Morgunblaðið - 22.11.1985, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER1985
Nýr skólastjóri Hússtjómarskóla Reykjavlkur:
„Fallegur og góður vinnustaður“
— segir Ingibjörg Þórarinsdóttir nýráðin skólastjóri
Ljósmyndari Morgunblaðsins, Ragnar Axelsson, tók þessa mynd á
matreiðslunámskeiði Hússtjórnarskóla Reykjavíkur eitt kvöldið nú fyrir
skömmu. Ingibjörg Þórarinsdóttir nýráðin skólastjóri er lengst til hægri.
NÝR skólastjóri hefur tekið við
starfi við Hússtjórnarskóla Reykja-
víkur, en Ingibjörg Þórarinsdóttir
var ráðin skólastjóri við skólann
1. september síðastliðin. Tók hún
við af Jakobínu Guðmundsdóttur
sem gegnt hafði starfinu undan-
farin tíu ár. Jakobína kennir enn
við skólann og sér um vefnaðar-
kennslu sem þar fer fram.
„Nei, ég hef enn ekki staðið
fyrir neinum breytingum á
rekstri skólans, eða öðru sem
honum viðkemur," sagði Ingi-
björg Þórarinsdóttir, er blaða-
maður Mbl. ræddi við hana nú
fyrir skömmu. „Ég vonast fyrst
og fremst til þess að nemendur
haldi áfram að sækja skólann
eins og þeir hafa gert hingað til,
en kennslan hér fyrri hluta vetr-
ar byggist upp á námskeiðum."
Hvers konar námskeið eru í
boði?
„Við erum með dag- og kvöld-
námskeið í matreiðslu og fata-
saumi og námskeið í vefnaði.
Dagnámskeiðin í matreiðslu eru
stutt, í tvo til þrjá daga, og er
þá meðal annars kenndur ger-
bakstur, tilbúningur veislumatar
og tilbúningur grænmetisrétta.
Einnig eru dagnámskeið haldin
í tilbúningi á smurðu brauði,
fiskréttum og ýmsu öðru. Oft
koma til okkar hópar vina, fé-
lagasamtaka og eins starfsfélaga
og hafi þeir sérstakar óskir um
innihald námskeiðsins er reynt
að koma til móts við þær óskir.
Kvöldnámskeiðin í matreiðslu
eru lengri, fimm til sex vikur og
er þá kennt tvisvar í viku og farið
út í almenna matargerð og annað
sem tengist henni. Þessi nám-
skeið eru mjög vinsæl af karl-
mönnum og ég verð að segja eins
og er að þeir hafa reynst alveg
hreint frábærir nemendur."
Hvað um fatasaumsnámskeiðin?
„Þau hafa einnig verið mjög
vel sótt, sérstaklega af konum.
Þetta eru sex vikna löng nám-
skeið og eru þau bæði á kvöldin
og á daginn, ýmist einu sinni eða
tvisvar í viku. Vefnaðarnám-
skeiðin eru sjö vikna löng og er
kennt þrisvar sinnum í viku. Við
höfum núna mjög góða aðstöðu
fyrir þá sem þegar kunna að vefa,
og geta þeir komið hingað og
fengið aðstöðu í vinnustofunni
og einnig leiðsögn ef með þarf.“
Hvernig er starfsemi skólans
háttað eftir áramót?
„Eftir áramót hefst fimm
mánaða langt námskeið í hús-
stjórn og eru þá kennd hin hefð-
bundnu heimilisstörf, mat-
reiðsla, þjónustubrögð, hirðing
heimilisins og þvíumlíkt og einn-
ig fatasaumur, prjón og vefnað-
ur. Hafi nemendur mikinn áhuga
á einhverju sérstöku er tekið
tillit til þess þannig að kennslan
mótast einnig svolítið af nem-
endunum sjálfum. Rúmlega 20
manns geta verið á þessu nám-
skeiði og við höfum ennfremur
heimavist fyrir þá sem þess óska.
Á þessu námskeiði eru einnig
kennd bókleg fög, svo sem nær-
ingarfræði, vörufræði og heimil-
ishagfræði."
Hvað finnst þér um heimilis-
fræðikennsluna í grunnskólum?
„Ég tel þá kennslu jafn mikil-
væga og annað sem kennt er í
grunnskólanum. Það er mikil-
vægt fyrir ungt fólk að læra til
verka á heimilinu og ég tala nú
ekki um nú á dögum þegar allir
eru að flýta sér, þá er gott að
geta skipulagt vel þau störf sem
þarf að leysa af hendi."
Ingibjörg kenndi við Hús-
stjórnarkennaraskóla íslands
áður en hún tók við skólastjóra-
stöðunni við Hússtjórnarskóla
Reykjavíkur, en hún kennir þar
matreiðslu ásamt þeim Guðríði
Halldórsdóttur og Áslaugu Sig-
urgrímsdóttur. Sigríður Gísla-
dóttir kennir á fatasaumsnám-
skeiðunum og einnig Helga Frið-
riksdóttir.
Hússtjórnarskóli Reykjavíkur
er til húsa á Sólvallagötu 12 og
hann var stofnaður árið 1942 og
hét þá Húsmæðraskóli Reykja-
víkur, nafninu var síðan breytt
fyrir nokkrum árum. „Þetta er
fallegur og góður vinnustaður og
skólastjórastarfið leggst vel í
mig,“ sagði Ingibjörg Þórarins-
dóttir í lok samtalsins.
Frá saumanámskeiði Hússtjórnarskólans.
KONU í 2.SUTI
Kosningaskrifstofan í Lækjargötu 2 3. hæð (Nýja bíó)
er opin klukkan 16-22 og 10-22 um helgina.
Símar 11933 og 621808
Stuðningsmenn
Einar Kristjánsson
Sjötta bindi
af ritsafni
Einars frá
Hermundarfelli
GÓÐRA vina fundur heitir sjötta og
síðasta bindið af Ritsafni Einars
Kristjánssonar frá Hermundarfelli,
sem Bókaútgáfan Skjaldborg á
Akureyri hefur gefið út.
Á bókarkápu segir m.a.:
„í þessari bók hverfur Einar á
fornar slóðir, eins og eftirfarandi
kaflaheiti sanna: 70 ára ung-
mennafélagsstarfsemi í Þistilfirði,
Vetrardagar í Presthólum, Minn-
ingar um Seljaheiðina, Skyggnst
um í heiðalöndum Þistilfjarðar,
Níl bernskunnar, Bóndi í Efri-
Hólum og Fólkið í Víkunum. Þá
eru í bókinni þrír leikþættir, þar
á meðal þátturinn Frá horfinni
öld, samtalsþáttur með söngvum,
sem sýndur var á aldarafmæli
Akureyrarbæjar 29. ágúst 1962.
Þá eru einnig sýnishorn af ljóðum
Einars, sem flest eru tækifærls-
ljóð, flutt í afmælisveislum."
Bókin er 206 blaðsíður, unnin í
Prentsmiðju Björns Jónssonar.