Morgunblaðið - 19.02.1986, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR19. FEBRÚAR1986
Borgarstj órnarkosningar:
Framboðslisti Sjálfstæð-
isflokksins ákveðinn
FJOLMENNUR fundur í full-
trúaráði sjálfstæðisfélag'anna í
Reykjavík sem haldinn var í
Valhöll í gærkvöldi samþykkti
einróma framboðslista Sjálf-
stæðisflokksins við borgarstjórn-
arkosningar 31. maí næstkom-
andi.
Formaður kjörnefndar full-
trúaráðsins, Jón Steinar Gunn-
laugsson, gerði grein fyrir störf-
um nefndarinnar og framkvæmd
og niðurstöðum prófkjörs, sem
fram fór 24. og 25. nóvember
síðastliðinn. Kjörnefnd var bund-
in af niðurstöðum prófkjörs hvað
varðar 8 efstu sætin en tillögur
hennar í 16 efstu sætin eru
samkvæmt niðurstöðum próf-
kjörsins. Fundarstjóri var Jón
Magnússon hdl. Þegar listinn
hafði verið samþykktur hófust
umræður um undirbúning borg-
arstjórnarkosninganna.
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins
við borgarstjómarkosningar í Reykja-
vík 1986 er þannig skipaður:
1. Davíð Oddsson, borgarstjóri. 2.
Magnús L. Sveinsson, formaður VR.
3. Katrín Fjeldsted, læknir. 4. Páll
Gíslason, læknir. 5. Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, lögfræðingur. 6. Hilmar
Guðlaugsson, múrari. 7. Ámi Sig-
fússon, rekstrarráðgjafí. 8. Júlíus
Hafstein, framkvæmdastjóri. 9. Jóna
Gróa Sigurðardóttir, framkvæmda-
stjóri. 10. Siguijón Fjeldsted, skóla-
stjóri. 11. Hulda Valtýsdóttir, blaða-
maður. 12. Helga Jóhannsdóttir, hús-
móðir. 13. Anna K. Jónsdóttir, lyfja-
fræðingur. 14. Guðmundur Hallvarðs-
son, form. Sjómannafél. Reykjavíkur.
15. Þórunn Gestsdóttir, blaðamaður.
16. Haraldur Blöndal, hæstaréttarlög-
maður. 17. Guðrún Zoega, verkfræð-
Næturfundur
ENGIN hreyfing hafði orðið í
samningaviðræðum BSRB og
ríkisins í gærkvöld. Samninga-
fundi var frestað í fyrrakvöld
og voru litlar viðræður í gærdag.
Viðræðunefndirnar hittust á ný
kl. 21 í gærkvöld en þar voru
„ekki menn margra orða,“ eins
og Guðlaugur Þorvaldsson, ríkis-
sáttasemjari orðaði það.
ingur. 18. Ingólfur Sveinsson, læknir.
19. Sólveig Pétursdóttir, lögfræðing-
ur. 20. Vilhjálmur G. Vilhjálmsson,
auglýsingateiknari, 21. Ragnar Breið-
fjörð, iðnverkamaður. 22. Ingimar
Jóhannsson, nemi. 23. Katrín Gunn-
arsdóttir, framkvæmdastjóri. 24. Ein-
ar Hákonarson, listmálari. 25. Gústaf
B. Einarsson, verkstjóri. 26. Bjöm
Bjömsson, prófessor. 27. Ragnar Júl-
íusson, skólastjóri. 28. Ingibjörg J.
Rafnar, lögfræðingur. 29. Markús Öm
Antonsson, útvarpsstjóri. 30. Geir
Hallgrímsson, fýrrv. forsætisráðherra.
{ framsögu Jóns Steinars kom fram
að Ingimar Jóhannsson nemi, sem
skipar 22. sæti listans, hafi ekki kjör-
gengi að óbreyttum lögum um aldurs-
mark. Hinsvegar stæði til að alþingi
færði aldursmarkið niður úr 20 árum
í 18 til samræmis við gildandi lög um
alþingiskosningar. Fundurinn heimil-
aði stjóm fulltrúaráðs að breyta listan-
um að þessu leyti ef alþingi breytti
lögunum ekki í tæka tíð.
Fylgzt með úr fjarlægð
Morgunblaðið/Ol.K.M
Fjármálaráðherra um viðræður ASÍ og VSÍ og VMSS:
Hljóta líka að ræða
tekjuöflun ríkissjóðs
ÞORSTEINN Pálsson, fjármála-
ráðherra, sagðist í gærkvöld ekki
hafa fengið neinar upplýsingar
um viðræðurnar eða hugmyndir,
sem ganga á milli samningsaðila,
frá fyrstu hendi en hann kvaðst
gera ráð fyrir „að þeir ræði
jafnframt þessu nýjar tekjuöH-
unarleiðir fyrir ríkissjóð. Ég
hlakka til að ræða það við þá
minnugur þess, að i viðræðum
okkar á dögunum var það megin-
krafa samningsaðilanna að í
rekstri ríkissjóðs yrði gætt ítr-
asta aðhalds.“
Ásmundur Stefánsson, forseti
ASÍ, sagði í gær að keppt væri að
því að þeir, sem ekki hafi notið
launaskriðs á nýliðnu ári, fengju
umframhækkanir svo hægt yrði að
tryggja að kaupmáttarauknin]
þeirra yrði um 8%, eins og AS
hefur gert kröfu um. Launaskrið á
siðasta ári er talið hafa verið nærri
fjórum prósentum. „Það skiptir ekki
minnstu máli í þessu sambandi að
kaupmátturinn sé þræltryggður,"
sagði hann. „Menn eru að færa sig
inn á aðrar verðbólguviðmiðanir en
við höfum þekkt undanfama ára-
tugi og þá er frumskilyrði að for-
sendumar séu traustar."
Magnús Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, sagði í gær-
kvöld, að að náist samkomulag sé
m.a. gert ráð fyrir að aðilar fari í
sameiginlegar viðræður við ríkis-
stjómina. „Við verðum að nýta
þetta tækifæri og það tekst ekki
nema með sameiginlegu átaki
vinnuveitenda, verkalýðshreyfing-
arinnar og ríkisvaldsins," sagði
hann. „Það var ljóst sl. nótt að
þetta var að springa og þá gáfu
menn hraustlega í. Hér leggja báðir
aðilar mjög hart að sér.“
„Ég sit ekki áfram í ríkisstjóm
ef verðbólgan fer nú úr böndum
eins og undir árslok 1984,“ sagði
Steingrímur Hermannsson forsæt-
isráðherra í sjónvarpsþætti í gær-
kvöldi. Hann taldi skynsamlega
kjarasamninga nú forsendu fyrir
því að viðunandi verðbólgumarkmið
næðust. Það mætti ekki fara vel
yfir 30%. Forsætisráðherra sagði
að nýjar kröfur um þátt ríkisins í
lausn kjaradeilnanna hefðu ekki
verið kannaðar til hlýtar, en ríkis-
sjóður væri ekki aflögufær og ekki
yrðu tekin ný lán í útlöndum. Afla
yrði ríkissjóði fjár innanands, til
dæmis úr lífeyrissjóðum og skera
niður ríkisútgjöld ef orðið yrði við
þessum kröfum, en samkvæmt þeim
ætti verðbólga að fara niður í 7%.
XIIREYKJAVÍKURSKÁKMÓTIÐ
Steyttu hnefa o g
hótuðu öllu illu
Deilt um riddaraleik í fyrrakvöld og í gær-
kvöldi reifst Reshevsky og skammaðist
SJÖUNDA umferd XII. Reykja-
vikurskákmótsins var íslensku
titilhöfunum ákaflega óhag-
stæð. Tvö töp, og enginn sigur
vannst - þeir Jóhann Hjartarson
og Jón L. Árnason urðu að lúta
í Iægra haldi. Margeir og Guð-
mundur Sigutjónsson gerðu
innbyrðis jafntefli og skák
Helga Ólafssonar og Lev Al-
burt fór í bið. Helgi reynir að
knýja fram sigur, en það verður
erfitt. Skák Karls Þorsteins og
Seirawan fór í bið og á Karl
undir högg að sækja gegn
bandaríska stórmeistaranum.
Þó yfirbragð á skákmóti sé ró-
legt, þá ólgar blóðið undir niðri.
Gheorghiu hinn rúmenski og
Federowicz hinn bandaríski
steyttu hnefa framan í hvom
annan í fyrrakvöld og formæltu
hvor öðrum. Ástæðan var sú, að
Gheorghiu taldi Fedorowicz hafa
tekið upp leik; leikið riddara g3
en kippt honum til baka þegar
hann sá riddarann í dauðanum
og leikið Rh4. Hann krafðist þess
að riddarinn stæði í dauðanum á
g3. Fedorowicz neitaði - kvaðst
ekki hafa leikið til g3 heldur h4.
Gheorghiu kallaði á dómara og
krafðist þess að riddaraleikurinn
stæði. En því miður hafði dómari
ekki séð neitt - málinu var vísað
til dómnefndar. Þeirra Guðmund-
ar Siguijónssonar, Larsens og
Byme. Þeir kölluðu þijú vitni fyrir
sig. Þau voru samdóma í áliti sínu
- studdu Gheorghiu og kváðust
hafa séð Fedorowizc leika riddar-
anum umdeilda á g3. Þar sem
Fedorowicz gat ekki fundið neinn
sem studdi mál hans, dæmdi dóm-
nefndin Gheorghiu í hag.
Skákin var sett í bið - og átti
að tefla áfram klukkan 23 í
gærkvöldi. En Bandaríkjamaður-
inn mætti ekki til leiks, eins og
hann hafði hótað og Gheorghiu
var dæmdur sigur.
í gærkvöldi jós annar skákmað-
ur úr skálum reiði sinnar - þá
bandaríski öldungurinn Reshev-
sky. Hann kvað landa sinn Zalts-
man aðeins hafa leikið 44 leiki
áður en klukkan féll og Zaltsman
því tapað skákinni á tíma. Zalts-
man kvaðst hafa leikið tilsetta 45
leiki fyrir tímamörk. Reshevsky
mótmælti hástöfum í skáksalnum
öðrum skákmönnum yfir tafli í
bullandi tímahraki til mikils ama
og sussuðu þeir óspart á gamla
manninn.
Skákdómarar voru kvaddir til
og fóru þeir í gegn um skákina.
Þeir töldu 45 leiki og Zaltsman
hafði því ekki fallið á tíma - gamli
maðurinn hafði gleymt að skrá
einn leik hjá sér. „„
Úrslit í 7. umferð
Anthony J. Miles — Curt Hansen bið
Jóhann Hjartarson — Bent Lareen 0-1
Predrag Nikolic — Valery Salov bið
Florin Gheorghiu — Robert Byrne l -0
Mikhail Tal — Utut Adianto 1-0
Helgi Ólafsson — Lev Alburt bið
Miguel A. Quinteros — Anatoly Lein bið
Helgi ólafsson — Lev Alburt bið
Miguel A. Quinteros — Anatoly Lein 0-1
Jón L. Ámason — Efim Geller 0-1
Guðm. Sigurjónoss. — Margeir Pétures. i/2«/2
Sergey Kudrin — Nick De Firmian i/2«/2
Kari Þoreteinss. — Yasser Seirawan bið
Thomas Welin — Joel Benjamin bið
Jens Kristiansen — John P. Fedorowicz «/2«/t
Vitaly Zaltsman — Samuel Reshevsky bið
Paul van der Sterren — Karl Dehmelt 0-1
Ásgeir Þ. Ámason — Larry Christansen 0-1
John W. Donaldson — Maxin Dlugy «/2*/2
Ólafur Kristjánsson — Walter Browne bið
Gert Ligtemik — Careten Hoi 1-0
Þröstur Þórhallsson — Harry Schussler 0-1
Michael Wilder — Bragi Halldórss. 1-0
Boris Kogan — Hannes H. Stefánss. */2*/2
Jouni Yrjola —JuergHerzog 1-0
Benedikt Jónasson — Larry A. Remlinger bið
Davíð Ólafsson — Björgvin Jónsson 1 -0
Róbert Harðareon — Guðmundur Halldóres. bið
JónG. Viðareson —HansJung 0-1
Karl Burger — Þoreteinn Þoreteinsson bið
Sævar Bjamason — Eric Schiller 0-1
Antti Pyhala — Leifur Jósteinsson 1-0
Haukur Angantýsson — Guðm. Glslas. */2*/2
Andrew Karklings - Þröstur Ámason i -0
Hilmar Karisson — Lárus Jóhannesson 0-1
Haraldur Haraldsson — Dan Hansson 0-1
Tómas Bjömsson — Kristján Guðmundss. bið
Jóhannes Ágústsson — Áskell Öm Kárason l -0
Halldór Grétar — Ámi Á. Ámason bið
Skák
Bragi Kristjánsson
Skák umferðarinnar var æsi-
spennandi skák Jóhanns Hjartar-
sonar og Bents Larsen. Kappamir
voru þegar í upphafi samhentir í
að gera skákina eins flókna og
hægt var. Eftirfarandi staða kom
upp eftir 22. leik svarts Kg8 — h8:
Framhaldið varð: 23. Rf4 —
Rxf4, 24. Hxf4 —
Jóhann getur varla losað um
svarta e-peðið, t.d. 24. Bxf4 —
c3.
25. Bxd6 - e2, 26. Hel -
Be5, 27. Bxe7 — Hg8, og svartur
nær sterkri sókn.
24. - Be5, 25. Hf2 - Rf3+, 26.
Khl —
Auðvitað ekki 26. gxf3 — Hg8
og svartur vinnur.
26. - Rxh2,27. Dh4 - h5
Svartur opnar leið út aftur fyrir
riddarann á h2.
28. f6 — Hh7,29. Bxe4 —
Spumingin er, hvort ekki var
betra að halda biskupnum á bl á
lífi og leika 29. Rxe4 — Rg4, 30.
Hfl og staðan er mjög flókin og
vandmetin.
29. — Bxe4,30. Rxe4 — Rg4
Keppendur eru ekki öfunds-
verðir að finna bestu leikina í
tímahraki í þessari flóknu stöðu.
31. Hf5 - Bxb2, 32. Rxd6 -
Dg6, 33. Hb3 - Bxf6, 34. Bg5
Eftir þennan leik verður tap
ekki umflúið. Reynandi var 34.
Dg3 og erfitt er að meta stöðunæ
34. - Bg7, 35. Hxf8+ - Bxf8,
36. Bf4 — Hd7
Ekki 36. — Bxd6, 37. Dd8+
o.sv. frv.
37. Hxb6
Hvítur á ekki betri leik, því
eftir 37. Rc8 — Hdl+ er hvítur
mát.
37. - Bxd6, 38. Bxd6 - Hxd6,
39. Hb8+ -
Ekki 39. Hxd6 — Dbl mát.
39. — Kg7,40. Hb7+ —
Eða 40. De7+ — Df7, 41. Dg5+
(41. Dxd6 — Dfl mát.) Hg6 og
svartur vinnur.
40. - Kh6, 41. Del - He6, 42.
Dd2+ — Dg5
og Jóhann gafst upp, því hann
á manni minna og tapað tafl.
Hann getur því miður ekki unnið
drottningu Larsens: 43. Hh7-l-
Kxh7, 44. Dxg5, Hel mát. Æsi-
spennandi skák, sem var báðum
keppendum til sóma.