Morgunblaðið - 01.05.1986, Qupperneq 45
Skoðanakönnun DV um helgina
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 1986
45
Forskot D-listans
Aldrei meira úrval
minnkar í Reykjavík
FORSKOT D-listans, lista Sjálf-
stæðisflokksins við borgarstjórn-
arkosningarnar, sem fram eiga
að fara hinn 31. maí næstkom-
andi, hefur minnkað í skoðana-
könnun DV, sem fram fór um
síðustu helgi miðað við könnun-
ina, sem blaðið stóð fyrir í jan-
úar. Sé tekið mið af þeim, sem
spurðir voru og afstöðu tóku i
skoðanakönnuninni nú fær Sjálf-
stæðisflokkur 65,5% atkvæða, en
fékk í skoðanakönnun blaðsins í
janúar síðastliðnum 69,9%. Við
siðustu borgarsljórnarkosningar
fékk D-Iistinn 52,5% greiddra
atkvæða.
Niðurstöður skoðanakönnunar-
innar nú voru að af 236 manns
sögðust 11 kjósa Alþýðuflokkinn
eða 4,7%, 2 sögðust kjósa Fram-
sóknarflokkinn eða 0,8%, 91 sagðist
kjósa Sjálfstæðisflokkinn eða
38,6%, 26 sögðust kjósa Alþýðu-
bandaíagið eða 11%, 9 sögðust
kjósa kvennalista eða 3,8%, 63 voru
óákveðnir eða 26,7% og 34 vildu
ekki svara eða 14,4%.
Ef aðeins eru teknir þeir, sem
tóku afstöðu verða hlutfallstölur
flokkanna þessar. Innan sviga eru
niðurstöður úr skoðanakönnun DV
frá því í janúar. Alþýðuflokkur fengi
7,9% (2,9), Framsóknarflokkur
fengi 1,4% (2,2%), Sjálfstæðisflokk-
ur fengi 65,5% (78,8%), Alþýðu-
bandalag fengi 18,7% (13,1%),
Kvennalisti fengi 6,5% (2,9%) og
Flokkur mannsins komst ekki á
blað, hvorki nú né í janúarmánuði.
Klúbbur „Upp og niður“:
Brot á þagnarskyldu
varðar brottrekstri
í AUGLÝSINGU frá skemmtistaðnum „Upp og niður“ í Morgun-
blaðinu í gær er boðuð stofnun klúbbs í tengslum við staðinn og
segir í auglýsingunni, að þagnarskylda skuli í hávegum höfð; ef
meðlimur í klúbbnum fari að blaðra um starfsemina í húsinu, sé
heimilt að svipta hann aðildarkorti. Morgunblaðið snéri sér til Vil-
hjálms Svans Jóhannssonar eiganda „Upp og niður“ og spurði hann
hverju þetta sætti.
„Tíðkast ekki í dag, að menn láti
kyrtt liggja, það sem aðrir leyfa
sér?“ spurði Vilhjálmur á móti.
— Er þá eitthvað ólöglegt við
starfsemina?
„Nei, alls ekki. Menn, sem eru
með vott af siðgæðisvitund þurfa
ekki að vera að brjóta lög. Ef ég
er fullur einhvers staðar, þá get ég
beðið þig að þegja yfir því, en ég
er ekki að brjóta lög. Það er ekki
verið að stofna neinn klámklúbb eða
spilaklúbb og þér er velkomið að
koma og fylgjast með. Klúbburinn
gengur út á það að hingað komi
fólk, sem vill sameinast um að
skemmta sér,“ sagði Vilhjálmur.
Hann bætti því við, að gróusögur
væru bornar út um það, sem fram
færi í húsinu, „og þeir, sem það
gera, eiga ekkert að vera hér inni“.
Karlakórinn Fóstbræður:
Söngferð um Norðurland
KARLAKÓRINN Fóstbræður, sem
í ár heldur upp á 70 ára afmæli
sitt, heldur í söngferð um Norður-
land dagana 1.—4. maí nk. og
heldur tónleika á eftirtöldum stöð-
um: 1. maí kl. 15:00 — Hvamms-
tangi, félagsheimilið. 1. maí kl.
20:30. — Sauðárkrókur, Bifröst.
2. maí kl. 20:00 — Sigíufjörður.
3. maí kl. 14:00. — Aðaldalur, ídal-
ir. 4. maí kl. 17:00. — Akureyri,
Akureyrarkirkja.
Aðgöngumiðar verða seldir við
innganginn á öllum stöðum. Stjóm-
andi Fóstbræðra er Ragnar Bjöms-
son. Undirleik á píanó annast Lára
Rafnsdóttir.
Einsöngvarar með kórnum á tón-
leikunum verða Bjöm Emilsson og
Eiríkur Tryggvason, báðir úr röðum
kórsins, og Þuríður Baldursdóttir,
sem syngur einsöng með kómum á
tónleikunum í Aðaldal og á Akureyri.
Á efnisskrá tónleikanna, sem er
mjög fjölbreytt, eru lög eftir innlend
og erlend tónskáld og þjóðlög og má
sem dæmi nefna Brennið þið vitar
eftir Pál ísólfsson, Bolero eftir Ravel,
Stenka Rasin, rússneskt þjóðlag og
Hirðingja eftir Robert Schumann.
Á tónleikunum í Aðaldal og á
Akureyri flytur kórinn ásamt Þuríði
Baldursdóttur altraphsodíu eftir
Brahms, en kórinn tók þátt í flutningi
þessa verks í janúar sl. í Reykjavík
og víðar með íslensku hljómsveitinni.
Undirleik í þessu verki annast Lára
Rafnsdóttir píanóleikari.
Auk hins starfandi kórs munu
koma fram á tónleikunum á
Hvammstanga, Sauðárkróki, Siglu-
firði og í Aðaldal, tvöfaldur kvartett
úr röðum kórmanna, er kallar sig
Átta Fóstbræður og flytur tónlist af
léttara tagi. Sönghópur þessi hefur
starfað í 2 ár og komið víða fram
bæði á skemmtunum Fóstbræðra og
á öðrum samkomum í Reykjavík.
Fréttatilkynning
Tónleikar í
Norræna húsinu
TÓNLEIKAR Bergþóru Árna-
dóttur sem haldnir voru í Nor-
ræna húsinu sumardaginn fyrsta
verða endurteknir fimmtudags-
kvöldið 1. maí i Norræna húsinu
kl. 20:45.
Á tónleikunum flytur Bergþóra
svipaða efnisskrá og á þeim fyrri,
eigin lög, gömul og ný. Gestir
hennar verða þeir sömu, en það eru
foreldrar hennar, Aðalbjörg M. Jó-
hannsdóttir og Ámi Jónsson úr
Hveragerði. Aðalbjörg leikur á
munnhörpu, Árni á gítar og Berg-
þóra aðstoðar þau með harmonikku.
Þá mun dóttir Bergþóru, Birgitta
Jónsdóttir, flytja eigin ljóð. Þeim
sem fengu boðskort í hendur á fyrri
tónleikana en gátu ekki nýtt sér
það, skal bent á að þau gilda einnig
á þessa tónleika.
(Úr fréttatilkynningu)
JlfotgmiÞIafetfe
Metsölublcidú hverjum degi!
Stjórnendur fyrirtækja - tölvudeilda - rekstrarráðgjafar
SKYLOA OGÁBYRGB STJORNENDA FYRIRTÆKJA
Síðastliðin 2-3 ár hefur orðið mjög ör þróun í þá átt að stjórnendur hafi
meiri afskipti af nýtingu upplýsingatækninnar. Jafnframt því er farið að
leggja áherslu á að í stefnumótun fyrirtækja verði tekið mið af framtíðar-
nýtingu tækninnar. Flestir sem um þessi mál fjalla álíta að hæfileiki stjórn-
anda til að samhæfa upplýsingatæknina stefnumótun fyrirtækis komi til
með að ráða úrslitum um framgang fyrirtækja næsta áratug.
Markmið: Námskeiðið leitast við að skapa stjórnendum þann grunn sem
til þarf til að geta farið að stjórna þróun upplýsingatækninnar og samhæfa
notkun hennar stefnumótun fyrirtækisins.
Efni:
1. Möguleikar upplýsingatækninnar.
2. Fyrirtækið, þarfir þess og stefnumótun.
3. Stjórnendur, verkefni þeirra og ábyrgð.
4. Starfsfólk, menntunarþörf þess og áhrif á þróunina.
5. Upplýsingadeildin, skipulag hennar og starfsaðferðir.
Auk þessa mun sérstaklega vera tekið fyrir hugtakið Strategic Information
Systems (SIS), sem notað hefur verið sem heiti á nýju viðhorfi til nýtingar
upplýsingatækninnar.
Þátttakendur: Námskeiðið miðast við það að þátttakendur séu stjórnend-
ur, rekstrarráðgjafar eða stjórnendur tölvudeilda.
Uppbygging; Námskeiðið verður byggt upp á fyrirlestrum, verkefnum og
hópumræðum.
Leiðbeinandi: Guðjón Guðmundsson rekstrarráð-
gjafi hjá Rekstrarráðgjöf og stundakennari í við-
skiptadeild H. í. Hann lauk prófi í viðskiptafræði frá
H. í. 1977 starfaði við framkvæmdastjórn til 1982 og
lauk Cand. Merc. prófi, með séráherslu á ráðgjöf um
upplýsingakerfi sem sérsvið frá Verslunarháskólan-
um í Kaupmannahöfn árið 1984.
Tími: 13.-14. mai kl. 13.00-19.00.
Stjórnunarfélag
íslands
Ánanaustum 15 • Sími: 621066