Morgunblaðið - 01.05.1986, Qupperneq 18
18
MORGÚNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR1. MAÍ1986
SUMARHÚS
Þetta sumarhús er til sölu. Stendur á kjarri
vaxinni eignarlóð í Svarfhólsskógi (við
Vatnaskóg) í Svínadal. Húsið er fullfrágeng-
ið. Stærð 48 m2 með stórum palli.
Arinn. Sturtuklefi. Vatnsveita.
Upplýsingar hjá:
K.R. Sumarhús,
Kársnesbraut 128,
Kópavogi. Sími 41077.
------------------------>
F allegur Darnafatn-
aður. Gott Verð I
BAMBÍNÓ,
Vesturgötu 12, sími 22119.
barnafataverslun
/
TOLLSKRÁIN
með ölium breytingum sem áttu sér stað nýlega
er innbyggð íTollara!
Tollari er forrit fyrir IBM PC-tölvur sem breytir
vinnunni við tollskýrslugerð og verðútreikninga í
ánægjulegt stundargaman.
En sjón er sögu ríkari.
Pantaðu kynningu á
Tollaranum.
íslensk tæki,
Ármúla 36.
Sími 686790.
Vímulaus æska:
Lionshreyf ingin með
baráttudag gegn vímuefnum
50 „Rússar“ á Reykjaneshrygg
Um 50 rússneskir togarar eru nú að veiðum suðsuðvestur af Reykjanesi, rett utan landhelginnar.
Þeir eru þar að djúpkarfaveiðum, en upplýsingar um afla liggja ekki fyrir að sögn starfsmanna
Landhelgisgæzlunnar. íslendingar hafa undanfarin ár ekki séð ástæðu til að nýta sér þessi karfa-
mið, meðal annars vegna slæms ástands karfans, sem þarna veiðist og mikils kostnaðar við veiðarnar.
LIONSHREYFINGIN á Norður-
löndum hefur sameinast um að
gera fyrsta laugardag í maí ár
hvert, að samnorrænum baráttu-
degi gegn vimuefnum. Laugar-
daginn 3. mai nk. munu Lions-
félagar um land allt vinna að
þcssu baráttumáli hreyfingar-
innar með ýmsum hætti.
í frétt frá Lionshreyfingunni
kemur fram að alþjóðastjóm Lions
samþykkti 1982 að hreyfingin
skyldi taka höndum saman í baráttu
gegn misnotkun vímuefna, sem er
orðið alvarlegt þjóðfélagsböl og
beina kröftum sínum aðallega að
forvamarstarfi. Nú eru starfandi
38 þúsund klúbbar með nær 1,4
milljónir félaga um allan heim þar
af eru 94 klúbbar með um 3 þúsund
félögum hér á landi. Á síðasta fjöl-
dæmisþingi Lionshreyfíngarinnar á
íslandi, sem haldið var á Egilsstöð-
um í júní 1985 var samþykkt fimm
ára áætlun í baráttu mót vímuefn-
um á íslandi og stofnaður sérstakur
sjóður til styrktar málefninu.
Á námsstefnu sem haldin var á
vegum hreyfingarinnar í nóvember
sl. um vamir gegn misnotkun vímu-
efna var þátttakendum kynnt við-
fangsefnið frá ýmsum hliðum af
sérfróðum mönnum með erindum.
hópumræðum, kvikmynda og lit-
skyggnusýningum. Niðurstaða
námstefnunnar var sú að mikil þörf
væri á forvaraarstarfi hér á landi
og í famhaldi af því ákvað nefnd
innan Lionshreyfingarinnar sem
fjallar um fíkniefnamál að heíja
kynningu á baráttumerki hreyfing-
arinnar meðal allra grunnskóla-
nema á landinu. Nú þegar hefur
verið dreift í alla skóla veggspjöld-
um með merkinu og kynningarmiða
sem skýrir afstöðu Lions. Með þessu
er ætlunin að undirbúa jarðveginn
fyrir frekari aðgerðir, er felast fyrst
og fremst í fræðslu og dreifingu
fræðsluefnis. Einn liður í þessu
starfi er að styrkja kennara og aðra
til að sækja námskeið hér heima
eða erlendis, þannig að þeir verði
betur undir það búnir að sinna
fræðslu innan skólanna.
Laugardaginn 3. maí verður lögð
megin áhersla á að kynna baráttu-
merki Lionshreyfingarinnar gegn
fíkniefnum „túiípanamerkið". Gerð-
ir hafa verið sérstakir heiðursfánar
með merkinu og verða þeir m.a.
afhentir forseta Íslands, biskupi
íslands, dómsmálaráðherra,
menntamálaráðherra og borgar-
stjóranum í Reykjavík. Útbúnir
hafa verið sérsatakir fánar fyrir
strætisvagna í Reykjavík, Kópa-
vogi, Hafnarfirði, Ákureyri, Mos-
fellssveit og víðar til að nota þennan
dag. Þá verður merkið prentað á
um 300.000 burðapoka sem dreift
verður í matvöruverslunum þessa
daga.
Sérstök dagskrá verður í Reykja-
vík, sem hefst með því að safnast
er saman á horni Frakkastígs og
Laugavegar kl. 13:15 en skrúð-
gangan hefst kl. 13:30 og gengið
niður á Lækjartorg. Þar verður
skemmtidagskrá sem hefst kl.
14:00 og skemmta meðal annars
hljómsveitin Voice, Eiríkur Fjalar,
Óskar og Emma, Unglingar úr
Fellahelli og Hljómsveitin Greifarn-
ir, kynnir verður Haraldur Sigurðs-
son.
SPECK
Lensi-, slor-, skolp-,
sjó-, vatns- og
holræsa-dælur.
Útvegum einnig dælu-
sett meö raf-, Bensín-
og Diesel vélum.
(ö(q)
Vesturgötu 16,
sími 13280
Poppe-
loftþjöppur
Alþjóða hvalveiðiráðið:
Ýmsar þjóðir sýna
ráðinu engan áhuga
— segir Halldór Ásgrímsson
NOKKRAR ÞJÓÐIR, sem eru aðilar að Alþjóða hvalveiðiráð-
inu hafa verið í vanskilum, með greiðslur til ráðsins um
alllangt skeið. Hefur jafnvel komið fyrir að samþykkt hafa
verið loforð um greiðslur i upphafi funda ráðsins, sem
þessar þjóðir svo sitja.
Að sögn Halldórs Ásgríms-
sonar sjávarútvegsráðherra
hafa vanskil þjóðanna ekki áhrif
á afstöðu ráðsins til hvalveiða
íslendinga. Alþjóða hvalveiði-
ráðið hefur markað sína stefnu
og bannað þær fram til 1990.
„En þetta sýnir að sjálfsögðu,
að þama era ýmsar þjóðir sem
sýna málinu engan áhuga og
standa ekki við skuldbindingar
gagnvart Alþjóða hvalveiði-
ráðinu,“ sagði Halldór. Að auki
er ráðið í fjársvelti, hefur ekki
yfir nægilegu fjármagni að ráða
til að halda undirbúningsfundi
um þau mál, sem það síðan
fjallar um.
Algengt er að nokkrar þjóðir
S-Ameríku og Afríku hafi verið
í vanskilum en landluktar þjóðir
Evrópu, sem flestar era vel
stæðar fjárhagslega, standa í
skilum. „Austur Evrópuþjóðir
eru ekki í ráðinu, nema Sovét-
ríkin og það má segja að auðvit-
að hefðu þær getað gengið í
ráðið eins og ýmsar aðrar þjóðir
en ekki talið ástæðu til þess.
Enda var ekki lögð nein áhersla
á það í upphafi, menn voru fyrst
og fremst að leita að þeim þjóð-
um sem vildu útiloka allar veið-
ar,“ sagði Halldór.
Útvegum þessar
heimsþekktu loft-
þjöppur í öllum stærö-
um og styrkleikum,
með eöa án raf-,
Bensín- eöa Diesel-
mótórs.
SöD=oirOma®(U]ir
©(S>
Vesturgötu 16.
Sími14680.