Morgunblaðið - 01.05.1986, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR1. MAÍ1986
Á myndinni sjáum við
menningarfulltrúa veitingahússins Öðinsvéa, Öðinstorgi.
Óðinsvé:
Síðasti karrýdagur að sinni
Undanfarið hefur veitingahús-
ið Óðinsvé, Óðinstorgi, staðið
fyrir nýstárlegri karrýkynningu.
Á fmuntudögum hefur veit-
ingahúsið boðið gestum sínum
upp á ýmsar tegundir karrýrétta.
Eru réttir þessir matreiddir að
hætti Indverja, Pakistana og Sri-
Lanka-búa, úr rammíslensku
hráefni, nema hvað karrýið sjálft
kemur frá áðumefndum löndum.
Aðspurður kvað yfirmatreiðslu-
maður veitingahússins, Gísli
Thoroddsen, íslenska lambakjöt-
ið og fiskinn sérlega heppilegt
hráefni í rétti þessa.
Með réttunum em borin fram
hrísgijón, Nam og Pabadam
brauð, sem em ómissandi með
austurlenskum karrýréttum. Auk
þess alls kyns sósur og indversk
sulta.
Má líta á framtak þetta sem lið
í menningartengslum okkar
íslendinga og þessara fjarlægu
þjóða.
Því er sérstök ástæða til að
hvetja fólk til að halda upp á
1. maí í Óðinsvéum á síðasta
karrýdeginum sem haldinn er
fyrir sumarfrí.
(Auglýsing)
Úr myndinni „Anna kemur út“
Anna vinnur sigur
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Sýnd í Laugarásbíói.
Stjörnugjöf ★ '/2
Framleiðandi: Don Murray.
Myndataka: Mick van Bornem-
an.
Tónlist: Simon Walker.
Handrit: John Patterson og
Chris Bortwick byggt á sannri
sögu eftir Rosemary Crossley
og Anne McDonald.
Leikstjóri: Gil Brealey.
Anna kemur út (A Test of
Love) er leikin heimildarmynd um
líkamlega vanskapaða stúlku, sem
úrskurðuð var andlega þroskaheft
þriggja ára gömul og komið fyrir
á stofnun. Þegar hún hefur náð
táningsaldri kemur í ljós að í
fotluðum líkamanum býr greind
og skynsöm, heilbrigð sál. En
vegna fötlunar sinnar hefur hún
ekki getað tjáð sig á neinn hátt
öll þessi ár.
Enda er umhyggja fyrir sjúkl-
ingum sínum ekki aðalsmerki
Brentwoodspítalans sem Anna
gistir. Það er „sorphaugur" eins
og Anna kemst sjálf að orði: þar
eru geymd vansköpuð, afskræmd
eða þroskaheft böm, sem að-
standendur þeirra vilja helst
geyma og þau látin þrífast þar
þangað til þau deyja. Bömunum
er engin umhyggja sýnd, þau fá
næringu og húsaskjól og búið.
Engin kærir sig um þau. Það er
betur hugsað um pottablóm en
þau.
Þar til Jessíca Hathaway (Ang-
ela Punch McGregor) tekur til
starfa á spítalanum. Henni blöskr-
ar meðferðin á bömunum eða
meðferðaleysið öllu heldur og vill
gera breytingar. Athygli hennar
beinist fljótt að Önnu og innan
skamms er Anna farin að læra
stafrófíð og tjá sig með því að
benda á stafí á spjaldi.
Saga Önnu er líka saga um
baráttu við kerfíð, kerfí sem held-
ur að Jessica ljúgi til um þroska
Önnu, kerfí sem vill loka fötluð
böm inni á stofnunum og fara
með þau eins og pottablóm. En
Anna vinnur sigur.
Anna kemur út er átakanleg
saga og óhugnanleg og lýsir þí
afskiptaleysi sem fólk vill sýna
fötluðum bömum og því viðhorfí
að þeim sé best komið fyrir á
hæli, útskúfuð frá samfélaginu.
En myndinni tekst ekki að vera
eins grípandi og sannfærandi og
hún ætti að vera. Handritið er oft
væmið, leikstjómin slöpp og leik-
urinn líka nema hjá Tinu Arhondis
sem leikur Önnu og ómögulegt
er að sjá hvort er fötluð sjálf eða
ekki.
wmmmm.
Morgunblaðið/Ámi
Blásið í lúðra i Stykkishólmi.
Skólahljómsveit Mos-
fellssveitar heim-
sækir Stykkishólm
Stykkishólmi.
SKOLAHLJÓMSVEIT Mosfells-
sveitar kom um helgina í heim-
sókn til Stykkishólms. Stjórnandi
hennar er Birgir Sveinsson. Er
þetta yfir 40 manna hópur.
Skólahljómsveitin og Lúðrasveit
Stykkishólms ætla að vera saman
í ferð til Norðurlanda í júní.
Voru æfingar með þeim á laugar-
dag og á sunnudagsmorgun bauð
Lúðrasveit Stykkishólms þeim
félögum í bátsferð um eyjasund.
Kl. tvö á sunnudag léku svo
sveitirnar fyrst hvor í sínu lagi og
síðar öll hersingin, yfír 80 félagar,
nokkur lög. Var þeim óspart fagnað
af hinum mörgu áhorfendum sem
mættu í féiagsheimilið.
Um þessar mundir héldu eldri
konur í Hólminum sýningu á mun-
um sem þær höfðu unnið f vetur
og þótti sjálfsagt að sameina þetta
í eitt og vakti það mikla gleði.
Skólahljómsveitin hélt síðan suð-
ur aftur og voru félagar hennar
mjög ánægðir með þessa ferð og
velheppnaða.
Ámi