Morgunblaðið - 01.05.1986, Side 69
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR1. MAÍ 1986
69
Selfossdeild samtaka um jafnrétti milli landshluta:
Landsbyggðin öðlist
stærri hlut í eign aflafé
SELFOSSDEILD Samtaka um
jafnrétti milli landshluta hélt
fund í Inghól á Selfossi þriðju-
daginn 8. apríl sl. þar sem m.a.
voru kynnt drög að frumvarpi
um stjórnarskrárbreytingu sem
samtökin hafa unnið. Auk þess
var fjallað um þau málefni sem
samtökin hafa á stefnuskrá sinni,
jafnrétti milli landshluta og
stöðu Iandsbyggðarinnar. Fram-
sögumenn á fundinum voru Arni
S. Jóhannsson, Sjöfn Halldórs-
dóttir, Óli Þ. Guðbjartsson, Guðni
Agústsson, Pétur Valdimarsson
og Ólafur Þ. Þórðarson. Um 100
manns sóttu fundinn og voru þar
í hópi alþingismenn og sveitar-
stjórnarmenn.
Framsögumenn fundarins voru
sammála um það að gera þyrfti
grundvallarbreytingar til þess að
hlutur landsbyggðarinnar væri rétt-
ur gagnvart höfuðborgarsvæðinu.
Arni S. Jóhannsson benti á að
þrátt fyrir mikla umræðu hefði lítið
gerst í þá átt að breyta því að fólk
flyttist frá landsbyggðinni. Hann
sagði miðstýringu aðalorsökina.
Afnema þyrfti hana með stjómar-
skrárbreytingu því stjómmála-
mönnum virtist um megn að gera
það á annan veg. Höfuðatriði væri
að landsbyggðin fengi að njóta þess
sem hún aflaði og að stöðugt og
blómlegt athafnalíf á landsbyggð-
inni væri ekki síður hagsmunamál
höfuðborgarinnar.
Sjöfn Halldórsdóttir kynnti
nokkrar greinar í hinum nýju drög-
um að stjómarskrá og lagði áherslu
á nauðsyn þess að tekið væri fram
í stjórnarskrá landsins að það væri
fijálst og fullvalda lýðveldi og að
lýðræði, þingræði og jafnrétti væm
grundvallarreglur stjómskipunar
landsins.
Óli Þ. Guðbjartsson nefndi í
sinni ræðu nokkur dæmi um mis-
mun milli höfuðborgarinnar og
landsbyggðarinnar og sagði að
þrátt fyrir að í höfuðborginni væri
gefínn afsláttur af fasteignagjöld-
um greiddi fólk þar svipaða upphæð
og fólk á Selfossi þar sem skattur-
inn er í hámarki. Ástæðan væri
hærra fasteignamat í Rvík. Hann
lagði á það áherslu að 90% sjávar-
afla kæmu frá landsbyggðinni og
þá um leið megnið af gjaldeyrisöfl-
un þjóðarinnar. Erlendar skuldir
yrðu aftur á móti til á höfuðborgar-
svæðinu vegna innflutnings. Frelsi
til innflutnings kæmi því svæði til
góða. Aftur á móti væm höft á
útflutningi sjávarafurða. Það væri
hagsmunamál landsbyggðarinnar
að þau höft yrðu afnumin.
Hann kvaðst sannfærður um að
þriðja stjómstigið væri nauðsyn,
færa þyrfti valdið til héraðanna, um
væri að tefla arðinn af atvinnu
fólksins.
Guðni Ágústsson benti á að ríkið
væri burðaraðili hvað snerti helstu
stofnanir og þegar talað væri um
spamað og aðhald kæmi slíkt harð-
ast niður á landsbyggðinni. Höfuð-
setur stofnana og vald væri í
Reykjavík. Hann nefndi sem dæmi
að ef sveitarfélögin sæju alfarið um
menntamál upp að háskólastigi
myndu umsvif ráðuneytisins í
Reykjavík minnka en 60%. Hann
sagði og að svipað gæti átt við um
önnur ráðuneyti. „Fólkið á mörg
störf sem það þarf heim,“ sagði
Guðni.
Pétur Valdimarsson frá Akur-
eyri rakti stofnun samtakanna og
sagði að drögin að stjómarskránni
hefðu verið unnin eftir að menn
hefðu kynnt sér stjómskipan í fjöl-
mörgum löndum. Hann gagnrýndi
stjórnmálaflokkana fyrir að gera
þær einar breytingar á stjómar-
skránni sem vörðuðu kosningar, og
sagði ekki skipta máli hvort þeir
væm til eftir árið 2000 heldur væri
Arni Johnsen alþingismaður í
ræðustól.
það höfuðatriði að setja þjóðinni
grunnlög.
Ólafur Þ. Þórðarson lagði
áherslu á það í máli sínu að enn
lifði þjóðin á gögnum landsins og
gæðum. Hann sagði að tekjuskipt-
ing ríkisins og sveitarfélaga kæmi
í veg fyrir að sveitarfélögin gætu
tekið að sér aukin verkefni. Til þess
að breyta þessu þyrftu sveitarfélög-
in að fá 60% af tekjum ríkisins.
Hann mælti með fylkjaskipan og
benti á að hún væri aðalregla í
Bandaríkjunum og Evrópu. Hann
nefndi dæmi um flutningsjöfnuð
milli sveitarfélaga sem er alls staðar
neikvæður úti um land en aftur
jákvæður á höfuðborgarsvæðinu.
Að loknum framsöguerindum var
orðið gefið fijálst.
Árni Johnsen alþingismaður
andmælti því að tregða alþingis-
manna væri eina ástæðan fyrir því
að menn rægðu stjórnmálaflokk-
ana, þeir væm tæki fólksins til
skoðanaskipta og því nauðsynlegir.
Hann benti á að kerfísbreytingar
væri þörf á ýmsum sviðum til að
laga stöðu landsbyggðarinnar og
benti á að stærsti hluti þeirra sem
stundaði framhaldsnám væri í námi
sem miðaðist við þjónustugreinar.
Hann gagnrýndi fylkjaskipan og
sagði hana einnig leiða til miðstýr-
ingar, sú miðstýring kæmi fram á
annan hátt. Hann sagði fullt svig-
rúm innan gildandi stjómarskrár
að ná samstöðu um málin. Hann
benti á að vandi Suðurlands lægi
Jón Helgason landbúnaðarráð-
herra í ræðustól.
m.a. í hafnleysinu því þar sem
hafnir væm gæti fólk sótt tekjur
bæði til lands og sjávar eftir því
sem hentaði.
Jón Helgason landbúnaðarráð-
herra sagði að forðast þyrfti ein-
földun og benti á að þó svo næg
atvinna væri á Vestfjörðum flytti
fólk þaðan. Hann gagnrýndi fylkja-
skipanina og sagði vafasamt að
tengja Suðurland við Suðurnes, þá
væri hætt við að fram kæmi krafa
um að þjónustukjarnar yrðu í
stærstu þéttbýliskjömunum, Kefla-
vík og nágrenni. Hann mótmælti
því að alþingismenn væm hags-
munagæslumenn eigin valds og
varaði við málflutningi sem ekki
nyti trausts. Hann sagði alþingis-
menn vilja vinna að því að auka
fjölbreytni atvinnulífsins og jafna
aðstöðu fólks í landinu og kvaðst
óska þess að mönnum tækist að
vinna að þeim markmiðum í samein-
ingu.
Meðal þeirra sem til máls tóku
var Jónas Pétursson fyrrverandi
alþingismaður sem sagði róttækra
breytinga þörf til þess að rétta hlut
landsbyggðarinnar við að njóta
aflafjár síns héraðs og þjóðarinnar
í heild.
Margir fleiri tóku til máls og lauk
fundinum ekki fyrr en á þriðja tím-
anum eftir miðnætti. Þeir sem til
máls tóku vom einhuga um að auka
þyrfti hlut landsbyggðarinnar með
eigið aflafé sem viðmiðun.
Sig. Jóns.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SIGRÍÐUR BENJAMÍNSDÓTTIR,
Þúfubarði 11,
Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 2. mai kl.
15.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar
er bent á líknarstofnanir.
Eirikur Smith, Bryndts Sigurðardóttir,
Ingibjörg Ástvaldsdóttir, Hjörleifur Gunnarsson,
Guðbjörg Ástvaldsdóttir, Jón Eðvaldsson,
Garðar Astvaldsson, Sigríður Stefánsdóttir,
Karl Kvaran,
Svanfríður Eyvindsdóttir,
Sigurður Magnússon,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SIGURBORG SVEINSDÓTTIR,
Austurbrún 4,
áður Hjallavegi 34,
verður jarðsungin föstudaginn 2. maí kl. 15.00 frá Áskirkju.
Sveinn Matthíasson,
Rúnar Matthíasson,
Marín Guðveigsdóttir,
Ragnheiður Grétarsdóttir,
og barnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
ELÍNAR SKAFTADÓTTUR,
Sörlaskjóli 56.
Fyrir hönd vandamanna.
Þórhildur Skaftadóttir,
Elfsabet Skaftadóttir.
t
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda vináttu og hlýhug við andlát og jarðar-
för móður okkar, tengdamóður og ömmu,
ELÍSABETAR SIGURÐARDÓTTUR
frá Bóndastöðum.
Sædis Karlsdóttir,
Sigurður Karlsson,
Karl Björnsson,
Hjörleifur Guttormsson,
Margrét Guttormsdóttir,
Ingibjörg Harðardóttir,
Hörður Rögnvaldsson,
Sigfri'ð Guðmundsdóttir,
Kristbjörg Sigurðardóttir,
Guðmundur Karl Sigurðsson,
Margrét Elísabet Harðardóttir,
Katrin Rögn Harðardóttir.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð og vinsemd
við fráfall og jarðarför
FRÍÐAR GUÐNADÓTTUR.
F.h. aðstandenda,
Marteinn B. Björgvinsson.
t
Innilegar þakkir færi ég öllum ættingjum og vinum er auðsýndu
mér samúð og vinarhug við fráfall móður minnar,
MARGRÉTAR ÁRNADÓTTUR,
Skeggjagötu 21.
Guð blessi ykkur öll.
GuðmundurJóhannsson.
t
Alúðarþakkir fyrir vinsemd og samúð við andlát og útför
PÁLS BJÖRNSSONAR,
hafnsögumanns,
Sporðagrunni 12.
Ólöf Benediktsdóttir,
Anna Pálsdóttir, Ragnhildur Pálsdóttir,
Guðrún Guðjónsdóttir, tengdasynir og dætrabörn.
t
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
útför móður okkar, tengdamóöur og ömmu,
SIGRÚNAR JÓNSDÓTTUR,
Flugumýri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Skagfirðinga fyrir hjúkr-
un og umhyggju i langvarandi veikindum.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Við þökkum innilega öllum þeim er auðsýndu hluttekningu við
fráfall
DR. MED. SIGURÐAR SIGURÐSSONAR
fyrrverandi landlæknis.
Sigrún Erla Sigurðardóttlr, Páll Ásmundsson,
Svanhildur Sigurðardóttir, Björn Björnsson,
Guðrún Sigurðardóttir
og barnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
VIGDÍSAR FRÍÐU LÁRUSDÓTTUR.
Aðstandendur.
Lokað
föstudaginn 2. maí vegna jarðarfarar
EINARS EINARSSONAR.
Rafboði hf.