Morgunblaðið - 22.11.1985, Blaðsíða 26
26
MOHGUNBLADIÐ, FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER1985
Tveir flugmenn á 747-risaþotur
A. NÝJASTA GERÐ HREYFLA
• PW 4000 eAa GE CFG-80C2.
• Nýjar hreyflafestingir
og hreyfUhús.
B. NVTT FARÞEGARÝMl
• Meiri möguleikar en ádur á ad færa tii
farþejjarými.
• SUerri skápar fyrir handfaranjjur.
’ NÝJAOTAGERÐ
ífTJÓRNBÚNAÐAR
• T't'gio. m»nn» stjórnklea
Þriggja manna ef óskað er.
• Rafeinda og örtölvuUekni
albráðandi.
• Helmingi færri Ukkar, mælar
og Ijóa en í B 747 gerö 200.
K. LÉTTARIFLUGVÉL
• BremMubúnaður samaeUur að hhiU úr
kolefnum.
• Léttar, sterkar álhlöndur meira notaðar
enáður.
Endurbætur sem Boeing hyggst gera á 747-risaþotunni rómuðu sjást á þessari teikningu.
___________Flug
Gunnar Þorsteinsson
Fyrirhuguð ný gerð risaþotunnar
Boeing 747 verður útbúin stjórn-
klefa fyrir aðeins tvo flugmenn.
Þetta hefur mælst vel fyrir hjá
flugfélögum vegna minni rekstrar-
kostnaðar, en flugmannasamtök
eru uggandi því almennt telja þau
stjórnklefa fyrir aðeins tvo flug-
menn stefna flugöryggi í hættu.
Stjórnklefi nýju vélarinnar,
sem verður nefnd Boeing 747-400,
verður svipað útfærður og í nýju
tveggja hreyfla þotunum frá
Boeing, B 757 og B 767. Rafeinda-
og örtölvutækni verður allsráð-
andi og munu upplýsingarnar
birtast á myndlömpum í stað
hefðbundinna flugmælitækja.
Mælar, takkar og ljós verða
helmingi færri en eru nú í B
747-vélum af -200-gerð. Reiknað
er með að mörg flugfélög velji
tveggja manna stjórnklefa, en ef
óskað er verður þriggja manna
klefi á boðstólum.
Skrokkur nýju vélarinnar
verður jafn stór og -300-gerðar-
innar, en sú síðarnefnda hefur
stórt efra farrými eða „kryppu"
eins og það er gjarnan nefnt.
Endurbæturnar felast m.a. í nýj-
um hreyflum og verða tvær teg-
undir í boði. Annarsvegar Pratt
& Whitney 4000 sem getur fram-
leitt 25,4 tonna þrýsting (56 þús.
pund) og hinsvegar General
Electric CF6-80C2 sem á að geta
framleitt 320 kílóum meiri þrýst-
ing(700 pund).
Hámarksflugtaksþungi vélar-
innar er áætlaður 385,6 tonn (850
þús. pund). Til að létta hana
hugðist Boeing nota nýja, sterka
og sérlega létta álblöndu sem
lítið hefur verið notuð í flugvél-
um fram til þessa. Þannig átti
að spara 5 tonn (11 þús. pund),
en eftir ýmsa erfiðleika og vegna
gífurlegs kostnaðar var horfið
frá því og í staðinn verður notast
við aðeins þyngri málmblöndur.
Þrátt fyrir þetta reiknar Boeing
með að ná að létta vélina um 3,6
tonn (8 þús. pund) með því að
nota ýmsar aðrar léttar málm-
blöndur sumstaðar og kolefna-
blöndur í bremsubúnað.
Boeing hefur einnig hannað
rennilegri hreyflafestingar fyrir
vélina sem áætlað er að dragi úr
loftmótstöðu um rúmt prósent
miðað við aðrar B 747-gerðir.
Það, ásamt 6 tommu lengingu á
hvorum vængenda, breytingu á
ytri og aftari vænghluta og spar-
neytnari hreyflum mun, að sögn
Boeing, leiða til 9 prósentum
minni eldsneytisneyslu miðað við
sparneytnustu gerðina nú.
Lengra flugdrægi -400-gerðar-
innar, sem á að geta náð lengst
13 þúsund kílómetra í einum
áfanga, fæst með því að bæta við
eldsneytisgeymum í aftari hluta
skrokksins. Miðað við gerð -300
eykst flugdrægið um tæpa 1700
kílómetra (900 sjómílur).
Að sjálfsögðu verður farþega-
rýmið einnig endurbætt og boðið
allt það nýjasta sem völ er á.
Nýr stíll, þægilegri salerni og
stærri skápar fyrir handfarang-
ur. Síðast en ekki síst verður
flugfélögum gert kleift að aðlaga
farrýmisskiptinguna betur að
þörfum markaðarins því mun
fljótlegra verður að færa til þil
í farþegarýminu. Það er nefni-
lega ekki svo einfalt mál í dag.
Vélin mun rúma 412 farþega í
hefðbundinni farrýmisskiptingu
en 496 ef aðeins er ferðamanna-
farrými.
Undanfarna sjö mánuði hefur
Boeing leitað að flugfélagi sem
vildi ríða á vaðið með kaup á
hinni nýju flugvélargerð. Það var
bandaríska félagið Northwest
Orient Airlines sem varð fyrst
og pantaði 10 svona vélar í sept-
embermánuði. Kaupsamningur-
inn nam 2 tveimur milljörðum
Bandaríkjadala en um leið voru
pantaðar tíu eða þrettán aðrar
flugvélar af öðrum gerðum.
Northwest-félagið rekur nú 35
risaþotur af B 747-gerð.
Tvö önnur flugfélög eru talin
líkleg til að leggja inn pantanir
mjög fljótlega, Singapore Air-
lines og Air France. Stefna
Singapore-félagsins er að hafa
ætíð í flota sínum nýjustu og
fullkomnustu vélar sem völ er á
og reyndar hóf félagið að þrýsta
á Boeing fyrir löngu um endur-
bætur á B 747-vélunum. Hvað
Air France varðar, þá hyggur
félagið á stórsókn í fraktflugi um
allan heim. Vegna þessara
ástæðna og vegna rekstrarhag-
kvæmni -400-gerðarinnar, nýju,
eru þessi tvö félög talin mjög
líkleg til að slá til á næstunni.
Boeing 747-400 verður ellefta
gerð þessarar annáluðu flugvélar
síðan hönnun hófst árið 1966.
Búist er við að hún fái flug-
hæfnisskírteini árið 1988.
Bætt flugsam-
skipti stórvelda
— „bein lína“ í þágu flugöryggis
Líklega er mörgum enn í fersku
minni þegar kóresk farþegaþota
með 269 farþega innanborðs var
skotin niður fyrir tveimur árum.
Að hluta má rekja þá harmsögu til
sambandsleysis flugstjórnarmið-
stöðva á N-Kyrrahafi. Eftir átján
mánaða viðræður náðist nýlega
samningur milli Bandaríkjamanna,
Sovétmanna og Japana þess efnis,
að koma á beinu símasambandi
milli flugstjórnarmiðstöðva land-
anna á þessu svæði. „Beina línan",
sem svo er nefnd, er einfaldlega
til að fyrirbyggja, að hörmungarat-
burðurinn frá 1983 endurtaki sig
ekki.
Ef flugvélar villast af áætlaðri
leið yfir sovésku, bandarísku eða
japönsku yfirráðasvæði á fyrir-
hugað símasamband að hjálpa
til við að auðkenna vélarnar og
beina þeim aftur inn á rétta leið.
Símalínan mun tengja flug-
stjórnarmiðstöðvarnar í An-
corage, Tókýó og Khabarovsk.
Að vísu hefur samningurinn ekki
hlotið formlega staðfestingu, en
strax að því formsatriði loknu
hefja tæknimenn viðræður um
tæknihliðina.
Á málinu er einnig önnur hlið.
Viðræður þjóðanna þriggja eru
hluti fundarhalda, sem Banda-
ríkjamenn höfðu frumkvæðið að,
til að reyna að bæta sambúð stór-
veldanna. í þeim viðræðum lögðu
Sovétmenn þunga áherslu á að
fá lendingarleyfi fyrir ríkisflug-
félagið, Aeroflot, í Bandaríkjun-
um. Bandaríkjamenn sögðust
vera reiðubúnir til viðræðna um
það, ef Sovétmenn settust að
samningaborði um aukið flugör-
yggi á Kyrrahafi. Almennt er
búist við að Reagan Bandaríkja-
forseti samþykki lendingarleyfi
fyrir Aeroflot í Bandaríkjunum
á fundi hans og Gorbachev, sem
fyrirhugaður er í Genf í nóvem-
ber nk.
Bandaríkjamenn riftu loft-
ferðasamningi við Sovétmenn
eftir að herlög voru sett í Pól-
landi árið 1981 og árið 1983 eftir
að Sovétmenn skutu niður kór-
esku þotuna. Pan American,
flugfélagið bandaríska, hætti
áætlunarflugi til Moskvu árið
1975 vegna fjárhagsörðugleika
og hefur félagið ekki í hyggju að
hefjaþaðflugáný.
Fréttir af Aeroflot eru sjald-
gæfar og fyrst félagið, á annað
borð, var nefnt að framan er
ekki úr vegi að geta þess að það
sló met í farþegaflutningum árið
1984. Að sögn aðstoðarflugmála-
ráðherra Sovétríkjanna, þá voru
fluttir 112 milljón farþegar og
varð hagnaður um 110 milljón
rúblur, en það samsvarar 6,6
milljörðum ísl. króna. Talið er
að Aeroflot hafi skilað hagnaði
undanfarin átta ár.
Leiðarkerfi félagsins er hið
stærsta í heimi og spannar rúm-
lega eina milljón kílómetra og
eru 3.600 viðkomustaðir innan-
lands og 120 utanlands.
Morgunbladið/Gunnar Þorsteinsson
Boeing 747-vöruflutningaþota sem Cargolux hefur á leigu. Eftir mörg erfid ár hjá félaginu er reksturinn loks
tekinn að skila hagnaði.
Hagur Cargolux vænkast
Hagnaður af rekstri Cargolux-
vöruflutningafélagsins í Lúxem-
borg nam á sl. ári 81 milljón Lúx-
emborgarfranka, jafngildi 62,5
millj. ísl króna.
„Ár kreppu og erfiðleika virð-
ast að baki,“ segja talsmenn
Cargolux. Það er ljóst að hagur
félagsins vænkaðist verulega á
sl. ári, en þó hagnaður hafi orðið,
Morgunblaðið/Gunnar Þorsteinsson.
Sovétmenn vilja ólmir fá á ný lendingarleyfi í Bandarfkjunum og eru loksins reiðubúnir að koma á beinu
símasambandi flugstjórnarmiðstöðva á Kyrrahafi, sem m.a. á að koma í veg fyrir að farjiegaflugvélar verði
skotnar niður eins og fyrir tveimur árum þegar Sovétmenn skutu niður þotu frá Kóreu. A Ijósmyndinni sést
þota frá sovéska ríkisflugfélaginu, Aeroflot, við hlið Flugleiðaþotu á Findel-flugvelli í Lúxemborg.
er hann aðeins brot af miklu tapi
sem félagið varð fyrir árin áður.
Árið 1984 jókst heildarvelta
Cargolux um 22% og varð 6.320
milljón Lúxemborgarfrankar
(LFR), eða jafngildi 4,9 milljarða
ísl. króna. Fjöldi floginna tonn-
kílómetra jókst um 31 % og frakt-
flutningarnir jukust um 22%.
Félagið flutti 79.934 tonn saman-
borið við 59.672 tonn árið áður.
Þessi mikli vöxtur varð til þess
að 81 milljónar LFR hagnaður
varð eftir að fjármagnskostnað-
ur hafði verið dreginn frá. Árið
áður varð 230 milljóna LFR
taprekstur, sem jafngildir 177
milljónum ísl. krónum.
Cargolux á 15 ára afmæli á
þessu ári. Hjá félaginu starfa nú
rúmlega 300 manns og rekur fé-
lagið tvær Boeing 747-200F-
flutningaþotur á áætlunarleiðum
milli Lúxemborgar og ýmissa
staða í Austurlöndum nær og
fjær og fimm borga í Bandaríkj-
unum. Auk þess er Cargolux með
eina Boeing 747F-þotu og eina
Douglas DC 8-þotu fyrir tilfall-
andi leiguflug um allan heim.
Flugleiðir eiga 3,5% hlutafé í
félaginu að nafnvirði 24,7 millj-
ónir LFR eða um 19 millj. talið
í ísl. krónum.