Morgunblaðið - 22.11.1985, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER1985
Tók 8 tíma aö
sigla 20 mflur
Þorsteinn GK í vandræðum í
veðurofsanum um helgina
ÞORSTEINN GK 16 lenti í talsverðum hrakningum í veðurofsanum síðast-
liðinn sunnudag. Er veðrið skall á átti hann 20 mílur ófarnar til Vest-
mannaeyja og það tók áhöfn hans 8 klukkustundir að koma bátnum ti!
hafnar í Eyjum. Útgerðarmaður Þorsteins átti ennfremur annan bát, Kóp
GK 175, sem lenti í nokkrum vandræðum í veðrinu.
Guðmundur Þorsteinsson í
Grindavík, útgerðarmaður Þor-
steins og Kóps, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að Þorsteinn hefði
verið að koma frá Austfjörðum
með 90 lestir af síld og ætlað til
Grindavíkur. Síldina hefði hann
fengið rétt fyrir fyrri óveðurs-
hrynuna og legið hana af sér inni
á fjörðum. Hann hefði svo verið
20 mílur frá Eyjum er síðari hryn-
an brast á. Ekki hefði verið um
annað að ræða en halda inn til
Eyja og það tekið um 8 tíma með
ærnum erfiðleikum. Skipið hefði
um tíma lagzt á hliðina og nokkur
sjór komizt niður í skipið. Þar sem
mjög vel hefði verið frá aflanum
gengið, hefði náðst að keyra skipið
upp og koma því til hafnar. Tjón
á skipinu hefði ekki verið teljandi
og engin slys orðið á mönnum.
Guðmundur sagði, að hann hefði
átt annað skip, Kóp GK 175, sem
lent hefði í vandræðum í sama
veðri. Kópurinn hefði verið um 70
mílur út af Látrabjargi á netum
er ósköpin dundu yfir og hefði
hann verið 14 tíma til hafnar á
Patreksfirði.
Þosteinn er stálskip, sem bæði
hefur verið lengt og yfirbyggt og
er mjög gott sjóskip að sögn Guð-
mundar. Skipstjóri á Þorsteini er
Gunnar Gunnlaugsson og er hann
nú á síldveiðum fyrir austan.
'O
Drangur í Reykjavíkurhöfn.
Drangur til Grænlands og Flórída
FLÓABÁTURINN Drangur, sem
er í eigu einstaklinga og sveitarfé-
laga við Eyjafjörð, er nú á leið til
Grænlands með vörubíla. Þaðan
heldur Drangur til Bandaríkjanna
í leigu og óvíst er að að hann komi
aftur heim vegna erfiðra rekstrar-
skilyrða hér.
Drangur fór frá Reykjavík
síðdegis á fimmtudag með tvo
stóra vörubíla, sem ístak hefur
leigt Kulusuk á austurströnd
Grænlands, en þar verða þeir
notaðir við flugvallargerð, en
ístak hefur áður leigt þangað
bíla. Einn bílanna, sem áður hafa
farið til Grænlands, lenti í sjón-
um við uppskipun og liggur þar
á hafsbotni. ístak hefur keypt
bílinn af tryggingafélaginu og
hyggst reyna að ná honum upp
með aðstoð Drangs, sem hefur
mjög öflugan krana um borð.
Að loknu þessu verkefni fer
skipið til Florída í Bandaríkjun-
um þar sem það verður á leigu
um óákveðinn tíma.
Akureyri:
INNLENT
Valt með
30 manns
Akrane.si, 21. nóvember.
LANGFERÐABIFREIÐ með starfs-
menn Járnblendiverksmiðjunnar á
Grundartanga á leið til vinnu f
morgun fauk út af veginum við
Berjadalsá, rétt innan við Akranes.
Tólf farþegar voru fluttir í sjúkrahús-
ið á Akranesi, en flestir fóru heim
að lokinni skoðun. Var talið að einn
þeirra hefði hlotið umtalsverð
meiðsli, jafnvel rifbeinsbrotnað. í
bifreiðinni voru 30 manns.
Slysið átti sér stað eins og áður
segir rétt við Berjadalsá um klukk-
an 07.15. Bifreiðin flytur starfs-
menn til og frá járnblendiverk-
smiðjunni á Grundartanga og er
talið að sviptivindur hafi feykt
henni útaf veginum, fyrst fram-
hlutanum og síðan valt hún heilan
hring og staðnæmdist á hjólunum.
Er mikil mildi að ekki skuli hafa
orðið alvarleg meiðsl á mönnum.
Að sögn lögreglunnar á Akranesi
hefur oft áður komið fyrir, að
bifreiðir hafi fokið út af veginum
á þessum stað.
Verkamenn neita að skipa
upp frystum físki og rækju
Akureyri, 21. nóvember.
Hafnarverkamenn á Akureyri
neituou í dag að vinna við uppskipun
á frystum fiski úr frystitogaranum
Frera RE, sem kom inn vegna smá-
vægilegrar bilunar, en ætlunin var
að skipa upp þeim 40 tonnum af
frystum fiski sem um borð er.
Hafnarverkamenn á Akureyri
hafa verið mjög óánægðir með kjör
við löndun á frosnum fiski og
frystri rækju nú á annað ár og
fyrir um það bil mánuði neituðu
þeir að landa frosnum fiski úr
frystitogaranum Akureyrinni. Það
mál leystist að vísu hvað varðaði
þá einu löndun með persónulegu
samkomulagi við framkvæmda-
stjóra útgerðarinnar, Þorstein Má '
Baldvinsson. Jón Helgason, for-
maður Verkalýðsfélagsins Eining-
ar, vann að því samkomulagi í
trausti þess að fljótlega yrði reynt
að leysa þessi mál í heild.
Verkalýðsfélagið Eining sendi
bréf til Vinnuveitendasambands-
ins og Vinnumálasambands SÍS í
febrúar á þessu ári þar sem óskað
var eftir viðræðum um breytingar
á gildandi samningi. Engar við-
ræður fóru hinsvegar fram og
óánægja hafnarverkamanna
magnaðist. Vegna breytingar á
tækni við uppskipun hefur kaup
þeirra lækkað hlutfallslega en það
byggist á tímakaupi að viðbættum
premíum fyrir einingar. óánægja
hafnarverkamannanna var eink-
um vegna hinna erfiðari starfa við
uppskipun, svo sem löndum á
frosnum fiski og frystri rækju.
Loks var ákveðinn viðræðufundur
hinn 4. nóvember en af honum gat
ekki orðið vegna deilna um bónus-
mál og funda til lausnar þeim.
Síðan hafa fundir af ýmsu öðru
tagi tafið fyrir málinu en á meðan
það leysist ekki neita hafnarveka-
menn að vinna að þessari löndun,
samkvæmt gildandi samningum,
fyrr en bætt hefur verið úr ágöllum
þeirra.
Til skamms tíma munu launa-
kjör við uppskipun hafa verið betri
við uppskipun á Akureyri en í
Reykjavík en á síðasta ári var
gerður samningur við Dagsbrún
og snerist málið þá við. Akur-
eyringar vilja að minnsta kosti
sambæriieg kjör og syðra. Málið
er í biðstöðu og bíður samninga-
funda sem sennilega komast á
fljótlega.
— Sv.P.
Garður:
Öllu starfsfólki
Gerðarastar sagt upp
skráðir atvinnulausir í Garðinum
og væri það heldur meira en venju-
lega á þessu árstíma. Atvinnu-
ástandið væri ótryggt á staðnum
eins og víðar vegna erfiðleikanna í
sjávarútveginum. Reynt væri að
vinna að úrbótum, en lítið sveitarfé-
lag væri þess ekki megnugt að
standa eitt í því. Heildarlausnar
þyrfti' að leita, ætti árangur að
nást. Hins vegar væri rétt að geta
þess, að nú væri ísstöðin að hefja
starfsemi sína að nýju eftir nokkurt
hlé og væri það vissulega til bóta.
í tilefni 200 ára afmælis Reykjavíkur:
Efnt til samkeppni
um Reykjavíkurlag
I TILEFNI af 200 ára afmæli Reykjavíkur á næsta ári hefur afmælis-
nefnd, í samvinnu við sjónvarpið, ákveðið að efna til samkeppni um lag
tileinkað borginni. /Etlast er til að lögin séu í dægurlagastfl og skal texti
fylgja hverju lagi og efni hans fjalla um Reykjavík, sögu borgarinnar
fyrr eða nú, mannliTið eða atvinnuhætti, eða annað er tengist 200 ára
afmælinu eða höfuðborginni sjálfri.
Heildarverðlaun fyrir lag og
texta nema 175 þúsund krónum,
fyrstu verðlaun eru 100 þúsund
krónur, önnur verðlaun 50 þús-
und krónur og þriðju verðlaun
25 þúsund krónur. Lögum og
textum skal skila í píanóútsend-
ingu, eða skrifaðri laglínu með
bókstafahljómum eða fluttum á
tónsnældu. Lög og textar skulu
vera i lokuðu umslagi merktu
dulnefni. I því sama umslagi
fylgi umslag merkt hinu sama
dulnefni, þar sem í er nafn höf-
undar ásamt símanúmeri, nafn-
númeri og heimilisfangi.
Dómnefnd velur fimm lög úr
þeim sem berast, sem keppa síð-
an til úrslita í sjónvarpinu í
mars á næsta ári. Dómnefnd
skipa Svavar Gests, hljómlistar-
maður, sem jafnframt er formað-
ur nefndarinnar, Birgir ísleifur
Gunnarsson alþingismaður og
fyrrverandi borgarstjóri, Friðrik
Þór Friðriksson kvikmyndagerð-
armaður, Gunnlaugur Helgason
dagskrárgerðarmaður og Kristín
Á. Ólafsdóttir leikkona.
Afmælisnefndin áskilur sér
rétt til að gefa út eða ráðstafa
til útgáfu á hljómplötu og/eða
tónsnældu fimm efstu lögunum
án frekari viðbótargreiðslu en
um getur í töxtum Stefs varðandi
hljómplötuútgáfu. Lög og textar
sendist afmælisnefnd Reykjavík-
ur, Austurstræti 16, fyrir 31.
janúar 1986.
Niðursuðuverksmiöjan Gerðaröst í
Garði sagði fyrir nokkru upp öllu
starfsfólki sínu, 10 alls, og hefur það
allt látið skrá sig atvinnulaust. Upp-
sögnin stafar fyrst og fremst af hrá-
efnisskorti og erflðu gengi fyrirtækis-
ins. Gerðaröst er aðallega í niðursuðu
á rækju og í sumar voru um 60 manns
í vinnu þar, þegar mest var.
Guðrún Blöndal er ein þeirra,
sem sagt var upp. Hún segir ástand-
ið á staðnum hrikalegt og enga
aðra atvinnu að hafa. Svartsýni sé
ríkjandi meðal fólks og lítið sem
ekkert gert til að styrkja atvinnulíf-
ið.
Ellert Eiriksson, sveitarstjóri í
Garði, sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að Gerðaröst væri búin með
rækjukvóta sinn við Eldey og svo
virtist, sem eigendur fyrirtækisins
treystu sér ekki til að halda uppi
vinnu með niðursuðu á Rússarækj-
unni svokölluðu.
Ellert sagði, að nú væru 15 manns
Vinsældalisti rásar 2:
Elton John enn
í fyrsta sæti
Vinsældalisti rásar 2 er sem hér
segir:
1. (l)Nikita...........EltonJohn.
2. (8)Waitingforan Answer______ herra. Davíð Oddsson borgarstjóri
..........,......Cosa Nostra. 8agði í ræðu sinni að samkvæmt
3. (4)Can’t Walk Away.......... bókun borgarritara, sem hann
Úr borgarstjórn:
Stjórnarkjör í
Granda gagnrýnt
Á borgarstjórnarfundi í gærkvöldi
kom fram að minnihlutinn hefur leitað
úrskurðar félagsmálaráðherra vegna
stjórnarkjörs í útgerðarfyrirtækinu
Granda, sem er í eign Reykjavíkur-
borgar og eigenda ísbjarnarins hf.
Sigurjón Pétursson sagði í ræðu
sinni að engin grein hafi verið gerð
fyrir kjöri í stjórn fyrirtækisins.
Sigurjón sagði að hin „gerræðis-
legu“ vinnubrögð borgarstjóra í
sambandi við þetta stjórnarkjör
hafi verið „siðlaus" og standist ekki
lög, því hafi minnihlutinn lagt inn
beiðni um fyrrnefndan úrskurð ráð-
..Herbert Guðmundsson.
4. (-)I’mYourMan................Wham.
5. (10)The Power of Love.Jennifer Rush.
6. (2)This is the Night....Mezzoforte.
7. (3)White Wedding.........Billyldol
kynnti, þá hafi á borgarráðsfundi
komið skýrt fram að borgarstjóri
færi með fullt umboð borgarsjóðs í
þessu máli. Engin athugasemd hafi
8. (5)Cherie Cherie Lady.'ZZ.........1 verið við það gerð. Sömu vinnubrögð
.................Modern Talking. voru ennfremur viðhöfð í sambandi
9. (6)Election Day............Arcadia. við þátttöku borgarinnar í Isfilm
10. (13)We Built This City.......Starship. og fleiri dæmi mætti taka.