Morgunblaðið - 19.02.1986, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.02.1986, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR19. FEBRÚAR1986 Borgarstj órnarkosningar: Framboðslisti Sjálfstæð- isflokksins ákveðinn FJOLMENNUR fundur í full- trúaráði sjálfstæðisfélag'anna í Reykjavík sem haldinn var í Valhöll í gærkvöldi samþykkti einróma framboðslista Sjálf- stæðisflokksins við borgarstjórn- arkosningar 31. maí næstkom- andi. Formaður kjörnefndar full- trúaráðsins, Jón Steinar Gunn- laugsson, gerði grein fyrir störf- um nefndarinnar og framkvæmd og niðurstöðum prófkjörs, sem fram fór 24. og 25. nóvember síðastliðinn. Kjörnefnd var bund- in af niðurstöðum prófkjörs hvað varðar 8 efstu sætin en tillögur hennar í 16 efstu sætin eru samkvæmt niðurstöðum próf- kjörsins. Fundarstjóri var Jón Magnússon hdl. Þegar listinn hafði verið samþykktur hófust umræður um undirbúning borg- arstjórnarkosninganna. Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins við borgarstjómarkosningar í Reykja- vík 1986 er þannig skipaður: 1. Davíð Oddsson, borgarstjóri. 2. Magnús L. Sveinsson, formaður VR. 3. Katrín Fjeldsted, læknir. 4. Páll Gíslason, læknir. 5. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, lögfræðingur. 6. Hilmar Guðlaugsson, múrari. 7. Ámi Sig- fússon, rekstrarráðgjafí. 8. Júlíus Hafstein, framkvæmdastjóri. 9. Jóna Gróa Sigurðardóttir, framkvæmda- stjóri. 10. Siguijón Fjeldsted, skóla- stjóri. 11. Hulda Valtýsdóttir, blaða- maður. 12. Helga Jóhannsdóttir, hús- móðir. 13. Anna K. Jónsdóttir, lyfja- fræðingur. 14. Guðmundur Hallvarðs- son, form. Sjómannafél. Reykjavíkur. 15. Þórunn Gestsdóttir, blaðamaður. 16. Haraldur Blöndal, hæstaréttarlög- maður. 17. Guðrún Zoega, verkfræð- Næturfundur ENGIN hreyfing hafði orðið í samningaviðræðum BSRB og ríkisins í gærkvöld. Samninga- fundi var frestað í fyrrakvöld og voru litlar viðræður í gærdag. Viðræðunefndirnar hittust á ný kl. 21 í gærkvöld en þar voru „ekki menn margra orða,“ eins og Guðlaugur Þorvaldsson, ríkis- sáttasemjari orðaði það. ingur. 18. Ingólfur Sveinsson, læknir. 19. Sólveig Pétursdóttir, lögfræðing- ur. 20. Vilhjálmur G. Vilhjálmsson, auglýsingateiknari, 21. Ragnar Breið- fjörð, iðnverkamaður. 22. Ingimar Jóhannsson, nemi. 23. Katrín Gunn- arsdóttir, framkvæmdastjóri. 24. Ein- ar Hákonarson, listmálari. 25. Gústaf B. Einarsson, verkstjóri. 26. Bjöm Bjömsson, prófessor. 27. Ragnar Júl- íusson, skólastjóri. 28. Ingibjörg J. Rafnar, lögfræðingur. 29. Markús Öm Antonsson, útvarpsstjóri. 30. Geir Hallgrímsson, fýrrv. forsætisráðherra. { framsögu Jóns Steinars kom fram að Ingimar Jóhannsson nemi, sem skipar 22. sæti listans, hafi ekki kjör- gengi að óbreyttum lögum um aldurs- mark. Hinsvegar stæði til að alþingi færði aldursmarkið niður úr 20 árum í 18 til samræmis við gildandi lög um alþingiskosningar. Fundurinn heimil- aði stjóm fulltrúaráðs að breyta listan- um að þessu leyti ef alþingi breytti lögunum ekki í tæka tíð. Fylgzt með úr fjarlægð Morgunblaðið/Ol.K.M Fjármálaráðherra um viðræður ASÍ og VSÍ og VMSS: Hljóta líka að ræða tekjuöflun ríkissjóðs ÞORSTEINN Pálsson, fjármála- ráðherra, sagðist í gærkvöld ekki hafa fengið neinar upplýsingar um viðræðurnar eða hugmyndir, sem ganga á milli samningsaðila, frá fyrstu hendi en hann kvaðst gera ráð fyrir „að þeir ræði jafnframt þessu nýjar tekjuöH- unarleiðir fyrir ríkissjóð. Ég hlakka til að ræða það við þá minnugur þess, að i viðræðum okkar á dögunum var það megin- krafa samningsaðilanna að í rekstri ríkissjóðs yrði gætt ítr- asta aðhalds.“ Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, sagði í gær að keppt væri að því að þeir, sem ekki hafi notið launaskriðs á nýliðnu ári, fengju umframhækkanir svo hægt yrði að tryggja að kaupmáttarauknin] þeirra yrði um 8%, eins og AS hefur gert kröfu um. Launaskrið á siðasta ári er talið hafa verið nærri fjórum prósentum. „Það skiptir ekki minnstu máli í þessu sambandi að kaupmátturinn sé þræltryggður," sagði hann. „Menn eru að færa sig inn á aðrar verðbólguviðmiðanir en við höfum þekkt undanfama ára- tugi og þá er frumskilyrði að for- sendumar séu traustar." Magnús Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri VSÍ, sagði í gær- kvöld, að að náist samkomulag sé m.a. gert ráð fyrir að aðilar fari í sameiginlegar viðræður við ríkis- stjómina. „Við verðum að nýta þetta tækifæri og það tekst ekki nema með sameiginlegu átaki vinnuveitenda, verkalýðshreyfing- arinnar og ríkisvaldsins," sagði hann. „Það var ljóst sl. nótt að þetta var að springa og þá gáfu menn hraustlega í. Hér leggja báðir aðilar mjög hart að sér.“ „Ég sit ekki áfram í ríkisstjóm ef verðbólgan fer nú úr böndum eins og undir árslok 1984,“ sagði Steingrímur Hermannsson forsæt- isráðherra í sjónvarpsþætti í gær- kvöldi. Hann taldi skynsamlega kjarasamninga nú forsendu fyrir því að viðunandi verðbólgumarkmið næðust. Það mætti ekki fara vel yfir 30%. Forsætisráðherra sagði að nýjar kröfur um þátt ríkisins í lausn kjaradeilnanna hefðu ekki verið kannaðar til hlýtar, en ríkis- sjóður væri ekki aflögufær og ekki yrðu tekin ný lán í útlöndum. Afla yrði ríkissjóði fjár innanands, til dæmis úr lífeyrissjóðum og skera niður ríkisútgjöld ef orðið yrði við þessum kröfum, en samkvæmt þeim ætti verðbólga að fara niður í 7%. XIIREYKJAVÍKURSKÁKMÓTIÐ Steyttu hnefa o g hótuðu öllu illu Deilt um riddaraleik í fyrrakvöld og í gær- kvöldi reifst Reshevsky og skammaðist SJÖUNDA umferd XII. Reykja- vikurskákmótsins var íslensku titilhöfunum ákaflega óhag- stæð. Tvö töp, og enginn sigur vannst - þeir Jóhann Hjartarson og Jón L. Árnason urðu að lúta í Iægra haldi. Margeir og Guð- mundur Sigutjónsson gerðu innbyrðis jafntefli og skák Helga Ólafssonar og Lev Al- burt fór í bið. Helgi reynir að knýja fram sigur, en það verður erfitt. Skák Karls Þorsteins og Seirawan fór í bið og á Karl undir högg að sækja gegn bandaríska stórmeistaranum. Þó yfirbragð á skákmóti sé ró- legt, þá ólgar blóðið undir niðri. Gheorghiu hinn rúmenski og Federowicz hinn bandaríski steyttu hnefa framan í hvom annan í fyrrakvöld og formæltu hvor öðrum. Ástæðan var sú, að Gheorghiu taldi Fedorowicz hafa tekið upp leik; leikið riddara g3 en kippt honum til baka þegar hann sá riddarann í dauðanum og leikið Rh4. Hann krafðist þess að riddarinn stæði í dauðanum á g3. Fedorowicz neitaði - kvaðst ekki hafa leikið til g3 heldur h4. Gheorghiu kallaði á dómara og krafðist þess að riddaraleikurinn stæði. En því miður hafði dómari ekki séð neitt - málinu var vísað til dómnefndar. Þeirra Guðmund- ar Siguijónssonar, Larsens og Byme. Þeir kölluðu þijú vitni fyrir sig. Þau voru samdóma í áliti sínu - studdu Gheorghiu og kváðust hafa séð Fedorowizc leika riddar- anum umdeilda á g3. Þar sem Fedorowicz gat ekki fundið neinn sem studdi mál hans, dæmdi dóm- nefndin Gheorghiu í hag. Skákin var sett í bið - og átti að tefla áfram klukkan 23 í gærkvöldi. En Bandaríkjamaður- inn mætti ekki til leiks, eins og hann hafði hótað og Gheorghiu var dæmdur sigur. í gærkvöldi jós annar skákmað- ur úr skálum reiði sinnar - þá bandaríski öldungurinn Reshev- sky. Hann kvað landa sinn Zalts- man aðeins hafa leikið 44 leiki áður en klukkan féll og Zaltsman því tapað skákinni á tíma. Zalts- man kvaðst hafa leikið tilsetta 45 leiki fyrir tímamörk. Reshevsky mótmælti hástöfum í skáksalnum öðrum skákmönnum yfir tafli í bullandi tímahraki til mikils ama og sussuðu þeir óspart á gamla manninn. Skákdómarar voru kvaddir til og fóru þeir í gegn um skákina. Þeir töldu 45 leiki og Zaltsman hafði því ekki fallið á tíma - gamli maðurinn hafði gleymt að skrá einn leik hjá sér. „„ Úrslit í 7. umferð Anthony J. Miles — Curt Hansen bið Jóhann Hjartarson — Bent Lareen 0-1 Predrag Nikolic — Valery Salov bið Florin Gheorghiu — Robert Byrne l -0 Mikhail Tal — Utut Adianto 1-0 Helgi Ólafsson — Lev Alburt bið Miguel A. Quinteros — Anatoly Lein bið Helgi ólafsson — Lev Alburt bið Miguel A. Quinteros — Anatoly Lein 0-1 Jón L. Ámason — Efim Geller 0-1 Guðm. Sigurjónoss. — Margeir Pétures. i/2«/2 Sergey Kudrin — Nick De Firmian i/2«/2 Kari Þoreteinss. — Yasser Seirawan bið Thomas Welin — Joel Benjamin bið Jens Kristiansen — John P. Fedorowicz «/2«/t Vitaly Zaltsman — Samuel Reshevsky bið Paul van der Sterren — Karl Dehmelt 0-1 Ásgeir Þ. Ámason — Larry Christansen 0-1 John W. Donaldson — Maxin Dlugy «/2*/2 Ólafur Kristjánsson — Walter Browne bið Gert Ligtemik — Careten Hoi 1-0 Þröstur Þórhallsson — Harry Schussler 0-1 Michael Wilder — Bragi Halldórss. 1-0 Boris Kogan — Hannes H. Stefánss. */2*/2 Jouni Yrjola —JuergHerzog 1-0 Benedikt Jónasson — Larry A. Remlinger bið Davíð Ólafsson — Björgvin Jónsson 1 -0 Róbert Harðareon — Guðmundur Halldóres. bið JónG. Viðareson —HansJung 0-1 Karl Burger — Þoreteinn Þoreteinsson bið Sævar Bjamason — Eric Schiller 0-1 Antti Pyhala — Leifur Jósteinsson 1-0 Haukur Angantýsson — Guðm. Glslas. */2*/2 Andrew Karklings - Þröstur Ámason i -0 Hilmar Karisson — Lárus Jóhannesson 0-1 Haraldur Haraldsson — Dan Hansson 0-1 Tómas Bjömsson — Kristján Guðmundss. bið Jóhannes Ágústsson — Áskell Öm Kárason l -0 Halldór Grétar — Ámi Á. Ámason bið Skák Bragi Kristjánsson Skák umferðarinnar var æsi- spennandi skák Jóhanns Hjartar- sonar og Bents Larsen. Kappamir voru þegar í upphafi samhentir í að gera skákina eins flókna og hægt var. Eftirfarandi staða kom upp eftir 22. leik svarts Kg8 — h8: Framhaldið varð: 23. Rf4 — Rxf4, 24. Hxf4 — Jóhann getur varla losað um svarta e-peðið, t.d. 24. Bxf4 — c3. 25. Bxd6 - e2, 26. Hel - Be5, 27. Bxe7 — Hg8, og svartur nær sterkri sókn. 24. - Be5, 25. Hf2 - Rf3+, 26. Khl — Auðvitað ekki 26. gxf3 — Hg8 og svartur vinnur. 26. - Rxh2,27. Dh4 - h5 Svartur opnar leið út aftur fyrir riddarann á h2. 28. f6 — Hh7,29. Bxe4 — Spumingin er, hvort ekki var betra að halda biskupnum á bl á lífi og leika 29. Rxe4 — Rg4, 30. Hfl og staðan er mjög flókin og vandmetin. 29. — Bxe4,30. Rxe4 — Rg4 Keppendur eru ekki öfunds- verðir að finna bestu leikina í tímahraki í þessari flóknu stöðu. 31. Hf5 - Bxb2, 32. Rxd6 - Dg6, 33. Hb3 - Bxf6, 34. Bg5 Eftir þennan leik verður tap ekki umflúið. Reynandi var 34. Dg3 og erfitt er að meta stöðunæ 34. - Bg7, 35. Hxf8+ - Bxf8, 36. Bf4 — Hd7 Ekki 36. — Bxd6, 37. Dd8+ o.sv. frv. 37. Hxb6 Hvítur á ekki betri leik, því eftir 37. Rc8 — Hdl+ er hvítur mát. 37. - Bxd6, 38. Bxd6 - Hxd6, 39. Hb8+ - Ekki 39. Hxd6 — Dbl mát. 39. — Kg7,40. Hb7+ — Eða 40. De7+ — Df7, 41. Dg5+ (41. Dxd6 — Dfl mát.) Hg6 og svartur vinnur. 40. - Kh6, 41. Del - He6, 42. Dd2+ — Dg5 og Jóhann gafst upp, því hann á manni minna og tapað tafl. Hann getur því miður ekki unnið drottningu Larsens: 43. Hh7-l- Kxh7, 44. Dxg5, Hel mát. Æsi- spennandi skák, sem var báðum keppendum til sóma.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.