Morgunblaðið - 16.04.1986, Page 20

Morgunblaðið - 16.04.1986, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR16. APRÍL1986 Vínandi og heilsuleysi eftir Rúnar Guðbjartsson Jón Óttar Ragnarsson ritar grein í Morgunblaðið 22. febrúar sl. undir fyrirsögninni Vínandi og heilsa, grein hans fjallar að mestu um hollustu alkóhóls, skoðanir hans og mínar fara alls ekki saman, eins og heiti þessarar greinar ber með sér. Grein sína bytjar Jón á, að sýna fram á, að áfengisneysla íslendinga hafi ekki aukist á árabilinu 1974 til 1985 og þakkar hann þessa ánægjulegu þróun aukinni drykkju léttra vína og bjórlíkis. Mín skoðun er allt önnur, 26. nóvember_1974 fór fyrsti sjúkling- urinn frá íslandi í meðferð til Free- port-spítala í Bandaríkjunum. Free- port-klúbburinn var stofnaður 12. ágúst 1976 og Samtök áhugafólks um áfengisvandamálið, SAA, voru stofnuð 1977 og hafa þau starfað með miklum blóma og rekið sjúkra- stöð og endurmeðferðarheimili fyrir alkóhólista og aðra vímuefnasjúkl- inga og hafa í dag um 5000 manns farið í meðferð hjá SÁÁ og liðlega 600 hafa farið til Freeport-spítala. Meðferðarheimili ríkisins á Vífils- stöðum var stofnað 1976, þar hafa farið í meðferð tæplega 2000 manns og til Hazelden-stofnuninnar í Bandaríkjunum hafa farið á annað hundrað manns. Að sjálfsögðu segir allt þetta til sln í minnkandi áfengis- neyslu okkar. Jón talar um alkóhól, sem hinn lögskipaða vímugjafa Vesturlanda, ég kýs að kalla alkóhól eina vfmu- gjafa Vesturlanda sem ekki er bannaður, og fyrir bragðið er hann líklegast sá hættulegasti. Ég er sammála Jóni, þegar hann segir að best sé að þekkja þennan vímugjafa okkar sem best, en hann vill kenna sem flestum að umgang- ast hann, en ég vil kenna sem flest- um að forðast hann. Jón segir að áfengið hafi Ijórar ásjónur sem sé meðal, næring, vímugjafí og eitur- lyf. Alkóhól sem meðal: ég vitna til Dr. Stanley R. Mohler prófessors, og eins af yfírlæknum þeirrar deild- ar Wright State háskólans í Dayton, Ohio, sem sérhæfír sig í læknisfræði flugliða (aerospace medicine), hann segir: „Ef undan er skilið vímu- ástandið sem einstaka sinnum „lífg- ar upp á“ tilfinningalíf þeirra sem sjaldan nota alkahol, hefur notkun áfengis engin bætandi áhrif á heilsu okkar. í rauninni verður hvert ein- stakt líffæri fyrir skaðlegum áhrif- um af áfengi, hvert sem magnið er. Greinar um bætandi áhrif alkó- hóls fjalla um aukningu háþéttni „lipoproteina" (fítuhvítu), en það efni getur ef til vill fjarlægt kólest- eról úr æðaveggjum eða um aðstoð við meltinguna, eða þá um svæfandi verkun (fyrir svefn). Við verðum hins vegar að vega og meta þessa hugsanlegu kosti með tilliti til sann- aðra skemmda á fjölda líffæra og vefja. Þessar skemmdir má fínna hjá „hófdrykkjumönnum" (social drinkers), og hjá helgardrykkju- manninum, sem aldrei fer yfír strik- ið. í raun má fínna nær öll þessi skaðlegu áhrif hjá öllu dagdrykkju- fólki þó lítið magn sé notað á hveij- um degi. Aukin hætta á slysum og dauða, þrisvar sinnum hærri dánar- Rúnar Guðbjartsson „Svo er meðferðar- stofnunum SAA og rík- isins f urir að þakka að hér á Islandi á svona sjúklingur mikla von á góðum bata og ham- ingjuríku lífi, nema hann eigi því betri stuðningsmenn í formi, ættingja, maka eða atvinnurekenda. “ hlutfall hjá þeim sem drekka, en jafnöldrum sem ekki drekka, 2/a allra innlagna á sþítala í Bandaríkj- unum eru tengd alkóhóli beint eða óbeint." Alkóhól sem næring: í alkóhóli eru vímuefni, ertandi efni, og eitt- hvað af snauðum hitaeiningum, ef alkóhólið væri fundið upp í dag yrði það mjög líklega bannað vegna hinna gífurlega skaðlegu aukaverk- ana þess. Alkóhól sem vímugjafi: Jón segir: „Fyrir bælda þjóð og feimna eru „veikir drykkir“, t.d. léttvín eða bjór í hófí, kjörinn vímugjafí sem eflir samkennd og styrkir félagsleg tengsl." Við skulum skoða þetta aðeins nánar með veiku drykkina, maður sem drekkur 12% sterkt rauðvín úr rauðvínsglasi, sem eru 10 cl innbyrðir 1,2 cl af hreinu alkóhóli, drekki hann hinsvegar einn sjúss 3 cl af brennivíni 41,5% þá innbyrðir viðkomandi 1,24 cl af hreinu alkóhóli. Nú vill þessi maður kannski ekki drekka svona sterkt og fær sér einn öl eins og það sem Jón vill láta selja á íslandi og er 5% að styrkleika, hann drekkur þetta öl úr ölflösku sem er 33 cl, með því að neyta þessarar ölflösku, þá hefur hann innbyrt hreint alkó- hól, sem nemur 1,65 cl og er það 33% meira alkóhól heldur en ef hann hefði aðeins drukkið einn sjúss af brennivíni, þetta er nú veiki drykkurinn hans Jóns. Til enn betri glöggvunar fyrir þá, sem ekki hafa hugleitt þetta þá eru þær bjór- dósir, sem seldar eru í Fríhöfninni í Keflavík '/* lítri eða 50 cl af 5% sterku öli, sem samsvarar 2,5 cl af hreinu alkóhóli og er alkóhólmagnið sama og ef drukkinn væri einn tvöfaldur asni í vodka. Að alkóhólið sé „kjörinn vímugjafí fyrir bælda þjóð,“ þá veldur neyzla alkóhóls miklu þunglyndi og að alkóhól „efli félagsleg tengsl" er heldur ekki að mínum dómi rétt, alkóhól er deyfílyf (sedative drug) og sá maður sem leitar að lífshamingjunni í einhveiju efni, hann mun ekki fínna hana þar. Eiturlyfið alkóhól: Ég er innilega sammála Jóni að alkóhól sé eiturlyf, en hann heldur að neyzla „sterkra drykkja" valdi alkóhólisma. Það eru margar kenningar til um hvað valdi alkóhólisma, sú sem ég tel rétta kemur frá Bandaríkjunum og er þessi: Alkóhólisti er persóna sem fæðist með mikið þol (tolerance) gagnvart alkóhóli og eða byggir það upp mjög fljótt þegar hún byijar að drekka áfengi. Við skulum hugsa okkur tvo skólafélaga, annar er alkóhólisti, en hinn ekki, sem hefja drykkju saman I fyrsta sinn við lok náms um tvítugt. Þeir drekka saman 0,5 lítra af sterku víni eða samsvarandi í bjór eða léttum vín- um, nokkurn veginn jafnt en alkinn þó heldur meir, og fínna báðir mátu- lega á sér og það skulum við kalla vímustig 5, á skala 1 til 10. Þessir félagar hittast síðan eftir 10 ár og drekka saman aftur, þá þarf ei- alkóhólistinn nokkum veginn sama magn af alkóhóli til að ná vímu 5 og hann notaði fyrir 10 árum, en alkinn þarf helmingi meira magn til að ná vímustigi 5. Þessi þróun heldur áfram og eiturlyfíð nær æ meiri tökum á viðkomandi persónu, og kurlar hana niður líkamlega, félagslega og sálarlega. Svo er meðferðarstofnunum SÁÁ og ríkisins fyrir að þakka að hér á íslandi á svona sjúklingur mikla von á góðum bata og hamingjuríku lífí, nema hann eigi því betri stuðnings- menn í formi, ættingja, maka eða atvinnurekanda. í umræðu um áfengismál er oft talað eins og alkóhól sé aðeins hættulegt alkóhólistum, sem er víðs fjarri, þetta er svipað og að segja, að sykur sé aðeins hættulegur sykursjúkum. í lok greinar sinnar segir Jón að alkóhólismi sé sérlega algengur hér á landi, ég tel aftur á móti alkóhól- isma ekki algengari hér en annars staðar en munurinn er sá, að við vitum hvað alkóhólismi er, en ná- grannaþjóðir okkar í austri eru rétt að byija að gera sér grein fyrir því, hvað alkóhólismi er. Að lokum þetta, ef Alþingi okkar heldur virkilega, að það sé okkur til góðs, og bæti vímuvanda okkar að leyfa áfengan bjór hér, þá vona ég að því verði skotið til þjóðarinnar og atkvæðagreisla um það fari fram I tengslum við annaðhvort bæjar- og sveitarstjómarkosningar eða alþingiskosningar, þannig að raun- verulegur vilji þjóðarinnar komi í ljós, en ekki eins og tíðkast hefur að undanfömu, í sambandi við sjálf- stæðar skoðanakannanir um áfeng- isútsölur, með þátttöku aðeins um helmings kjósenda. Höfundur er flugstjórí hjá Flug- leiðum. „Hef veitt fulltaf fiskum“ Keppt í flug’uhnýting’um, hugmynda- f örðun og fleiri greinum á vormóti nemenda í Réttarholtsskóla „Hef veitt fullt af fiskum," Friðrik Bolic hnýtir flugur fyrir sumarið. NEMENDUR og kennarar Réttarholtsskóla voru önnum kafnir er vormót tómstunda- starfs skólans fór fram sl. föstudag. Leikrit voru á fjölun- um í sal skólans, myndbanda- samkeppni var í gangi, keppt var í borðtennis milli skóla, fluguhnýtingum og hugmynda- förðun svo eitthvað sé nefnt. Um þetta leyti árs er félags- og tómstundastarfi grunnskóla Reykjavíkur að ljúka. Mesta áherslan er lögð á starfsemina á unglingastiginu og eru helstu viðfangsefni opin hús, árshátíð, íþróttahátíð, málfundir, skíða- ferðalög, bingó, bekkjarkvöld og diskótek. Tómstundastarfíð er skipulagt í námskeiðaformi, helstu viðfangsefnin eru félags- málafræðsla, dans, myndbanda- gerð, reiðnámskeið, snyrting, leik- list, ljósmyndun, leðurvinna og fl. Morgunblaðið/Emilía. „Það eru bara karlar við borðtennisborðin í sjónvarpinu." Sigríður Júlíusdóttir, ein fárra stúlkna í borðtenniskeppninni. „Er með myrkrakompu heima hjá mér, og ætla að læra eitthvað í þessu,“ sagði verðlaunahafinn f ljósmyndakeppninni, Gunnar Sverrisson. Afrakstur þessa starfs mátti sjá í skólanum, mikill fjöldi drengja sat í einni kennslustofunni önnum kafínn við að hnýta flugur, Peter Ross hét önnur gerðin, einkrækja fyrir silung, Hairy Mary var nafn- ið á hinni, einkrækja fyrir lax. Friðrik Bolic var meðal þátttak- enda, hann sagðist fara oft að veiða á sumrin, „hef veitt fullt af fískum", og ætlaði hann að leggja þessar flugnagildrur fyrir væntanlega veiði i sumar. Eftir göngum skólans var búið að raða upp verðlaunamyndum í ljós- myndasamkeppni, Gunnar Sverr- isson tók mynd af Langholtsskóla sem fékk fyrstu verðlaun. Gunnar sagðist stefna að því að læra eitt- hvað í þessu, hann hefði lengi haft áhuga á ljósmyndun og væri með myrkrakompu heima hjá sér. í íþróttasalnum var keppt í borðtennis af miklum móð, 15 strákasveitir og 3 sveitir stúlkna. Sigríður Júlfusdóttir var að ljúka við leik sinn á eina stúlknaborðinu í salnum. Hún sagðist enga skýr- ingu geta gefíð hvers vegna stelp- ur væru þama í miklum- minni- hluta, þetta væri alveg eins íþrótt fyrir stelpur. „En kannski eru svona fáar stelpur í þessu, því þær sjást ekki spila borðtennis í sjón- varpinu, þar eru bara karlar við borðtennisborðin." í förðunarherberginu voru þátttakendur að undirbúa hug- myndaförðun. „Við fengum myndir af andlitum sem við áttum að mála,“ sögðu þær Anna Karen Jörgensdóttir og Ásta Einars- dóttir, ogtóku fram 10 teikningar af sama andlitinu málað á ýmsa vegu. „En svona á ég að líta út í dag,“ sagði Ásta og bar við sig eina myndina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.