Morgunblaðið - 19.02.1986, Síða 4

Morgunblaðið - 19.02.1986, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR19. FEBRÚAR1986 Tel að slitnað hafi upp úr launa- málaviðræðunum — segir formaður Lögreglufélags Reykjavíkur „ÉG TEL, að slitnað hafi upp úr viðræðum um launamál í bili,“ sagði Einar Bjarnason formaður Lögreglufélags Reykjavíkur eft- ir fund með fulltrúum dómsmála- og fjármálaráðuneytis í gær. „Fulltrúar stjómvalda virðast ekki ekki hafa áhuga á að ná samkomulagi um hagræðingu vakta. Þeir virðast ekki tilbúnir að borga neitt fyrir það, að við gefum eftir tíu tíma hvíldina," sagði Einar. Hann bætti því við, að reyndar væri vinnuálag lögregluþjóna þegar allt of mikið, jafnvel svo að menn gætu vart talist vinnufærir á stund- um. „Mér heyrðist þeir hins vegar Úrslit í eðlisfræði- keppni Dómnefnd í eðlisfræðikeppni framhaldsskólanema hefur lokið við að fara yfir úrlausnir úr keppninni. Bestu lausnir áttu þeir Agúst Svavar Egilsson og Hákon Guðbjartsson, báðir nem- endur í Menntaskólanum í Reykjavík. Næstbestu lausnir áttu þeir Kristján S. Guðmunds- son og Kristján B. Halldórsson, einnig nemendur í MR. í 5-10 sæti voru: Geir Agnarsson MR, Garðar Sigurðsson MR, Eiríkur Pálsson MH, Hallbjöm Karlsson MR, Davíð Aðalsteinsson MK og Einar Már Júlíusson MR. Alls tóku 45 framhaldsskólanem- endur þátt í eðlisfræðikeppninni að þessu sinni. Hinum 10 efstu í keppninni verður boðið að taka þátt í úrslitakeppni hinn 1. mars nk. þar sem peningaverðlaun verða í boði, auk þess sem góð ffamistaða í lokakeppninni getur veitt rétt til þátttöku í Olympíukeppninni í eðlis- fræði sem fram fer í Englandi í sumar. taka nokkuð jákvætt undir hug- myndir um þokkalega reglugerð um vopnaburð og réttarstöðu lögreglu- þjóna og hugsanlegra fómarlamba. Við gerum okkar grein fyrir að alls konar ómenningu verður ekki al- gjörlega haldið fyrir utan landstein- ana, en við eigum að hamla gegn vopnaburði eins og okkur er fram- ast unnt,“ sagði Einar, „við emm að ýmsu leyti miklu betur settir til þess en aðrar þjóðir." Að sögn Einars koma formenn lögreglufélaga úti á landi til fundar við starfsbræður sína á höfuðborg- arsvæðinu nk. föstudag, til þess að ræðaþessi mál. „Það varð engin niðurstaða af fundinum,“ sagði Þorsteinn Geirs- son ráðuneytisstjóri í dómsmála- ráðuneytinu eftir fundinn. „Ég á von á, að samkomulag náist um vopnaburðinn og réttarstöðumálin en það tekur auðvitað nokkum tfma,“ sagði hann. Annar fundur hefur ekki verið boðaður í deilunni. Slys í Hveragerði Hveragerði, 17. febrúar. ÞAÐ slys varð í Hveragerði sl. föstudagsmorgun að stór hurð í Trésmiðju Hveragerðis féll á tvo menn, sem þangað áttu erindi vinnu sinnar vegna. Hurðin, sem er mjög þung, hrökk af ein- hverjum ástæðum af festingun- um og féll á menninga, með þeim afleiðingum að annar þeirra fékk höfuðáverka og mikinn hnykk á höfuð og bak. Hinn slapp ómeiddur. Heilsugæslulæknir í Hveragerði saumaði 16 spor í höfuð mannsins og sendi hann síðan á Selfossspítala í myndatökur. Reyndist hann óbrot- inn. Þykir mikil mildi að þama fór ekki verr. Öryggiseftirlit ríkisins var vænt- anlegt austur í dag til að kanna málið. Sigrún ÍMML 38,4% t 22,7% t 16,3% jn 16,0%L FRAMFÆRSLU- VÍSITALA í OECD-LÖNDUM Hækkun frá nóv. 1984 til nóv. 1985 8.9% i 8.6% i 7,6% 6,9% C 5,8% 5,5 % 4,9% 4,9% Morgunblaöið/ GÓI 4.8% r i 4.2% I I 4.0%l I 3.6% 1 I 3.6% 1 1 3.4% I I 3.0%1 I 2.6% ( I 1,9%Q 1,8% 1,7%tJ J Tyrkland J ísland J Grikkland J NýjaSjáland J Portúgal | Ítalía J Spánn J Ástralía j Svíþjóð Noregur Bretland Finnland írland Frakkland Belgía Kanada Lúxemborg Bandarikin Danmörk Sviss Austurríki Japan V-Þýskaland Holland Á SÍÐASTA ári var verðbólga næst mest á íslandi I OECD-rílgun- um, eins og sést á myndinni hér að ofan, aðeins í Tyrklandi var verðbólgan meiri. Tillögur þær, sem ríkisstjúmin hefur lagt fram í kjaraviðræðunum miða hins vegar að því, að samningamir leiði til þess, að verðbólgan hérlendis verði svipuð og á ítaliu. Almenn bifreiðaskoð- un hófst á mánudaginn HIN árlega bifreiðaskoðun hófst hjá Bifreiðaeftirliti ríkis- ins á mánudaginn og stendur hún yfir til 10. október nk. í auglýsingu frá lögreglustjóran- um í Reykjavík segir að þegar ökumenn koma með bifreiðir sinar til skoðunar skuli þeir leggja fram gild ökuskírteini, kvittun fyrir greiðslu bifreiða- skatts og vottorð um að vá- trygging sé i gildi. Þá skal vera i skráningarskírteini áritun um að aðalljós bifreiðar hafi verið stillteftir 31. júlí 1985. Nýjar reglur um hjólhlífar á bifreiðum og tengi- og festivögn- um gengu í gildi 1. febrúar sl. Þar segir m.a. að sé kasthomið (þ.e. hom á milli línu gegnum snertipunkt hjóls við veg og neðstu brún bifreiðar, aftan við hjól, og yfirborðs vegar) aftan við afturhjól stærra en 25 gráður skal framlengja hjólhlífina t.d. með aurhlíf svo að homið verði á bilinu 15 gráður til 25 gráður, hvar sem er á breidd hjólsins. Að sögn Lámsar Sveinssonar verkstjóra hjá Bifreiðaeftirliti rík- isins þurfa færri fólksbifreiðir að hafa aurhlífar en áður var, sam- kvæmt þessum nýju reglum. Þetta á við ef yfirbygging bifreiðar nær vel aftur fyrir afturhjólin. Aftur á móti verður að hafa aurhlífar á mörgum tegundum smærri bif- reiða. Láms sagði að þessar regl- ur væru gerðar í samræmi við reglur sem í gildi em um þetta á hinum Norðurlöndunum. Lækkun útsvars og þjónustugjalda: Tuttugu sveitarfélög höfðu sent jákvætt svar í gærkvöldi STJÓRN launanefndar sveitarfé- laga sendi á sunnudaginn skeyti til aðildarsveitarfélaga þar sem óskað var eftir afstöðu þeirra til lækkunar útsvars um 5,5% og þjónustugjalda stofnana um 5-10%. í fréttatilkynningu frá stjóm launanefndar sveitarfélaga segir að þetta sé gert í samræmi við hug- myndir ríkisstjómarinnar um lækk- un opinberra gjalda til að greiða fyrir kjarasamningum. Ljóst sé að ef verðbólga fer niður í 9% í lok þessa árs geti sveitarfélög og stofn- anir þeirra lækkað útgjöld sín frá áætlun fyrir árið 1986 þar sem við samningu þeirra var gert ráð fyrir mun meiri verðbólgu. Pjárhagsleg staða ýmissa sveitarfélaga og flestra þjónustustofnana þeirra væri mjög erfið, sérstaklega veitu- stofnana, svo sem hitaveitna. Gjald- skrár þessara fyrirtækja og stofn- anna hafi yfirleitt verið hækkaðar INNLENT mun minna en þörf er á. Vandamál þeirra þurfi að leysa. Jafnframt segir að vegna yfir- standandi kjarasamninga og að- gerða sem leiða munu til lækkunar verðbólgu og stöðugs gengis sé' þess vænst að sveitarfélögin taki sinn þátt í þessari tilraun og Iækki útsvör og þjónustugjöld í samræmi við kostnaðarlækkanir sem hljótast af lækkaðri verðbólgu. Um kvöldmatarleytið í gær höfðu borist um 20 jákvæð svör frá aðild- arfélögum launanefndar sveitarfé- laga. Að sögn Magnúsar Guðjóns- sonar framkvæmdastjóra Sam- bands íslenskra sveitarfélaga höfðu margar sveitarstjórnir boðað til fundar síðdegis í gær. Hann sagði að eftir þeim fregnum sem borist hefðu mætti telja líklegt pið allar sveitarstjómir sem ættu aðild að launanefnd muni fallast á þetta. Bæjarráð Dalvíkur: Lækkun útsvars og þjónustugjalda samþykkt Dalvík 18. febrúar. Á FUNDI bæjarráðs Dalvíkur 17. febrúar síðastliðinn var tekið fyrir erindi frá launanefnd sveit- arfélaga þess efnis, að í tengslum við kjarasamninga, verði tekin afstaða til lækkunar útsvara og þjónustugjalda. Á fundinum samþykkti bæjarráð, að útsvar skyldi lækka í 10,4% af launum og að þjónustugjöld bæjarstofn- ana verði lækkuð um 5% nema dagvistargjöld, sem verði hækk- uð, en þó hlutfallslega minna en gert var ráð fyrir. Jafnframt var samþykkt að fyrir- fram ákveðin hækkun gjaldskrár hitaveitu um 10% komi ekki til framkvæmda og að við aðrar fyrir- hugaðar gjaldskrárhækkanir, verði fullt tillit tekið til verðlagsþróunar og að leitazt verði við að spoma eftir mætti gegn hækkunum. Þessi samþykkt bæjarráðs er háð því, að samningar náist á grundvelli þeirra tillagna, sem ríkisstjómin setti fram í efnahagsmálum vegna yfirstand- andi kjarasamninga. Samþykkt þessi á eftir að fara fyrir bæjar- stjóm. Frcttaritarar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.