Morgunblaðið - 19.02.1986, Side 33
MORGUJÍBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1986
33
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Aðstandendur sýningarinnar í Freyvangi. Þráinn Karlsson leikstjóri situr lengst til hægri.
# ••
Leikfélag Ongnlstaðarhrepps sýnir Kviksand í Freyvangi:
Gamalt verk - en efni
þess í umræðu í dag
segir Þráinn Karls-
son leikstjóri
Akureyri, 18. febrúar.
LEIKFÉLAG Öngulstaðahrepps
og Ungmennafélagið Árroðinn
frumsýndu síðastliðið föstudags-
kvöld bandaríska leikritið Kvik-
sand eftir Michael V. Cazzo.
Þýðandi er Ásgeir Hjartarson,
Þráinn Karlsson er leikstjóri og
hannar einnig leikmynd. Kvik-
sandur fjallar um áhrif eiturlyfja
á einstakling, Jonna Pope, á
heimili hans og fjölskyldu.
„Leikritið gerist í gömlu borgar-
hverfi í New York, við látum það
gerast 1950. Þetta er um ungt fólk
sem lendir fyrir duttlunga tilver-
unnar í eiturlyfjum, spurningar
vakna um það hver er orsakavaldur-
inn, af hveiju einn lendir í þessu
frekar en annar,“ sagði Þráinn
Karlsson, leikstjóri, í samtali við
Morgunblaðið í tilefni frumsýning-
arinnar.
Þráinn sagði verkið margslungið.
„Inn í það fléttast ást bróður á bróð-
ur, samskiptaleysi hjónanna og
uppeldi þessa tíma, svo eitthvað sé
nefnt. Þó leikritið sé gamalt er efni
sýningarinnar í umræðu í dag,“
sagði Þráinn.
Leikritinu var mjög vel tekið á
frumsýningu, leikendum og leik-
stjóra var ákaft fagnað. Önnur sýn-
ing var á sunnudagskvöld og næstu
sýningar verða í Freyvangi á föstu-
dags-, laugardags- og sunnudags-
kvöld.
Jonna Pope, sem lendir í eiturlyfj-
um, leikur Stefán Guðlaugsson,
konu hans Celiu leikur Anna
Ringsted, Polo bróður hans leikur
Jóhann Jóhannsson og föður þerria
Polo (Jóhann Jóhannsson) róar bróður sinn Jonna (Stefán Guðlaugs-
son). Faðir þeirra Jón (Leifur Guðmundsson) í baksýn.
Eiturlyfjasalinn „Mamma“ (Arni Sigurðsson) þjarmar að Jonna.
Honum til aðstoðar er annar fylgdarsveinanna (Birgir Jónsson).
bræðra Jón Pope leikur Leifur
Guðmundsson. Aðrir leikarar eru
Árni Sigurðsson, sem fer með hlut-
verk „Mömmu" eiturlyfjasalans, og
aðstoðarmenn hans leika Birgir
Jónsson og Stefán Ámason. Þá fer
Jóhanna Valgeirsdóttir með hlut-
verk Snúllu.
Samhljóða niðurstaða Félagsdóms;
Afgreiðslubann Dags-
brúnar er ólöglegt
BANN Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar á afgreiðslu vara
til eða frá Suður-Afríku, sem
tók gildi 14. nóvember i haust,
hefur verið dæmt ólöglegt í
Félagsdómi. Dómararnir
fimm — þar með talinn sá sem
skipaður er af verkalýðs-
hreyfingunni — voru sammála
um þessa niðurstöðu þegar
dómurinn var kveðinn upp á
mánudaginn. Dómnum er
fagnað af Vinnuveitendasam-
bandinu, sem höfðaði málið
fyrir hönd Eimskipafélags ís-
lands, en hann harmaður af
Dagsbrún. Guðmundur J.
Guðmundsson, formaður
Dagsbrúnar, sagði i samtali
við blm. Morgunblaðsins í gær
að líklegast væri að félagið
beitti verkfalli til að koma í
veg fyrir uppskipun og af-
greiðslu vara frá S-Afríku.
„Ef þeir láta dæma okkur
aftur mun ég leggja til að
þeir flytji til Suður-Áfríku og
fái inni hjá hvíta minnihlutan-
um þar,“ sagði Guðmundur.
Ekki á færi stéttar-
félags
Forsendur dómsins verða ekki
birtar fyrr en síðar í þessari viku
en samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins byggist niðurstaða
dómaranna á því, að ekki sé á
færi stéttarfélags að hlutast til
um hvaða störfum félagsmenn
sinni hjá einstökum vinnuveitend-
um; bann um að inna hluta af
skyldustörfum sínum af hendi sé
brot á kjarasamningi. Engin af-
staða mun hafa verið tekin til
forsendu Dagsbrúnar fyrir að-
gerðum sínum, þ.e. kúgunar
svarta meirihlutans í S-Afríku.
Af hálfu Vinnuveitendasam-
bandsins var þess krafist fyrir
dómnum að bann Dagsbrúnar
yrði dæmt brot á kjarasamningi
félagsins og VSÍ fh. Eimskips.
Fallið var frá kröfu um að Dags-
brún yrði dæmd til greiðslu máls-
kostnaðar.
Það var fundur hafnarverka-
manna í Sundahöfn sem sam-
þykkti í októberbyijun áskorun til
Dagsbrúnar um að sett yrði af-
greiðslu-, innflutnings- og út-
flutningsbann á vörur frá S-Afr-
íku í Reykjavíkurhöfn. Trúnaðar-
mannaráð Dagsbrúnar gerði
samþykkt íjiessa veru 25. október
og var VSI tilkynnt um þá sam-
þykkt sama dag. Nokkrum dögum
síðar mótmæli VSI banninu fyrir
hönd Eimskipafélags íslands og
20. nóvember stefndi VSÍ málinu
til Félagsdóms. Þá höfðu viðræður
VSÍ og Dagsbrúnar ekki leitt til
samkomulags.
Glæpur gegn
mannkyninu
í greinargerð Atla Gíslasonar
hdl., lögmanns Dagsbrúnar, sagði
m.a. að bann Dagsbrúnar væri
rökstutt út frá skráðum sem
óskráðum reglum um almenn
mannréttindi. „Meðal homsteina
íslenskrar stjómskipunar séu
ákvæði stjómarskrár íslands um
tjáningar-, funda- og félagafrelsi.
Enn ítarlegri ákvæði sé að finna
í Mannréttindayfírlýsingu Sam-
einuðu þjóðanna, sem íslendingar
hafi samþykkt, þ. á m. um að
engan greinarmun skuli gera milli
manna vegna kynþáttar, litar-
háttar, kynferðis, stjómmálaskoð-
ana o.s.frv. Ennfremur séu Islend-
ingar bundnir alþjóðasáttmála um
vemdun mannréttinda og mann-
frelsis. Þessum grunnreglum,
yfirlýsingum og samþykktum
Sameinuðu þjóðanna og annarra
alþjóðastofnana um aðgerðir gegn
Suður-Afríku verði íslendingar að
fylgja eftir. Telur stefndi (þ.e.
Dagsbrún, innsk. blm.) að ákvæði
vinnulöggjafarinnar verði að víkja
fyrir þessum grunnreglum.
Vinnulöggjöfin megi aldrei verða
til þess, að íslensk verkalýðsfélög
geti ekki lagst gegpi kynþáttaað-
skilnaðarstefnu, sem Sameinuðu
þjóðimar hafi lýst sem glæp gegn
mannkyninu. Verkamenn sem
aðrir hafi fullan rétt á að neita
að styðja slíka glæpi beint sem
óbeint. Þá telur stefndi að tilgang-
ur vinnulöggjafarinnar hafi aldrei
verið sá, að koma í veg fyrir
aðgerðir sem hér sé deilt um.
Vísar stefndi einnig til neyðarrétt-
arsjónarmiða í þessu samhengi."
Valdið hjá Alþingi,
ekki Dagsbrún
Kristján Þorbergsson lögfræð-
ingur flutti málið fyrir hönd VSÍ.
Lokaorð hans í málflutningi fyrir
Félagsdómi vom þessi:
„í máli þessu er deilt um lög-
mæti pólitískrar mótmælaaðgerð-
ar, sem beint er gegn stjómvöld-
um í Suður-Afríku. Aðgerð þess-
ari er ekki ætlað að knýja á um
lausn hagsmunaágreinings á
vinnumarkaði, henni er ekki ætlað
að knýja á um gerð kjarasamn-
inga.
Hlutverk stéttarfélaga er að
gera kjarasamninga en hlutverk
utanríkisráðherra og Alþingis er
að framfylgja pólitískri utanríkis-
stefnu landsmanna. Það er því á
ákvörðunarsviði Alþingis að ijúfa
viðskiptatengsl íslendinga og
Suður-Afríkubúa, en ekki Verka-
mannafélagsins Dagsbrúnar.
Skiljanlegt er, að mannrétt-
indabarátta blökkumanna eigi sér
hljómgmnn, en það háttemi að
neita að sinna skyldustörfum sín-
um, eða það háttemi stéttarfélags
að fyrirskipa félögum sínum að
bregðast hlýðnisskyldum, og trún-
aðar- og starfsskyldum við vinnu-
veitenda sinn, er hvorki eðlileg
né heiðarleg aðferð við að veita
útrás samúð sinni með mannrétt-
indabaráttu hvar sem er í heimin-
um.“
Félagsdóm skipa Ólafur St.
Sigurðsson formaður, Gunnlaug-
ur Briem yfirsakadómari, Bjöm
Helgason hæstaréttarritari, Ami
Guðjónsson hrl. og Gunnar Guð-
mundsson hdl.
XII. Reykjavíkurskákmótið
Tapskák úr þriðju umferð
Bandaríkjamaðurinn Karklins
vann óvæntan signr á landa sín-
um, Dlugu, í fyrstu umferð, en
síðan hefur hann tapað tveim
skákum. í þriðju umferð tefldi
hann með svörtu gegn enska
stórmeistaranum, Anthony Mil-
es.
Hvítt: Miles
Svart: Karkling
Drottningarindversk vöm
1. d4 - Rf6, 2. c4 - e6, 3. Rf3
- b6, 4. Rc3 - Bb7, 5. a3 - d5,
6. cxd5 — Rxd5
Varkárari skákmenn leika hér 6. —
exd5
7. Dc2 - Rxc3
Skákfræðin mælir með 7. — c5,
sem gefur svarti jafnt tafl.
8. bxc3 — Dd5
Með þessum leik tapar svartur
tíma, því hvítur leikur fyrst e3, og
síðar eftir undirbúning e4. Eðlilegra
var að leika 8. — Be7 ásamt 0-0
ogc7 — c5.
9. e3 — Rd7
Svartur hefði betur leikið Be7
ásamt 0-0.
10. Bd3 — c5, ll.e4 —Dc6
Svartur leggur höfuðið á högg-
stokkinn. Hann gefur hvít tækifæri
til að leika d4 — d5 með leikvinn-
ingi. Skárra var 11. — Dd6.
12. d5 -
NÚ opnast taflið og þar með allar
línur að berskjölduðum svörtum
kóngi.
12. — exd5, 13. exd5 — Dxd5, 14.
Bg5 —
Taflmennska Karklins gegn
stigahæsta manni mótsins getur
varla kallast annað en velheppnuð
sjálfmorðstilraun. Hann er þegar
varnarlaus, t.d. 14. — f6, 15. 0-0-0
0-0-0 16. Bf5 - Dc6, 17. Re5 -
fxe5, 18. Bxd8 og riddarinn á d7
fellur einnig.
14. - c4, 15. Bf5 - Rc5, 16. Hdl
- Dc6,17. De2+ - Re6,18. Rd4
og svartur gafst upp, því hann er
varnarlaus eftir 18. — Dxg2, 19.
Rxe6 — Dxhl+, 20. Kd2 — Dd5+,
21. Rd4+ og hvítur mátar.