Morgunblaðið - 13.11.1985, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÖ, MIÐVIKUDAGUR13. NÓVEMBER1985
Vamba- og garnahreinsun á Selfossi:
Um 4 þúsund blóðmörs-
keppir saumaðir á dag
^ Selfossi, 8. nóvember.
Á SELFOSSI starfrækir Sláturfélag
Suðurlands garna- og vambavinnslu-
stöð í svonefndu Þórshúsi. f sláturtíð
vinna þar um 40 manns og yfir vetr-
artímann eru þar 25 á launaskrá.
f stöðinni er unnið úr þvi sem
til fellur í sláturhúsum SS á Sel-
fossi og víðar auk þess sem reynt
er að fá hráefni annars staðar að
frá landsbyggðinni.
Vambirnar eru kaiónaðar, pill-
aðar, sniðnar og saumaðar. Hjá
Sláturfélaginu er gerður blóðmör
allan ársins hring og þess vegna
stöðug þörf á unnum vömbum. í
Þórshúsinu á Selfossi eru i slátur-
tíðinni saumaðir þetta 3—4 þús-
und keppir á dag.
Konurnar sem vinna við keppa-
sauminn bera sig að líkt og þær
séu að sauma fatnað eða þvíumlíkt.
Vambirnar eru sniðnar til á sníða-
borði eftir kúnstarinnar reglum
og siðan saumaðar í véium og eftir
liggur fagurlega lagaður blóðmör-
skeppur. Þegar stöðin var heimsótt
kepptust konurnar við og tilbúnir
keppirnir hrúguðust upp, en fóru
samt sem áður jafnóðum á mark-
aðinn í Reykjavík.
í stöðinni eru allar garnir unnar
sem Sláturfélagið notar utan um
vínarpylsurnar. Garnirnar eru
fyrst valsaðar og þannig hreinsað
út úr þeim. Síðan eru þær víddar-
mældar og garnir með rétta vídd
valdar úr. Þá eru þær spólaðar upp
Garðar Einarsson milli starfsstúlkna í stöðinni.
Starfsfólk rekur garnirnar.
MorgunblaAið/ Sig. Jðns.
á plasthólka í þar til gerðum vél-
um. Þannig eru garnirnar síðan
saltaðar og geymdar.
Sláturfélagið notar eingöngu
náttúrulegar garnir utan um pyls-
ur sínar og reynt er að kaupa
garnir af sláturhúsum því frekar
hefur verið hörgull á görnum en
hitt.
Garðar Einarsson stöðvarstjóri
í Þórshúsinu sagði að góður starfs-
andi væri í húsinu, þar ynni sama
fólkið ár eftir ár og því góður
kunningsskapur milli manna.
Hann sagði vinnsluna í gangi
yfir veturinn og fram á vorið, eða
meðan hráefnið entist.
Hann sagði það hafa verið gagn-
rýnt að stöðin hætti vinnslu hluta
úr árinu og að hafa ætti færra fólk
í vinnu svo starfsemin yrði jafnari
allt árið.
Ástæðuna fyrir því að ekki væri
hægt að koma til móts við þetta
sagði hann þá að eftirspurnin væri
það mikil eftir þessum vörum að
henni yrði ekki annað öðruvísi en
með þeim mannskap sem nú væri
til staðar. Stefnan væri sú að vinna
allt árið, þ.e. að fá nægilegt hráefni
til að gera slíkt mögulegt.
Hann sagði frekar erfitt að fá
garnir hjá sláturhúsum og væri
ástæðan sennileg sú að það þyrfti
mannskap til að sinna þessu sér-
staklega í hverju húsi nokkuð sem
ekki væri kannski lögð áhersla á.
Sig. Jóns.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raöauglýsingar
kennsta
Iðnskólinn í Hafnarfirði
Innritun á vorönn:
Innritun á vorönn er hafin og fer fram í skrif-
stofu skólans alla virka daga kl. 9.00-13.00 til
loka þ.m. Tekið er við innritun í eftirtaldar
deildir:
— 1. stig og 3. stig fyrir nemendur, sem eru
á námssamningi hjá fyrirtæki eða meist-
ara.
— Grunndeildmálmiöna.
- Grunndeild rafiðna.
— Grunndeildtréiðna.
— Framhaldsdeild hárgreiðslu.
— Tækniteiknun.
— Fornám.
Meistaraskóli
fyrir byggingariðnaðarmenn mun hefjast í
janúar og er innritað í hann á sama tíma.
Námskeið í notkun tölvustýrðra
framleiðsluvéla:
í janúar hefjast námskeið fyrir iðnaðar- og
tæknimenn þar sem kennd veröur notkun
tölvustýrðra framleiðsluvéla. Á námskeiöinu
veröur f jallað um eftirtalda þætti:
— Verksviðtölvustýrðravéla.
— Umritun upplýsinga af vinnuteikningum
eöa vinnulýsingum í forritunarmál.
— Mötun skipana inn í stýribúnað vinnsluvélar.
— Vinnaívinnsluvél.
Námskeiðið er 20 stundir og er námskeiös-
gjaldið kr. 3.000. Innritun fer fram í skrifstofu
skólans.
Skólastjóri.
fundir — mannfagnaöir
Lífeyrissjóðurinn Hlíf
heldur aðalfund sunnudaginn 17. nóvember
og hefst hann kl. 14.00 að Borgartúni 18.
Dagskrá: Reglugerðarbreytingar og venjuleg
aöalfundarstörf.
Stjórnin.
Fræðslufundur um-
hrossarækt
verður í slysavarnafélagshúsinu í Hafnarfiröi
fimmtudaginn 14. nóvember 1985 kl. 20.30.
Þorkell Bjarnason hrossaræktarráðunautur
sýnir m.a. myndir frá fjórðungsmótinu í sumar.
Nú er einstakt tækifæri að spyrja Þorkel spjör-
unum úr og skiptast á skoðunum um hrossa-
rækt. Allir velkomnir.
Hestamannafélagið Sörli,
Hafnarfirði.
Akranes
Sjálfstæöisfélag Akraness heldur aöalfund 14. nóvember kl. 20.30 i
Sjálfstæöishúslnu, Heiöargeröi 20.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnurmál.
Stjórnin.
Spekingar spjalla
Miövikudagskvöldiö 13. nóvember kl. 20.30 mun skólanefnd Helm-
dallar standa fyrir rabbfundi um stjórnmál. Gestir fundarins veröa
Vilhjálmur Egilsson, Sigurbjörn Magnusson, Óli Björn Kárason og Þór
Sigfússon.
Kaffiveitingar.
Nefndin.
Viðtalstími
stjórnarmanna
Miövikudaginn 13. nóv. mun Arnar Hákonar-
son vera til viötals á skrifstofu Heimdallar í
Valhöll, Háaleitisbraut 1, milli kl. 16 og 18.
Mun hann veita upplýsingar um starfsemi
félagsins og einnig skrá inn nýja felaga.
Sjálfstæðisfélag
Akureyrar
Aðalfundur.
Sjálfstæöisfélag Akureyrar heldur aöalfund 21. nóv. nk. kl. 20.30 i
Kaupangl viö Mýrarveg á Akureyri.
Dagskrá: Venjuleg aöalfundarstörf. Félagarfjölmennlö.
Stjórnin.
Opnunarhátíð
Föstudaglnn 15. nóvember kl. 21.30 veröur
„Neöri deild" Valhallar opnuö eftir miklar
endurbætur á salarkynnum („Neöri deildin"
hét áöur „Kjallari Valhallar"). Á þessari
opnunarhátiö veröa sérstaklr gestír þeir
Heimdellingar sem nú prýða framboösllsta
í prófkjöri Sjálfstæöisflokksins fyrir borgar-
stjórnarkosningar. Það eru þau: Anna K.
Jónsdóttir, Árni Sigfússon, Baldvin Einars-
son, Bjarni Á. Friðriksson, Jóhanna E.
Svelnsdóttir, Katrin Gunnarsdóttlr, Kristín
Sigtryggsdóttir, Sigurbjörn Þorkelsson,
Sólveig Pétursdóttir og Vilhjálmur G. Vil-
hjálmsson. SÍemmtinefnd „Neöri deildar"
fókk hátíölegt loforð frambjóöendanna aö ræður veröi ekki fluttar
heldur veröi rabbað yfir „léttum veitingum og Ijúfri tónlist”. Sverrir
Stormsker listamaöur mun einnig heiöra samkomuna og flytja
nokkurfrumsamin verk.
Anna
Jóhanna Katrin
Sigurbjörn Sólveig
Vilhjólmur
mammmml