Morgunblaðið - 27.02.1986, Qupperneq 63
63.
Stinga á
skurðar r
borðinu
RÚMENSKI handknattleiksmað-
urinn Stinga meiddist alvarlega í
leiknum gegn Tókkum í fyrra-
kvöld.
í gærmorgun var gerð aðgerð á
kinnbeini hans en hann brákaðist
við gróft brot tékknesks leik-
manns. Reiknað er með að Stinga
verði frá það sem eftir er keppn-
innar. Það er mikil blóðtaka fyrir
Rúmena, en gefur íslandi auknar
vonir í leiknum á föstudaginn. Áður''
en Stinga meiddist í fyrrakvöld
skoraði hann eitt mark — sitt þús-
undasta fyrir Rúmeníu.
V-Þjóðverjar
ímilliriðil
VESTUR-Þjóðverjar unnu örugg-
an sigur á Spánverjum í leik í
B-riðlinum í gærkvöldi, — 18:14.
Það var aðeins í byrjun sem
Spánverjar náðu að halda í við
þýska liðið.
Þjóðverjar léku mjög góðan
varnarleik og þó Spánverjar næöu ^
að halda jöfnu fyrstu mínúturnar,
upp í 6:6 þá var aldrei spurning
hvort liðið væri sterkara. Wund-
eriich fór á kostum í sókninni og
skoraði sjö mörk. Lopez var
markahæstur Spánverjanna með 5
mörk.
w
Ovæntur sigur
Svisslendinga
SVISSLENDINGAR komu mjög á
óvart f fyrrakvöld og náðu jafn-
tefli gegn Spánverjum. í gær-
kvöldi sýndu þeir að þau úrslit
voru engin tilviljun, því þeir sigr-
uðu Pólverja með einu marki,
18:17, og eru þar með komnir f
milliriðil ásamt Vestur-Þjóðverj-
um.
Úrslitaleikurinn í B-riðlinum
verður því milli Sviss og Vestur-
Þýskalands og má búast við að
hasar verði í íþróttahöllinn í Basel
á föstudaginn, þar sem leikurinn
fer fram, en hún rúmar 8 þúsund
áhorfendur.
Heillaóska-
skeytin gerðu
sitt gagn
EFTIR leikinn gegn Kóreumönn-
um í fyrrakvöld bárust fslenska
landsliðinu nokkur sfmskeyti á
hótelið f Bern. Voru leikmenn þar
óspart hvattir til dáða. Inntakið f
flestum skeytanna var á þessa
leið: Strákar, við höfum séð það
svartara. Við stöndum með ykk-
ur, nú er það samstaðan sem
gildir. Áfram íslandl
Meðal þeirra sem sendu þessar
baráttukveðjur voru Birgir Finn-
bogason og Sveinbjörn Björnsson
í Hafnarfirði, Handknattleiksdeild
KA, Starfsfólk Ópals og Vífilfells,
handknattleiksdómararnir Stefán
Arnaldsson og Ólafur Haraldsson,
fjölskylda Páls Ólafssonar lands-
liðsmanns og Leifur Tómasson og
Tómas Steingrímsson á Akureyri.
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1986
Úrslitakeppnin í körf uknattleik:
Heppnissigur
Njarðvíkinga
í framlengdum
leik gegn ÍBK
NJARÐVÍKNGAR unnu heppnis-
sigur á Keflvíkingum, 75-73, eftir
framlengdan leik f fyrsta leik úr-
slitakeppninnar f körfuknattleik í
Njarðvfk f gærkvöldi. Staðan í
hálfleik var 28-28 og eftir venju-
legan leiktíma 66-66. Þetta var
fyrri leikur þessara liða f úrslita-
keppninni. Leikurinn bar þess
merki að vera mikilvægur úrslita-
leikur, var ekki vel leikinn, óná-
kvæmni og hik í báðum liðum.
Til að byrja með voru Keflvíking-
ar betri aðilinn og höfðu undirtökin
framan af og komust í 12-8 eftir
fimm mínútur. Síðan hittu þeir ekki
í körfuna í heilar 6 mínútur og
Njarðvíkingum tókst að breyta
stöðunni í 16-12 sér í hag. Fram
að leikhléi var leikurinn mjög jafn
og mikil barátta af beggja hálfu
og stemmningin í íþróttahúsinu í
Njarðvík góð.
Sama var upp á teningngnum
fyrstu tíu mínúturnar í seinni hálf-
leik, þó voru Keflvíkingar oftar með
forystu. Um miðjan seinni hálfleik,
náðu Keflvíkingar tíu stiga forskoti,
58-48, og sjö mínútur til leiksloka.
Þá stefndi í sigur Keflvíkinga en
Njarðvíkingar gáfust aldrei upp og
með góðum leik Teits Örlygssonar
og Helga Rafnssonar á lokamínút-
unum tókst þeim að vinna upp
forskotið og komust yfir, 65-64,
þegar ein mínútua var eftir.
Kristinn Einarsson skoraði úr
vítaskoti þegar hálf mínúta var eftir
og kom Njarðvíkingum yfir, 66-64.
Kristinn varö síðan fyrir því að
brjóta á Sigurði Ingimundarsyni,
sem fékk tvö vítaskot, og gerði sér
lítið fyrir og jafnaði er sjö sekúndur
voru eftir af venjulegum leiktíma.
Njarðvíkingum tókst ekki að skora
ogþvíframlengt.
I framlengingunni skiptust liðin
á að skora og þegar hálf mínúta
var eftir skoraði Teitur og náði
forystunni fyrir Njarðvík, 74-73 og
bætti um betur og skoraði úr víta-
skoti og tryggði Njarðvíkingum
sigurinn.
Bestu leikmenn Njarðvíkur voru
Kristinn Einarsson, sem átti mjög
góðan leik, sérstaklega í fyrri hálf-
leik. Teitur Örlygsson átti stærstan
þátt í því að Njarðvíkingum tækist
að vinna þennan leik. Helgi Rafns-
son komst einnig vel frá sínu þótt
hann gengi ekki heill til skógar.
Það háði Njarövíkingum verulega
að þeir voru án Vals Ingimundar-
sonar, sem hefur verið þeirra besti
maður í vetur, hann var veikur og
eins Hreiðar Hreiðarsson, sem
hefur verið fastamaður í liðinu.
Hjá Keflvíkingum báru þeir Jón
Kr. Gíslason og Hreinn Þorkelsson
uppi leik liðsins. Samvinna þeirra
var oft skemmtileg.
Stig Njardvikun Kristinn Einarsson 15,
Ellert Magnússon 14, Jóhannes Kristbjörns-
son 14, Teitur Örlygsson 14, Helgi Rafnsson
8, ísak Tómasson 6, Árni Lárusson 4.
Stig ÍBK: Hreinn Þorkelsson 21, Jón Kr.
Gíslason 20, Guójón Skúlason 16, Þorsteinn
Bjarnason 6, Sigurður Ingimundarson 4, Ing-
ólfur Haraldsson 2 og Magnús Guðfinnsson
2.
— ágás
Haukar — Valur
íkvöld
HAUKAR og Valur leika f úrslita-
keppninni f körfuknattleik f Hafn-
arfirði i kvöld og hefst leikurinn
kl. 20.00.
Þetta er fyrri leikur þessara liða
í úrslitakeppninni. KR og Njarðvík
leika í bikarkeppni kvenna og hefst
leikurinn kl. 20.30 í Hagaskóla.
Dræm aðsókn
AÐSÓKN að leikjum fyrstu um-
ferðar HM f Sviss var mun minni
en Svisslendingar höfðu gert ráð
fyrir.
Samtals sáu 18.110 manns leik-
ina og var það aðeins 61% af því
sem búist hafði verið við fyrirfram.
Flestir sáu leik Sviss og Spánar í
St. Gallen, 3.313. Um 1.550 manns
voru á leik fslands og Kóreu í Genf.
mnmmÁSk
MorgunblaöiS/Einar Falur
• Kristinn Einarsson reynir hér körfuskot í leiknum gegn Keflvíking-
um f gærkvöldi. Þorsteinn Bjarnason (nr. 6) reynir að koma vömum
við. Mikil stemmning var í fþróttahúsinu er Suðurnesjaliðin, Keflavik
og Njarðvík, mættust í fyrri leik þessara liða í úrslitakeppninni í
gærkvöldi.
„Sálfræðin brást
gegn Kóreumönnum"
— segir Bogdan Kowalczyk, þjálfari
„ÓSIGURINN gegn Kóreu hafði
ekkert með undirbúnlng fslenzka
liðsins að gera. Það sást gegn
Tékkunum. Það var sálfræðin
sem brást gegn Kóreu og ég
þyrfti að hafa sálfræðing mér til
Lið falli úr fyrstu
deild íþá þriðju
ÞÆR sex þjóðir sem skipa efstu
sætin í HM f Sviss leika áfram í
A-hópi og taka þátt f Ólympfuleik-
unum í S-Kóreu.
Þær sjö þjóðir sem verða í
næstu sætum taka þátt í B-keppn-
inni á næsta ári og liðin sem verða
í síðustu þremur sætunum þurfa
■■ f ■
að öllum líkindum að leika í
C-keppninni eða þriðju deild hand-
knattleiksins. Reyndar finnst
mönnum þetta ósanngjarnt kerfi
og fráleitt að liö falli úr fyrstu deild
í þá þriöju, og hafa Danir kært
þessa ákvörðun. Eigi aö síður er
líklegt að þetta fyrirkomulag verði
ofan á.
aðstoðar. Ég skil ekki hvernig
þetta íslenzka lið getur gersam-
lega brotnað og svo rifið sig upp,“
sagði Bogdan þjálfari eftir leik-
inn.
Annars tapaðist Kóreuleikurinn
heima á (slandi áður en við fórum.
Allt þetta umstang fyrir ferðina
skemmir einbeitinguna og það er
ekki hægt aö undirbúa liö sem er
í stööugum viðtölum við fjölmiðla,
myndatökum, kynningarstarfi fyrir
fyrirtæki og svo framvegis.
Um framhaldið er erfitt að segja.
Tékkar vinna Kóreu, en það er
spurning hversu stórt. Hvað sem
því líður þurfum við góð úrslit gegn
Rúmenum, en við eigum alltaf
erfitt með að leika gegn léttleik-
andi liðum eins og þeim. Tapið
gegn Kóreu var hættulega stórt.
Ef það hefði aðeins verið tvö mörk
væri þetta í lagi.
Bogdan Kowalczyk
Kang markahæstur
KÓREUMAÐURINN Kang er nú markahæstu menn eru:
markahæstur í HM í Sviss. Kang, Kóreu, 20
Hann hefur samtals skorað 20 Voinea, Rúmeníu, 16
mörk og gekk Rúmenum álíka Kristján Arason 15
illa að ráða við hann og íslend- Duranona, Kúbu (1 leikur), 13
ingum í fyrrakvöld. Fimm Wazskiewicz, Póllandi, 13
Agústlogi
Jónsson
skrifar
fraSVISS
OHM86
25.2.-8.3.