Morgunblaðið - 01.05.1986, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR1. MAÍ1986
K J ARNORKUSLY SIÐISOVETRIK JUNUM
Norðurlönd:
Svíar banna innflutning
matvæla frá A—Evrópu
Stokkhólmi, Ósló. AP og frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunblaðsins.
MIKIL ÓÁNÆGJA ríkir á Norðurlöndum með framkomu Sovét-
manna eftir kjarnorkuslysið í Chernobyl. Svíar og Danir hafa látið
þung orð falla um stjórnvöld í Moskvu og er búist við, að þetta mál
verði ofarlega á baugi i ræðum manna í dag, 1. maí. I Noregi hefur
veríð skipuð nefnd til að fylgjast með framvindu mála og Finnar
hafa byrjað á brottflutningi finnskra þegna frá Kiev og svæðunum
þar í kring.
Boris Pankin, sendiherra Sovét-
manna í Svíþjóð, sagði í gær á fundi
í sænska utanríkisráðuneytinu, að
slysið hefði aðeins orðið í einum
kjamakljúf og að rekstri hinna
þriggja hefði verið hætt. Sagði hann
ennfremur, að „við munum láta
Svía og aðra vita ef ástandið versn-
ar“. Bertil Jobeus, talsmaður
sænska utanríkisráðuneytisins,
sagði, að lítil stoð væri í þessari
yfírlýsingu Pankins og að enn hefðu
Svíar engin svör fengið við spum-
ingum sínum um slysið.
Svíar banna innf lutning
frá A-Evrópu
Sænska matvælaeftirlitið bann-
aði í gær innflutning ferskra
„Ekki harmleikur
ávaxta, fisks og kjöts frá þeim
Austur-Evrópulöndum, sem orðið
hafa fyrir geislun. Er þar um að
ræða Sovétríkin, Búlgaríu, Ung-
verjaland, Pólland og Tékkóslóvak-
íu. Fólki hefur einnig verið ráðlagt
að drekka ekki regnvatn.
Birgitta Dahl, orkumálaráðherra
Svía, sagði í gær, að svo virtist sem
kjamorkuslysið í Chemobyl hefði
orðið á föstudag í fyrri viku, fjómm
dögum áður en Sovétmenn neydd-
ust til að segja frá því. „Vonandi
draga Sovétmenn réttan lærdóm
af þessu slysi þótt þeir eigi greini-
lega erfitt með það,“ sagði Dahl
og bætti því við, að þetta mál myndi
hafa sín áhrif á afstöðu Svía til
Sovétmanna. „Það eitt er víst, að
sænskur almenningur mun draga
sínar ályktanir af þessu máli.“
geta gerst á ofanverðri 20. öld.
„Sovéskt samfélag er allt of
fmmstætt til að hægt sé að treysta
því fyrir jafn háþróaðri tækni og
nýtingu kjarnorkunnar,“ sagði í
Svenska Dagbladet í gær og í þýska
blaðinu Die Welt var spurt: „Hvers
konar manneskjur em það, sem
ráða í Sovétríkjunum? Það, sem
gerðist í Úkraínu er ekki harmleik-
ur, heldurglæpur."
I gær var farið að draga úr geisl-
un yfír Norðurlöndum en þá var
hennar hins vegar farið að gæta í
Austurríki og Sviss. „Kjamorku-
slysið í Sovétríkjunum sýnir ekki
aðeins veikleika og galla sovéska
kerfisins, heldur þá ótrúlegu hættu,
sem felst í einangmn heillar þjóðar,
sérstaklega stórþjóðar," sagði blað-
ið Tages Anzeigerí Zurich.
„Það „svarthol", sem kallast
sovésk upplýsingamiðlun, er skelfi-
legt mál,“ sagði Andrea Margheri,
öldungadeildarmaður fyrir ítalska
kommúnista, í umræðum á ítalska
þinginu en til fundarins var efnt
sérstaklega til að ræða kjamorku-
slysið. Fordæmdu allir þingmenn-
imir Sovétríkin fyrir óskiljanlega
frainkomu þeirra og kváðust undr-
ast það þjóðfélagskerfi, sem opin-
beraði sig á þennan hátt.
„Kommúnistar framleiða raf-
magn á sama hátt og þeir heyja
stríð — án þess að skeyta hið
minnsta um mannleg örlög og með
því að banna allt eftirlit," sagði í
því vinstrisinnaða blaði Liberation
í París.
— heldur glæpuru
Vestur-Evrópubúar reiðir og hneyksl-
aðir á framkomu Sovétmanna
Kaupmannahöfn. AP.
FRAMFERÐI Sovétmanna eftir
kjarnorkuslysið í Chernobyl, að
þeir skyldu þegja yfir því á sama
tima og geislunin lagðist yfir
nálæg lönd, hefur valdið reiði
og hneykslun í Vestur-Evrópu.
Eiga margir ekki orð til að lýsa
furðu sinni á sovésku þjóðfélags-
kerfi og á því, að þetta skuli
Ug-gnr í Noregi
I Noregi hefur verið skipuð sér-
stök nefnd til að fylgjast með geisl-
uninni, sem raunar er minni þar en
annars staðar á Norðurlöndum.
Mikill ótti hefur þó gripið fólk og
einkum ófrískar konur, sem óttast
fósturskaða. Káre Willoch, forsæt-
isráðherra, kallaði í gær á sinn fund
sovéska sendiherrann í Noregi,
Dimitry Poliyansky, og krafðist
þess, að Sovétmenn gæfu nauðsyn-
legar upplýsingar um slysið. Sendi-
herrann sagði, að bruninn í kjarn-
orkuverinu væri „undir mjög góðri
stjóm".
Finnar fluttir frá Kiev
Hafínn er brottflutningur allra
Finna frá Kiev og nágrenni en þeir
munu vera um 100 talsins. Einnig
hefur verið komið á fót vinnuhópi
til að kanna allar hliðar þessa máls
og Sovétmenn hafa verið krafðir
upplýsinga um það.
Genscher, utanríkisráðherra V-Þýskalands:
Sovétmenn verða að
loka kjarnorkuverum
AP/Símamynd
Kjamorkuslysið í Sovétríkjunum hefur valdið miklum ótta um að
slíkt slys geti orðið í öðram kjamorkuverum. Þessi finnska móðir
mótmælti því í gær fyrir utan þinghúsið í Helsinki í Finnlandi, að
fimmta kjarnorkuverið yrði reist þar í landi. Á spjaldinu hennar
stendur: „Hve margir dóu í Kiev? Við viljum ekki deyja. Ekki fimmta
kjaraorkuverið hér.“
fundarins, sem haldinn var í Fen-
eyjum á Ítalíu, að Sovétmenn yrðu
að gefa upplýsingar um önnur
kjarnorkuver af sömu gerð og í
Chernobyl og loka þeim tafarlaust.
Giulio Andreotti, utanríkisráðherra
Ítalíu, sagði, að Sovétmenn hefðu
ekki siðferðilegan rétt til að þegja
yfir þessum atburði. „Þetta mál á
ekkert skylt við fullveldi ríkja,"
sagði hann. „Geislunin stöðvast
ekki við landamæri.“
Aðilar að yestur-evrópska sam-
bandinu eru ítalir, Frakkar, Vest-
ur-Þjóðveijar, Belgar, Hollending-
ar og Lúxemborgarar. Var það
stofnað árið 1954 til að auka
samvinnu þjóðanna í efnahags-,
menningar- og varnarmálum en
löngum var heldur lítið að því
starfað. Ifyrir tveimur árum var
nýju lífí hleypt í sambandið og síð-
an hafa fundir verið haldnir reglu-
lega. Á fundinum í Feneyjum var
umræðuefnið samskipti austurs og
vesturs, vígbúnaðareftirlit og
hryðjuverkastarfsemi.
— af sömu gerð og í Chernobyl
Feneyjum. AP.
Hans-Dietrich Genscher, ut-
anríkisráðherra Vestur-
AP/Símamynd
Þessi mynd er úr sovéska tímarítinu „Líf“ og birtist í febrúar sl.
Sýnir hún starfsmenn við vinnu sína í stjórastöð kjaraorkuversins
í Chernobyl og í meðfylgjandi grein sagði, að frá stjórnstöðinni
værí hægt að slökkva á kjarnakljúfnum á nokkrum sekúndum.
Þýskalands, krafðist þess í
gær, að Sovétmenn liættu
rekstri allra kjarnorkuvera
soinu gerðar og verið i
rhemobyl. Bar hann fram
þessa kröfu við lok tveggja
daga fundar utanríkis- og
varnarmálaráðherra Vestur-
evrópska sambandsins.
Ráðherramir létu í ljós mikla
gremju og áhyggjur yfir því, að
Sovétmenn skyldu ekki vara aðrar
Evrópuþjóðir við því, sem var að
gerast í kjamorkuverinu í Chemo-
byl.
„Það er áhyggjuefni, að Sovét-
menn skyldu reyna að þegja yfír
þessum alvarlega atburði og vekur
upp spumingar um tal þeirra um
slökun og bætt samskipti," sagði
Sir Geoffrey Howe, utanríkisráð-
herra Breta, á fréttamannafundi í
gær.
Genscher, utanríkisráðherra
Vestur-Þýskalands, sagði við lok
.
.
Breskir námsmenn
í Kiev:
Eru innan-
dyra af
ótta við
geislun
London. AP.
BRESKUR námsmaður í Kiev
sagði í gær, að daglegt líf
værí með eðlilegum hætti í
borginni en fólk væri hins
vegar mjög áhyggjufullt þrátt
fyrir fullyrðingar stjórnvalda
um að engin hætta væri á
ferðum.
„Við höfum spurt hvort við
séum í hættu en því er alltaf
svarað til, að Kiev sé öruggur
staður," sagði Christine Falder,
22 ára gömul bresk stúlka, sem
er við nám í Kiev, í samtali við
breska ríkisútvarpið, BBC. Var
hún spurð að því, hvort stjómvöld
hefðu gefíð almenningi upplýs-
ingar um varúðarráðstafanir ef
hættan ykist en hún kvað svo
ekki vera. Sagði Falder, að
bresku námsmennimir héldu sig
innandyra af ótta við ástandið.
„Frá Sovétmönnum sjálfum
höfum við sama sem engar frétt-
ir,“ sagði Falder. „f sjónvarpinu
í gærkvöld sagði, að slys hefði
orðið fyrir norðan Kiev, nokkrir
hefðu beðið bana en nú væri búið
að ná tökum á málinu. Við höfum
hins vegar heyrt orðróm um að
allt að 4.000 manns hafí látist."
Falder sagði, að bresku náms-
mennimir vildu komast heim.
„Okkur fínnst við vera í hættu
stödd og viljum komast heim til
Englands. Við emm ekki nema
í rúmlega 100 km fjarlægð frá
slysstaðnum," sagði hún.