Morgunblaðið - 22.11.1985, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER1985
Leiðtogafundurinn í Genf
Gagnlegir fundir þrátt fyrir
ágreining í mikilvægum málum
— segir í sameiginlegri yfirlýsingu Reagans og Gorbachevs
Genf, 21. nóvember. Frá Önnu Bjarnadóttur,
„FUNDIRNIR voru opinskáir og
gagnlegir. Alvarlegur skoðanamunur
ríkir enn um nokkur meginmálefni,“
segir í sameiginlegri yfirlýsingu leid-
toga Bandaríkjanna og Sovétríkj-
anna eftir fund Ronalds Reagan,
Bandaríkjaforseta, og Mikails Gor-
bachev, leiðtoga Sovétríkjanna, í
Genf 19. og 20 nóvember.
Yfirlýsingin var afhent frétta-
mönnum skömmu áður en leiðtog-
arnir komu fram saman í alþjóða-
fundasetrinu í Genf á fimmtudags-
morgun, fluttu stutt ávörp og
George Shultz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, og Edward She-
vardnadze, utanríkisráðherra Sov-
étríkjanna, undirrituðu samninga
sem stórveldin höfðu sæst á. Leið-
togarnir stóðu fyrir aftan utan-
ríkisráðherrana þegar þeir skrif-
uðu undir samningana og klöppuðu
með viðstöddum að athöfninni
Iokinni. Þeir kvöddust skömmu
seinna eftir að hafa skálað í
kampavíni og flugu frá Genf
skömmu eftir hádegið.
Leiðtogarnir fengu tækifæri til
að skilja afstöðu hvors annars til
heimsmála á fundinum í Genf,
samkvæmt sameiginlegu yfirlýs-
ingunni, um leið og þeir könnuðust
við muninn á viðhorfum þeirra
varðandi alþjóðamál. Þeir voru
sammála um nauðsyn þess að bæta
samskipti Bandaríkjanna og Sov-
étríkjanna og alþjóðasamskipti
yfirleitt. Mikilvægi áframhaldandi
viðræðna var staðfest á fundinum
og sýnir sterka löngun til að finna
sameiginlegan grundvöll til lausn-
ar ágreiningsefnum. Leiðtogarnir
ákváðu að hittast aftur fljótlega
og báðir þáðu boð hins um að
heimsækja Bandaríkin og Sovét-
ríkin. Starfsmenn utanríkisþjón-
ustu landanna munu skipuleggja
heimsóknirnar og finna rétta tím-
ann fyrir þær.
Samkomulag um málefni náðist
á ýmsum sviðum. Leiðtogarnir
voru sammála um að enginn gæti
sigrað í kjarnorkustíði og það
mætti aldrei verða háð. Þeir sætt-
ust á að reyna ekki að ná yfir-
burðum á hersviðinu. Þeir sam-
Eiginkonur leiðtoganna
eru ólíkar um flest
Sviðsljósid
á við Raisu
Genf, 21. nóvember. AP.
NANCY bauð Raisu upp á möndlute
og smákökur en Raisa gæddi Nancy
á kavíar og rússneskum kálrétti.
Eiginkonur þjóðarleiðtoganna eru
ólíkar um flest. Þsr klsðast hvor á
sinn hátt og haga orðum sínum á
ólíkan veg.
Þær Nancy og Raisa hafa hist
tvisvar og farið vel á með þeim
þótt ólíkar séu. Nancy hæglát og
virðuleg en Raisa ræðin og örugg
með sig. Nancy lætur fátt eftir sér
hafa opinberlega en Raisa lætur
flest flakka og er ekki feimin við
að spyrja, stundum dálítið barna-
legra spurninga um það, sem fyrir
augu ber.
Raisa minnir fréttamennina í
Genf mest á þann, sem kemur út
fyrir landsteinana í fyrsta sinn og
hrífst af öllu því, sem fyrir augu
ber. Vitað er, að hún hefur farið
með manni sínum til Frakklands
og Ítalíu en að öðru leyti mun hún
lítt hafa ferðast utan Sovétríkj-
anna.
fréttaritara Mbl.
þykktu að hraða samningaviðræð-
um um kjarnorku- og geimvopn í
Genf, sem stórveldin sættust á að
halda í janúar sl., og reyna að ná
samkomulagi um hvernig skuli
koma í veg fyrir vopnakapphlaup
úti í geimnum og hætta því á jörðu
niðri. Þeir vonuðust eftir fram-
förum á sviðum sem þjóðirnar eru
meira eða minna sammála um og
bentu á tillögur beggja um 50 pró-
sent kjarnorkuvopnafækkun og
tillögur um fækkun meðaldrægra
kjarnorkuvopna í því sambandi.
Leiðtogarnir lýstu ánægju með
reglulegt samband þjóðanna varð-
andi takmörkun útbreiðslu kjarn-
orkuvopna og sögðust ætla að
halda því áfram. Þeir endurtóku
vilja beggja þjóðanna að banna
efnavopn og eyðileggingu birgða
af þeim. Þeir voru sammála um
að hraða gerð alþjóðasamþykktar
varðandi efnavopn.
Reagan og Gorbachev voru enn-
fremur sammála um nauðsyn þess
að þjóðirnar myndu eiga regluleg-
ar viðræður um hin ýmsu málefni
sem oftast. Viðræðum embættis-
manna um svæðisvandamál mun
haldið áfram. Þjóðirnar munu
vinna með Japan að auknu öryggi
Eftir að undirritaðir höfðu verið
ýmsir samningar, sem gerðir voru á
leiðtogafundinum, tókust þeir í hend-
ur, Reagan og Shevardnadze, utan-
ríkisráðherra Sovétríkjanna, og
Gorbachev og Shultz, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna. Heilsuðust
þeir í kross eins og sjá má og þótti
það og annað vera einkennandi fyrir
óformleghcitin og einlægnina á leið-
togafundinum. Að baki þeim stendur
sovéskur túlkur og er erfitt að sjá
hvort honum líkar betur eða verr.
flugmála á Norður-Kyrrahafs-
svæðinu. Fulltrúar þeirra hafa
þegar hafið samningaviðræður um
að flugsamgöngur hefjist að nýju
milli landanna og samkomulag
náðist um að opna aðalræðis-
mannaskrifstofur landanna í New
YorkogKiev.
Utanríkisráðherrarnir undirrit-
uðu samkomulag um samband og
AP/Símamynd
samskipti þjóðanna á tækni-,
menntunar- og menningarsviðum
og viðræður verða haldnar á næsta
ári um samstarf landanna varð-
andi umhverfismál.
Eftir að útfæra ýmislegt sem
fram kom á leiðtogafundiniim“
— segir Geir Hallgrímsson utanríkisráðherra
„ÞAÐ ER enginn vafi á því að leið-
togafundurinn hefur slakað á spenn-
unni og gefið nýjar vonir um að stór-
veldin séu eitthvað að nálgast hvort
annað,“ sagði Geir Hallgrímsson,
utanríkisráðherra, í saratali við
Morgunblaðið eftir fund Ronalds
Reagan, Bandaríkjaforseta, með
leiðtogum ríkja Atlantshafsbanda-
lagsins.
„Reagan skýrði frá viðræðunum
við Gorbachev með 15—20 mín-
útna frásögn. Það var ágæt grein-
argerð og það sem vakti athygli
manns var að hún var mjög per-
sónuleg. Hann sagði að ekki hefði
verið gert ráð fyrir svona löngum
tíma í tveggja manna tal þeirra,
en viðræðurnar hefðu æxlast
þannig að þeir hefðu lengt sam-
ræður sín á milli. Hann var léttur
í lund og ánægður með árangurinn,
það leyndi sér ekki.
Það var líka mjög athyglisvert
að allir viðstaddra lýstu ánægju
sinni með skýrslu Reagans og
árangur fundarins. Hins vegar er
það ljóst að eftir er að útfæra
ýmislegt sem fram kom í viðræð-
unum. Enda þótt báðir hafi til
dæmis orðið sammála um að
stefna að 50% fækkun kjarna-
vopna. þá er eftir að semja um
hvernig framkvæmdinni skuli
háttað og hvaða skilyrðum skulli
fullnægt í því sambandi.
Það kom skýrt og greinilega
fram að ekkert samkomulag var
um geimvarnaráætlun Banda-
ríkjamanna, en Reagan undir-
strikaði það að hér væri aðeins um
að ræða rannsóknir og farið yrði
að öllu leyti eftir ABM-sáttmálan-
um. Á blaðamannafundi Gorba-
chevs kom fram að Reagan hefði
ekki tekizt að sannfæra hann um
að þetta væri heilladrjúgt spor og
að það gæti staðist að unnt væri
með geimvarnaáætlun að útrýma
kjarnavopnum. Hins vegar kom
það líka mjög skýrt fram í máli
Reagans að þótt hvorugur þeirra
hefði skipt um skoðun varðandi
geimvarnaáætlunina og þótt Gor-
bachev væri henni mjög mótfall-
inn, þá væri alveg ljóst að Genf-
arviðræðum stórveldana, m.a. um
takmörkun og fækkun meðal-
drægra eldflauga, yrði haldið
áfram," sagði Geir.
Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra,
um leiðtogafundinn:
Tekizt hefur ad
draga úr tortryggni
AP/S(mamynd
Geir Haligrímsson, utanríkisráðherra og forseti Atlantshafsráðsins, og
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra á fundi NATO-ríkjanna í gær,
þar sem Reagan gerði grein fyrir viðræðum sínum við Gorbachev í Genf.
„REAGAN virtist vera ánægður með
leiðtogafundinn og sagðist vera
bjartsýnn. Hann taldi miklu meira
hafa komið út úr fundunum en hann
hafði þorað að gera sér vonir um,“
sagði Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra, í samtali við Morg-
unblaðið eftir fund Reagans Banda-
ríkjaforseta með leiðtogum ríkja
Atlantshafsbandalagsins í Brussel í
gær.
„Þetta hefur verið ákaflega eft-
irminnilegur dagur. Við fylgdumst
með beinum sjónvarpssendingum
frá Genf, m.a. blaðamannafundi
Gorbachevs. Það var mjög fróðlegt
að hlusta á forsetann. Hann var
mjög opinskár í frásögn sinni og
skýrði frá einkafundum þeirra,
sem urðu lengri en gert hafði verið
ráð fyrir. Hann lagði ákaflega
mikla áherzlu á að lykillinn að
árangri væri að draga úr þeirri
tortryggni sem ríkir á milli stór-
veldanna og það virðist hafa náðst
töluverður árangur í þeim efnum.
Að vísu náðist ekki ákveðið
samkomulag um eitt eða annað,
enda var aldrei gert ráð fyrir því,
heldur lagður grundvöllur að
áframhaldandi vinnu og á honum
var að skilja að Iíkur á samkomu-
lagi á ýmsum sviðum hafi stórlega
aukizt. Hann lagði mikla áherzlu
á að sér hefði tekizt að leiðrétta
ýmiss konar misskilning Gorbach-
evs um vilja og tilgang Banda-
ríkjamanna í afvopnunarviðræð-
um. Það var reyndar hið sama að
heyra á Gorbachev í beinni útsend-
ingu frá blaðamannafundi hans.
Eg verð að segja að ég kem frá
þessum fundi miklu bjartsýnni á
að tekizt hafi að snúa við þeirri
slæmu þróun, sem verið hefur í
sambúð stórveldanna. Ég segi
hiklaust að þessi fundur leiðtog-
anna getur reynzt sá mikilvægasti
sem haldinn hefur verið milli stór-
veldanna um langan tíma,“ sagði
Steingrímur.