Morgunblaðið - 01.05.1986, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 1986
3
ÞÓRÐUR H. Jónsson umdæmis-
stjóri Lionshreyfingarinnar á ís-
landi afhenti i gær Ragnhildi
Helgadóttur heilbrigðisráðherra
17 milljónir 285 þúsund krónur,
sem hreyfingin safnaði til kaupa
á línuhraðli fyrir Landspítalann
með sölu á „rauðu fjöðrinni“
daganna 12. til 14. apríl 1985.
Eftir að ráðherra hafði afhent
Hallgrimi Snorrasyni formanni
yfirstjómar mannvirkjagerðar á
Landspitalalóð söfnunarféð,
undirritaði hann kaupsamning
við fyrirtækið Varian um kaup á
línuhraðli til krabbameinslækn-
inga.
Þórður H. Jónsson sagði að
Lionshreyfingin hefði þrisvar áður
Þórður H. Jónsson umdæmisstjóri Lionshreyfingarinnar á íslandi • • • sem siðar afhenti Hallgrimi Snorrasyni formanni yfirstjómar
afhendir Ragnhildi Helgadóttur heilbrigðisráðherra söfnunarféð ... mannvirkjagerðar á Landspítalalóð ávísunina.
Þjóðargjöfin afhent
Undirritaður samningur um kaup á línuhraðli
staðið að söfnun lækningatækja
með sölu á „rauðu fjöðrinni", en
öll fyrri söfnunarmet hefðu verið
slegin að þessu sinni og þakkaði
hann það stuðningi fjölmiðla. „Ég
vil leggja ríka áherslu á að þetta
er ekki gjöf frá Lionshreyfingunni,
heldur frá allri þjóðinni - þjóðar-
gjöf,“ sagði Þórður.
Ragnhildur Helgadóttir heil-
brigðisráðherra þakkaði í ávarpi
sínu öllum þeim sem stóðu að söfn-
uninni og sagði að þetta væri ekki
í fyrsta skipti sem Lionshreyfingin
hlypi undir bagga með heilsugæsl-
unni. „Almenningur á eftir að sjá
árangur af söfnuninni, sem sýnir
hverju hægt er að áorka með góðum
hug og samvinnu," sagði Ragn-
hildur.
Hallgrímur Snorrason sagði í
ræðu sinni að sér væri sérstök
ánægja að undirrita kaupsamning-
inn. Hann þakkaði öllum þeim sem
um langt skeið hafa innt af hendi
mikið og vandasamt starf við út-
boðsgerð, könnun tilboða og samn-
ingagerð. „Þá er mér ljúft og skylt
að flytja Lionshreyfingunni á Is-
landi bestu þakkir fyrir fjársöfnun
þá, sem hreyfmgin gekkst fyrir og
hið ríkulega framlag sem hreyfingin
hefur nú innt af hendi til kaupa
þessa mikla tækis,“ sagði Hallgrím-
ur. „Þá vil ég þakka þeim fulltrúum
Lionshreyfíngarinnar, sem átt hafa
þátt í athugunum og ákvörðunum
um tækjakaup, fyrir hnökralausa
og ánægjulega samvinnu." Hann
þakkaði síðan stjómvöldum fyrir
þá ákvörðun að veita fé til bygging-
ar K. Stigið hefði verið stórt skref
að því marki að ljúka framkvæmd-
Yfirmenn
ráðnir að
Hótel Örk
GUÐMUNDUR Helgason hefur
verið ráðinn liótelstjóri Hótels
Arkar í Hveragerði. Guðmundur
lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum á Akureyri árið 1972,
prófi frá Kennaraháskóla ís-
lands árið 1978 og prófi í hótel-
stjórnun í Noregi árið 1984.
Guðmundur stýrði Edduhótelinu
í Nesjaskóla við Hornafjörð sl.
sumar, en hann hefur áður unnið
hótelstörf á Hótel Loftleiðum,
Hótel Esju og við KNA-hótelið í
Stavanger í Noregi.
í samtali við Morgunblaðið í gær
sagði Guðmundur að búið væri að
ráða yfirmenn í helstu lykilstöður
á Hótel Örk. Jóhann Jakobsson
verður yfirkokkur, en hann hefur
starfað á Nausti, vaktstjóri í mót-
töku verður Jóhann Sigurólason en
hann hefur starfað á Hótel Sögu
sl. 5 ár, yfirþerna verður Hulda
Jónsdóttir frá Hveragerði og veit-
ingastjóri verður Sturla Bragason
sem starfað hefur á Hótel Blöndu-
ósi.
Guðmundur sagðist reikna með
að endanlegu yrðu ráðnir 35 starfs-
menn áður en Hótel Örk tekur til
starfa, en stefnt er að því að bygg-
ingunni verði lokið 7. júní nk.
um við fyrsta áfanga byggingarinn-
ar og heija þar mikilvæga starfsemi
fyrir framgang læknis- og heil-
brigðisþjónustu hér á landi.
Þórarinn Sveinsson læknir vakti
athygli á því að 1979 hefði lækna-
ráð Landspítalans staðið frammi
fyrir húsnæðisvanda spítalans. Þá
var tekin ákvörðun um byggingu K
og hefðu frumdrög að byggingunni
legið fyrir ári síðar. „Þetta er dýr
áfangi og erfitt að ýta úr vör,“
sagði Þórarinn. „En árið 1984 var
skrefið stigið vegna áhrifa frá
Lionshreyfingunni og ekki síst
Hjalta Þórarinssyni prófessor. Ég
veit að þessi útbúnaður á eftir að
skila árangri. Erlendir vísindamenn
hafa sett sér það markmið að árið
2000 verði hægt að lækna helming
allra sjúklinga með krabbamein.
Kaup á línuhraðli er veigamikill
þáttur til þess að af þessu geti
orðið."
Heildarkostnaður við línuhraðal-
inn er um 50 milljónir króna og
mun ríkissjóður leggja til rúmlega
32 milljónir sem á vantar.