Morgunblaðið - 01.05.1986, Blaðsíða 81
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR1. MAÍ1986
81
# Kenny Dalglish og félagar
hans hjá Liverpool eru nú komnir
með aðra höndina á meistaratitil-
inn. Leika síðasta leik sinn á
laugardaginn gegn Chelsea.
I
Liverpool einum leik
frá meistaratitlinum
— Everton tapaði og West Ham sigraði
Frá Bob Hennessy, fréttaritara Morgunblaðsins í Englandi.
LIVERPOOL færðist nær enska
meistaratitlinum í knattspyrnu er
þeir sigruðu Leicester með
tveimur mörkum gegn engu í
gærkvöldi. Á sama tíma tapaði
Everton fyrir Oxford, 1-0. Með
þessu tapi hefur Everton líklega
gert út um vonir sínar að vinna
deildina í ár. West Ham hólt
áfram sigurgöngu sinni og sigraði
Ipswich, 2-1, á heimavelli og
skaust þar með í annað sæti og
heldur i vonina um titilinn. Liv-
erpool hefur nú forystu með 85
stig og á eftir einn leik, gegn
Chelsea á laugardaginn. West
Ham er með 81 stig og á eftir tvo
útileiki, gegn WBA og Everton,
sem er með 80 stig og á eftir tvo
leiki, gegn Southampton og West
Ham.
lan Rush skoraði fyrra mark
Liverpool gegn Leicester á 19.
mínútu eftir góðan undirbúning frá
Kenny Dalglish. Þetta var 31. mark
Rush á tímabilinu og hans 22.
mark í deildinni. Ronnie Whelan
Norðmenn sigruðu
Argentínumenn 1 —0
Frá Jóni Óttarri Karlssyni, fróttaritara
Morgunblaðsins í Noregi.
NORÐMENN, sem eru i sama riðli og íslendingar Evrópukeppni lands-
liða í knattspyrnu, gerðu sér lítið fyrir og sigruðu Argentínumenn
óvænt, 1-0, f fyrsta leik sínum á þessu ári á Ulleval-leikvanginum í
Osló í gærkvöldi. Kjetil Osvald skoraði sigurmarkið á 82. mínútu.
Þetta varfyrsti landsleikur þessara þjóða íknattspyrnu. Mikil stemmn-
ing var á meðal 15 þúsund áhorfenda sem mættu á völlinn.
Fyrri hálfleikurinn fór nokkuð
rólega af stað og léku bæði liðin
svæðisknattspyrnu. Anders Diska
átti fyrsta umtalsverða marktæki-
færið á 14. mínútu er hann átti
skot á argentíska markið, sem var
bjargað á marklínu. Stuttu seinna
var Andersen brugðið rétt utan
vítateigs. Thorensen, fyrirliði, tók
spyrnuna sem varnarmaður náði
að bjarga naumiega í horn. Argent-
ínumenn vissu varla hvaðan á sig
stóð veðriö í upphafi því þeir höfðu
ekki búist við þessari mótspyrnu.
Þrír efstu í „snookeru-keppninni. íslandsmeistarinn f miðið, Kjartan
Kári honum á vinstri hönd og lengst til vinstri er Gunnar Júlfusson.
11
Snooker11:
Viðar varð
íslandsmeistari
íslandsmótið í „snooker" var
haldið um síðustu helgi og þar
urðu úrslit nokkuð óvænt. ís-
landsmeistari varð Viöar Viðars-
son frá Akureyri, Kjartan Kári
Friðþjófsson varð í öðru sæti og
Bikarkeppni KRA:
Leikið í dag
KA og Þór leika í bikarkeppni KRA
í dag klukkan 16 og fer leikurinn
fram á Þórsvellinum.
Gunnar Júlíusson í því þriðja.
Kjartan Kárí varð íslandsmeist-
ari í fyrra en honum tókst ekki
að verja titilinn að þessu sinni.
Tveir sterkir spilarar sem liklegir
þóttu til að leika til úrslita voru
slegnir út áður en þeir komust
svo langt. Jón Örn Sigurðsson
tapaði fyrir Gunnarí Júlíussyni 4:2
og Jónas P. Erlendsson tapaði
einnig 4:2 fyrir Viðari Viðarssyni.
Mót þetta, sem bar nafnið Hl-C
íslandsmót, fór hið besta fram
og stóð í nokkra daga en úrslita-
leikirnir fóru fram á laugardaginn.
Þeir komu þó meira inn í leikinn
er líða tók á hálfleikinn og bjargaði
Erik Thorstvedt, markvörður, þá
tvívegis meistaralega. Rétt fyrir
hálfleik var Maradona brugðið rétt
utan vítateigs og tók hann sjálfur
spyrnuna, sem fór rétt framhjá.
Seinni hálfleikur byrjaði rólega
eins og sá fyrri og voru Norðmenn
mun atkvæðameiri í sóknarleik sín-
um. Andersen átti tvö skot í upp-
hafi hálfieiksins sem Luis Islas,
markvörður, varði vel. Sundby átti
síðan skot í stöng argentíska
marksins.
Markið kom svo á 82. mínútu.
Fyrirgjöf kom fyrir mark Argentínu-
manna og barst knötturinn síðan
út í teiginn eftir þvögu í vítateign-
um og þar var Osvald og skoraði
með viðstöðulausu þrumuskoti af
20 metra færi í vinstra hornið,
gjörsamlega óverjandi. Eftir mark-
ið sóttu Argentínumenn án afláts
en varð lítið ágengt. Þeir skoruðu
svo mark sem dæmt var af á síð-
ustu mínútu leiksins. Petro Pac-
dusli, varamaður, skoraði þá eftir
frábæra sendingu frá Maradona,
en var réttilega dæmdur rang-
stæður.
Argentínumenn léku þennan
leik ekki sem ein heild heldur var
það einstaklingsframtakið sem
réði ríkjum og gekk ekki upp.
Maradona sýndi takta en datt
niður á milli. Það sem Norðmenn
höfðu framyfir var liðsheildin.
Andersen lék mjög vel fyrir Norð-
menn, sennilega hans besti leikur
á ferlinum. Okland, Osvald og
Soler stóðu sig einnig mjög vel.
Bestur í liði Argentínu var Luis
Islas, markvörður, Batista og
Daniel Passarella.
Á blaðamannafundi eftir leikinn
gátu Argentínumenn varla dulið
vonbrigði sín og Norðmenn voru í
sigurvímu. Sannarlega góður ár-
angur að leggja Argentínumenn
sem undirbúa sig fyrir heimsmeist-
arakeppnina í Mexíkó. Norðmenn
hafa því unnið tvö sterkustu lið
heims á tæpu ári, en þeir unnu
Ítalíu í fyrrahaust 2-1.
Katrín en
ekki Kolbrún
í frásögn Morgunblaðsins af ís-
landsmótinu í borðtennis á
þríðjudaginn misritaðist nafn
Kristínar Harðardóttur, sem
hafnaði í öðru sæti í 1. flokki
kvenna. Katrín var sögð Kolbrún
og er beðist velvirðingar á þess-
um mistökum.
tryggði síðan öruggan sigur með
marki á 28. mínútu.
Les Phillips skoraði sigurmarkið
fyrir Oxford er ein mínúta var til
leiksloka í Oxford. Sigur þeirra var
þó sanngjarn og áttu þeir meðal
annars tvö stangarskot í leiknum.
Oxford heldur mjög líklega sæti
sínu í deildinni með þessum sigri
og Everton missir af titlinum.
Everton hafði til þessa aðeins
tapað einum útileik á þessu keppn-
istímabili. Fjórir leikmenn voru
bókaðir í leiknum, tveir úr hvoru
liði. Peter Reid lék ekki með Ever-
ton vegna veikinda í gær.
Leikmenn West Ham máttu telj-
ast heppnir að ná í öll þrjú stigin
gegn Ipswich. Staðan í hálfleik var
0-0. Kevin Wilson kom Ipswich yfir
í byrjun seinni hálfleiks. Alin Dick-
ens jafnaði metin um miðjan hálf-
leikinn og það var svo ekki fyrr en
5 mínútur voru til leiksloka að
dæmd var vítaspyrna á Ipswich
og þar brást Ray Stewart ekki
bogalistin og skoraði af öryggi úr
sinni 8. vítaspyrnu á keppnistíma-
bilinu. 41.000 áhorfendur voru á
Upton Park í gærkvöldi og sigur-
gleði West Ham-áhangenda mikil.
Celtic sigraði Motherwell með
tveimur mörkum gegn engu í
skosku úrvalsdeildinni í gærkvöldi
og er Celtic nú aðeins tveimur
stigum á eftir Hearts, sem er í
efsta sæti, þegar ein umferð er
eftir. Brian McClair skoraði bæði
mörk Celtic.
BIKARINN SPORTVAL
Skólavörðustíg v/Hlemm
Sími 24520 Sími 26690
Þrumuúrval af
fótboltaskóm
Dæmi:
FH
meistari í
2. flokki
— sigraði ÍR
í úrslitaleik
FH VARÐ í gærkvöldi bikarmeist-
ari í 2. flokki karla í handknattleik
er þeir unnu ÍR með 20 mörkum
gegn 16 í úrslitaleik. Staðan í
hálfleik var 11:8 fyrir ÍR.
ÍR-ingar áttu frumkvæðið í fyrri
hálfleik en FH-ingar sneru dæminu
við í þeim seinni og unnu á reynsl-
unni og markvörður þeirra, Berg-
sveinn Bergsveinsson, varði einnig
mjög vel. Gunnar Beinteinsson var
markahæstur FH-inga með 6 mörk
og Héðinn Gilsson með 5 mörk.
Matthías Matthíasson var marka-
hæstur ÍR-inga með 4 mörk.
UEFA-keppnin:
Stórsigur
Real Madrid
REAL MADRID vann stórsigur á
Köln með fimm mörkum gegn
einu í fyrri leik þessara liða í
Evrópukeppni félagsliða í knatt-
spyrnu í gærkvöldi.
Leikurinn sem fór fram í Madrid
á Spáni var algjör einstefna á
mark Kölnar. 85.000 áhorfendur
sáu leikinn og hvöttu þeir óspart
sína menn.
Mörk Real Madrid gerðu Vald-
ano 2 og Sanches, Gordillo og
Sautillana eitt mark hver. Klaus
Allofs gerði eina mark Kölnar.
Seinni leikurinn fer fram í Vestur-
Þýskalandi.
PROFI grasskór.
Stæröir 6-12
COPA MUNDIAL
gras-/malarskór
Stærðir 6-1016
MANCHESTER
malarskór
Stærðir 6-12
UWE malarskór
Stærðir 28-36.
Veitum knattspyrnu-
félögum verulegan afslátt
ef keypt eru 20 pör
eða fleiri.
Einnig gott úrval af
jogging-skóm.
Bikarínn
Skólavörðustíg Slmi 24520