Morgunblaðið - 27.02.1986, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1986
21
orlof, alls kr. 582,667. Þetta gerir
kr. 6.621 ! vikukaup og þá er árskaup
eins manns (aðkeypt vinna fellur
niður) í 52 vikur kr. 344.292.
Ef ég fengi að ráða mundi ég láta
framkvæma þennan niðurskurð strax,
enda ekki verra fyrir menn nú en
kláðaniðurskurðurinn haust og vetur
fyrir 130 árum eða mæðiveiki-fjár-
skiptin fyrir 30 árum. Niðurskurður
strax myndi spara mikið í fóðurkostn-
aði og arðlausri vinnu næsta sumar
og haust við slátrun og umsetningu
tilgangslauss kjötútflutnings. Ég geri
samt ekki ráð fyrir að þessum ráðum
verði fylgt. Búskaparstjómin í landinu
er ekki vön að fara eftir tillögum mín-
um. Líklega telja menn enn að þjóðin
hafi efni á að „leika sér“ með 9.000
arðlausar kýr og 245 þúsund ær. Það
er svona ein gælukind á mannsbam í
landinu. Þessi „hasar-spilamennska"
mun vafalaust halda áfram í næstu
sláturtíð og eitthvað fram í tímann !
fjármálaráðuneyti og Bændahöll.
Hvað haldið þið, lesendur góðir, að
sparast mundi mikið rekstrarfé á ári
með því að leggja niður ca. 980 „hefð-
bundin meðalbú"?
Samkvæmt verðlagsgrundvellinum
fyrir meðalbú eru þessir liðir reiknaðir
þannig:
1. Fóðurbætiskaup kr. 265 þús.
2. Áburðarkaup kr. 146 þús.
3. Vélarekstur kr. 72þús.
4. Vöruflutningar kr. 54þús.
5. Endumýj. húsaogvéla kr. 263 bús.
Samtals kr. 800 þús.
I'Vrir þessi 980 meðalbú yrði sparnaðurinn
f sveitum og þjóðarbúi alls tæpar 800 milljón-
ir króna.
Mér dettur ekki í hug að halda fram,
að hér sé ýtarlega gerð grein fyrir
framkvæmd þessara umbóta og ný-
skipulags í landbúnaði okkar, heldur
dreg ég upp mynd af því, sem mætti
gera og mundi vera gert, ef þekking
og góður vilji væri fyrir hendi til að
leysa þennan vanda, losa bændastétt-
ina við auðmýkinguna og losa neyt-
endur við hluta af skattpíningunni.
Ofstjómina í landbúnaðinum má
losna við og stjóma öllu verðlagi með
rétt ákvörðuðum innflutningstollum á
innfluttar matvömr. Tollar skyldu þá
mæta niðurgreiðslum erlendis og ein-
hverri viðbót, sem við viljum gefa
landinu okkar vegna kuldans og hins
stutta sumars. Bændur okkar þurfa
enga „ölmusu“. Þá skortir hvorki gáf-
ur eða dugnað í samanburði við
bændur nágrannalandanna. Og svo
gætu fagmenn bændanna, ráðunaut-
amir, aftur farið að beita fagmennsku
sinni til að auka framleiðni búanna
og arðsemi.
kenna að mér hefðu orðið á skoð-
analeg mistök. Ég hef oft áður
haldið þvf fram fyrir daufum eyrum
að skipuleggja þurfí landið allt. Það
er verk fyrir alþingismenn að vinna.
Þingmenn eiga bæði að hugsa
um þjóðarheill og sín kjördæmi. Ef
þeir hugsa um sín kjördæmi fá þeir
allskonar uppnefni og þeir láta sér
því nægja að hugsa um þjóðarhag
(það er Reykjavik). Afleiðingamar
verða fólksfækkun og má segja að
það liggi við að heilar byggðir fari
í eyði.
Oft er því haldið fram að lands-
byggðarmenn séu ónýtir að bjarga
sér og vilji fá allt frá ríkinu. Satt
er það að dreifbýlið hefur lagt þétt-
býlinu til hugvit. Margur hefur flutt
til Reykjavíkur þar sem olnboga-
rými hefíir verið meira. Fjármagns-
flutningar hafa verið miklir til þétt-
býlis.
Hver ungur maður hlýtur að
spuija sjálfan sig um það, þegar
ákvörðun um lífsstarf er tekin,
hvort fj'árfesta eigi úti á landi. Sá
sem þarf af einhveijum ástæðum
að breyta til fær kjallaraíbúð í
Reykjavík fyrir allvel hýsta jörð,
ef hún er þá seljanleg.
Sannleikurinn er sá að lands-
byggðinni hefur verið gleymt og
hún er olnbogabamið. Landsbyggð-
arfólk verður sjálft að vakna og
hætta að horfa vonaraugum til
ráðamanna. Frá þeim er tæpast
hjálpar að vænta úr þessu.
Höfundur er kennari og fréttarit-
ari Morgunblaðsinns á Reykhól-
um.
Þroskahjálp á Suðurnesjum:
Fær 10 aura af hveiju
brauði frá Ragnarsbakaríi
Morgunblaðið/E.G.
Ragnar Eðvaldsson bakari í Ragnarsbakarii, afhendir EUert Eiríks-
syni ávísun fyiir hlut Þroskahjálpar í brauðsöiu í janúar. Aðrir á
myndinni eru Ásgeir Ingimundarson, Ólöf Stefánsdóttir, forstöðu-
maður endurhæfingarstöðvar og Daníel Arason.
Vogum, 24. febrúar.
„FÉLAGIÐ á sem betur fer
marga góða stuðningsmenn,"
sagði EUert Eiríksson, formaður
Þroskahjálpar á Suðurnesjum í
samtali við Morgunblaðið, þegar
hann hafði tekið við fyrstu gjöf
frá Ragnari Eðvaldssyni, bakara
í Ragnarsbakaríi í Keflavik, sem
færir Þroskahjálp tíu aura af
hveiju brauði sem er selt frá
bakariinu á þessu ári, og fer
afhending fram mánaðarlega.
Ragnar Eðvaldsson sagði að á
undanfömum ámm hefði fjármagni
verið dreift til margra félaga, og
því orðið minna úr því en ella. Með
þessum hætti verður fjármagninu
safnað á einn stað, og hefði hann
í hyggju að halda áfram á sömu
braut, en skipta á milli félaga. Um
hver áramót verði ákveðið hver
verði fyrir valinu það árið. Þeir sem
kaupa brauð frá Ragnarsbakaríi á
þessu ári, styrkja um leið starfsemi
Þroskahjálpar á Suðumesjum.
Framleiðsla fyrirtækisins á dag er
3—4.000 brauð.
Félagið Þroskahjálp á Suðumesj-
um var stofnað á árinu 1977. Félag-
ið rekur Leifangasafn, endurhæf-
ingarstöð, dagvistun fyrir fatlaða
og skammtímavistun. Starfsmenn
félagsins í dag era 11. Að auki er
rekið almennt félagsstarf, þar sem
haldnir era fræðsiufundir o.fl.
Ellert Eiríksson, formaður fé-
lagsins, sagði: „Ég held það sé ekki
of sagt að Kiwanishreyfingin á
Suðumesjum hafí verið frá upphafi
langstærsti stuðningsaðili við félag-
ið. Svo er fjöldi stofnana, fyrirtækja
og klúbba, sem gefa fjárapphæðir.“
Allar peningargjafír sem félaginu
berast era notaðar í uppbyggingu.
Reksturinn byijaði með gjöf Kiwan-
ismanna á leikfangasafni og með
leigu á húsnæði á Aðalstöðinni árið
1978. Rekstur endurhæfingar-
stöðvar hófst árið 1981, að Suður-
völlum 9 í Keflavík og í september
1984 hófst rekstur dag- og
skammtímavistunar að Suðurvöll-
um 7, Keflavík.
Stór
glæsilegir
vorlitir
nýkomnir í mörgum nýjum
gerðum fatnaðar og auðvitað fara
denim buxurnarvel við
þessafallegu liti.
KARNABÆR
Austurtræti 22 — Laugavegi 30 —
Laugavegi 66 Glæsibæ. Simi frá skiptiborði 45800
Umboðsmenn.um land allt:
Fataval Keflavík — Mati Hari Akureyri — Nína Akranesi — Ram
Húsavík — Sparta Sauðárkróki — Adam og Eva Vestmannaeyjum
— Eplið ísafirði — Báran Grindavík — Hornabær Höfn Hornafiröi
— Lindin Selfossi — Nesbær Neskaupstað — ísbjörninn Borgar-
nesi — Þórshamar Stykkishólmi — Viðarsbúð Fáskrúðsfirði —
Kaupfélag Húnvetninga Hvammstanga — Kaupfélag Rangæinga
Hvolsvelli — Tessa Ólafsvík — Díana Ólafsfirði — Skógar Egils-
stöðum.