Morgunblaðið - 13.11.1985, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR13. NÓVEMBER1985
MORGUNBLADIÐ, MIÐVIKUDAGUR13. NÓVEMBER1985
29
inrgmimlbWiilí
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aöstoöarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágústlngi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, simi 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift-
argjald 400 kr. á mánuöi innaniands. í lausasölu 35 kr. eintakiö.
Flokkur
í sjálfheldu
Alþýðubandalagið er flokkur
í sjálfheldu. Það er megin
niðurstaða landsfundar flokks-
ins, sem fram fór fyrir og um
síðustu helgi. Fyrir landsfund-
inn var ljóst, að staða formanns
flokksins, Svavars Gestssonar,
var orðin mjög veik. Hann lá
undir mikilli gagnrýni innan
flokksins fyrir einræðiskennd
vinnubrögð. Þessi veika staða
hans og innsta kjarna flokksins
kom berlega í ljós á aðalfundi
útgáfufélags Þjóðviljans fyrir
nokkru, þegar flokksformaður-
inn varð fyrir miklu áfalli. Þetta
var staðfest á fyrsta fundi út-
gáfustjórnar Þjóðviljans, þegar
í Ijós kom, að Svavar Gestsson
hefði ekki náð kosningu sem
formaður stjórnar, ef atkvæði
varamanna, hefðu verið talin
með. Atökin á landsfundinum
undirstrikuðu þessa veiku stöðu
formanns Alþýðubandalagsins.
Hann gerði ítrekaða tilraun til
þess að koma í veg fyrir kjör
Kristínar Olafsdóttur í stöðu
varaformanns, en tókst ekki. Að
fundinum loknum stendur for-
maðurinn uppi umkringdur af
þeim Kristínu Olafsdóttur, senm
varaformanni og formanni mið-
stjórnar og Olafi Ragnari
Grímssyni, sem formanni fram-
kvæmdastjórnar. Hann barðist
gegn Kristínu og pólitískur
fjandskapur þeirra Olafs Ragn-
ars er nú orðinn augljós. Svavar
Gestsson var því enginn sigur-
vegari á þessum fundi, þótt hann
næði endurkjöri, sem flokks-
formaður. Staða hans sem slík
næstu árin verður einnig erfið
vegna þess, að skv. flokksreglum
Alþýðubandalagsins má ekki
kjósa hann formann á næsta
landsfundi. Formennsku hans í
flokknum lýkur því á næsta
landsfundi Alþýðubandalagsins.
Andstæðingar Svavars Gests-
sonar gáfu sjálfum sér nafnið
“lýðræð’issinnar". Þeir hafa
haldið því fram í fjölmiðlum, að
þeir hafi unnið sögulegan sigur
á þessum landsfundi. Það er líka
rangt. Þótt þeir hafi fengið vara-
formann kjörinn, svo og for-
mann framkvæmdastjórnar,
hafa þeir ekki meirihluta í fram-
kvæmdastjórn flokksins. Það er
hægt að líta svo á að gamli for-
ystuhópurinn í Alþýðubandalag-
inu hafi haldið meirihluta í
framkvæmdastjórninni eða
a.m.k. að Alþýðubandalagsmenn
í verkalýðshreyfingunni hafi náð
þar oddaaðstöðu og geti deilt og
drottnað að vild sinni. Alla vega
er ljóst, að Olafur Ragnar hefur
ekki meirihluta í framkvæmda-
stjórninni. Með sama hætti og
Svavar Gestsson er hann um-
kringdur innan framkvæmda-
stjórnarinnar og getur sig í raun
hvergi hreyft. “Lýðræðis-
sinnarnir hafa bví ekki náð
undirtökum í Alþýðubandalag-
inu en þeir hafa náð nægilega
sterkri stöðu til þess að hefta
athafnafrelsi formannsins.
Gamla klíkan í flokknum, hefur
misst svo mikið að hún er einnig
lömuð. Þess vegna er Alþýðu-
bandalagið flokkur í sjálfheldu.
Þá vekur það einnig athygli,
að allar umræður á landsfundin-
um snerust um innbyrðis deilu-
mál. Öll starfsorká fundarins fór
í að leysa deilur milli manna,
sem fyrst og fremst voru per-
sónulegs eðlis. Þar sem þessar
deilur voru ekki útkljáðar í kosn-
ingum á milli manna, heldur
með samningum að tjaldabaki,
fékkst engin niðurstaða. Sú stað-
reynd mun leiða til þess að
Alþýðubandalagið verður upp-
tekið við innri málefni sín næstu
misseri. Það mun því engum
tökum ná á stjórnarandstöðunni
eða málefnabaráttu á þjóðar-
vettvangi.Þetta hefur að sjálf-
sögðu mikla þýðingu fyrir
stjórnarflokkana og þýðir að
helzti andstæðingur þeirra fram
að næstu kosningum verður
Alþýðuflokkurinn og hugsanlega
Kvennalistinn að einhverju
leyti.Um Bandalag jafnaðar-
manna verður ekki að ræða
vegna þess, að innri deilumál
þess hafa dregið úr því allan
kraft.
Alþýðubandalagið siglir hrað-
byri inn í samas konar ástand,
eins og ríkti á Viðreisnarárunum
og lamaði það að verulegu leyti
þann áratug. Atökin eiga eftir
að harðna en ekki minnka.
Gamla klíkan í Alþýðubandalag-
inu, sem er arftaki gömlu kom-
múnistanna í Sósíalistaflokkn-
um mun leggja alla áherzlu á
það næstu misserin að grafa
undan andstæðingum sínum og
bregða fyrir þá fæti. Þessi gamli
flokkskjarni hefur sérstaka
þekkingu á vinnubrögðum af
þessu tagi og hefur reynslu
sinnar vegna verulega mögu-
leika á að sigra í þeim átökum,
þótt það yrði undir forystu
annars manns, en Svavars
Gestssonar, sem hefur misst fót-
festu í svo ríkum mæli, að hann
verður ekki áhrifamikill leiðtogi
flokksins á þjóðarvettvangi úr
þessu. Andstæðingar gömlu klí-
kunnar eru hins vegar það fyrir-
ferðamiklir í stjórnmálum,. að
jafnvel þótt þeir tapi slagnum
um yfirráðin í Alþýðubandalag-
inu næstu árin munu þeir ekki
leggja upp laupana.Þess vegna
má búast við miklum pólitískum
tíðindum af þessum vígstöðvum
næstu misserin. Sú staðreynd,
að Alþýðubandalagsmenn verða
uppteknir við eigin deilumál
næstu misseri veitir stjórnar-
flokkunum hins vegar tækifæri,
sem mikið veltur á, að þeir kunni
að notfæra sér.
Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra:
„Fallið frá áður ákveðinni
viðbótarskattheimtuu
Dregið úr ríkisútgjöldum og erlendum lántökum
LAUSLEGA áætlað virðist
skattbyrði einstaklinga til
ríkisins af beinum sköttum
nema 3,8 %á árinu 1986
miðaö við tekjur greiðsluárs,
en í ár er hún talin verða
kringum 4,4%. A árunum
1981—1983 nam þetta hlut-
fall um 5,5 %. Þannig komst
Þorsteinn Pálsson, fjármála-
ráðherra, að orði þegar hann
flutti fjárlagaræðu í gær. Hér
á eftir fara fáeinir kaflar úr
ræðu hans.
V erðlagsbrey tingar
— kjarasamningar
„Verðlagsbreytingar á næsta ári
munu að talsverðu leyti byggjast
á niðurstöðu kjarasamninga í árs-
byrjun. Það er yfirlýst stefna ríkis-
stjórnarinnar, að beita ekki kaup-
skerðingu í því skyni að hafa hemil
á þeirri þenslu, sem nú á sér stað
í hagkerfinu. Að svo miklu leyti
sem verðmætasköpun vex á næsta
ári og næstu árum þurfum við að
hagnýta hana jöfnum höndum til
þess að verja kaupmátt launafólks
og greiða niður erlendar skuldir.
A miklu veltur því, hvernig stað-
ið verður að samningsgerð. Fram
hafa komið hugmyndir um eins
konar allsherjarsáttmála launa-
fólks, atvinnurekenda og ríkis-
valds. Ég ætla ekki að fjalla um
þær í einstökum atriðum við þetta
tækifæri. Markmiðið með slíkum
hugmyndum hlýtur í aðalatriðum
að vera tvenns konar:
í fyrsta lagi að þeir aðilar, er
hlut eiga að máli, nái samkomulagi
um kaupmátt eða lífskjarastig,
sem aðilar reyna að verja með
tilteknum aðgerðum. í öðru lagi
yrði við það miðað að kjarasamn-
ingar yrðu ekki til þess að auka
verðbólgu og skuldasöfnun. Bæði
þessi meginmarkmið skipta sköp-
um, þegar til lengri tíma er litið,
fyrir afkomu heimilanna og þjóð-
arbúsins I heild.
Með hliðsjón af þessum aðstæð-
um tel ég að rlkisstjórninni sé
bæði rétt og skylt að hlusta á
hugmyndir, sem fram eru settar.
um einhvers konar allsherjarsátt-
mála af þessu tagi. Þetta hefur
verið gert áður í meira eða minna
mæli. 1 þessu sambandi á ekki að
útiloka tilraun til ákveðins tíma.
Að þeim tíma liðnum yrði unnt
að meta árangurinn og ákveða,
hvort unnt væri að semja til lengri
tíma með þessum hætti.
Áður en bollaleggingar um þess-
ar hugmyndir halda áfram er
nauðsynlegt að gera skýra grein
fyrir því, að ríkisstjórnin getur
ekki gengið til viðræðna við aðila
vinnumarkaðarins á grundvelli
sem þessum, nema samstaða sé
milli stærstu heildarsamtaka
launþega þar að lútandi. í þessu
efni getur ekki eitt gilt fyrir launa-
fólk á almennum vinnumarkaði og
annað fyrir opinbera starfsmenn.
enn hefur ekki komið í ljós hvort
raunverulegur vilji og samstaða
er um þessar hugmyndir. Komi það
á daginn er ríkisstjórnin fyrir sitt
leyti reiðubúin til viðræðna."
Breytingar á fjárlaga-
frumvarpinu
„Ég mun nú gera grein fyrir
þeim breytingum, sem ríkisstjórn-
in og stjórnarflokkarnir hafa orðið
ásáttir um að leggja til við Alþingi
að gerðar verði á frumvarpinu.
Breytingar ná til tekju-, gjalda-
og lánaþátta frumvarpsins. Stefnt
er að nokkurri lækkun tekna frá
því sem kynnt er í frumvarpinu
eða 300 m.kr. og gjöld verði lækkuð
um 574 m.kr. Rekstrarafkoma
ríkissjóðs verður því 397 m.kr. sem
er nokkru betra en fram kemur í
frumvarpinu. Auk þessa er ráðgert
að lækka erlendar lántökur ríkis-
sjóðs um 500 m.kr. og er þetta
gerlegt vegna bættrar rekstraraf-
komu og einnig með aukinni inn-
heimtu afborgana og lækkun lán-
veitinga og hlutafjárframlaga.
Þessu til viðbótar er samkomulag
um að lækka erlendar lántökur
fyrirtækja með eignaraðild ríkis-
sjóðs um 300 m.kr. Með þessum
hætti næst það markmið að dregið
verður úr eftirspurn og erlendar
lántökur lækka um 800 m.kr.
samtals.
Ákveðið hefur verið að hverfa
frá fyrri áformum um að leggja
söluskatt á ýmsar vörur og þjón-
ustu sem ekki hefur verið sölu-
skattsskyld. Nemur þetta um 400
m.kr. Af öðrum breytingum á
tekjuhlið er lagt til að aflað verði
100 m.kr. tekna aðallega með því
að fella niður undanþágur til nið-
urfellingar á aðflutnings- og sölu-
gjaldi. Þyngst í þessu vegur gjald-
frelsi á innflutningi ýmiss konar
þjónustu- og framkvæmdavörum
til Pósts og síma.
Lagt er til að útgjöld ríkissjóðs
verði lækkuð um 574 m.kr. frá því
sem greinir í frumvarpinu.
Ráðgert er að af sparnaði í
rekstrarútgjöldum náist tæplega
50 m.kr. með lækkun einstakra
rekstrarverkefna eða frestun
þeirra um stundarsakir, en 120
m.kr. náist með sérstökum sparn-
aðaraðgerðum á vegum ráðuneyta
og stofnana ríkisins. Er fyrirhugað
að setja ákveðin mörk á fjárveit-
ingar til einstakra útgjaldaliða,
m.a. ferða- og bílakostnað, risnu
og aðkeypta þjónustu.
Ætlunin er að lækka launaút-
gjöld um 130 m.kr. með því að
endurráða ekki strax í störf þeirra
sem hætta, draga úr yfirvinnu og
ráðningu afleysingafólks. Nú er
unnið að gerð ítarlegra tillagna
um framkvæmd þessa atriðis. Rétt
er að fram komi, að sá sparnaður
í launaútgjöldum, sem hér er rætt
um, svarar til heilsárskostnaðar
við um 230 stöðugildi hjá ríkinu
af þeim 10 þúsund stöðugildum,
sem fyrir hendi eru hjá A-hluta
aðilum. LaunakostnaÓur vegna
þeirra er í frumvarpinu áætlaður
um 8 milljarðar króna þannig að
hér er í raun verið að tala um
mjög lítinn sparnað miðað við
heildarlaunakostnað ríkisins.
Tillögur um lækkun fram-
kvæmdaframlaga skiptast á
marga liði. Áformað er, að dregið
verði úr framlögum til ýmissa
málaflokka og fresta verður
nokkrum þörfum verkefnum."
Síðar sagði ráðherra:
„Ekki er ráðgert að skerða fram-
lög til vegaframkvæmda. Aftur á
móti er talið gerlegt að lækka fjár-
festingaáform áhaldahúss vega-
gerðarinnar um 30 m.kr., en þar
er um að ræða endurnýjun tækja
og véla. Verkefni vegagerðarinnar
hafa í auknum mæli verið boðin út
á almennum markaði og tækjaþörf
stofnunarinnar ekki eins og áður
var.
Hvað B-hlutann snertir, er ljóst
að þau ríkisfyritæki sem höfðu
áformað nokkra fjárfestingu verða
nú að rifa seglin. Ýmis þessara
fyrirtækja hafa haft mjög rúman
fjárhag undanfarin ár og geta ráð-
ist í miklar fjárfestingar. Gert er
ráð fyrir að dregið verði úr fram-
kvæmdum og endurnýjun búnaðar
hjá Pósti og síma, Ríkisútvarpinu,
Áburðarverksmiðju ríkisins og
RARIK auk fleiri aðila, sem
smærri eru í sniðum."
Tekjur og gjöld
Fjármálaráðherra vék síðan að
tekjum og gjöldum ríkissjóðs 1986,
samkvæmt frumvarpinu. Tekju-
hliðin einkennist öðru fremur af
tveimur meginþáttur, sagði hann.
Annars vegar af lækkun tekju-
skatts og umfangsmiklum breyt-
ingum á sviði tollamála. Hins
vegar af ráðstöfunum til að mæta
tekjutapi vegna skatta- og tolla-
breytinga, svo og til þess að koma
í veg fyrir halla á ríkissjóði á
næsta ári.
Um tekjuhliðina sagði hann
nánar:
Lauslega áætlað virðist skatt-
byrði einstaklinga til ríkisins af
beinum sköttum nema 3,8% á ár-
inu 1986 miðað við tekjur greiðslu-
árs, en í ár er hún talin verða
Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra
kringum 4,4%. Á árunum 1981—
1983 nam þetta hlutfall um 5,5%.
Ný tollalöggjöf sem fyrirhugað
er að taki gildi frá og með næstu
áramótum, mun hafa í för með sér
að aðflutningstekjur ríkissjóðs
munu lækka um 250 milljónir
króna. Til að mæta þessum tekju-
missi svo og vegna lækkunar tekju-
skatts, ásamt því að tryggja jafn-
vægi í ríkisfjármálum hefur verið
ákveðið að leggja fram frumvarp
um breytta tilhögun núgildandi
vörugj aldsinnheimtu.
Hækkun tekna ríkissjóðs vegna
breytts vörugjalds er áætluð rúm-
lega 1 milljarður króna. Verðlags-
áhrif þessarar auknu skattheimtu
eru áætluð þau, að framfærsluvísi-
tala hækki um 1%, en byggingar-
vísitala lækki um 0,5% vegna
lækkunar tolla á byggingarvör-
um.“
Fjármálaráðherra sagði áætluð
heildarútgjöld ríkissjóðs 1986, skv.
fjárlagafrumvarpi, 33,4 milljarði
króna. Otgjöld til samneyzlu, þ.e.
launa og rekstrar ríkisstofnana
hækki um 11,3% frá gildandi fjár-
lögum, vaxtakostnaður um 28,9%
og ýmsar rekstrar og neyzlutil-
færslur til atvinnuvega og ein-
staklinga um 9,1 %.
Framlög til vegamála eru áætluð
rúmir 2 milljarðir króna. Til hús-
næðismála 1.600 m.kr. Auk þess
er ráðgerð 1.200 m.kr. lánsfjáröfl-
un hjá lífeyrissjóðum til húsnæðis-
mála. Fjárútvegun til Lánasjóðs
nemur 1.100 m.kr. Sjóðurinn er
orðinn annar stærsti lánasjóður í
fjárlögum, næst á eftir byggingar-
sjóði. Niðurgreiðslur á vöruverði
og raforku eru fyrirhugaðar 1.000
m.kr.
Orðrétt sagði ráðherra:
„Þegar litið er á framlög til
svonefndra velferðamála síðustu
fjögra ára, kemur í ljós að framlög
til mennta- og tryggingarmála eru
svo til óbreytt sem hlutfall af þjóð-
arframleiðslunni. Hins vegar hef-
ur orðið aukning á framlögum
ríkisins til heilbrigðis- og félags-
mála, aukningin nemur um 1% af
þjóðarframleiðslu til hvors mála-
flokks frá árinu 1982. Sú aukning
mæld í fjárhæðum á núverandi
verðlagi nemur rúmlega 2 millj-
örðum króna.
í síðasta lagi vek ég sérstaka
athygli á fjármagnsútgjöldum
ríkissjóðs. í fjárlögum 1975 námu
vaxtagreiðslur 1,5% af heildar-
gjöldum, 1980 námu þær 3,5%,
4,6% 1984, 5,4% 1985 og eru áætl-
aðar 6,2% 1986, eða 2.006 m.kr.
skv. eldri framsetningu fjárlaga.
Miðað við þá framsetningu sem
nú er á fjárlögum nema vaxta-
greiðslur 3.244 m.kr. og er það um
9,6% af útgjöldum. I langtíma-
horfum um fjárhag ríkissjóðs er
talið að þetta hlutfall geti orðið
12% árið 1988.“
Lánsfjáráætlun
Fjárfesting sem hlutfall af þjóð-
arframleiðslu hefur farið stöðugt
lækkandi liðinn áratug, úr 30% af
vergri þjóðarframleiðslu 1984 í
21% 1986. Hinsvegar er ekkert lát
á viðskiptahallanum við útlönd og
áhyggjuefni hve innlendur sparn-
aður hefur dregizt saman. Innlend-
ur sparnaður var um og yfir 25%
af á síðasta áratug og er áætlaður
18% 1986.
„Áætlað er“, sagði ráðherra, „að
fjármunamyndun í landinu dragist
saman um 2,5% 1986. Fram-
kvæmdir atvinnuvega eru taldar
dragast saman um 2,7% og opin-
berra aðila um 4,2%. Hinsvegar
er gert ráð fyrir óbreyttu umfangi
í íbúðabyggingum, en útlit er fyrir
að þær dragist saman um 10% í
ár“.
Orðrétt sagði ráðherra:
„Lántökur ríkissjóðs eru áætlað-
ar alls 4,6 milljarðar króna, en þar
af renna 920 m.kr. til ráðstöfunar
B-hluta fyrirtækja og 3.654 m.kr.
til eigin þarfa A-hluta ríkissjóðs.
Ráðgert er að afla 1.850 m.kr.
innanlands með sölu spariskír-
teina og 2.724 m.kr. með erlendum
lántökum.
I sem skemmstu máli er nú
stefnt að lækkun erlendrar lán-
töku til A-hluta ríkissjóðs um 500
m.kr. þannig að alls verði aflað
erlendis frá 2.224 m.kr. Með þess-
um hætti er gengið lengra en svo
að erlendar lántökur samsvari
afborgun af erlendum lánum.
Helst hefði ég kosið að lækka er-
lendar lántökur ríkissjóðs enn
frekar en það verður ekki unnt á
árinu 1986.
Sérstaklega vil ég leggja áherslu
á það að erlends og raunar inn-
lends lánsfjár á ekki að afla til
hvaða verkefna sem er. 1 rauninni
er með öllu óvérjandi að taka er-
lend fé að láni til reksturs hins
opinbera. Miðað við það að raun-
vextir á erlendu lánsfé eru nú á
bilinu 5—6% þá segir það sig sjálft
að þau verkefni sem fjárins er
aflað til, veða að vera arðsöm.
Að ýmsu leyti hefur innlendur
lánsfjármarkaður undanfarin tvö
ár ekki verið í því jafnvægi sem
skyldi. Eftirspurn einkaaðila og
hins opinbera eftir lánsfé hefur
verið umfram framboð. Afleiðing-
arnar hafa komið fram í alvarlegu
misvægi á lánamarkaði og þurrð
á sparifé til varanlegrar fjárfest-
ingar. Snúist hefur verið gegn
þessum vanda með raunhæfari
ávöxtunarkjörum af hálfu opin-
berra aðila og auknu frjálsræði í
samkeppni um kjörin. Aukin og
harðnandi samkeppni um sparifé,
sem af þessu hefur leitt, hefur um
sinn gert opinberum aðilum sér-
staklega erfitt fyrir um innlenda
lánsfjáröflun. Ástandið virðist þó
smám saman vera að færast til
betri vegar með betra jafnvægi
milli innlána og útlána, bæði á
vegum bankakerfisins og almennt
á lánamarkaði."
Afkoma ríkissjóðs 1985
„Rekstrarafkoma ríkissjóðs er
um 2,8 milljörðum króna verri en
var á sama tímabili 1984. Gjöld
hafa hækkað um 47% en tekjur
aftur á móti um 27%.
Spár um afkomuhorfur A-hluta
ríkissjóðs í árslok 1985 sýna að
hagur ríkissjóðs mun versna veru-
lega frá því sem fjárlög ársins
gerðu ráð fyrir. Fjárlög þessa árs
áformuðu að rekstrarhalli yrði 750
m.kr. Nú er hinsvegar áætlað að
hann verði um 1,9 milljarðar
króna.
Orðrétt sagði ráðherra:
„Meginskýringar á auknum
rekstrarhalla frá fjárlögum ársins
eru:
— í fyrsta lagi vega áhrif kjara-
samninga ríkisstarfsmanna og
hækkun lífeyris- og sjúkratrygg-
inga þyngst í auknum útgjöldum
eða tæpum 1,5 milljörðum króna.
— I öðru lagi hafa komið til
ákvarðanir um viðbótarútgjöld að
fjárhæð 1,4 milljarða króna. Þar
valda mestu hækkun framlaga til
húsnæðismála, útflutningsbóta,
niðurgreiðslna og fjárframlaga til
Áburðarverksmiðja ríkisins.
— í þriðja lagi aukast tekjur
ríkissjóðs á árinu aðeins um 1,8
milljarðar króna eða 7% frá fjár-
lögum 1985 á meðan útgjöld hækka
um 11% mæld á sama veg.
Aukin fjárþörf vegna lána- og
viðskiptareiknings frá fjárlögum
nemur alls um 660 milljónum
króna. Meginástæða þess er sú að
í fjárlögum var gert ráð fyrir að
greiða afborganir til Seðlabanka
lslands að fjárhæð 160 milljónir
„Allsherjarsáttmáli launafólks,
atvinnurekenda og ríkisvalds“
Póst- og símamálastofnunin:
Jólafrímerkin koma út á
— eru eftir Snorra
Svein Friðriksson
JÓLAFRÍMERKI 1985 koma út á
morgun á vegum Póst og símamála-
stofnunarinnar og eni þau að þessu
sinni eftir listamanninn Snorra Svein
Friöriksson. Tákn myndanna eru
veturinn — tími jólanna. Jafnframt
verða gefin út eins póstkort
Frímerkin eru tvenns konar.
Annað að verðgildi 8 krónur, sem
er burðargjald hér innanlands og
til Norðurlandanna og hitt er 9
krónu merki sem notast á bréf til
annarra Evrópulanda en Norður-
landa. Á blaðamannafundi sem
haldinn var í tilefni útgáfu frí-
merkjanna kom fram að póst- og
símamálastjórnin hefur á undan-
förnum árum leitað til íslenskra
Myndir þessar eru verk Snorra Sveins Friðrikssonar og eru jólafrfmerkin
íár.
, Morgunblaðið/Bjarni
A blaðamannafundi er haldinn var í tilefni útgáfu jólafrímerkja 1985. Frá vinstri eru: Sigurþór Ellertsson, deildar-
stjóri frímerkjasölunnar, Snorri Sveinn Friðriksson, listamaður, Rafn Júlíusson, póstmálafulltrúi, Bragi Kristjáns-
son, framkvæmdastjóri viðskiptadeildar, Jón Skúlason póst- og símamálastjóri og Jóhann Hjálmarsson, blaðafull-
trúi póst- og símamálastofnunar.
morgun
listamanna þegar um gerð jólafrí-
merkja hefur verið að ræða. Árið
1983 hannaði Friðrika Geirsdóttir
frímerkin og í fyrra voru þau eftir
Alfreð Flóka. Stofnunin vill með
þessu leggja áherslu á að frí-
merkjaútgáfan geti stuðlað að
kynningu íslenskrar listar erlendis,
að sögn Jóhanns Hjálmarssonar,
blaðafulltrúa.
Snorri Sveinn fæddist á Sauðár-
króki 1934. Hann stundaði nám við
Myndlistarskólann í Reykjavík,
MHÍ og framhaldsnám við Konst-
fackskolan í Stokkhólmi. Hann
hefur haldið nokkrar einkasýning-
ar í Reykjavík og tekið þátt í
samsýningum á vegum Félags ís-
lenskra myndlistarmanna hér á
landi og erlendis. Einnig hefur
hann gert veggskreytingar á opin-
berar byggingar.
Snorri hefur starfað sem leik-
myndateiknari við Ríkisútvarpið-
Sjónvarp frá 1969 og veitir nú
forstöðu leikmyndadeild sjón-
varpsins. Þá hefur hann gert leik-
myndir fyrir Þjóðleikhúsið. Verk
hans eru m.a. í Listasafni ístands,
Listasafni ASÍ og Listasafni Hl.
Snorri hefur notið listamanna-
launa íslenska ríkisins, setið f
stjórn félags íslenskra myndlistar-
manna og verið fulltrúi félagsins í
Listráði Kjarvalsstaða.
Snorri lýsir frímerkjunum á
eftirfarandi hátt: “Vetrarmyndir
íslands eru furðumyndir úr snjó.
Sólin kveikir ljós í snjókristöllum.
Snjókorn falla, mætast pg mynda
form á hvítum fjallatindum, vörðu
á heiðarbrún."
Sigurþór Ellertsson, deildar-
króna. I endurskoðaðri áætlun er
hinsvegar áformað að greiða um-
samdar afborganir sem nema alls
690 milljónum króna til bankans
á þessu ári.
Til að mæta viðbótarfjárþörf
A-hluta ríkissjóðs í ár, er leitað
lántökuheimilda til langs tíma í
lánsfjárlögum fyrir árið 1986 allt
að 1,5 milljarði króna. Það sem á
vantar er gert ráð fyrir að taka í
ár sem skammtímalán hjá Seðla-
banka íslands sem greiðist á árinu
1986. Er sú fjárhæð 860 milljónir
króna eins og fram kemur i fjár-
lagafrumvarpinu sem hér er til
umræðu."
Fallið frá ákveðinni
viðbótarskattheimtu
Að síðustu sagði Þorsteinn Páls-
son, fjármálaráðherra:
„Ég hef í aðalatriðum gert grein
fyrir frumvarpi til fjárlaga fyrir
1986, ásamt þeim breytingum, sem
ráðgerðar eru. Meginatriðin eru
þessi:
— í fyrsta lagi fól frumvarpið í
sér jöfnuð milli tekna og gjalda.
Það er verulegur ávinningur, sem
náðist með aðhaldssemi í útgjalda-
ákvörðunum og aukinni tekjuöfl-
un.
— í annan stað hafa verið gerðar
breytingar á frumvarpinu er fela
í sér;
• að dregið er enn frekar úr
útgjöldum
• að fallið er frá áður ákveð-
inni viðbótarskattheimtu að
hluta til og framkvæmd eru
fyrirheit um áframhaldandi
lækkun tekjuskatts af al-
mennum launatekjum
• að erlendar lántökur verða
minni en ráð var fyrir gert
• að ekki er raskað við velferð-
arkerfinu
— í þriðja lagi er nú mikilvægt
að endurmeta sjálfvirk útgjöld
ríkissjóðs til þess að koma í veg
fyrir stóraukna skattheimtu á
næstu árum, sem ella er óumflýj-
anleg.
— f fjórða lagi er rétt að minna
á að við blasa ýmsir hættuboðar
að því er varðar almenna efna-
hagsstjórn í landinu. Með frum-
varpinu og þeim breytingum, er
ákveðið hefur verið að gera á því,
er af ríkisins hálfu reynt að stuðla
að betra jafnvægi.
— Við fjárlagagerð er togað úr
ýmsum áttum og ólíkir hagsmunir
vegast á. Flestir hafa áhuga á
margs konar verkefnum, er auka
útgjöld, en fæstir eru talsmenn
aukinnar skattheimtu. Aðstæður í
þjóðarbúskapnum kalla svo einatt
á að fjárlögin séu á hverjum tíma
þáttur í að ná fram heildarmark-
miðum í efnahags-, kjara- og at-
vinnumálum, sem að er keppt.
Með tilliti til þeirra ólíku hags-
muna, sem hafa verður í huga í
þessu sambandi.er þetta frumvarp
auðvitað ekki gallalaust. En á móti
því verður þó ekki mælt að í því
felst ríkisfjármálastefna, er miðar
að útgjaldaaðhaldi án þess að rýra
kaupmátt og velferð. Það hlýtur
að teljast mikilsverður árangur."
stjóri frímerkjasölunnar, sagði, að
í fyrra hefðu verið prentuð nær
tvær milljónir jólafrímerkja og er
gert ráð fyrir svipuðu upplagi í ár.
Þá verða einnig gefin út svokölluð
„maxi-kort“, sem eru póstkort með
samskonar prentuðu frímerki á.
„Slík kort hafa mikið söfnunargildi
og eru þar af leiðandi mikil verð-
mæti er fram líða stundir." Frí-
merkjaársmappa Póst- og síma-
málastofnunarinnar fyrir árið 1985
verður tilbúin nú með útkomu jóla-
frímerkjanna og kostar hún 310
krónur, en stofnunin hefur gefið út
slíkar möppur með þeim frímerkj-
um sem út hafa komið á árinu allt
frá árinu 1974.
1 útgáfunefnd eru Jón Skúlason,
póst- og simamálastjóri, sem er
formaður nefndarinnar, Rafn Júl-
íusson, póstmálafulltrúi, Jóhann
Hjálmarsson, blaðafulltrúi Póst-
og símamálastofnunarinnar og af
hálfu Félags frímerkjasafnara
Hálfdán Helgason, tæknifræðing-
ur, og Jón Aðalsteinn Jónsson,
orðabókarritstjóri.