Morgunblaðið - 22.11.1985, Blaðsíða 31
31
MORGUNBLAÐID, FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER1985
Vegna aukinnar eftirspurnar eftir olíu hefur verið gósentíö hjá útgerðum
risaolíuskipanna. Á myndinni er danska risaolíuskipiö Kirsten Mærsk.
Risaolíuskipin í
önnum á nýjan leik
ANNRIKIÐ á alþjóölega olíuflutn-
ingamarkaöinum í síðustu viku var
hiö mesta frá því áriö 1981. A sama
tíma voru farmgjöldin einnig hin
hæstu í fjögur ár.
I vikunni voru ekki færri en 13
risastór olíuskip leigð fyrir milli-
göngu skipamiðlara i London til
að taka olíu á Persaflóasvæðinu
einu, en að auki fóru þangað nokk-
ur risaolíuskip milliliðalaust.
Lengst af árinu 1985 hefur verið
sáralítið að gera hjá þessum risum
hafsins og farmgjöld hafa verið i
algjöru lágmarki. Astæðan fyrir
því er sú, að olíufélögin hafa keypt
eins litla olíu og þau hafa komist
af með, af því að forráðamenn
þeirra gerðu ráð fyrir, að olíuverð
lækkaði.
A síðustu vikum hefur verðið
hins vegar hækkað ört á hinum
frjálsa markaði og þess vegna
leggja olíufélögin nú kapp á að
birgjasigupp.
Félögin hafa keypt mikið af olíu
til þess að geta orðið við eftir-
spurninni i komandi kuldatíð. A
hinn bóginn gleymdu þau að
tryggja sig gagnvart skipafélögun-
um og það kemur þeim nú i koll.
Hefðu oliufélögin leitað eftir
samningum fyrir einum mánuði
hefðu þau bæði fengið olíuna og
flutningana á hagstæðara verði en
nú verður raunin á.
Veturinn er þegar genginn í garð
í Evrópu - og er nokkru fyrr á
ferðinni en olíufélögin reiknuðu
með. Sums staðar í álfunni hefur
snjóað meira en nokkru sinni frá
því á sjöunda áratugnum. Og það
hefur aukið eftirspurnina umfram
það, sem búist var við.
Það sem af er nóvembermánaðar
hefur verið gósentíð hjá útgerðum
risaolíuskipanna. En það virðist
vera skammgóður vermir, því að
hvert skip getur í hæsta lagi farið
tvær til þrjár ábatasamar ferðir á
milli Persaflóa og Evrópu eða
Bandaríkjanna.
I vor dettur markaðurinn niður
aftur, svo að um munar, og þá fá
risar hafsins að búa við þröngan
kost á nýjan leik.
(Byggt á Jyllands-Posten)
Rúmlega þúsund manns mynduðu
samfellda keöju milli sendiriða
Bandaríkjanna og Kovétríkjanna í
Madríd um þaö leyti sem leitoga-
fundurinn í Genf hófst á þriöjudag.
Hreyfing sem berst fyrir friði,
afvopnun og frelsi skipulagði þessa
Skæruliðar í Nicaraguæ
Fá banda-
ríska bfla
og flugvélar
Waahington og Managua,
N'icaragua, 20. nóvember. AP.
FULLTRUADEILD Bandaríkjaþings
samþykkti í gær málamiðlunarfnim-
varp, sem heimilar ríkisstjórninni aö
láta skæniliðum í Nicaragua í té
flugvélar og bfla, svo fremi sem
farartæki þessi séu ekki búin vopn-
um.
Frumvarpið, sem samþykkt var
með 387 atkvæðum gegn 21, kveður
einnig á um heimild til að fá
skæruliðum í hendur fullkominn
fjarskiptabúnað, en leggur áfram
bann við, að bandaríska leyniþjón-
ustan CIA aðstoði eða þjálfi
skæruliðasveitirnar.
Búist er við, að öldungadeildin
afgreiði frumvarpið endanlega í
þessari viku og verður það þá sent
Ronald Reagan Bandaríkjaforseta
til undirskriftar.
I gær börðust hermenn sandin-
istastjórnarinnar við skæruliða í
fimm klukkustundir í borginni
Santo Domingo, um 200 km austur
af höfuðborginni, og nutu aðstoðar
orrustuflugvéla, að sögn varnar-
málaráðuneytisins í Managua. Um
þrír tugir skæruliða féllu í átökun-
um.
I tilkynningu ráðuneytisins
sagði, að stjórnarhernum hefði
tekist „aö hrekja málaliðana á
brott úr borginni".
aðgerð til að undirstrika baráttu-
mál sín. Frammámenn samtak-
anna afhentu bréf í báðum sendi-
ráðunum þar sem þess er óskað
að samþykkt um afvopnunarmál
verði gerð á leiðtogafundinum.
Aðgerðin fór að öllu leyti friðsam-
lega fram.
Helle Konga-Nielsen, fyrsta konan
sem ráöin er stöðvarstjóri hjá SAS
SAS:
Kona ráð-
in sem
stöðvar
stjóri á
Arlanda-
flugvelli
KONA hefur nú í fyrsta sinn
verið ráöin sem stöðvarstjóri hjá
SAS, og er það Svíinn Helle
Konga-Nielsen sem tekur viö
stöövarstjórastarfinu hjá SAS á
Arlandaflugvelli þann 2. desem-
ber nk.
Helle Konga-Nielsen hefur
ekki starfað lengi hjá SAS, því
hún hóf störf þar 1983, en hafði
þá í mörg ár starfað fyrir hin
ýmsu fyrirtæki sem ráðgjafi.
Hún hóf störf hjá stjórnunar-
deild SAS og varð fljótlega
yfirmaður þeirrar deildar,
þannig að frami hennar hjá
SAS hefur verið skjótur. Hún
segist hafa ýmsar hugmyndir
varðandi nýja starfið, en bætir
því við að hún geri sér fulla
grein fyrir því að stórfyrirtæki
eins og SAS verði ekki breytt
á einni nóttu.
Tveir pólskir
unglingar flúðu
til Svíþjóðar
Stokkhólmi, 20. nóvember. AP.
TVEIR pólskir unglingar flúöu til
Svíþjóðar meö því aö leynast í 26
klukkustundir í undirvagni flutn-
ingabfls, sem fór meö ferju frá
Swinoujscie í Póliandi til Ystad í
Suður-Svíþjóö, aö því er sænska
fréttastofan TT sagöi frá í dag.
Drengirnir, sem eru 14 og 15 ára
gamlir bræður, komu til Svíþjóðar
fyrir u.þ.b. mánuði og báðu um
pólitískt hæli þar, að sögn TT.
Þeir áttu heima í sveitaþorpi
fyrir utan Krakov og flúðu án þess
að ráðgast fyrst við fjölskyldu
sína. Tóku þeir járnbrautarlest til
Swinoujscie og földu sig siðan í
bílnum, sem beið á hafnarbakkan-
um eftir ferjunni til Svíþjóðar.
Drengirnir voru óhreinir og
örþreyttir þegar til Ystad kom og
fóru í heitt bað og fengu hressingu
hjá lögreglunni, áður en þeir voru
yfirheyrðir.
Þeir kváðust ekki hafa neina
löngun til að búa í Póllandi, af því
að þar væri fók ofsótt fyrir að
taka ekki þátt í hátíðarhöldum 1.
maí og hundelt af minnsta tilefni.
Sáttmáli gegn
ofbeldisverkum
GEIR Hallgrímsson, utanríkisráö-
herra, undirritaði í gær, miðvikudag,
sáttmála, sem koma á í veg fyrir
ofbeldisverk og óeirðir á íþróttaleik-
vöngum, einkum þó á knattspyrnu-
leikvöngum. Segir frá þessu í frétt
frá Evrópuráðinu.
f samningnum er kveðið á um
ýmsar ráðstafanir til að draga úr
ofbeldisverkum. Er þar minnst á
aukna löggæslu, að þeir, sem brjóti
af sér verði saksóttir og dæmdir
til viðeigandi refsingar, að þeim
verði ekki hleypt inn á leikvangi,
sem eru undir áhrifum áfengis eða
annarra vímuefna og ýmsar aðrar
aðgerðir. Þjóðþing nokkurra Evr-
ópuríkja hafa nú þegar staðfest
þennan samning og önnur munu
gera það á næstunni.
Geir Hallgrímsson undirritaði
einnig Evrópusáttmála um stjórn-
un sveitarfélaga að viðstöddum
Gaetano Adinolfi, aðstoðarfram-
kvæmdastjóra Evrópuráðsins.
Madríd:
1.000 manns mynda
keðju milli sendiráða
Madríd, Spáni, 21. nóvember. AP.
í sjóferð, ert þú þá með það á hreinu hvar allur björgunarbúnaður skipsins er staðsettur og
hvort öll siglingatæki eru virk?
Það er góð regla f upphafi hverrar sjóferðar, að glöggva sig á staðsetningu og ástandi
öryggisbúnaðar skipsins.
REYNSLAN SÝNIR AÐ EKKERT KEMUR I VEG FYRIR SLYS Á SJÓ NEMA
ÁRVEKNI, DÓMGREIND OG KUNNÁTTA SJÓMANNA SJÁLFRA.
ÖRYGGISMALANEFND SJÖMANNA mldas