Morgunblaðið - 22.11.1985, Blaðsíða 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER1985
Klempel góður
Fré Jóhanni Inga Qunnaraayni, tréttamanni Morgunblaóaina f Voatur-Þýakalandi.
JERZY Klempel skoraði 17 mörk
fyrir Göppingen í jafntefli við
GUnzburg, 25-25, í Bundesligunni
í handknattieik é miðvikudags-
kvöld. Atli Hilmarsson skoraði
fimm mörk fyrir GUnzburg.
Staðan í hálfleik var 12-10 fyrir
Gunzburg. Mikil harka var í leiknum
og fengu fimm leikmenn aö sjá
rauöa spjaldiö. Gunzburg haföi
forystuna í leiknum allt til loka er
Göppingen náöi aö jafna.
Hameln, liö Kristjáns Arasonar,
geröi jaf ntefli viö Dormagen, 23-23.
Kristján var tekinn úr umferö allan
leikinn og skoraöi þrjú mörk.
Þetta voru einu leikirnir sem f ram
fóru í handboltanum í Vestur-
Þýskalandi á miövikudag.
i\tt.>VTÞ
•VtONTÞ
KR Reykavíkurmeistarar
Annar flokkur kvenna úr KR varö Reykjavíkurmeistari í körfuknattleik
er líöíö sigraöi liö ÍR í úrslitaleik, 40:26, fyrir skömmu. KR-stúlkurnar
voru vel aö þessum sigri komnar og er greinilegt aö meistaraflokkur-
inn þarf ekki aö kvtða neinu í sambandi viö framtíöina ef þessar stúlk-
ur halda áfram að æfa. Guörún Gestsdóttir skoraöi flest stig í úrslita-
leiknum, alls 13, en Hrönn Sigurðardóttir skoraöi 12 stig. Þær stöllur
fengu verölaun frá heildverslun Elísar Gíslasonar fyrir þennan árangur.
Á meðfylgjandi mynd eru í fremri röö frá vinstri, auk lukkutrölla:
Guörún Gestsdóttir, Ásta Sveinsdóttir fyrirliói, Hafdís Steingríms-
dóttir. I aftari röö: Ágúst Líndal þjálfari, Maríanna Garðarsdóttir, Jóna
Finnsdóttir og Hrönn Siguröardóttir.
Handboltar frá HSÍ
EINS og kunnugt er, er nú í fullum gangi samstarf HSÍ og OLÍS vegna undirbúnings íslenzka lands-
liósins fyrir A-heimsmeistarakeppnina í Sviss 25. feb.—8. mars 1986.
í fimm mánuöi fær HSÍ 5 aura af hverjum benzínlítra sem OLÍS selur og hefur HSÍ nú fengiö afhentar kr.
150 þús. fyrir fyrsta mánuöinn. Þannig er OLÍS benzín þegar oröiö umtalsveröur orkugjafi fyrir íslenzkan
handknattleik.
Um leiö og keypt er benzín hjá OLÍS fæst mynd af landsliösmanni og er oröiö mjög vinsælt um allt land
aö safna þessum myndum. Þegar náöst hefur aö safna 7 leikmönnum, þar af einum markmanni, fæst
vandaöur handbolti hjá HSÍ aö gjöf og miöi á einn landsleik og hafa nú 28 náö aö safna liöi. Alls veröa 400
handboltar afhentir, þannig aö enn eru 372 boltar eftir.
Fimleikar:
Birna valin formaður
— Lovísa Einarsdóttir hætt eftir fjögur ár
ÁRSÞING Fimleikasambands is-
lands var haldið dagana 15.—17.
óvember f íþróttamiöstöðinni í
Laugardal. Mjög vel var mætt á
þetta 18. þing FSÍ, og sýndi þaö
vel að áhugi er mikill hjá félögun-
um um hag sambandsins. Mörg
mál voru tekin fyrir og má m.a.
nefna aó mikiö var rætt um aö
auka þyrfti útbreióslu á almenn-
um fimleikum, hópkeppni eöa
dansfimleikum, nútímafimleikum.
Þessar greinar fimleikanna
henta best úti á landsbyggöinni,
þar sem þessar greinar krefjast
ekki notkunar á dýrum fimleika-
áhöldum. Þaö þyrfti aö stefna aö
fleiri innlendum fimleikahátíöum
meö svipuöu sniöi og þeirri sem
haldin var í sumar sem leiö, eins aö
stefna aö námskeiöi fyrir dómara í
áhaldafimleikum.
Lovísa Einarsdóttir gaf ekki kost
á sér til áframhaldandi formennsku
en hún starfaöi af miklum krafti í 4
ár. Birna Björnsdóttir var valin for-
maður í hennar staö.
(Fréttatilkynning)
• Strákar úr 5. flokki aem fengu vióurkenningu. Guómundur Gísla-
son var bestur og ar hann lengst til vinstri. Pétur Marteinsson og
Ómar Sigtryggsson eru honum á vinstri hönd. Ólafur Orrason og
Guómundur Steinsson afhentu verólaunin.
Uppskeru-
hátíö
Fram
Knattspyrnudeild Fram hélt
uppskeruhátíö sína síóastliöinn
mánudag á Hótel Sögu. Sem
venja er hjá félaginu voru út-
nefndir bestu leikmenn allra
flokka og voru þeim veittar
margsvíslegar viöurkenningar.
Besti leikmaður meistaraflokks
var kjörinn Ómar Torfason en
hann lék aðeins eitt keppnis-
tímabil meö liöinu. Nú leikur
hann meö Luzern í Sviss en lék
áöur með Víkingum. Kristín
Þorleifsdóttir var kjörin besti
leikmaöurinn í meistaraflokki
kvenna. Mikill fjöldi Framara
sótti hátíö þessa.
Örn Valdemarsson hlaut viöur-
kenningu fyrir besta ástundun í
meistaraflokki og Guömundur
Torfason var heiöraöur sérstak-
lega fyrir frábæra frammistööu í
sumar.
Gauti Laxdal var bestur í 2.
flokki, Helgi Bjarnason í 3. flokki,
Haukur Pálmason í 4. flokki,
Guömundur Gíslason í 5. flokki
og Geir Brynjólfsson í 6. flokki.
Mestar framfarir í yngri flokk-
unum sýndi Eiríkur Björgvinsson
í 2. flokki en Rúnar Gislason úr
5. flokki varö markakóngur Fram
á síöasta keppnistímabili, en
Rúnar skoraöi alls 34 mörk í
sumarfyrirliö sitt.
Framarar kjósa besta dómara
ársins úr rööum félagisns og aö
þessu sinni varö Ólafur Sveinsson
fyrir valinu. Þeir Viðar Þorkelsson
og Þorsteinn Þorsteinsson voru
heiöraöir fyrir aö leika sinn 100.
leik meö meistaraflokki í sumar.
Liósmyndlr/JGH
• Ómar Torfason var kjörinn leikmaður meistaraflokks hjá Fram.
• Halldór B. Jónsson, formaöur knattspyrnudeildar óskar Ólafi
Sveinssyni, Framdómara ársins, til hamingju.
ÚÍL