Morgunblaðið - 01.05.1986, Side 27
MOBGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR1. MAÍ 1986
27
Gísli Sigurðsson
Pétur Friðrik
Afmælissýning
í Garðabæ
GARÐABÆR er 10 ára urn þess-
ar mundir eins og fram hefur
komið í fréttum og af því tilefni
er gert ýmislegt til hátíðabrigða.
Meðal annars eru tvær listsýn-
ingar í bænum og hefur í tílefni
afmælisins verið leitað til lista-
manna, sem þar búa.
í Morgunblaðinu í gær var getið
um sýningu þeirra Ragnheiðar
Jónsdóttir, Eddu Jónsdóttur ogJóns
Óskars í Gallerí Lækjarfít í
Garðabæ. Jafnframt er önnur sýn-
ing í Kirkjulundi og standa þeir að
henni saman Pétur Friðrik og Gísli
Tónlistarfélagið:
Sigurðsson. Pétur Friðrik sýnir þar
15 myndir, bæði olíu- og vatnslita-
myndir, en Gísli sýnir 13 olíumál-
verk.
Til upplýsingar þeim, sem ekki
vita hvar Garðalundur er, skal tekið
fram, að Húsið blasir við frá Vífils-
staðavegi vestan við bæinn á Hofs-
stöðum; þar er skóli og félags-
heimili Bræðrafélags Garðakirkju
og er komið að húsinu norðan-
megin, frá Hofsstaðabraut.
Sýning Péturs Friðriks og Gísla
Sigurðssonar er opin daglega til kl.
9 á kvöldin og lýkur henni næst-
komandi sunnudagskvöld.
Síðustu tón-
leikar vetrarins
VOVKA (Stefán) Ashkenazy mun
halda tónleika fyrir Tónlistarfé-
lagið laugardaginn 3. maí kl.
17.00 í Austurbæjarbíói. Þetta
verða síðustu tónleikar Tónlist-
arfélagsins i vetur.
Vovka Ashkenazy fæddist í
Moskvu árið 1961, sonur Vladimirs
og Þórunnar Ashkenazy. Hann ólst
að mestu leyti upp hér á landi og
hóf píanónám hjá Rögnvaldi Sigur-
jónssyni aðeins sjö ára gamall, fyrst
í einkatímum og síðar í Tónlistar-
skólanum í Reykjavík. Frá Rögn-
valdi fór hann til framhaldsnáms í
Englandi árið 1977. Kennari hans
við Konunglega Tónlistarskólann í
Manchester var Sulamita Aronov-
sky og hann útskrifaðist þaðan árið
1983.
Undanfarin þrjú ár hefur hann
haldið tónleika víða í Evrópu og
Kanada og komið fram sem einleik-
ari með mörgum hljómsveitum,
m.a. þremur stærstu hljómsveitum
Lundúna. Margir muna eftir tón-
leikum hans á Listahátíð 1984 með
Fílharmónía-hljómsveitinni undir
stjórn Vladimirs Ashkenazy. Ný-
lega hefur hann haldið tónleika í
Finnlandi, á Spáni, í Belgíu, Hol-
landi og Bretlandi, og hlotið mikið
lof gagnrýnenda fyrir.
A efnisskránni á laugardag eni
Vovka (Stefán) Ashkenazy
tvær sónötur eftir Beethoven op.
90 í e-moll og op. 110 í A-dúr,
Sónata í F-dúr K.332 eftir Mozart
og Sónata op. 120 í A-dúr eftir
Schubert.
Aukamiðar eru til sölu í Bóka-
verslunum Sigfúsar Eymundssonar
og Lárusar Blöndal og í Istóni, og
viðinnganginn.
Fréttatflkynning
SVARTAHAFSSTROríD
BÚLQARÍU
FLUG OG BILL
:VÍÐS VEGAR
UM EVRÓPU'
i
FRÍIÐ
MEÐ
FERÐAZÍVSVAL
Lindargötu 14, 101 Reykjavík
sími: (91 )-14480
VORFUNDUR BÍLGREINASAMBANDSINS
Laugardaginn 3. maí nk. kl. 09:30
að Hótel Sögu 2. hæð — nýbyggingu
Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og tilkynna þátt-
töku til skrifstofu BGS simi 681150.
DAGSKRÁ:
Kl. 09:30 Formaður BGS, Þórir Jensen, setur fundinn og
flytur yfirlit yfir starfsemi BGS.
Kl. 10:00-11:30
Sérgreinafundir:
a) Verkstaeðisfundur
b) Málningar- og réttingarverkstæði
c) Varahlutasalar og bifreiðainnflytjendur
d) Smurstöðvar
e) Hjólbarðaverkstæði
Kl. 11:30—12:00 Niðurstöður sérgreinafunda.
Kl. 12:00—14:00 Hádegisverður og hádegisverðarerindi:
Geir H. Haarde aðstoðarmaðurfjármálaráðherra
fjallar um tolla og skattamál í bílgreininni, virðis-
aukaskatt o.fl.
N ' X
- . w;-
á Pu
Kl. 14:00 Kynning á viðgerðarskýrslu BGS, plakati og
bæklingi.
Stjórn Bflgreinasambandsins