Morgunblaðið - 19.02.1986, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR19. FEBRÚAR1986
Tel að slitnað
hafi upp úr launa-
málaviðræðunum
— segir formaður Lögreglufélags Reykjavíkur
„ÉG TEL, að slitnað hafi upp úr
viðræðum um launamál í bili,“
sagði Einar Bjarnason formaður
Lögreglufélags Reykjavíkur eft-
ir fund með fulltrúum dómsmála-
og fjármálaráðuneytis í gær.
„Fulltrúar stjómvalda virðast
ekki ekki hafa áhuga á að ná
samkomulagi um hagræðingu
vakta. Þeir virðast ekki tilbúnir að
borga neitt fyrir það, að við gefum
eftir tíu tíma hvíldina," sagði Einar.
Hann bætti því við, að reyndar
væri vinnuálag lögregluþjóna þegar
allt of mikið, jafnvel svo að menn
gætu vart talist vinnufærir á stund-
um.
„Mér heyrðist þeir hins vegar
Úrslit í
eðlisfræði-
keppni
Dómnefnd í eðlisfræðikeppni
framhaldsskólanema hefur lokið
við að fara yfir úrlausnir úr
keppninni. Bestu lausnir áttu
þeir Agúst Svavar Egilsson og
Hákon Guðbjartsson, báðir nem-
endur í Menntaskólanum í
Reykjavík. Næstbestu lausnir
áttu þeir Kristján S. Guðmunds-
son og Kristján B. Halldórsson,
einnig nemendur í MR.
í 5-10 sæti voru: Geir Agnarsson
MR, Garðar Sigurðsson MR, Eiríkur
Pálsson MH, Hallbjöm Karlsson
MR, Davíð Aðalsteinsson MK og
Einar Már Júlíusson MR.
Alls tóku 45 framhaldsskólanem-
endur þátt í eðlisfræðikeppninni að
þessu sinni. Hinum 10 efstu í
keppninni verður boðið að taka þátt
í úrslitakeppni hinn 1. mars nk. þar
sem peningaverðlaun verða í boði,
auk þess sem góð ffamistaða í
lokakeppninni getur veitt rétt til
þátttöku í Olympíukeppninni í eðlis-
fræði sem fram fer í Englandi í
sumar.
taka nokkuð jákvætt undir hug-
myndir um þokkalega reglugerð um
vopnaburð og réttarstöðu lögreglu-
þjóna og hugsanlegra fómarlamba.
Við gerum okkar grein fyrir að alls
konar ómenningu verður ekki al-
gjörlega haldið fyrir utan landstein-
ana, en við eigum að hamla gegn
vopnaburði eins og okkur er fram-
ast unnt,“ sagði Einar, „við emm
að ýmsu leyti miklu betur settir til
þess en aðrar þjóðir."
Að sögn Einars koma formenn
lögreglufélaga úti á landi til fundar
við starfsbræður sína á höfuðborg-
arsvæðinu nk. föstudag, til þess að
ræðaþessi mál.
„Það varð engin niðurstaða af
fundinum,“ sagði Þorsteinn Geirs-
son ráðuneytisstjóri í dómsmála-
ráðuneytinu eftir fundinn. „Ég á
von á, að samkomulag náist um
vopnaburðinn og réttarstöðumálin
en það tekur auðvitað nokkum
tfma,“ sagði hann.
Annar fundur hefur ekki verið
boðaður í deilunni.
Slys í
Hveragerði
Hveragerði, 17. febrúar.
ÞAÐ slys varð í Hveragerði sl.
föstudagsmorgun að stór hurð í
Trésmiðju Hveragerðis féll á tvo
menn, sem þangað áttu erindi
vinnu sinnar vegna. Hurðin, sem
er mjög þung, hrökk af ein-
hverjum ástæðum af festingun-
um og féll á menninga, með þeim
afleiðingum að annar þeirra fékk
höfuðáverka og mikinn hnykk á
höfuð og bak. Hinn slapp
ómeiddur.
Heilsugæslulæknir í Hveragerði
saumaði 16 spor í höfuð mannsins
og sendi hann síðan á Selfossspítala
í myndatökur. Reyndist hann óbrot-
inn. Þykir mikil mildi að þama fór
ekki verr.
Öryggiseftirlit ríkisins var vænt-
anlegt austur í dag til að kanna
málið.
Sigrún
ÍMML
38,4% t
22,7% t
16,3% jn
16,0%L
FRAMFÆRSLU-
VÍSITALA
í OECD-LÖNDUM
Hækkun frá nóv. 1984 til nóv. 1985
8.9% i
8.6% i
7,6%
6,9% C
5,8%
5,5 %
4,9%
4,9%
Morgunblaöið/ GÓI
4.8% r i
4.2% I I
4.0%l I
3.6% 1 I
3.6% 1 1
3.4% I I
3.0%1 I
2.6% ( I
1,9%Q
1,8%
1,7%tJ
J Tyrkland
J ísland
J Grikkland
J NýjaSjáland
J Portúgal
| Ítalía
J Spánn
J Ástralía
j Svíþjóð
Noregur
Bretland
Finnland
írland
Frakkland
Belgía
Kanada
Lúxemborg
Bandarikin
Danmörk
Sviss
Austurríki
Japan
V-Þýskaland
Holland
Á SÍÐASTA ári var verðbólga næst mest á íslandi I OECD-rílgun-
um, eins og sést á myndinni hér að ofan, aðeins í Tyrklandi var
verðbólgan meiri. Tillögur þær, sem ríkisstjúmin hefur lagt fram
í kjaraviðræðunum miða hins vegar að því, að samningamir leiði
til þess, að verðbólgan hérlendis verði svipuð og á ítaliu.
Almenn bifreiðaskoð-
un hófst á mánudaginn
HIN árlega bifreiðaskoðun
hófst hjá Bifreiðaeftirliti ríkis-
ins á mánudaginn og stendur
hún yfir til 10. október nk. í
auglýsingu frá lögreglustjóran-
um í Reykjavík segir að þegar
ökumenn koma með bifreiðir
sinar til skoðunar skuli þeir
leggja fram gild ökuskírteini,
kvittun fyrir greiðslu bifreiða-
skatts og vottorð um að vá-
trygging sé i gildi. Þá skal vera
i skráningarskírteini áritun um
að aðalljós bifreiðar hafi verið
stillteftir 31. júlí 1985.
Nýjar reglur um hjólhlífar á
bifreiðum og tengi- og festivögn-
um gengu í gildi 1. febrúar sl.
Þar segir m.a. að sé kasthomið
(þ.e. hom á milli línu gegnum
snertipunkt hjóls við veg og
neðstu brún bifreiðar, aftan við
hjól, og yfirborðs vegar) aftan við
afturhjól stærra en 25 gráður
skal framlengja hjólhlífina t.d.
með aurhlíf svo að homið verði á
bilinu 15 gráður til 25 gráður,
hvar sem er á breidd hjólsins.
Að sögn Lámsar Sveinssonar
verkstjóra hjá Bifreiðaeftirliti rík-
isins þurfa færri fólksbifreiðir að
hafa aurhlífar en áður var, sam-
kvæmt þessum nýju reglum. Þetta
á við ef yfirbygging bifreiðar nær
vel aftur fyrir afturhjólin. Aftur
á móti verður að hafa aurhlífar á
mörgum tegundum smærri bif-
reiða. Láms sagði að þessar regl-
ur væru gerðar í samræmi við
reglur sem í gildi em um þetta á
hinum Norðurlöndunum.
Lækkun útsvars og þjónustugjalda:
Tuttugu sveitarfélög höfðu
sent jákvætt svar í gærkvöldi
STJÓRN launanefndar sveitarfé-
laga sendi á sunnudaginn skeyti
til aðildarsveitarfélaga þar sem
óskað var eftir afstöðu þeirra til
lækkunar útsvars um 5,5% og
þjónustugjalda stofnana um
5-10%.
í fréttatilkynningu frá stjóm
launanefndar sveitarfélaga segir að
þetta sé gert í samræmi við hug-
myndir ríkisstjómarinnar um lækk-
un opinberra gjalda til að greiða
fyrir kjarasamningum. Ljóst sé að
ef verðbólga fer niður í 9% í lok
þessa árs geti sveitarfélög og stofn-
anir þeirra lækkað útgjöld sín frá
áætlun fyrir árið 1986 þar sem við
samningu þeirra var gert ráð fyrir
mun meiri verðbólgu. Pjárhagsleg
staða ýmissa sveitarfélaga og
flestra þjónustustofnana þeirra
væri mjög erfið, sérstaklega veitu-
stofnana, svo sem hitaveitna. Gjald-
skrár þessara fyrirtækja og stofn-
anna hafi yfirleitt verið hækkaðar
INNLENT
mun minna en þörf er á. Vandamál
þeirra þurfi að leysa.
Jafnframt segir að vegna yfir-
standandi kjarasamninga og að-
gerða sem leiða munu til lækkunar
verðbólgu og stöðugs gengis sé'
þess vænst að sveitarfélögin taki
sinn þátt í þessari tilraun og Iækki
útsvör og þjónustugjöld í samræmi
við kostnaðarlækkanir sem hljótast
af lækkaðri verðbólgu.
Um kvöldmatarleytið í gær höfðu
borist um 20 jákvæð svör frá aðild-
arfélögum launanefndar sveitarfé-
laga. Að sögn Magnúsar Guðjóns-
sonar framkvæmdastjóra Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga höfðu
margar sveitarstjórnir boðað til
fundar síðdegis í gær. Hann sagði
að eftir þeim fregnum sem borist
hefðu mætti telja líklegt pið allar
sveitarstjómir sem ættu aðild að
launanefnd muni fallast á þetta.
Bæjarráð Dalvíkur:
Lækkun útsvars og
þjónustugjalda samþykkt
Dalvík 18. febrúar.
Á FUNDI bæjarráðs Dalvíkur 17.
febrúar síðastliðinn var tekið
fyrir erindi frá launanefnd sveit-
arfélaga þess efnis, að í tengslum
við kjarasamninga, verði tekin
afstaða til lækkunar útsvara og
þjónustugjalda. Á fundinum
samþykkti bæjarráð, að útsvar
skyldi lækka í 10,4% af launum
og að þjónustugjöld bæjarstofn-
ana verði lækkuð um 5% nema
dagvistargjöld, sem verði hækk-
uð, en þó hlutfallslega minna en
gert var ráð fyrir.
Jafnframt var samþykkt að fyrir-
fram ákveðin hækkun gjaldskrár
hitaveitu um 10% komi ekki til
framkvæmda og að við aðrar fyrir-
hugaðar gjaldskrárhækkanir, verði
fullt tillit tekið til verðlagsþróunar
og að leitazt verði við að spoma
eftir mætti gegn hækkunum. Þessi
samþykkt bæjarráðs er háð því, að
samningar náist á grundvelli þeirra
tillagna, sem ríkisstjómin setti fram
í efnahagsmálum vegna yfirstand-
andi kjarasamninga. Samþykkt
þessi á eftir að fara fyrir bæjar-
stjóm.
Frcttaritarar