Morgunblaðið - 16.04.1986, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 1986 55
Skotar komu á
óvart og unnu
FYRSTI leikur C-riðils Evrópu-
keppniiinar í körfuknattleik sem
fram fer í Laugardaishöll var leik-
ur Skota og Portúgala. Leikurinn
var mjög slakur en engu að síður
spennandi því jafnræði var mikið
með liðunum og úrslitin réðust
ekki fyrr en á síðustu sekúndun-
um þegar einn Portúgalinn hitti
ekki körfuna og þar með fögnuðu
Skotar sigri. Þeir skoruðu 67 stig
en Portúgalir 65. Staðan í leikhléi
var 31:27 fyrir Skota.
Leikurinn byrjaði mjög rólega
og greinilegt að bæði liðin voru
taugaspennt auk þess sem þau
léku nú bæði í nýju húsi þannig
að það tók sinn tíma að venjast
aðstæðum. Þó fannst manni sá
tími óþarflega langur. Þegar leikið
hafði verið í 10 mínútur og fyrri
hálfleikur þar með hálfnaður var
staðan aðeins 9:9 og þykir það
með afbrigðum lítið í körfuknatt-
leik.
Skotar léku maður á mann vörn
til að byrja með en skiptu ört um
varnaraðferð, léku pressu um tíma
og einnig svæðisvörn. Portúgalir
léku svæðisvörn allan tímann og
áttu Skotar i hinum mestu vand-
ræðum með þá framan af. En það
sem einkenndi þennan leik þó öðru
fremur var léleg hittni beggja liða,
sérstaklega þó Skotanna.
Bestu menn Skota í þessum
leik voru fyrirliðinn Robert Arc-
hibald (nr.11) og Jim Morrisson en
Ralton Way, stór svertingi sem
greinilega átti að byggja mikið á,
náði sér ekki á strik.
Hjá Portúgölum voru þeir Car'os
Da Crus og Jose Martins bestir.
Crus þessi var mjög lunkinn undir
körfunni og Martins lék vel, sá eini
í liðinu sem er með sæmilega góða
boltameðferð samfara talsverðum
hraða.
Stigahæstur Skota var Jim
Morrison með 15 stig, Ralton Way
gerði 13 stig og Steve Hoffman
gerði 10. Hjá Portúgölum skoraði
Eugenio Silva 15 stig, Joao Seica
14 og þeir Henrique Vieira og
Aniceto Carmo gerðu tíu stig hvor.
Chelsea lagði
West Ham
Frá Bob Hennessey, fréttaritara Morgun blaðsins
CHELSEA þokaði sór upp töfluna
í ensku 1. deildinni í gærkvöldi
þegar liðið heimsótti West Ham
og fór með öll stigin heim því
þeir unnu 1:2. Á sama tíma vann
Everton lið Watford á útivelli með
tveimur mörkum gegn engu og
halda áfram sigurgöngu sinni.
Tony Cotee skoraði fyrsta mark
leiksins á velli West Ham á 53.
mínútu og var þetta 22. markið
hans á árinu. Nigel Spackman jafn-
aði síðan metin fyrir Hammers tíu
Morgunbleðið/Bjami
• Guðni Guðnason átti góðan leik í gær er (sland vann írland í fyrsta leik sínum í Evrópumótinu f körfu-
knattleik. Hér skorar hann ífyrri hálfleik.
Æsispennandi loka-
mínútur er ísland
vann írland
ÞÆR VORU svo sannarlega
spennandi lokamínúturnar í leik
íslands og írlands í Evrópukeppn-
inni í körfuknattleik í Laugardals-
vellinum í gærkvöldi. írar fengu
bónusvítaköst þegar tvær sek-
úndur voru eftir af leiknum og
staðan 73:72 fyrir ísland. írinn
hitti ekki úr fyrra skotinu og ís-
land náði frákastinu og héldu
knettinum þar til klukkan gall.
Æsispennandi lokamínútur og
skemmtilegur leikur var þar með
á enda og tvö stig til íslands.
Staðan í leiknum að venjulegum
leiktfma loknum var 69:69 og
jöfnuðu írar er ein mfnúta var til
leiksloka eftir að ísland hafði
verið yfir allan tímann.
íslenska liðið byrjaði leikinn
mjög vel og eftir fimm mínútna
leik höfðu allir fimm í byrjunarliöinu
skorað körfu og staðan orðin 11:4.
Vörnin var þokkalega þétt hjá lið-
inu en sóknin lengst af í fyrri hálf-
leik var sóknin hálf þófkennd. Það
var eins og menn væru að vanda
sig viö að nýta þær þrjátíu sekúnd-
ur sem liöið hefur til að reyna
körfuskot en þegar sá tími var að
renna út urðu þeir að skjóta og
gerðu það stundum án þess að
vera í neinu skotfæri.
íslenska liðið braut talsvert
mikið klaufalega af sér í upphafi
leiksins og fengu fyrir bragðið
mikið af villum. Sömu sögu er
reyndar að segja af Skotum því
þegar fyrri hálfleikur var tæplega
hálfnaður höfðu bæði liðin fengið
bónus. Dómararnir voru mjög
ákveðnir og dæmdu strangt,
strangar en við eigum að venjast
hér á landi.
íslenska liðið náði 14 stiga for-
ystu í fyrri hálfeik, 32:18, en síðan
kom slæmur kafli og írarnir minnka
muninn niður í fjögur stig en stað-
an íleikhléi 37:30.
í seinni hálfleik hélt íslenska liðið
forystu og mest varð hún 12 stig,
66:54, þepar sex og hálf mínúta
var eftir. Irarnir saxa síðan hægt
og bítandi á forskotið og jafna eins
og áður segir þegar ein mínúta var
eftir og því þurfti að framlengja
um 5 mínútur.
írar skoruðu fyrsta stigið í henni
úr vítakasti og staðan því 69:70.
Valur kemur Islandi yfir og Torfi
bætir um betur og staðan þá orðin
73:70 og 2,20 mínútur eftir. írar
skora síðan tvö stig og fengu síðan
vítaköst eins og áður er lýst.
íslenska liðið lenti (miklum villu-
vandræðum í leiknum og þegar
síöari hálfleikur hafði staðið í fimm
mínútur voru þeir Torfi, Guöni og
Símon allir komnir með fjórar villur.
Þetta tókst þó allt saman að þessu
sinni og ieikurinn var æsispenn-
andi og lofar góðu fyrir leikina í
kvöld.
Bestu menn íslands að þessu
sinni voru þeir Valur, Guðni og
Pálmar og einnig átti Torfi stórgóð-
an leik undir lokin í fráköstunum.
Stig fslands:Valur Inglmundarson 26,
Guöni Guðnason 16, Pálmar Sigurösson 16,
Torfi Magnússon 6, Símon Ólafsson 5, Páll
Kolbeinsson 4, Matthías Matthíasson 2.
Stigahæstur íranna varð Pat
Boylan með 18 stig, Karl Butler
gerði 16 stig og Tom Sullivan 14.
Bikarúrslit:
Fram—Stjarnan
leika íkvöld
ÚRSLITALEIKURINN i bikar- lið landsins og má búast við
keppni kvenna í handknattleik, hörkuspennandi leik. Útvarpið
milli tveggja efstu liðanna í fyrstu mun senda frá Seljaskola og
deild, Fram og Stjörnunnar, fer verður fréttum fléttað innf
fram i Seljaskóla f kvöld og hefst fþróttaþáttinn sem hefst kl. 20
kl. 20. Þarna eigast viA tvö bestu en ekki 21.
á Englandi.
mínútum fyrir leikslok en Pat Nevin
tryggði Chelsea sigur með marki
undirlok leiksins.
í gærkvöldi var mikill áhorfenda-
fjöldi í London á leiknum og sá
mesti sem verið hefur hjá Wes^
Ham á þessu ári. Speedy var í
leikbanni og lék því ekki með en
Phil Parkes lék sinn 801. meistara-
flokksleik.
Það var markaskorarinn mikli
Gary Lineker sem gerði fyrra mark
Everton og var þetta 34. mark
hans á keppnistímabilinu. Tveimur
mínútum fyrir leikslok skoraði síð-
an Martin Sharp annað mark
Everton en Lineker var tekinn útaf
í hálfleik og kom Adrian Heath í
hans staö.
Einn leikur var í 2. deild. Charl-
ton og Millwall gerðu jafntefli,
hvort lið gerði þrjú mörk. Staöan
eftir 18 mínútur var 3:0 fyrir Mill-
wall en liö Charlton lék stórvel það
sem eftir var leiksins og náði at^
jafna.
Leikmaðurinn snjalli hjá Liv-
erpool, John Wark, meiddist í leik
Liverpool gegn Coventry um síð-
ustu helgi og var talið að hann
hefði tognað á ökla. Við nánari
skoðun kom í Ijós að hann hafði
brotnað og mun ekki leika meira
með á þessu keppnistímabili.
Hann hefur leikið 13 leiki en verður
að leika 14 til að fá verðlaunapen-
ing ef Liverpool tekst að næla í
þá. Einnig er talið vafasamt að
hann geti leikið á HM í Mexikó.
Víkingur
vann
Ármann
Vfkingur vann Ármann f Reykja-
víkurmótinu f knattspyrnu f gær-
kvöldi á gervigrasvellinum f Laug-
ardal með tveimur mörkum gegn
engu. Ármenningar misnotuðu
meðal annars vftaspyrnu f leikn-
um.
Á sunnudagskvöldið unnu
KR-ingar lið Þróttar með fjórum
mörkum gegn engu og fengu þar
með þrjú stig fyrir unnin leik og
þrjú mörk skoruö.