Morgunblaðið - 16.04.1986, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 16.04.1986, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL1986 39 Kveðjuorð: Sigurður Sigurðs- son fv. iandlæknir Sigurðar Sigurðssonar fyrrver- andi landlæknis mun að sjálfsögðu fyrst minnst fyrir hið stórmerka starf hans í þágu berklavama. En berklaveikin hafði á fyrri hluta þessarar aldar og allt fram yfir síðstu heimsstyijöld, valdið slíku heilsutjóni Qölmargra einstaklinga að fáheyrt er. Var fjöldi sjúklinga slíkur, að það hafði auk þess stór- kostleg áhrif á efnahag ríkisins og þjóðarinnar allrar. Brautryðjandastarf Sigurðar Magnússonar og Helga Ingvarsson- ar yfirlækna á Vífílsstöðum var farið að bera árangur, en 1935 er Sigurður Sigurðsson ráðinn berkla- jrfírlæknir og skipuleggur og starf- ar sjálfur við leit smitbera og stuðl- ar þar að hinum góða árangri, sem náðist á tiltölulega stuttum tíma, í baráttunni við berklaveikina, svo að víðfrægt varð um mörg lönd og bar hróður Sigurðar og lands hans víða. En Sigurður Sigurðsson var mikill félagsmálamaður og sat í ótal félagsstjómum og nefndum svo sem Rauða krossi íslands. Það var því ekki óvænt að leitað var til hans um framboð fyrir Sjálf- stæðisflokkinn til bæjarstjómar Reykjavíkur 1946, en þar átti hann sæti til 1958 og síðan sem varabæj- arfulltrúi eitt kjörtímabil, til 1962, þar starfaði hann mjög að ýmsum heilbrigðismálum, þar sem brotið var blað í þátttöku borgarinnar í þessum mál um, en framkvæmdir höfðu verið litlar fram að því á vegum Reylq'avíkurborgar. Heilsuvemdarstöðin við Baróns- stíg varð til að samstilla hina ýmsu heilsuvemdarstarfsemi í borginni, þar voru þeir aðalhvatamenn og framkvæmdaaðilar Sigurður Sig- urðsson og Jón Sigurðsson frv. borgarlæknir. Sú bygging gat rúm- að aukna heilsuvemd og hefur hún vissulega skilað borgarbúum betri heilsu. A þetta ekki síst við í heilsu- vemd bama og verðandi mæðra, svo og áframhaldandi berklavöm- um o.fl. Skipulag það, sem þeir settu upp, hefur skapað starfsem- inni möguleika á að aðlaga sig breyttum aðstæðum í 40 ár, svo að nú fyrst er að verða veruleg breyting á. Annað stórmálíð, sem Sigurður beitti sér fyrir, var bygging Borg- arspítalans og var hann skipaður í bygginganefnd 1953, eftir að sam- þykktar höfðu verið tillögur hans um að hefjast handa. Ótal mörg önnur mál lét Sigurður til sín taka í bæjarstjóm (eins og borgarstjóm hét þá), en of langt yrði upp að telja. Attu þeir mjög gott samstarf þar um þessi mál Bjami Benedikts- son og síðar Gunnar Thoroddsen borgarstjórar, en Sigurður var aðalráðunautur um heilbrigðismál í bæjarstóm. Það var því einkennileg tilviljun, að þegar þessir frábæm borgar- stjórar okkar vom orðnir ráðherrar, og Bjami Benediktsson heilbrigðis- ráðherra, þá var Sigurður orðinn landlæknir og hélt áfram að vera í nánu samstarfí við þessa sömu menn. Sigurður landlæknir skilaði miklu og árangursríku lífsstarfí, en mér fannst, að ekki mætti láta ógetið hinna veigamiklu starfa hans fyrir Reykvíkinga um fjöldamörg ár. Fyrir þau þökkum við nú og vottum aðstandendum hans virðingu okkar og samúð. Páll Gíslason Sigurður Jónas- son — Kveðjuorð Það var glaðvær áhyggjulaus hópur 60 ungmenna, sem útskrifað- ist úr 4. bekk Verslunarskóla fs- lands vorið 1945. Erfið próf vom að baki, framundan skólaferðalag og síðan tæki við alvara lifsins, lífs- starfíð sjálft. Sú sorgarfrétt barst 6. apríl sl. að einn úr hópnum, Sigurður Jónas- son, deildarstjóri hjá Landsvirkjun íslands, hefði orðið bráðkvaddur þá um morguninn. Sigurður fæddist á Geirseyri við Patreksfjörð 3. desember árið 1925 og var því aðeins 60 ára er hann lést. Með fráfalli hans em nú 9 skólasystkini okkar horfín yfír móð- una miklu. Óneitanlega er það mikil reynsla að sjá skólafélagana hverfa af sjón- arsviðinu. Eftir stendur tómarúm í lífsmynstrinu og lífsmyndin verður önnur. Oft er stutt milli gleði og sorgar. Rétt um það bil ár er liðið síðan við héldum upp á 40 ára útskriftar- afmæli. Á slíkri stundu er horft til baka til æskuáranna, minningar frá skólaámnum riQaðar upp, glaðst yfír gömlum dögum og góð- um kynnum, slegið á létta strengi. Sigurður var mættur á þessari afmæiissamkomu. Hann var glaður og reifur að venju. Engum datt í hug að hann yrði næstur í röðinni, hyrfí svo fljótt og óvænt úr hópnum. Þó mun hann eigi hafa gengið heill til skógar. Kær skólabróðir er kvaddur, góð- ur drengur og ágætur félagi. Bless- uð sé minning hans. Eiginkonunni Hildi og systur hins látna, bömum og öðmm aðstand- endum, sendum við innilegar sam- úðarkveðjur. l'iVsjír -y.r H Hingaö til hefur ekki verið á allra færi aö fjárfesta á þann hátt sem hagkvæmastur hefur verið á hverjum tíma. Til að koma til móts við almenning hefur KAUPÞING HF. hafið sölu svonefndra EININGABRÉFA sem ALLIR ráða við. Við kaup á EININGABRÉFUM nýtur þú HÁMARKS ÁVÖXTUNAR, tekur LÁGMARKS ÁHÆTTU og ert með ÓBUNDIÐ FÉ. Einfaldara getur það ekki verið. — HVERNIG ER ÞETTA HÆGT? Þú verður ásamt fjölmörgum öðrum einstaklingum þátttakandi í stórum sjóði sem kaupir verðbréf með hæstu mögulegri ávöxtun — verðbréf sem að öðrum kosti væru einungis innan seilingar mjög fjársterkra aðila. MARGT SMATT GERIR EITT STÓRT. í þessum sjóði vegur þitt fé jafn þungt og þeirra sem meira hafa handa á milli. Að baki EININGABRÉFUNUM standa örugg veð eða aðrar jafngildar tryggingar. Hringdu í síma 686988 og fáðu nánari upplýsingar. NAFNVEXTIR HELSTU SPARNAÐARFORMA: Spamaöarform Nafnvextir Raunvextir • Almennir sparisióösreikninqar 8,0—9,0% • Sérreikningar banka 12,0—13,0% • 6 mán. verötryggöir reikningar 15,4—15,9%* 3,0—3,5% • 18 mán. verötryggóir reikningar 19,8—20,4%* 7,0—7,5% • Sparisklrteini rlkissjóós 19,8—22,1%* 7,0—9,0% # Bankatryggö skuldabréf 23,2—24,3%* 10,0—11,0% ■ EININGABRÉF 31,0%* nú 17% * Miöaö viö 12% árlega veröbólgu. KAUPÞING HF Húsi verslunarinnar 68 69 88 Skólasystkini
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.