Morgunblaðið - 22.11.1985, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER1985
35
Sóknarnefnd Reykholtskirkju ásamt sóknarpresti.
unni varðveittir merkilegir leg-
steinar úr kirkjugarðinum, sem
lengi hafa legið undir skemmdum.
„Snorrastofa“
t Reykholt koma árlega þúsund-
ir gesta, innlendir og útlendir.
Flestir koma þeir fyrst í kirkjuna
áður en þeir ganga um staðinn.
Fæstir fá þeir nokkra fræðslu um
staðinn og söguna. í því skyni að
ráða bót á þessu og sinna gestrisni-
skyldu á staðnum, jafnframt því
að hafa frumkvæði að því að koma
upp aðstöðu fyrir þarfa og veglega
starfsemi, er gert ráð fyrir hliðar-
húsi við hina nýju kirkju. Þetta
Ný kirkja byggð í Reykholti
Sóknarpresturinn í Reykholti, sr. Geir Waage, við líkan hinnar nýju kirkju.
SÓKNARNEFND Reykholtskirkju í
Borgarfirði hefur beðiö Morgun-
blaðið að birta eftirfarandi fréttatil-
kynningu um nýja kirkju í Reykholti:
Margir áratugir eru síðan byrjað
var að tala um að byggja nýja
kirkju í Reykholti. Snemma á
þriðja áratug aldarinnar markaði
sóknarnefnd t.d. þá stefnu, að
spara skyldi viðhald kirkjunnar
sem reist var 1886-1887, en safna
þess í stað í sjóði til nýbyggingar
kirkjunnar. Þrátt fyrir þetta hefur
kirkjan fengið verulegar viðgerðir
bæði á 5. og6. áratug aldarinnar.
Um 1980 var svo komið að sýnt
var, að ekki gæti dregist lengur
að taka verulega á viðhaldi kirkj-
unnar, sem var orðin mjög illa
farin. Þá komu strax upp raddir
um að rétt væri að byggja heldur
nýja kirkju, er svaraði betur nýj-
um kröfum og breyttum aðstæðum
en sú gamla gætí*nokkurn tíma,
þótt endurbyggð yrði.
Að frumkvæði sóknarnefndar-
innar var kirkjan metin og henni
lýst. Var urinin rækileg greinar-
gerð um þetta efni. Það verk vann
Hjörlerfur Stefánsson arkitekt.
Lagði hann til, að kirkjan yrði
endursmíðuð í upphaflegri gerð.
Taldi hann líklegt að kosnaður við
þá smíði yrði ekki minni en ný-
smíði álíka húss. Sá kostur að gera
upp kirkjuna var talsvert skoðað-
ur. Jafnframt að stækka hana
nokkuð og koma þar fyrir nauðsyn-
legri aðstöðu, sem nú vantar í
kirkjuna.
Fljótlega lá hins vegar fyrir að
hvorttveggja væri óheppilegt og
ófært að bregða á það ráð, bæði
vegna stíls og gerðar hússins, og
eins hins, að þröngt er um kirkjuna
i kirkjugarðinum; grafið að henni
á alla vegu.
Ákveðið að byggja
nýja kirkju
Hjörleifs Stefánssonar, sem var
lesin og rædd svo og tillaga frá
sóknarnefnd um að byggja skyldi
nýja kirkju á staðnuln „í hefð-
bundnum íslenskum kirkjubygg-
ingastíl". Skyldi þess óskað 'við
húsameistara ríkisins, að hann
teiknaði kirkjuna. Skoðað var þó,
hvort rétt væri að efna til sam-
keppni um teikningar, en frá því
fallið vegna kostnaðar. Undir-
búningsnefnd kirkjubyggingar-
innar átti marga fundi með húsa-
meis'tara þar semJýgt var óskum
um gerð hússins og þá aðstöðu sem
þar þyrfti að vera. í samræmi við
þessar óskir lagði húsameistari
fram frumteikningar síðastliðið
vor. Jafnframt var smíðað líkan
eftir þessum frumteikningum.
Hugmýndir þessar voru síðan
lagðar fyrir aðalsafnaðarfund í
byrjun vetrar. Var þeim vel tekið
og samþykkt, að áfram yrði unnið
úr þeim hugmyndum, sem fyrir
liggja.
Áformuð kirkja
Kirkjan sjálf er krossbyggð út-
brotakirkja með stöpli og stúkum
í norður og suður. Hún er 325 m’
að gólffleti. Þar af er forkirkjan
um 40 mz. Gert er ráð fyrir 136
sætum í kirkjuskipi auk 22ja sæta
í útbrotum og suðurstúku, þar sem
gert er ráð fyrir hliðaraltari.'For-
kirkjan er lítið aðgreind frá
kirkjuskipinu og er þar unnt að
bæta við mörgum lausum sætum
við fjölmennar athafnir. í norður-
stúku er gert ráð fyrir söngkór og
orgeli og líkkapellu í útbroti norð-
an við kórinn en sacristu eða
skrúðhúsi að sunnanverður. Lagt
skal upp úr hljómburði í húsinu,
að það henti vel til tónlistarflutn-
ings. Kórinn er rúmgóður svo og
kórdyr og hentar það vel athöfn-
um, jafnframt því að fjölmennir
kórar geta staðið í kórdyrum þegar
tónleikar eru. Gert er ráð fyrir að
koma fyrir yfirlitssýningu um
sögu Reykholtsstaðar í forkirkju á
sumrum, þannig að þar geti gestir
lesið sig gegnum sögu staðarins
af spjöldum, myndum og textum á
nokkrum tungumálum. Jafnframt
yrðu þar eða annars staðar í kirkj-
hús stendur norðan kirkju, sam-
tengt henni með gangi, sem er
sameiginlegur inngangur beggja
húsanna. Upp af þessum gangi rís
klukkuturn með opnu porti fyrir
klukkur.
í húsi þessu er áformað að hafa
rúmgóða snyrtiaðstöðu fyrir gesti
og gangandi, aðstöðu til sérsýn-
inga ýmiss konar, er varða sögu
og menningu íslendinga. Athugað
verður, hvort samkomulag næst
um að hafa þar bókhlöðu, er nýtist
bæði skólanum og almenningi, og
þar verði gott safn fræðibóka um
tungu og sögu.
Brýnt er, að söguhelgi staðarins
verði betur sinnt en verið hefur.
Ekki er áhugi á að gera það með
minnismerkjum, heldur aðstöðu
þar sem lifandi starf er unnið;
aðstöðu sem gæti nýst í þágu bóka-
menningar, sögufræðslu, kynning-
ar á íslenskri menningu í fortíð
og nútíðog hagnýtrar þjónustu við
innlenda og erlenda gesti.
Með þvi átaki, sem nú stendur
yfir varðandi endurbætur og við-
reisn húsa Héraðsskólans, verður
í Reykholti ágæt aðstaða til að
þjóna gestum á sumrum. Jafn-
framt því fást brýnar úrbætur í
starfsaðstöðu skólans. Fyrirhuguð
hliðarbygging við nýja kirkju í
Reykholti hefur verið nefnd
„Snorrastofa" í virðingarskyni við
arfinn frá Snorra Sturlusyni.
Henni er ætlað að veita skjól hvers
kyns iðkun og ræktun þessa arfs,
jafnframt því að vera aðstaða til
að sinna gestum, sem sækja Reyk-
holt heim vegna þessarar arfleifð-
ar og söguhelgi. Það er skoðun
sóknarnefndar og safnaðar að með
tilkomu þessa húss, sé bætt úr
brýnni þörf, séð fyrir þörfum safn-
aðarins um leið og staðurinn fái
fallega og reisulega kirkju, er
honum hæfi.
Sex breskir tónlistar-
unncndur hér á landi:
Sigruðu í
spurninga-
keppni um
ísland og
íslenska tónlist
SEX breskir tónlistarunnendur
dvelja hér á landi um helgina í
vegum Flugleiða, Steinars Records
og Hollyvrood en ferðina hingað til
lands hlutu þeir í verðlaun fyrir sigur
í spurningakeppni um ísland og is-
lenska tónlist í breska danstónlistar-
ritinu „Blues & Soul“.
Spurningakeppnin var haldin
sérstaklega vegna kynningar nýrr-
ar safnplötu, Funkin Marvellous
sem Steinar gaf út í Bretlandi fyrir
stuttu. Á plötunni er danstónlist
sem samin er og flutt af Mezzef-
Plötusnúðurinn CJ. Carlos
orte, Shady Calver (áður Owens),
Chris Cameron, French Impres-
sion, Street Beat og Jakob Magnús-
syni, sem öll eru á sámningi hjá
Steinar Records (UK) Ltd.
Breskur plötusnúður, C J. Carlos
er með í för og mun hann snúa
plötum í Hollywood um helgina.
Hann mun vera einn kunnasti
plötusnúður Englands í dag.
Blaðamaður frá „Blues & Soul-
ritinu“ er einnig með i förinni. Sá
heitir Mark Webster, og mun hann
skrifa um skemmtanalífið í
Reykjavík í blað sitt auk þess sem
hann tekur viðtal við meðliA/i
Mezzoforte í ferðinni.
Fundur um málið var haldinn
14. ág. 1983. Þar lá fyrir skýrsla
WAGNER- n
sjálfstýringar
Wagner-sjálfstýringar,
komplett meö dælusettum
12 og 24 volt, kompás og
fjarstýringum fram á dekk,
ef óskað er, fyrir allar
stæröir fiskiskipa og allt
niöur í smá trillur. Sjálf-
stýringarnar eru traustar
og öruggar og auöveldar í
uppsetningu. Höfum einn-
ig á lager flestar stæröir
vökvastýrisvéla.
Hagstætt verð og
greiósluskilmálar.
Atlas hf
"Borgartún 24 — Sími 26755.
Pósthólf 4S3, Reykjavík
Nýjar gardútur á 50 krónur!
Ef gardínurnar þínar þola vatn þá
þola þær líka Bio-tex - undraþvotta-
efni sem gerir gömlu gardínurnar
sem nýjar á 15 mínútum.
Þú setur ylvolgt vatn í bala eða
baðker og 1 dl af bláu Bio-tex í
hverja 10 1 af vatni. Þegar duftið
hefur blandast vatninu leggur þú
gardínurnar í. Eftir að hafa dregið
gardínurnar fram og til baka í
vatninu í u.þ.b. 10 mín. skolar þú
þær í hreinu vatni og hengir til
þerris. Árangurinn er augljós,
gardínurnar verða sem nýjar og
íbúðin fyllist ferskara lofti.
Blátt Bio-tex í allan handþvott og
grænt Bio-tex í þvottavélina
(forþvottinn).
Undraefni í allra hendur. Fæst í næstu verslun.
Halldór Jónsson hf. Dugguvogi 8-10, sími 686066
s
I