Morgunblaðið - 01.05.1986, Side 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR1. MAÍ1986
AP/Sfmamynd
Chile:
Skæmliðar
gera árásir
Santiago. AP.
SKÆRULIÐAR, sem berjast gegn herforingjastjórninni í Chile,
sprengdu á þriðjudag þrettán sprengjur. Þ. á m. hrundi veggur
næst dyrunum að heimili sendiherra Bandaríkjanna í Santiago,
höfuðborg Chile, í dínamítsprengingu. Tveir gluggar brotnuðu
í sendiherrabústaðnum og nágranni sendiherrans slasaðist.
Hálftíma síðar skutu skæruliðar
af vélbyssum á hermenn, sem stóðu
vörð við íbúðarkjarna yfirmanna í
hernum. Tilræðismennirnir voru á
bíl og keyrðu fram hjá á fleygiferð.
Fjórir hermenn særðust. Að sögn
lögreglu bendir ekkert til þess að
samband sé milli þessara atburða.
Maður nokkur hringdi og sagðist
vera talsmaður Þjóðernisfylkingar
Manuels Rodriguez. Hann sagði að
árásin á sendiherrabústaðinn hefði
verið gerð til að mótmæla árás
Bandaríkjamanna á Líbýu 15. apríl
og stuðningi Bandaríkjastjórnar við
skæruliða í Nicaragua. Maðurinn
sakaði Ronald Reagan, Bandaríkja-
forseta, einnig um að senda ráð-
gjafa til að aðstoða lögregluna í
Chile.
Mörg hundruð hermenn fóru í
fátækrahverfi í Santiago eftir
sprengingarnar að leita að vopnum.
Rafmagn var tekið af og símum
lokað meðan á leitinni stóð. Um
þijúhundruð menn voru teknir til
yfirheyrslu.
A mánudag biðu einn lögreglu-
maður og þrír meintir skæruliðar
Hertogaynjan af Windsor borin tilgrafar
Hertogaynjan af Windsor var jarðsett í fyrradag í Forgmor-garðinum í Windsor, að viðstaddri bresku konungs-
fjölskyldunni. Hér sést kistan borin úr kapellu heilags Georgs í Windsor af mönnum úr velska lífverðinum og
breska konungsfjölskyldan fylgir á eftir. Talin frá vinstri: Karl Bretaprins, Elísabet Englandsdrottning, Filipus
prins, maður hennar, móðir drottningar og Anna prinsessa.
—— ______________________
„Ibúar á Austur-Timor
fái að ákveða framtíð sína“
Krafa okkar að Indónesar fari með herlið sitt á
brott, segir José Ramon Horta, erindreki Fretilin
„ÉG ER hingað kominn til að þakka ríkisstjórn íslands fyrir stuðning
við Austur-Timor á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og jafnframt leita
eftir því, hvort við megum vænta þess að framhald verði á honum,“
sagði José Ramon Horta í samtali við blaðamann Morgunblaðsins.
Horta, sem er áheymarfulltrúi Fretilin-samtakanna á Austur-Timor
á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna, dvaldi hér á landi fyrr í
vikunni og átti viðræður við embættismenn í utanríkisráðuneytinu,
auk þess sem hann kynnti fjölmiðlum ástandið í heimalandi sínu.
ember nk. væri Austur-Timor á
dagskrá, en óvíst hvemig á því máli
yrði tekið. Benti Horta á, að hlut-
lausu ríkin eða hin svonefndu þriðja
heims ríki ættu auðvelt með að
fordæma nýlendustefnu vestrænna
ríkja, en treystu sér naumast til að
horfast í augu við nýlendustefnu í
eigin röðum, s.s. nýlendustefnu
Indónesa eða Eþíópíumanna.
bana.
José Ramon Horta
Morgunblaðið/Emilía
Austur-Timor var nýlenda Port-
úgala fram til 1975, en þegar þeir
fóm á brott sendu stjómvöld í ná-
grannaríkinu Indónesíu her inn í
landið til að koma í veg fyrir að
Fretilin-sjálfstæðishreyfingin kæm-
ist til valda. Hafa Indónesar ráðið
Austur-Timor frá því í júlí 1976,
en allan þann tíma hafa þeir átt í
bardögum við skæruliða Fretilin,
sem segjast ráða nokkrum hluta
landsins.
Horta sagði, að Sameinuðu þjóð-
irnar hefðu árið 1975 samþykkt
samhljóða ályktun um málefni
Austur-Timor, þar sem Indónesar
em hvattir til að fara her sinn á
brott. Indónesar hefðu virt þá
samþykkt að vettugi og Sameinuðu
þjóðimar hefðu ekki reynst megn-
ugar að fylgja ályktun sinni eftir.
Ríki eins og Bretland, Bandaríkin
og Frakkland, sem fordæmt hefðu
innrás Indónesa 1975, styddu nú
stjómvöld þar og treystu sér ekki
lengur til að samþykkja tillögur um
sjálfstæði Austur-Timor á Allsheij-
arþinginu. Sömu sögu væri að segja
af Norðurlöndunum, öðmm en Is-
landi. Kvað Horta það helstu við-
bámna, að Fretilin-samtökin væm
höll undir kommúnisma og Sovét-
menn eða Kínveijar kynnu að ná
fótfestu í landinu ef Indónesar fæm
á brott. „Þetta em hins vegar al-
rangar ásakanir," sagði Horta.
„Fretilin stefnir að fjölflokkaskipu-
lagi og innan þess em margvíslegir
skoðanahópar, þ.á m. kommúnistar
og fijálslyndir, en öflugastir em
jafnaðarmenn. Krafa okkar er, að
fólkið á Austur-Timor fái sjálft að
ákveða framtíð sína í almennri
atkvæðagreiðslu, en henni hefur
verið hafnað af stjóm Indónesíu,
sem veit að Fretilin myndi vinna
yfírburða sigur."
Horta sagði, að hernaður Indó-
nesa gegn íbúum á Austur-Timor
væri keyptur dým verði. Ætlað
væri, að kostnaðurinn næmi á degi
hveijum einni milljón bandaríkja-
dollara o¥ ár)ega_fellu 6^200
hermenn stjómarinnar. Um 20-30
þúsund indóneskir hermenn tækju
þátt í viðureigininni við skæmliða
Fretilin, sem væm um 3 þúsund
að tölu. Sjálf ætti stjóm Súhartos
á Indónesíu í miklum erfiðleikum
og næmu erlendar skuldir landsins
40 milljörðum dollara. Mannréttindi
væm þar fótum troðin og minnsta
gagnrýni á stjómvöld kæfð í fæð-
ingu.
Horta kvað erindreka Fretilin
vinna að því að miðla upplýsingum
um ástandið á Austur-Timor til
fjölmiðla og alþjóðasamtaka og
þeim hefði tekist að fá sjálfstæðis-
baráttu sína tekna fyrir á vettvangi
Samtaka hlutlausra ríkja. A fundi
samtakanna í Harare í ágúst-sept-
Heimsmeistaraeinvígið í skák:
Schmidt yfirdómari
Luzern, Sviss. AP.
STÓRMEISTARINN Lothar
Schmidt frá Vestur-Þýskalandi
hefur verið útnefndur yfirdóm-
ari í heimsmeistaraeinvíginu í
skák á milli Garris Kasparov
núverandi heimsmeistara og
áskorandans Anatolys Karpov.
Einvígið hefst í Lundúnum 28.
júlí og verða tólf fyrstu skákim-
ar tefldar þar, en síðan verður
einvígið færttil Leningrad.
Schmidt er íslendingum að góðu
kunnur frá því að hann dæmdi í
einvígi Fischers og Spassky í
Reykjavík 1972. Aðstoðardómarar
hafa einnig verið útnefndir. Þeir
verða í Lundúnum þeir Lembit
Vakhesaar frá Sovétríkjunum og
Jivko Kaikamdzonov frá Búlgaríu
og í Leningrad þeir Miroslav Filip
frá Tékkóslóvakíu og Robert Wade
frá Englandi.
Svíþjóð:
o
Ake Gunnars-
son leiddur
fyrir vitni á ný
Stokkhólmi. AP.
ÁKE Gunnarsson, maðurinn,
sem handtekinn var eftir
morðið á Olof Palme forsætis-
ráðherra og síðar látinn laus,
var á nýjan leik leiddur fyrir
vitni í málinu á mánudag, að
sögn lögreglunnar.
Lögreglan sagði, að þetta væri í
annað sinn á tveimur dögum, sem
hann hefði samþykkt að koma fram
fyrir vitni. Hinn 33 ára gamli Svíi
er eini maðurinn, sem formlega
hefur verið handtekinn, frá því að
rannsókn málsins hófst 28. febrúar
sl. Hann var hnepptur í gæsluvarð-
hald um miðjan mars, en látinn laus
fimm dögum síðar, þar sem vitni
báru ekki kennsl á hann.
Talsmaður lögreglunnar, Leif
Hallberg, sagði, að Áke hefði verið
leiddur fyrir „mörg vitni“ og hann
hefði komið fram einn síns liðs.
„Það eru enn nokkur vafaatriði,
sem snerta þennan mann, og það
er mikilvægt að varpa ljósi á þau,“
sagði Hans Holmer, lögreglustjóri
í Stokkhólmsborg og formaður
rannsóknarnefndarinnar, í viðtali
við TT-fréttastofuna á mánudag.
A þriðjudag sagði Holmer á fundi
með fréttamönnum, að tilraun þessi
hefði engan árangur borið.
Vetrarbrautin er
minni en talið var
Washington, AP.
VETRARBRAUTIN er miklu minni en áður var talið og sólin
og reikistjörnurnar eru nær miðju hennar en nokkur hefur látið
sér til hugar koma. Skýrðu stjörnufræðingar frá þessu fyrir
nokkrum dögum.
Vísindamennimir, sem notuðu
nýjar aðferðir við að mæla fjar-
lægðir, telja nú, að Vetrarbrautin,
gormlaga stjörnuþoka með 200
milljörðum stjama, sé 70.000 ljós-
ár í þvermál en ekki 100.000 eins
og áður var haldið. Við þessar
mælingar voru notaðir útvarps-
sjónaukar í Nýju Mexíkó, Vestur-
Virginíu, Massachusetts og Kali-
fomíu og auk bandarískra vís-
indamanna unnu að rannsóknun-
um starfsbræður þeirra í Frakk-
landi og Svíþjóð.
Dr. Mark J. Reid, útvarps-
stjömufræðingur við Smithson-
ianstjamfræðistofnunina í Cam-
bridge í Massachusetts, skýrði
nýlega frá því, að þegar beitt
væri nýjum stærðfræðiaðferðum
" ■ ■........—................
kæmi í ljós, að sólin væri í 23.000
ljósára fjarlægð frá miðju Vetrar-
brautarinnar. í rúma tvo áratugi
hefur því verið haldið fram, að
fjarlægðin væri allt að 33.000
ljósár. Búist er við, að þessar nýju
niðurstöður muni hafa mikil áhrif
á ýmsum sviðum stjömufræðinn-
ar.
Fyrri fjarlægðarmælingar fól-
ust í því að athuga mismunandi
endurskin frá himinhnöttum en
vegna þess, að gas og ryk byrgir
mönnum sýn til miðju Vetrar-
brautarinnar, er þessi aðferð held-
ur óáreiðanleg. Að þessu sinni
fundu vísindamennimir sér við-
miðunarpunkt, sem var svæði með
nýbomum stjömum nærri Vetrar-
brautarmiðju. Kallast það Sagitt-
• mmt aa
Stjörnuþokan Andromeda. Hún er 150.000 ljósár i þvermál eða
helmingi breiðari en Vetrarbrautin.
arius B2 og fannst fyrir skömmu.
Umhverfis svæðið er gas og ryk,
sem þenst mjög hratt út, og í
ystu lögunum em fyrirbrigði, sem
kallast vatnsmeysar. Vatnsmeys-
ar gefa frá sér örbylgjur, sem
útvarpssjónaukar á jörðu geta
numið. Með því að mæla hreyf-
ingu meysanna var unnt að meta
fjarlægðirnar nákvæmlega.
"T-
—