Morgunblaðið - 22.11.1985, Blaðsíða 45
MORGUNBLADID, FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER1985
45
daWn .oitHk HiKjiTtfr (.IIDMUSlISSílS
Hl.M.ÁN HKMHáITIOS -
• •
Onnur sóló-
plata Her-
bertsGuð-
mundssonar
UM síöustu mánaðamót kom út hljóm-
platan Dawn of the Human Revolu-
tion, sem er önnur sólóplata Herberts
Guðmundssonar.
Platan var tekin upp í stúdfó
Stemmu af Sigurði R. Jónssyni og í
stúdió Grettisgati af Júlíusi Agnars-
syni, en hljóðblönduð í Tapestry
Studios í London af Geoff Claver.
Hönnun umslags var unnin af Ás-
geiri Júl. Ásgeirssyni Arkarfilm og
umslag prentað í Prisma.
Á plötunni koma fram margir af
þekktustu hljómlistarmönnum
landsins og má nefna Jakob Magnús-
son, Carol Nielsson, Guðmund Bene-
diktsson, Magnús Þór Sigmundsson,
Þorstein Magnússon, Magnús Há-
varðarson, Steingrfm Einarsson og
fleiri. Öll lög plötunnar eru eftir
Herbert að undanskildu einu lagi.
Mick Pollock aðstoðaði Herbert við
gerð texta plötunnar, sem eru allir
á ensku. Útgefandi er Bjartsýni en
dreifingu annast Fálkinn hf.