuaflinn frá árinu
áður um rúmlega 11.000 lestir og
árið 1985 er búizt við að rækjuafl-
inn verði lítið eitt meiri en 1984.
Þessi aflaaukning felur í sér aukið
útflutningsverðmæti um 700 til
800 milljónir króna miðað við nú-
verandi verðlag, ekki sízt af því
að rækjan er í vaxandi mæli fryst
um borð.
Fiskveiðistjórnin stuðlar tví-
mælalaust að bættri aflameðferð,
þar sem menn geta ekki lengur
bætt sér upp lakari gæði með því
að auka stöðugt afla. Skýrslur
Fiskifélags íslands um gæðaflokk-
un þorskaflans 1984 sýndu, að
85,5% fóru í fyrsta gæðaflokk
samanborðið við rúmlega 80% árið
áður. Gæðaflokkun 1985 virðist
vera svipuð og 1984. Þetta eykur
verðmæti þorskaflans fyrir útveg-
inn um nálægt 200 milljónir króna
Breyttan vinnutíma
og aukna hagræðingu
- þar til frystihúsin geti keppt við frystitogara og
hátt ferskfiskverð erlendis, segir Bjarni Grímsson,
fulltrúi á Fiskiþingi
„MEGINMUNURINN á frystitog- húsi nema í ákveðnu magni og þvi
ara og frystihúsi í landi er sá, að er samsuða þessa alls heppilegust,
nýting togarans sem slíks er 85 til þegar til lengdar lætur,“ sagði
90 % af líftíma hans, en nýting frysti- Bj arni meðal annars.
hússins er 20 til 25 % af líftíma þess.“ _
á ári miðað við núgildandi verðlag.
Auðvitað er ekki hægt að fullyrða,
að þessi breyting stafi eingöngu
af breyttri fiskveiðistjórn, en hún
á hér hlut að máli og áreiðanlega
er hægt að ná enn meiri árangri.
Fiskveiðistefna, sem tekur ekki
heildarhagsmuni fram yfir sér-
hagsmuni, framtíðarhagsmuni
fram yfir stundar ávinning, er
stefnuleysi. Stjórnmálamenn, sem
telja staðbundna hagsmuni vega
þyngra en heildarhagsmuni þjóð-
arinnar eru að bregðast skyldu
sinni. Það er vissuiega mikið á þá
lagt, að standa gegn margvíslegri
kröfugerð og hagsmunabaráttu, en
sjálfstæði hverrar þjóðar byggist
í reynd á að það sé gert. Undanláts-
semi leiðir venjulega til upplausn-
ar og ringulreiðin, sem þá skapast,
getur haft alvarlegri afleiðingar,
en menn vilja almennt hugsa til.
Okkur hefur tekizt á undanförnum
árum að skapa bærilega samstöðu
um fiskveiðistefnuna. Fiskiþing
hefur ekki látið sitt eftir liggja í
þeim efnum og ég treysti því, að
héðan muni koma málefnalegar
niðurstöður eins og áður.“
Halldór ræddi ennfremur verð-
lagningu á fiski og þá hugmynd,
sem fram hefur komið um upp-
boðsmarkaði á takmörkuðum
svæðum til reynslu: „Annað atriði,
sem Samband fiskvinnslustöðv-
anna lagði til, var að sérstaklega
yrði kannað hvort unnt sé að koma
á uppboðsmarkaði á afmörkuðum
svæðum til reynslu. Forsenda þess,
að eiginlegur staðbundinn upp-
boðsmarkaður komist á, er að
nægilegur fjöldi kaupenda og selj-
enda sé á tilteknu markaðssvæði.
Eins og samgöngumálum er háttað
hér á landi, er þessi forsenda óvíða
fyrir hendi. Helzt kæmi það til
greina á Reykjavíkur- og Reykja-
nessvæðinu. í þessum efnum virð-
ist raunhæfara að hugsa sér að
frjáls verðmyndun yrði til fyrir
atbeina fjarskipta, en víða erlendis
hafa verið þróuð tölvukerfi, sem
nota mætti sem grundvöll að upp-
lýsinganeti fyrir slík viðskipti. Öll
þessi atriði þarfnast þó meiri
skoðunar og ég tel því rétt að skipa
nefnd til að kanna þessi mál nánar
og gera tillögur um hvernig standa
beri að tilraun af þessu tagi.
Eins og oft áður er afkoma sjáv-
arútvegsins í heild erfið. Svipting-
ar á gjaldeyrismörkuðum hafa
aukið erfiðleika fiskvinnslunnar
og nú er svo komið, að hún er rekin
með umtalsverðu tapi. Framundan
eru samningar um kaup og kjör
og mikilvægt að fyllsta tillit sé
tekið til þessarar þröngu stöðu.
Ýmsar þjónustugreinar hafa greitt
hærri laun en fiskvinnslan getur
NORRÆNI fjárfestingarbankinn
ákvað fyrir skömmu, að taka ekki
gildar ábyrgðir fiskivinnslufyrir-
tækja í Grindavík vegna fram-
kvæmdalána, sem bankinn veitti
fyrirtækjunum sem hluthöfum í Fisk-
eldi Grindavíkur hf. Var sú ákvörðun
tekin eftir að bankinn hafði metið
gildi hverrar ábyrgðar fyrir sig eftir
athugun ársreikninga fyrirtækjanna.
Björgvin Jónsson, útgerðarmað-
ur, ræddi mál þetta meðal annars
á Fiskiþingi á mánudag og tók
þetta sem dæmi um stöðu sjávar-
útvegs á íslandi. Hann sagði Fisk-
eldi Grindavíkur miðlungs stóra
fiskeldistöð, sem rekin væri þar í
bæ og flest ef ekki öll fiskvinnslu-
fyrirtæki staðarins væru hlut-
hafar. Norræni fjárfestingarbank-
inn hefði veitt fyrirtækinu fram-
leyft sér og komast upp með að
setja ýmsar hækkanir út í verðlag-
ið og krefjast meir af sjávarútveg-
inum. Þessari öfugþróun verður
að linna. Hins vegar er ekkert;
auðvelt svar að finna með hvaða
hætti það verður gert. Almennt
má segja, að aðhalds þurfi að gæta
á öllum sviðum. Sjávarútvegurinn
býr við gífurlegt aðhald í rekstri
og stöðvun í fjárfestingum hefur
ríkt. Því er ekki hægt að þola
þenslu á ýmsum öðrum sviðum,
sem aðallega er greitt fyrir með
erlendum lánum og kostnaðar-
hækkunum, sem velt er út í innlent
verðlag og lenda á útgerð og fisk-
vinnslu að verulegu leyti."
kvæmdalán. Hluthafar hefðu verið
beðnir að ganga I ábyrgð fyrir lán-
um, sem námu sömu upphæð og
það hlutafé, er hvert fyrirtæki
hefði lagt fram. Öll fiskvinnslufyr-
irtækin hefðu verið látin senda
ársreikninga sína til bankans til
þess að hann gæti metið gildi
hverrar ábyrgðar fyrir sig. Niður-
staða bankans hefði verið sú, að
engin ábyrgðanna hefði verið tekin
gild.
„Nú er ég einn af þeim, sem lít
á atvinnurekstur í Grindavík, sem
blómann úr rekstri vélbátaútgerð-
ar í landinu og á hin grónu fiskiðn-
aðarfyrirtæki þar sem stórauðug.
Þessi saga segir mér meiri sann-
indi, en niðurstöður tuttugu hag-
deilda um afkomu sjávarútvegs-
ins,“ sagði Björgvin Jónsson.
Norræni fjárfestingarbankinn:
Fiskvinnslufyrirtæki í
Grindavík ekki ábyrgð-
arhæf fyrir lánum
- segir Björgvin Jónsson, útgeröarmaður
Þessar upplýsingar komu fram
í framsöguerindi Bjarna Gríms-
sonar við setningu Fiskiþings.
Bjarni fjallaði um afkomu í sjávar-
útvegi og hvaða möguleika fisk-
vinnslan hefði til að aðlaga sig
breyttum aðstæðum og aukinni
samkeppni, meðal annars við
frystitogarana. Bjarni sagði, að í
dag væri glæsilegt að gera út á
frystingu og selja í Evrópu ferskan
fisk. Fyrir nokkrum árum hefði
verið sagt að um offjárfestingu
hefði verið að ræða í skipum og
jafnvel frystihúsum: „Hafi verið
offjárfesting og of mikil sókn, er
þá ekki svo í dag?“ spurði Bjarni.
„Og hvað missir þjóðfélagið, ef
fiskurinn, sem veiddur er af einum
togara, veitir bara 20 mönnum
atvinnu í stað 70 til 80 áður.
Meginmunurinn á frystitogara og
frystihúsi í landi er sá, að nýting
togarans sem slíks er 85 til 90%
af líftíma hans, en nýting frysti-
hússins er 20 til 25% af líftíma
þess. Þannig þarf mörgum sinnum
lægra framlag úr rekstri til að
standa við afskriftir og vexti.
Þetta segir, að sú hagræðing, sem
bezt borgar sig fyrir fiskvinnsluna,
er að láta vinna 16 til 18 tíma á
sólarhring í stað 8 tíma eins og
gert er í dag. Á togurum er unnið
allan sólarhringinn. Hins vegar er
nýting frystihússins á fiskinum til
muna betri en hjá togaranum og
margföldunaráhrifin í þjóðfélag-
inu eru helmingi meiri en hjá
togaranum. Þannig er mín skoðun
sú, að með breytingu vinnutíma
og stöðugri hagræðingu séu frysti-
húsin fullfær um að keppa við
frystitogarana og hátt verð á
ferskfiskmörkuðum. Hins vegar
eru ákveðnar tegundir fisks, sem
borgar sig ekki að vinna í frysti-
Útflutningur sjávarafurða fyrstu 9 mánuði ársins:
23 % verðmæta-
aukning milli ára
á föstu gengi
- hlutfall sjávarafurða - verðmæti útflutnings er 77,3%
HÉR FER á eftir yfirlit Fiskifélags íslands um útflutning sjávarafurða á
tímabilinu frá áramótum til 30. september. Heildarútflutningur þetta tímabil
var 478.668 lestir að verðmæti tæpir 19 milljarðar króna. Sama tímabil í
fyrra var útflutningurinn 369.593 lestir að verðmæti tæpir 12 milljarðar króna.
A fostu gengi er verðmæti útflutnings sjávarafurða 23% meira en í fyrra.
Hlutfall sjávarafurða miðað við heildarverðmæti vöruútflutnings landsmanna
er þetta tímabil nú 77,3 % en var 71,9 % á sama tímabili í fyrra:
Einstakir afurðafiokkar:
Jan./sept. Jan./sept.
1985 1984
Tonn þús./kr. Tonn þús./kr.
Frystar afurðir 122.643 10.782.014 110.429 6.699.464
Saltaðar afurðir 60.690 3.861.155 55.558 2.458.958
ísaðar og nýjar afurðir 113.942 1.550.231 49.558 624.410
Hertar afurðir 617 122.423 122 20.741
Mjöloglýsi 173.663 2.111.792 146.408 1.701.097
Niðurl. og niðurs. 2.767 505.237 2.325 329.664
Aðrar afurðir 4.346 19.417 5.193 71.302
(Verðlag hvors árs.)
Helstu vöruflokkar: Jan./sept. Jan./sept.
1985 1984
Frystar afurðir: Tonn þús./kr. Tonn þús./kr.
Síld 3.010 54.360 6.369 90.565
Loðna 929 20.102 824 12.779
Heilfrystur fiskur 12.584 465.382 10.567 250.619
Flök 92.726 7.982.688 81.117 4.961.029
Rækja 6.191 1.229.712 3.442 521.766
Humar 630 375.721 535 246.023
Hrogn 2.138 107.636 2.765 127.218
Dýrafóður 45 206 0 0
Hvalkjöt 3.116 271.357 3.718 282.238
Hörpuskel 1.236 272.771 1.093 207.227
Saltaðar afurðir:
Saltfiskur þurr 1.472 68.333 2.290 87.803
Saltfiskur óverk. 36.523 2.740.985 27.832 1.472.965
Saltfiskflök 2.509 198.939 1.765 109.014
Þunnildi 35 1.852 91 3.922
Grásleppuhrogn 1.111 127.536 1.604 128.107
Matarhrogn 1.17065.245 1.223 47.690 Beituhrogn
408 18.124 311 8.528 Síld
17.462 640.141 20.441 600.929
Mjöl og lýsi:
Þorskalýsi kaldhr. 1.158 41.735 1.819 42.659
Þorskalýsi ókaldhr. 632 13.938 1.420 22.119
Loðnulýsi 67.526 751.301 41.335 447.347
Karfalýsi 430 4.814 1.291 14.116
Hvallýsi Þorskmjöl 1.399 8.778 18.380 99.840 8.292 92.517
Síldarmjöl 191 2.440 318 4.009
Loðnumjöl 92.273 1.165.110 88.992 1.049.314
Karfamjöl 1.137 12.601 2.000 18.743
Lifrarmjöl 30 409 94 1.269
Steinbítsmjöl 0 0 95 1.081
Síldarlýsi 110 1.224 413 4.732
(saðar og nýjar afurðir:
Nýr fiskur m/flugi 1.189 111.184 984 56.679
Nýr fiskur m/gámum 21.543 633.261 9.580 148.523
Nýr fiskur m/skipum 91.211 805.786 38.995 419.208
Helstu viðskiptalönd: Jan./sept. Jan./sepL
1985 1984
Tonn þús./kr. Tonn þús./kr.
Bandaríkin 57.522 6.553.056 54.029 4.275.839
Bretland 133.919 3.580.303 67.715 1.487.663
Portúgal 23.386 1.729.599 15.121 814.388
Sovétríkin 35.983 1.687.156 33.131 1.163.357
V-Þýskaland 31.594 1.030.576 39.936 857.920
Asíulönd 11.168 793.456 8.680 461.286
Frakkland 23.435 646.901 18.793 461.300
Spánn 9.007 613.329 12.672 447.384
Danmörk 31.644 404.552 12.561 345.445
ítalia 4.668 366.066 5.277 225.422
Finnland 21.502 291.991 23.330 308.165
Grikkland 3.412 237.699 2.604 125.920
Svíþjóð 5.992 176.122 8.162 179.825
Holland 13.998 167.241 8.364 94.183
Noregur 7.006 136.775 2.638 47.743
Pólland 7.780 102.022 15.912 184.688
Færeyjar 43.663 96.318 19.338 38.303