Morgunblaðið - 01.05.1986, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 01.05.1986, Blaðsíða 58
58 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR1. MAÍ1986 Glæsilegt hjólhýsi, árg. 1982, til sölu Hjólhýsið er staðsett í Þjórsárdal á mjög vinsælum vernduðum stað. í húsinu er stálgrind klædd með hamraðri álklæðningu, hvítri að ofan en dökk- brúnni að neðan. í því er ísskápur, þriggja hellu eldavél, mjög góður ofn, fataskápur og cúmgóðar geymslur. Allt sem nýtt. Auk þess fylgir 9m* 1 2 3 4 5 6 7 tré- pallur, fortjald, 2 rafgeymar, 11 kg gashylki, sjón- varpsloftnet, útivaskur, rennandi vatn ofl., ofl. Verð kr. 400.000.- Allar nánari uppl. í símum 25930 á daginn og 688357 á kvöldin. Um leið og við minnum á síðustu leikviku vil jiun við )akka öDum )átttakendum yrir veturinn og þann stuðning sem þeir hafa þar með veitt íþróttahreyfingunni á Islandi. Oldrunarþjónusta - get- um við lært af öðrum? ÍSLENSKAR GETRAUNIR eftir Sigvrveigv H. Sigurðardóttur Vandamál sjúkra aldraðra hafa verið mikið til umræðu í fjölmiðlum undanfarið. Talað er um neyðar- ástand og langa biðlista fólks, sem bíður eftir því að komast á hjúkr- unarheimili. Skiptar skoðanir eru á því hvemig bregðast eigi við þess- um vanda og sýnist sitt hverjum. Hér á landi eru margir aðilar sem vinna að málefnum aldraðra en samvinna mætti vera meiri. Til að þessum málaflokki verði sem best fyrirkomið er nauðsynlegt að líta í kring um sig og skoða hvað ná- grannar okkar eru að gera í þessum málum. Ástæðulaust er að taka allt upp eftir öðrum en íslendingar eru heldur ekki svo einstakt fyrirbæri að þeim hæfí ekki öldrunarþjónusta sem öðrum reynist best. Síðastliðið haust fékk greinar- höfundur tækifæri til að kynna sér hvemig öldmnarþjónustu er háttað í Motala í Svíþjóð. Sá staður varð fyrir valinu vegna þess að þar þykir öll öldrunarþjónusta vera til fyrir- myndar, baeði hagkvæm í rekstri og mannúðleg. Borgin Motala er við austur- strönd Váttems í u.þ.b. miðri Sví- þjóð. Motala og fjögur önnur sveit- arfélög tilheyra sama heilsugæslu- umdæmi og búa þar um 87.000 íbúar. í umdæminu eru um 19% íbúanna 65 ára og eldri en það er nokkuð hærra en meðaltalið í Sví- þjóð, sem er 17%. Á íslandi er meðaltalið 10%. Aðalsjúkrahúsið er staðsett í Motala. Þar eru skurð- deildir, lyflæknisdeildir, kvenna- deildir auk öldrunarlækningadeild- ar, (lángvárdsklinik). Sjúkrahúsið var tekið í notkun árið 1970 og eru þar alls 567 legupláss. •• Oldrunarlækn- ing'adeildin Þessi deild er eins konar mið- punktur öldrunarþjónustunnar og segja má að þar slái „hjarta" allrar þjónustunnar á svæðinu. Deildin hefur yfímmsjón með fímm hjúkr- unarheimilum og dagspítölum en allar ákvarðanir um innlagnir og aðra þjónustu em teknar þar. Yfír- læknir deildarinnar, Barbro Beck- Friis er yfírmaður allrar þeirrar þjónustu sem deildin veitir. Beiðni um innlagnir eða aðstoð berast frá heilsugæslulæknum, heimilishjálp og heimahjúkmn. Á hveijum degi er haldinn stuttur fundur og þar er skýrt frá lausum plássum, bæði á deildinni og á hjúkrunarheimilun- um og ákvörðun tekin um hver fari í hvaða pláss sem losnað hefur. Reynt er að taka tillit til vilja sjúkl- ings og aðstandenda hans um inn- lagnir. Fundi þessa sitja yfirlæknir, deildarlæknar, deildarhjúkmnar- Sigurveig H. Sigurðardóttir „Það væri óskandi að ráðamenn hér á Islandi leiddu hugann að nýj- um leiðum í öldrunar- þjónustu, mannúðlegri og oft hagkvæmari. Við þurfum að geta boðið okkar aldraða fólki upp á fleiri valmöguleika í þjónustu. Það á það skilið af okkur.“ fræðingar og félagsráðgjafar auk sjúkraliða og iðjuþjálfa. Með sam- hæfðri ákvarðanatöku fæst góð yfírsýn yfír vistrýmastöðuna frá degi til dags og góð nýting er á plássunum, því ekkert rúm stendur autt. Sá sem er í mestri þörf fær það pláss sem losnar. Mikil áhersla er lögð á samspil hinna ýmsu þátta öldmnarþjónustunnar og stuðlað er að því að aldraðir einstaklingar fái að búa heima svo lengi sem þeir sjálfír óska. Athyglisvert er að enginn þarf að vera heima nema hann óski eftir því sjálfur. Á deildinni em 194 rúm en 6 þeirra em neyðarrúm ætluð þeim sjúklingum sem em á vegum henn- ar í heimahúsum. Þannig er öryggi aldraðra sjúklinga sem vilja dvelja heima tryggt og alltaf hægt að komast inn á deildina þegar þörf krefur. Þeir sjúklingar sem veikjast skyndilega á hjúkmnarheimilum em einnig fluttir á deildina. Auk ákvarðana um innlagnir em á fyrr- nefndum fundum teknar ákvarðanir um hjálpartæki sem sjúklingar þurfa að fá, en einnig um styrki til aðstandenda sem óska eftir að annast deyjandi ættingja síðustu vikumar. Þannig getur t.d. að- standandi tekið sér frí frá vinnu og verið heima og annast foreldra sína í 3—4 vikur. Styrkur þessi er veittur þegar augljóst er að sjúklingur á Patreksfjörður: Samþykktur listi hjá Alþýðuflokknum LISTI Alþýðuflokksins fyrir hreppsnefndarkosningarnar í Patrekshreppi í lok maí hefur verið ákveðinn. Listinn er þannig skipaður: 1. Hjörleifur Guðmundsson for- maður Verkalýðsfélags Pat- reksfjarðar, 2. Bjöm Gislason byggingameist- ari, 3. Guðfínnur Pálsson bygginga- meistari, 4. Ásthildur Ágústsdóttir hús- móðir, 5. Guðný Pálsdóttir húsmóðir, 6. Ragnar Fjeldsted stýrimaður, 7. Gréta R. Snæfells bankastarfs- nTaður, 8. Asta S. Gísladóttir ljósmóðir, 9. Erla Þorgerður Ólafsdóttir hjúkmnarfræðingur, 10. Leifur Bjarnason slökkviliðs- stjóri, 11. Sigurður Bergsteinsson vél- stjóri, 12. Gróa Ólafsdóttir húsmóðir, 13. Jóhanna Leifsdóttir fóstra, 14. Páll Jóhannesson bygginga- meistari, Framboð til sýslunefndar: aðal- maður Ágúst H. Pétursson skrif- stofumaður. Til vara Bjami Þor- steinsson verkstjóri. Aiþýðuflokkurinn á tvo menn í hreppsnefnd nú, þá sömu og skipa tvö efstu sæti listans yið- kosning- amarfvor. ekki langt eftir og aðstandendur hans óska sjálfir eftir að annast hann. Þessir sjúklingar fá samt sem áður alla hugsanlega heimilisþjón- ustu, m.a. frá sjúkrahústengdu heimahjúkmninni. Við deildina er starfrækt síma- ráðgjöf og getur hver sem er hringt þangað og fengið svör við spuming- um sínum varðandi öldmnarþjón- ustu. Sjúkrahústengd heimahjúkrun Einn merkilegasti þáttur þessar- ar þjónustu er sjúkrahústengd heimahjúkmn. Markmið þeirrar hjúkmnar er að gefa langlegusjúkl- ingum kost á að vera heima eins lengi og þeir sjálfír og ættingjar þeirra óska. Hún veitir sömu hjúkr- un og þjónustu í heimahúsi og veitt er á sjúkrahúsi. Jafnvel er hægt að fá rúmfot sjúklings þvegin á deildinni. Hjúkmnarfræðingar og sjúkraliðar fara eins oft og þurfa þykir í vitjun til sjúklingsins jafnt á nóttu sem degi. Starfsfólkið ber á sér kalltæki og er hægt að kalla það upp og biðja um aðstoð hvenær sem er sóiarhringsins. Vakthafandi læknir deildarinnar fer einnig í vitjanir ef þess gerist þörf. Þeir sjúklingar sem njóta þessarar þjón- ustu geta fengið pláss á deildinni hvenær sem er og veitir hún því sjúklingnum og aðstandendum hans ómetanlegt öryggi. Sjúkrahústengda heimahjúkmn- in fyrirbyggir, seinkar og kemur oft í veg fyrir stofnanavist. Þessi þjónusta er veitt í allt að 20 km fjarlægð frá sjúkrahúsinu. Starfs- fólk hefur bílaleigubíla til umráða og em minnst tveir á vakt. Sjúkling- ar sjúkrahústengdu heimahjúkr- unarinnar fá flestir heimilishjálp sem stjómað er af sveitarfélaginu. Góð samvinna er milli þessara aðila, enda er það forsendan fyrir því að hægt sé að veita sjúklingum góða og ömgga þjónustu. Ættingjar gegna einnig stóm hlutverki í umönnun sjúklinganna en alltaf þó af fijálsum vilja. Þess má þó geta að 43% þeirra sjúklinga sem njóta aðstoðar sjúkrahústengdu heima- hjúkmnarinnar búa einir. 18% sjúklinganna koma á dagspítala. Það virtist vera samdóma álit starfsfólks deildarinnar og þeirra sjúklinga sem ég ræddi við að þessi þjónusta hefði gefið mjög góða Baltzargárden Þáð nýjasta í öldmnarþjón- ustunni í Motala er stofnun sambýl- is fyrir aldrað fólk með elliglöp. Sambýli þetta er í stóm gömlu einbýlishúsi og nefnist það Balt- zargárden. Það var opnað til reynslu í febrúar 1985. Á heimilinu búa 6 manns, 4 konur og 2 karlar en auk þeirra koma þangað 3 daggestir sem njóta þar þjónustu. Þessir einstaklingar em allir full- rannsakaðir læknisfræðilega og hafa fengið sjúkdómsgreininguna senil demens. Þeir hafa allir góða hreyfífærni en em að mestu leyti „út úr heiminum“. Það var þó gert að skilyrði að þeir þekktu allir nafnið sitt. Ákveðið var að Baltzargárden yrði starfræktur í tvö ár til að byija með í tilraunaskyni. Markmiðið með þessari starfsemi er m.a. að finna nýtt vistunarform fyrir aldrað fólk með elliglöp og veita stuðning sem kemur í veg fyrir eða frestar stofn- anavist og gefur betri möguleika á örvun og hvatningu. Einnig er reynt að auka skilning á þeim erfíðleikum sem elliglöp hafa í for með sér og spoma við áframhaldandi minnis- tapi og áttunarleysi. Heimilið er búið húsgögnum frá 1950, eða frá þeim tíma sem þessir sjúklingar vom upp á sitt besta. í meðferðinni er notuð sk. Reality Orientation eða ^áttunarþjálfun og .er ^tarfsfólkið. mjög áhugasamt um að vekja áhuga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.