Morgunblaðið - 27.02.1986, Side 62
62 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR1986
„Ætlum okkur
titilinn41
— segir Paul McGrath íviðtali við Morgunblaðið
Fri Bob Hennossy, fróttamanni Morgun-
blaöslns í Englandi:
PAUL MCGRATH, hinn stóri og
starki miðvörður Manchester
United er oft nefndur „Svarta
perlan" af félögum sfnum. Hann
hefur sýnt stórstígar framfarir að
undanfömu og eftir margvfslegt
mótlæti á undanförnum árum
virðist nú allt ganga honum f
haginn. Ron Atkinsson, fram-
kvæmdastjórí Manchester Unit-
ed, hrósar honum á hvert reipi
og nýlega gerði hann samning við
llð sitttilfimm ára.
„Þeir buðu mér frbæran samn-
ing," sagði McGrath, sem er 26
ára. „Ég hef alla tíð viljað vera hór,
og eftir að hafa gert þennan
samning finnst mér óg nokkuö
öruggur um sæti í liðinu."
„Mér finnst ég alls ekki vera
nein stjarna. Ég er bara heppinn.
Hér eru stórstjömurnar allt í kring-
um mig, en öli lætin sem fylgja
þeim hafa ekki mikii áhrif á mig,“
sagði hann.
McGrath er reyndar þekktur
fyrir hlédrægni sína og hefur hvað
eftir annað neitað aö koma fram í
sjónvarpi. „Það á ekki við mig. Ég
læt aðra um það,“ sagði hann.
Hann hefur heilmikla reynslu í
að bægja frá varasömum mönn-
um. „Áður en ég kom til United
var óg öryggisvörður við sjúkrahús
í Dublin. Eg var oft á næturvakt
og gekk um með vasaljós í leit að
innbrotsþjófum!"
Paul McGrath er fæddur í Lon-
don en ólst upp í Dublin. Þar lék
hann sem unglingur með St.
Patricks Athletic, og fljótt komu
njósnarar frá stóru ensku fólögun-
um auga á drenginn. Luton, Arsen-
al og Manchester City sýndu öll
áhuga, en þegar Manchester Unit-
ed bauð 20 þúsund pund í hann,
stóðst hann ekki mátiö og fór til
Old Trafford. Það var í apríl 1982.
Strax varð Ijóst að þessi hör-
undsdökki piitur var efnilegur en
óheppnin elti hann — alltaf þegar
hann var í þann mund að vinna
sér fast sæti í liðinu settu meiðsli
strik í reikninginn,
Það er fyrst núna sem McGrath
er orðinn miðvörður liðsins nr. 1
og er öruggur um sæti á meöan
hann er ómeiddur. „Félagið er að
byggja upp liðskjarna, sem á að
geta haldið saman nokkur næstu
árin, og ég er ákaflega ánægður
með að vera þátttakandi í þeirri
uppbyggingu,“ sagði hann.
Fyrir nokkru tapaði Manchester
United fyrir West Ham. „Já, það
var slakur leikur hjá okkur. Og ég
var ekkert alltof gáfulegur á köflum
sjálfur," sagði hann. „Það væri
auðvitað gaman að leika á Wem-
bley í úrslitum bikarkeppninnar,
en okkur langar alla miklu frekar
að vinna meistaratitilinn. Áhorf-
endur okkar eiga það skilið."
Sumir álíta McGrath besta
miðvörð ensku knattspyrnunnar
um þessar mundir. Að minnsta
kosti þykir Ijóst að Jack Charlton
verður ekki í vandræðum með
miðvarðarsföðurnar í írska lands-
liöinu — með þá McGrath, Mark
Lawrenson og Kevin Moran alla í
hópnum.
Toyota-skíðagangan:
Halldórvann
HALLDÓR Matthíasson sigraði í
10 km göngu á Toyota-mótinu
sem Skfðafálag Reykjavfkur
gekkst fyrir um sfðustu helgi við
Borgarskálann. Tfmi Halldórs var
23,02 og var hann tæpum þremur
Anderlech
komið á
toppinn
ANDERLECHT tók í fyrsta
sinn f vetur forystuna f belg-
fsku 1. deildinni f knattspyrnu
á sunnudaginn er þeir unnu
Lokeren, 3—2, á heimavelli.
Á sama tíma tapaði
FC-Brugge, sem hefur haft
forystu í deildinni lengst af í
vetur. Liðið tapaði á heima-
velli, 2—3, fyrir Standard.
Anderlecht og Brugge eru í
nokkrum sérflokki í deildinni.
Waterschei, lið Ragnars Mar-
geirssonar, er nú í neðsta
sæti deildarinnar og blasir nú
fallvið liðinu.
Úrslit leikja á sunnudaginn
voru þessi:
Boerschot — FC Nechlln
Andertecht — Lokeren
Charíeroi — Beveren
Uerse — Antwerp
Fc Brugge — Standard
Seraing — FC Uege
Kortryk — RWDM
Ghent — SK Brugge
Waterschei — Waregen
0-0
3-2
0-4
0-0
2-3
frestad
2-3
1—1
frestaA
Staöan er nú þannig:
Anderíecht
FC Brugge
Standard
Ghent
Waregen
Beveren
FC Uege
mfnútum á undan næsta manni,
Ingólfi Jónssyni.
( 5 km göngu kvenna sigraði
Sigurbjörg Eðvarðsdóttir, í 5 km
göngu unglinga Hjalti Egilsson og
t 5 km göngu öldunga háöu
grimmilega keppni þeir Páll Guö-
björnsson og Matthías Sveinsson.
Páll varð að lokum 5 sekúndum á
undan í mark.
Ragnheiður æfir í
Kanada og ætlar á HM
RAGNHEIÐUR Runólfsdóttir
sundkona dvelur nú f Kanada þar
sem hún ætlar að æfa af kappi
fram að heimsmeistaramótinu f
sundi sem fram fer f ágúst f
Madríd á Spáni. Hún er staðráðin
í þvf að ná lágmörkum sem þarf
til að mega taka þátt f mótinu.
Ragnheiður æfir með kanadíska
félaginu Keyano sem er eitt
stærsta sundféiag þarlendis. Þjálf-
ari hjá féiaginu er Dave Johnson
en hann þjálfaði sundfólk Kanada
fyrir síðustu Ólympíuleika og hann
stjórnar liði Kanada á Samveldis-
leikunum sem fram fara í Edinborg
í júlí og einnig á HM í ágúst.
Það er margt sem menn leggja
á sig þegar íþróttir eru annars
vegar. Ragnheiður æfir tvisvar á
dag. Fyrst klukkan hálf sex á
morgnana og síöan strax eftir skól-
ann á daginn en hún stundar nám
í fjölbrautaskóla í Kanada.
Aðstaðan hjá félaginu er hreint
frábær. f íþróttamiðstöðinni þar
sem hún æfir eru þrjár sundlaugar
í einum og sama salnum. Ein laug-
anna er átta brauta 50 metra löng
laug og síðan eru tvær 25 metra
laugar með sex brautum hvor. Auk
þess eru í salnum heitir pottar og
fullkomin dýfingalaug.
Nú um helgina mun Ragnheiður
keppa í kanadíska meistaramótinu
í sundi en þar verður landslið
Kanada valið þannig að búast má
við mikilli og harðri keppni.
Elísabet æfir
hjá Svfum
ELÍSABET Þórðardóttir, TBR, fór
til Sviþjóðar á dögunum til að
æfa þar og keppa fram að Evr-
ópumeistaramótinu, sem hefst
30. mars f Uppsölum f Svfþjóð,
og mun hún þá keppa þar með
íslenska landsliðinu.
Elísabet mun æfa með Aura-
félaginu í Málmey sem er sterk-
asta félagsliðið í Svíþjóð í bad-
minton og með nokkra af lands-
liðsmönnum Svía innan sinna vé-
banda. Þjálfari Aura er jafnframt
aðstoðarlándsliðsþjálfari Svía.
Svíþjóð er með sterkustu bad-
mintonþjóðum heims og verður
þetta án efa mikil upplifun fyrir
Elísbetu. Hún er núverandi fs-
landsmeistari í tvíliðaleik ásamt
Þórdísi Edwald.
Asgeir yrði leikstjórnandi
á HM
þýska landsliðsins
ASGÉIR Sigurvinsson fær enn
eina viðurkenninguna f viðtali
sem birtist f febrúarhefti knatt-
spyrnutfmaritsins World Soccer
við Franz Beckenbauer, þjálfara
vestur-þýska landsliðsins.
í viðtalinu er rætt við Becken-
bauer um vestur-þýska landsliðið
í knattspyrnu og undirbúning þess
fyrir HM í Mexíkó. Þar kemur fram
að Beckenbauer er hóflega bjart-
sýnn, hann telur liðið gott en hafi
þó einn stóran galla — þaö vanti
leikstjórnanda. Beckenbauer segir
það kaldhæðni örlaganna að í
þýskri knattspyrnu séu þrír leik-
menn sem gætu leikið svipað hlut-
•Ásgeir nýtur enn mikillar virð-
ingar sem knattspyrnumaður.
•Beckenbauer segir Ásgelr einn
þríggja leikmanna f þýskri knatt-
spymu sem gætu stjórnað leik
landsliðsins.
verk fyrir landsiiðiö og Platini gerir
fyrir það franska, en einn þeirra
og sá eini sem er Þjóðverji vilji
ekkiieika með liöinu og hinir tveir
séu erlendir. Hann segir Berd
Schuster eina Þjóðverjann sem
gæti stjórnaö leik landsliðsins á
nógu afgerandi hátt, og að Asgeir
Sigurvinsson og Sören Lerby, sem
báðir leika með þýskum liðum, séu
einu mennirnir í þýsku knattspyrn-
unni sem gætu leikið þetta hlut-
verk.
Það er því greinilegt að Asgeir
nýtur ennþá mikillar virðingar í
Þýskalandi þó ekki gangi alltof vel
hjá Stuttgart um þessar mundir.
• Elísabet Þórðardóttir æfir nú
badminton f Svfarfki og mun vera
þar fram að Evrópumeistaramót-
inu. Það er mlkill og góður árang-
ur hjá henni að fá að æfa hjá
Svfum sem standa mjög framar-
lega f badmintonfþróttinni.