Morgunblaðið - 01.05.1986, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR1. MAÍ1986
Tónleikar í Borgarnesi
Guðný Guðmundsdóttir fiðluleik-
ari.
Catherine Wiliiams píanóleikari.
SUNNUDAGINN þann 4. maí
kl. 21 munu þær Guðný Guð-
mundsdóttir fiðluleikari og
Catherine Williams píanóleik-
ari halda tónleika í Borgarnes-
kirkju. Á efnisskránni, sem er
mjög fjölbreytt, verða verk
eftir J.S. Bach, Ernest Bloch,
Tchaikovsky og hinn frægi
„Zigeunerweisen" eftir Pabio
de Sarasate.
Auk þess verða verk eftir tvö
íslensk tónskáld, þá Áma Bjöms-
son og Jónas Tómasson. Verk
Jónasar, Vetrartré, er meðal
verka á nýútkoininni hljómplötu
Guðnýjar, sem hlaut verðlaun
Frönsku Akademíunnar ekki alls
fyrir löngu.
Tónleikamir em á vegum Tón-
listarfélags Borgarfjarðar. Þeir
sem ekki em áskrifendur geta
fengið miða við innganginn.
Fréttatilkynning
Með vænni sneið af SS-áleggi
breytir þú venjulegu
brauði f ósvikið sælgæti
Spægipylsan
okkar var
upphaflega gerð
eftir danskri uppskrift
fyrir meira en hálffi öld.
Hún hefúr síðan stöðugt verið
þróuð og aðlöguð smekk
neytenda hverju sinni.
• leggið frá Sláturfélaginu er ótrúlega
fjölbreytt. Við framleiðum 17 tegundir
af bragðgóðu, fitulitlu brauðáleggi úr
besta fáanlegu hráefni.
Allar matvörur Sláturfélagsins eru
framleiddar með nýtísku tækjabúnaði
undir ströngu gæðaeftirliti fagmanna.
Umbúðimar em líka eins vandaðar og
kostur er — það tryggir hámarks
geymsluþol.
Við kynnum hér nokkrar vinsælustu
tegundimar:
Reykt beikonskinka
er nýjung ffá SS sem vakið hefur
verðskuldaða athygli.
Hún er löguð úr fituhreinsuðum svínasíðum.
Sérlega bragðgóð.
Rúllupylsan
er ffamleidd
samkvæmt ævagamalli
íslenskri hefð og hefur verið
óbreytt í áraraðir. Sívinsæl
í ferðanestið.
Malakoff
er ódýr og fitulítil
pylsa sem við höfúm framleitt
lengi við miklar vinsældir. Tilvalin í
skólanestið.
Hangiáleggið
ffá SS er unnið úr sérvöldum, fituhreinsuðum
vöðvum. I það fara engin fyllingar-
eða þyngingarefni.
Sígilt álegg sem alltaf er jafn vinsælt.
Lamba- og svínaskinkurnar
okkar eru einnig unnar úr völdum fitulausum
vöðvum. Þær eru bæði ffábærar sem
brauðálegg og til steikingar
a pönnu.
SLATURFELAG
4?
Dallaspylsa
heitir nýjasta áleggið okkar.
Hún hefúr fengið mjög góðar undirtektir
enda löguð eftir geysivinsælli
þýskri uppskrift.
Frísklegt kryddbragðið kitlar vandlátustu
bragðlaukana.
SUÐURLANDS
Brids
Arnór Ragnarsson
Frá Bridsfélagi
Hafnarfj arðar.
Vorhugur er nú og er spila-
mennsku BH á starfsárinu því lokið.
Síðasta keppni félagsins var Board
a Match-keppni (með saldo) með
þátttöku 8 sveita. Þessar urðu efst-
ar:
1. SveitBjamaJóhannssonar 145
2. Sveit Sigurðar Lárussonar 126
3. Sveit Þrastar Sveinssonar 119
4. Sveit Erlu Siguijónsdóttur 105
Síðla starfsársins var keppt við
3 önnur félög, Bridsfélag kvenna,
Bridsklúbb Akraness og Bridsfélag
Selfoss og unnu Hafnfirðingar öll
þessi félög með töluverðum mun.
Viðureignin við Selfoss var sú fer-
tugasta á 40 árum og er því vænt-
anlega elsta samfellda bæjarkeppni
í íþróttum hér á landi. Spilað var á
Selfossi að þessu sinni og senda
spilarar BH þeim Selfyssingum
bestu þakkir fyrir frábærar móttök-
ur.
í lok starfsársins var haldin
sagnkeppni með gömlum spilum úr
erlendum og íslenskum blöðum. í
öðrum hópnum náðu þau hjón Erla
Siguijónsdóttir og Kristmundur
Þorsteinsson bestum árangri í 20
spilum eða 118 stigum. I hinum
hópnum urðu þeir Ásgeir Ásbjöms-
son og Friðþjófur Einarsson lang-
efstir með 141 stig. Úr seinni 10
spilunum fengu þeir hvorki meira
né minna en 86 stig. Þau spil vom
úr Brids(blaðinu) í febrúar 1976 en
þar náðu þeir Þórarinn Sigþórsson
og Hörður Amþórsson 75 stigum,
sem talið var „afburða skor". Kerfi
þeirra Ásgeirs og Friðþjófs mun
vera mjög sérstætt, enda botnuðu
engir í sögnum þeirra.
Aðalfundur BH verður haldinn
föstudaginn 23. maí í Hraunbyrgi,
húsi Skátafélagsins við Reykjavík-
urveg, og hefst kl. 20. Dagskrá
fundarins verður auglýst síðar.
Félagar BH óska öllum brids-
urum landsins gleðilegs sumars og
þakka umsjónarmönnum bridsþátta
dagblaðanna fyrir ágæta þjónustu
í vetur.
Bridsfélag Siglufjarðar
Mánudaginn 7. apríl lauk Siglu-
fjarðarmóti í sveitakeppni 1986. 11
sveitir tóku þátt í mótinu og var
hart barist um efstu sætin. Lokaúr-
slit urðu þau, að sveit Valtýs Jónas-
sonar sigraði með 235 stigum. í
sveit Valtýs spila, auk hans, Baldvin
Valtýsson, Sigurður Hafliðason og
Sigfús Steingrímsson. í 2. sæti varð
sveit Þorsteins Jóhannssonar með
230 stig og 3ja sveit Boga Sigur-
bjömssonar með 207 stig.
Tveggja kvölda hraðsveitakeppni
var spiluð 14.4. og 21.4. Þessa
keppni sigraði sveit Valtýs einnig
með 960 stigum, í 2. sæti varð sveit
Birgis Bjömssonar með 941 stig
og í 3ja sæti varð sveit Þorsteins
Jóhannssonar með 896 stig.
Síðasta keppni félagsins á þessu
starfsári verður 3ja kvölda tvímenn-
ingur, sem jafnframt er firma-
keppni.
Mjög öflug starfsemi hefur verið
hjá félaginu í vetur.