Morgunblaðið - 01.05.1986, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 1986
59
fólksins á umhverfinu. íbúamir fara
gjaman í gönguferðir með starfs-
fólkinu t.d. til að versla.
Að mati starfsfólks og ættingja
íbúa sambýlisins hefur dvölin á
heimilinu breytt miklu fyrir þetta
aldraða fólk. Flestir höfðu verið
órólegir og erfíðir í umgengni og
einangraðir í eigin hugarheimi.
Flestir vættu rúmið og notuðu
svefnlyf. Nú em þeir mun jákvæðari
og rólegri og sofa vel án svefnlyfja.
Nú hefur sambýlið verið starfrækt
í eitt ár og hefur þegar hlotið verð-
skuldaða athygli vegna þess hve
vel hefur tekist til. Verið er að koma
á fót sambýlum sem þessu víða í
Svíþjóð.
Það þykir auðsætt að með réttri
framkomu og markvissri meðferð
er hægt að búa öldruðu fólki með
elliglöp mun manneskjulegra um-
hverfí og viðhalda lengur en ella
því sem eftir er af andlegri getu
þess. Það var stórkostleg upplifun
að fá að dvelja á þessu heimili eina
dagstund og sjá lífsgleði þessa fólks
þrátt fyrir erfíðan sjúkdóm. Rétt
er að geta þess að það kostar um
600 skr. á dag að annast um hvem
mann á Baltzargárden en rúm í
öldrunarlækningadeildinni kostar
1000 skr. ádag.
Nýjar leiðir
Ástæðan fyrir því að farið var
að reyna nýjar leiðir í öldrunar-
þjónustu í Motala var sú, að í kring
um 1975 voru u.þ.b. 300 manns á
biðlista til langleguvistar, auk þess
sem fjöldi langlegusjúklinga var á
lyflæknisdeildum. Til að bæta úr
þessari þörf var ákveðið að reisa
nýja langlegudeild við sjúkrahúsið
með 120 hjúkrunarrýmum. Fram-
kvæmdir við bygginguna voru vel
á veg komnar þegar yfírlæknir
öldrunardeildarinnar fékk því fram-
gengt að í staðinn fyrir langlegu-
deild var opnaður dagspítali og
þjónusta sjúkrahústengdu heima-
hjúkrunarinnar var aukin til muna.
Það sýndi sig fljótlega að hér hafði
verið tekin rétt ákvörðun. Árið 1980
vom varla nokkrir orðnir eftir á
langlegubiðlista. Með aukinni sam-
hæfingu á þjónustu og aukinni
aðstoð í heimahúsum hafði tekist
að sjá öllum fyrir þeirri þjonustu
sem þeir þörftiuðust. Allir voru
ánægðir, yfirmenn sjúkrahússins,
ríkið og sveitarfélögin sem greiddu
þjónustuna og ekki síst þeir öldmðu
og aðstandendur þeirra sem bjuggu
nú við meira öryggi en áður. Það
sannaðist því hér sem víða annars
staðar að þar sem öldmnarþjónust-
an er vel skipulögð er minni þörf
fyrir stofnanaþjónustu.
Það er athyglisvert hve það
starfsfólk sem vinnur við öldmnar-
þjónustuna í Motala er ánægt í
starfí. Yfirlæknir deildarinnar hefur
sagt „Reynið að fá gleði og ánægju
út úr starfí ykkar, mér er sama
hvað þið gerið en ekki hvemig þið
gerið það.“ Það er mjög ánægjulegt
Stykkishólmur:
Dagskrá
háuðar-
fundarins
l.maí
Stykkishólmi.
VERKALÝÐSFÉLAG Stykkis-
hólms fagnar 1. mai með hátíðar-
fundi í félagsheimilinu þar sem
lúðraveit Stykkishólms leikur
undir stjóm Daða Þórs Einars-
sonar. Fundurinn hefst kl. 14.
Ræðu dagsins flytur Sólrún Júl-
íusdóttir húsmóðir, en leikfélagið
Grímnir mun sjá um skáldakynn-
ingu og minnast Sigurðar Breið-
§örð en hann var fæddur í Rifgirð-
ingum á Breiðafirði og búsettur um
árabil í Stykkishólmi. Þá verður
einnig lesið úr gömlum blöðum
Verkalýðsfélagsins. Kvenfélagið
Hringurinn hefur kaffísölu í Freyju-
lundi klukkan 15—17 um daginn. Á
miðvikudagskvöldið verður
skemmtun á vegum Hótels Stykkis-
hólms, þar sem Ómar Ragnarsson
mætir.meðal annarra. — Ámi.
fyrir starfsfólkið að vita að ef veikur
einstaklingur þarfnast aðstoðar er
alltaf úrræði til að koma til móts
við þarfír hans og óskir.
Það væri óskandi að ráðamenn
hér á Islandi leiddu hugann að nýj-
um leiðum í öldrunarþjónustu,
mannúðlegri og oft hagkvæmari.
Við þurfum að geta boðið okkar
aldraða fólki upp á fleiri valmögu-
leika í þjónustu. Það á það skilið
af okkur.
Höfundur er yfirfélagsráðgjafi
við Öldrunarlækningadeild Land-
spítaians.
Morgunblaðið/Jón Sig.
Söfnuðu á
Blönduósi
Blönduósi
ÞESSAR ungu stúlkur á
Blönduósi efndu a dögunum til
hiutaveltu til styrktar starfi
Hjálparstofnunar kirkjunnar.
Þær söfnuðu alls 705 kr. Þeir
heita, talið frá vinstri: Elfa
Þöll Grétarsdóttir og Sunna
Gestsdóttir.
SYNING UM HELGINA
Við kynnum SPÚT húsgógnin sérstaklega nú um helgina,
LAUGARDAG ki. 10 til 14. SUNNUDAG kl. 13 til 17.
Afar sérstœður stíll sem nú
heldur innreið sína ú markaðinn.
Stíllinn mótast fyrst og fremst af
miklum kröfum til útlits og notagildis.
Helstu einkenni SPLIT húsgagna eru:
FJÖLNOTAGILDI: ______________
Flestar einingarnar geta gegnt fleiri en einu hiutverki.
Með breytingum ú þeim getur setustofan breyst í
borðstofu, borðstofan í vinnustofu o.s.frv._
SPUT RÚMAST VEL:_____________________
Ummói hverrar einingar er furðu Iftið miðað við
notagildið._ ________________
ÞÆGINDI:_____________________________
Með púðum, pullum og kollum SPLfT eininganna velur
pú þér þú stelllngu sem notalegust er hverju slnni.
HOLLUSTA:
Stuðnlngspúðar eru fœranlegir. Unnt er oð stilla þó
og festa í mismunandi hœð. þannig oð þeir styðji við
húls eðo bak hvers og eins ó réttan hútt.
Aðrar verslanir ó Laugavegi 13 verða opnar til vörukynninga á sama tfma.
MARIMEKKO tískusýning kl. 15 á sunnudag.
KRISTJRO SIGGEIRSSOn
LAUGAVEG113, REYKJAVÍK, SÍMI 25870