Morgunblaðið - 27.02.1986, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 27.02.1986, Blaðsíða 64
^ EUHOCARD FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR1986 VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR. Samningurinn gripinn á lofti Morgunblaðið/Júlíus Það er Þorgeir Ingvarsson, formaður Póstmannafélags Islands, sem samningum meðal samninganefndarmanna í húsakynnum sáttasemjara hendir hér á lofti kjarasamning aðila vinnumarkaðarins, en Kristján í gærkvöldi. Kristján sagði í samtali við Morgunblaðið, að ekki mætti Thorlacius, formaður BSRB, hafði þennan háttinn á er hann deildi skilja þessa athöfn sem táknræna fyrir álit hans á samningnum. Atli Hilmarsson í baráttu við Tékka í gærkvöldi. simamynd/AP Sætur sigur gegn Tékkum VONIR íslendinga um sæti í milliriðli í heimsmeistarakeppninni í handknattleik í Sviss glæddust að nýju eftir sætan sigur á * Tékkum í gærkvöldi og góða frammistöðu Kóreumanna gegn Rúmenum. Helsta von íslendinga er nú sú að Kóreumenn sigri Tékka á föstu- daginn og að það verði Tékkar sem falla úr keppninni — auk þess sem sigur eða jafntefli gegn Rúmenum á föstudag kæmi vitaskuld okkar mönnum áfram. En verði þrjú lið í riðlinum jöfn með tvö stig gildir markatala allra leikja í riðlinum — og þá vegur ósigurinn stóri gegn Kóreu þungt, íslendingum í óhag. Sjá nánar á bls. 60 og 61. Ríkisstjórnin svarar með lagafrnmvarpi RÍKISSTJÓRNIN tekur afstöðu til bréfs og málaleitana samningsaðila á fundi sínum fyrir hádegi í dag. Á fundi með fulltrúum Alþýðusambandsins og Vinnuveitendasambandsins í gærkvöldi hétu forsætisráðherra og fjármálaráðherra svör- um ríkisstjórnarinnar síðdegis í dag, en í gær fengu þeir umboð þingflokka sinna til að fara með málið á grundvelli ákvarðana í ríkisstjórn. Ákvarðanir stjórnvalda snerta marga málaflokka. Á vegum Þor- steins Pálssonar, fjármálaráðherra, var í gærkvöldi hafist handa um að semja lagafrumvarp um breyt- ingar á fjárlögum, skattalögum, tollalögum og láns^árlögum til að unnt sé að standa við þær skuld- bindingar í þessum málaflokkum, sem ríkisstjórnin hefur lýst sig reiðubúna að axla. Er að því stefnt, að frumvarpið verði lagt fyrir Al- þingi í dag eða á morgun og því verði komið á rekspöl í þinginu fyrir helgi. í næstu viku hægir á störfum Alþingis vegna þátttöku þingmanna í þingi Norðurlandaráðs, sem þá verður haldið í Kaupmannahöfn. Fjármálaráðherra um kjaradeilu ríkisins og BSRB: Sattafundur í deilunm boðaður í dag FUNDI 9 manna samninganefndar BSRB og samninga- nefndar ríkisins hjá sáttasemjara lauk undir miðnættið í gær án þess að formleg samningstilboð væru þar lögð fram. Annar fundur þessara aðilja verður í dag klukkan 13.30 og 50 manna samninganefnd BSRB hefur verið kölluð saman til fund- ar á föstudag og er það talið benda til þess að draga fari til tíðinda. Fjármálaráðherra segir að leitað verði samninga við BSRB á grundvelli samninganna, sem undirritaðir voru í gær. Kristján Thorlacius formaður BSRB vildi í gær ekki tjá sig um kjarasamning ASÍ, VSÍ og Vinnumálasambands samvinnu- félaganna. Morgunblaðið innti Þorstein Páls- son fjármálaráðherra álits á því í gærkvöldi hvaða áhrif þessi kjarasamningur gæti haft á samninga ríkisins og BSRB. Hann sagði viðræður deiluaðila standa yfír og því væri ekkert um það að segja á þessu stigi hvaða áhrif kjarasamningur ASI, VSÍ og Vinnumálasambands samvinnufélaganna kynni að hafa á gang mála í kjarasamning- um BSRB og ríkisins. „Leitað verður eftir því að semja við BSRB á þessum grundvelli og hann er ekki ýkja fjarri því, sem áður hefur verið talað um í þeim viðræðum," sagði Þorsteinn Páls- son. Kristján Thorlacius, formaður BSRB, vildi ekkert láta hafa eftir sér um samninginn, hann vildi fyrst láta skoðun sína í ljósi meðal félagsmanna sinna. Hann sagði ekkert formlegt tilboð hafa komið fram frá samninganefnd ríkisins á fundinum. Þessu yrði síðan haldið áfram og 50 manna nefnd- in kæmi saman á föstudag. Að- spurður hvort það þýddi að draga færi til tíðinda, sagði Kristján, að það benti til viðræðum yrði haldið áfram og að ákvarðanir yrðu teknar, þó hann vildi að sjálfsögðu ekki taka ákvarðanir fyrir stóru nefndina. Handrita- samningnr undirritað- ur í Höfn Handritamálið var form- lega til lykta leitt í gær, þegar menntamálaráðherr- arnir Sverrir Hermannsson og Bertel Haarder undirrit- uðu tillögur um afhendingu handrita og samstarfssamn- ing í Kaupmannahöfn. Sverrir Hermannsson sagði að þessi samningur milli íslands og Danmerkur væri einstakur. -Ráðherramir vom sammála um að báðar þjóðimar hefðu unnið sigur í málinu. Viðstaddir athöfíiina voru margir gestir, þeirra á meðal Gylfí Þ. Gíslason, en fyrstu handritin vom afhent fslending- um í menntamálaráðherratíð hans árið 1971. Sjá nánar á bls. 27. Kærður fyrir kynferðis- áreitni við tmg*a drengí LÖGREGLUNNI í Reykjavík barst síðdegis í gær tilkynn- ing um að fullorðinn maður hefði haft í frammi kynferðis- lega tilburði við þijá unga drengi i Hljómskálagarðinum. Atvikið átti sér stað laust eftir klukkan 18.00 og gátu dreng- imir gefíð greinargóða lýsingu á manninum. Atvikið var kært til lögreglunnar, sem þegar hóf leit að manninum, en hún hafði ekki borið árangur er Morgun- blaðið fregnaði síðast. Stefnt að sömu samn; ingum og milli ASÍ-V SÍ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.